Morgunblaðið - 09.02.1988, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988
39
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Systrafélag Fíladelfíu
Fyrsti fundur ársins verður hald-
inn i kvöld þriöjudaíj kl. 20.30.
Hittumst kl. 20.00 og spjöllum
saman yfir kaffibolla til kl. 20.30.
Veitingar eftir fundinn eins og
venjulega. Ung kona segir frá.
Líflegur söngur. Rætt verður um
framtiðarstarf systrafélagsins.
Mikilvægt að sem flestar konur
mæti. Allar konur velkomnar.
Nefndin.
Kristniboðsvikan
Hafnarfirði
Kristiniboðssamkomur kl. 20.30 i
húsi KFUM og K, Hverfisgötu 15.
í kvöld:
Ræða: Friörik Hilmarsson.
Myndir: Skúli Svavarsson,
kristniboði.
Söngur: Systkinin Anna og Friðrik.
AD-KFUK
Fundur i kvöld á Amtmannsstig
2b kl. 20.30. Kall-eftirfylgd.
Guðrún Dóra Guðmannsdóttir
og séra Magnús Björnsson sjá
um fundinn. Muniö bænastund-
ina kl. 20.00.
Allar konur velkomnar.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Myndakvöld
- miðvikudaginn 10. febrúar.
Myndakvöldið verður i Risinu,
Hverfisgötu 105, miðvikudaginn
10. febrúar og hefst stundvís-
lega kl. 20.30.
Myndefni: Gérard Delavault sýn-
ir loftmyndir og landslags-
myndir frá eftirtöldum stöðum:
Gígum á Reykjanesskaga, Bers-
erkjahrauni og Hnappadal,
Landmannalaugum, háhita-
svæði Torfajökuls, Suöurjöklum,
Skaftafelli og Öræfajökli. Mynd-
irnar hafa ekki verið sýndar áður.
Eftir hlé verða sýndar myndir frá
síðustu áramótaferð FÍ i Þórs-
mörk. Myndir frá kvöldvökum i
feröinni og útimyndir.
Allir velkomnir, félagar og aðrir.
Veitingar í hléi.
Ferðafélag íslands.
VEGURINN
jy Kristið samfélag
Þarabakka3
i kvöld kl. 20.30. Námskeið um
trú. Luuk Westerhof talar.
Allir velkomnir.
Vegurinn.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Vetrarfagnaður 13.-14.
febrúar:
Félagið efnir til vetrarfagnaðar á
Flúöum helgina 13.-14. febrúar
nk. Gist verður i hlýjum húsum.
Sameiginlegur þorramatur og
kvöldvaka með skemmtiefni sem
félagsmenn leggja til, og að lok-
um verður stiginn dans. Göngu-
ferðir verða fyrir þá sem vilja
bæði laugardag og sunnudag.
Upplýsingar og miðasala á skrif-
stofu félagsins, Öldugötu 3.
Þátttakendur þurfa aö ná i miða
á fagnaðinn fyrir kl. 17 á fimmtu-
dag.
Ferðafélag islands.
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
I
Sumarleiga
Heiðarskóli í Leirársveit í Borgarfirði verður
til leigu í sumar. Svefnpokapláss, sundlaug,
íþróttahús og leikvellir á staðnum. Skólinn
er í 90 km. fjarlægð frá Reykjavík og 20 km.
frá Akranesi.
Upplýsingar veitir formaður skólanefndar í
síma 93-11070 og skólastjóri í síma
93-38920.
nauöungaruppboö
Nauðungaruppboð
Fimmtudaginn 11. febrúar 1988
fara fram nauöungaruppboö á eftirtöldum fasteignum sem auglýstar
voru í 128„ 133. og 137. tbl. Lögbirtingablaðsins 1987, á skrifstofu
embættisins, Aðalgötu 7, Stykkishólmi
Kl. 10.20. Félagsheimilinu Röst, Hellissandi, þingl. eign Neshrepps
utan Ennis og fleiri, eftir kröfu Búnaðarbanka íslands.
Kl. 10.50. Munaðarhóll 17, Hellissandi, þingl. eign Þóris Erlendsson-
ar eftir kröfu veðdeildar Landsbanka islands.
Kl. 11.10. Mb. Sigurvin SH 243, þingl. eign Þorgils Þorgilssonar,
eftir kröfu Þórólfs Kristjáns Beck hrl. og Jóns Ingólfssonar hdl.
Kl. 13.00. Mb. Halldór Jónsson SH 217, þingl. eign Stakkholts hf.,
Ólafsvik, eftir kröfu Tryggingastofnunar ríkisins.
Kl. 13.10. Mb. Jón Jónsson SH 187, þing. eign Stakkholts hf.,
Ólafsvik, eftir kröfu Tryggingastofnunar rikisins.
Kl. 13.20. Ms. Steinunn SH 167, þingl. eign Stakkholts hf. Ólafsvík,
eftir kröfu Tryggingastofnunar ríkisins.
Kl. 13.30. Ms. Matthildur SH 67, þingl. eign Stakkholts hf.,
Ólafsvík, eftir kröfu Tryggingastofnunar rikisins.
Kl. 13.40. Ms. Jökull SH 215, þingl. eign Hróa hf., Ólafsvik, eftir
kröfu Tryggingastofnunar ríkisins.
Kl. 13.50. Ms. Gunnar Bjarnason SH 25, þingl. eign Vararkolls hf.,
Ólafsvík, eftir kröfu Tryggingastofnunar rikisins.
Kl. 14.00. Ms. Garöar II SH 164, þingl. eign Björns og Einars sf.,
Ólafsvík, eftir kröfu Tryggingastofnunar rikisins.
Kl. 14.10. Sæból 35 (íbúð nr. 8), Grundarfiröi, þingl. eign Eyrarsveit-
ar eftir kröfu veðdeildar Landsbanka íslands.
Kl. 14.30. Skólastígur 24, Stykkishólmi, þingl. eign Dóru Guðmunds-
dóttur, eftir kröfum veödeildar Landsbanka Islands og Trygginga-
stofnunar rikisins.
Kl. 14.40. Nestún 6, Stykkishólmi, þingl. eign Þórarinns Jónssonar,
eftir kröfu Landsbanka íslands.
Kl. 14.50. Mb. Orka SH 4, þingl. eign Jóhannesar Ólafssonar og
fleiri, eftir kröfu Þórólfs Kristjáns Beck hrl.
Kl. 15.10. Bíldhóll, Skógarstrandarhreppi, þingl. eign Jóels H. Jóns-
sonar, eftir kröfu veðdeildar Landsbanka fslands.
KL. 15.20. Arnarfell, Breiðuvikurhreppi, þingl. eign Hjörleifs Kristjáns-
sonar og Kristínar Bergsveinsdóttur, eftir kröfu veðdeildar Lands-
banka íslands.
Sýslumaðurinn i Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu.
Bæjarfógetinn i Ólafsvik.
húsnæöi öskast
Vinnupláss óskast
Vill kaupa 20-35 fm. vinnupláss á jarðhæð.
Bílskúr getur komið til greina.
Upplýsingar i síma 35054 eða tilboð sendist
auglýsingadeild Mbl. merkt: „G - 3915“.
Skrifstofuaðstaða
Aðili á sviði ráðgjafar og erlendra samskipta
vill taka á leigu tvö góð skrifstofuherbergi.
Afnot af ritara- og fundaraðstöðu æskileg.
Öllum svarað.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „Skrifstofuaðstaða - 4272“ fyrir
miðvikudagskvöld.
kennsla
útboö
Q! ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir
hönd byggingadeildar óskar eftir tilboðum í
framleiðslu og flutning á gleri.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri á
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000
skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama
stað fimmtudaginn 25. febrúar kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJ AVIKURBORG AR
Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800
Ræsting - Námskeið
Námskeið um stjórnun, skipulagningu og fram-
kvæmd ræstinga á stofnunum og í fyrirtækjum.
Ætlað ræstingastjórum, húsvörðum og um-
sjónarmönnum fasteigna.
Haldið á Iðtæknistofnun íslands dagana
22.-24: feb. nk. kl. 8.30-16.00.
Upplýsingar og innritun í símum 687440
og 687000.
(m
a
FRÆÐSLUMIÐSTOÐ IÐNAÐARINS
og Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins.
Leðursmíði - innritun
Sex vikna námskeið í leðursmíði hefst 15.
febrúar nk. Kennt verður einu sinni í viku fjór-
ar stundir í senn. (Mán. kl. 19.30-22.20).
Helstu grunnatriði leðursmíði verða kennd
og hanna nemendur sjálfir þá hluti sem þeir
vilja, s.s. töskur, belti, smáhluti o.s.frv. Unn-
ið verður með sauðskinn og nautsleður.
Kennari verður María Ragnarsdóttir. Kennslu-
staður: Miðbæjarskóli. Kennslugjald er kr.
3000.- Innritun fer fram í símum 12992 og
14106 kl. 13.00-19.00 þessa viku (til föstu-
dagsins 12. febrúar).
VEGAGERÐIN Utboð-
Norðausturvegur um Hafralónsá
í Þistilfirði
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan-
greint verk.
Lengd vegarkafla 2,0 km, fyllingar 36.000 m3
og burðarlag 7.000 m3.
Verki skal lokið 1. október 1988.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkis-
ins á Akureyri og í Reykjavík (aðalgjaldkera)
frá og með 10. febrúar nk.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14.00 þann 29. febrúar 1988.
Vegamáiastjóri.
Fjárhagsáætlun
Fulltrúaráö sjálfstæölsfélaganna á Akureyri
heldur fund um fjárhagsáætlun bæjarins
og stofnana hans i Kaupangi þriðjudaginn
9. febrúar kl. 20.00. Bæjarfulltrúarnir Berg-
Ijót Rafnar, Björn Jósep Arnviðarson,
Gunnar Ragnars og Sigurður J. Sigurösson
gera grein fyrir gerð fjárhagsáætlanna og
svara fyrirspurnum.