Morgunblaðið - 09.02.1988, Side 42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988
Beitir á leið til Sigflufjarðar með fullfermi af loðnu, um 1.240 tonn.
Ljósin á Siglufirði fyrir stafni.
Björg' dregin í bú
á loðnumiðunum
á Rauða torginu
NÓTAVEIÐISKIPIÐ Beitir frá Neskaupstað eða
Norðfirði er eitt þeirra 46 skipa sem hafa verið á
loðnuveiðum í vetur og fóru blaðamaður og ljós-
myndari Morgunblaðsins einn túr með því í sl. viku
á miðin á svokölluðu Rauða torgi um 70 til 80
sjómílur austur af Gerpi. Beitir er í eigu Síldar-
vinnslunnar hf. á Norðfirði en hún á einnig nóta-
veiðiskipið Börk og togarana Birting, Bjart og
Barða. Beitir fékk um 20 þúsund tonna loðnu-
kvóta, byijaði á loðnuveiðum eftir áramótin og var
búinn að fá imi 6.700 tonn áður en túrinn með
Morgunblaðsmönnum var farinn.
Beitir var með fullfermi af loðnu,
um 1.240 tonn, sem tók 6 klukkutíma
að landa og höfðu blaðamaður og
ljósmyndari því nægan tíma til að
koma sér fyrir og kynna sér aðstæð-
ur. „Þegar þú ert í brúnni er best
fyrir þig að halda þig bakborðsmegin
til þess að þú verðir ekki fyrir kallin-
um,“ sagði Finnur Loftsson, 1. vél-
stjóri, við blaðamann og átti við skip-
stjórann, Siguijón Valdimarsson.
„En hættuminnst er sennilega fyrir
þig að standa aftan við stólinn hans,
þegar hann er ýmist á útkíkkinu eða
að athuga hvort einhveijar lóðning-
ar, þ.e.a.s. loðnutorfur, sjást í físk-
sjánni," bætti Finnur við.
Finnur sagðist hafa verið til sjós
í eitt ár samtals. „Fyrst var ég sjó-
veikur í heila viku og hét því að fara
aldrei aftur á sjóinn," sagði hann. Á
leiðinni niður á dekk sagði Finnur
að vélstjóramir á Beiti væru þtjátíu
daga á sjó og tíu daga í fríi en háset-
amir ættu fjögurra daga frí í hveijum
mánuði og það geti hist þannig á
að þeir eigi ekki frí um helgi.
Dreginn upp úr
lest á hárinu
Sigurjón Valdimarsson skipstjóri á Beiti.
Notin lögð niður.
Þegar 1. vélstjóri og blaðamaður
voru komnir niður á flughált þilfarið
og gengu framhjá 5 metra háum
lestunum fékk sá síðamefndi þær
upplýsingar að skipveiji einn á loðnu-
báti hefði fallið niður í lest fulla af
loðnu en félagi hans náði í hár hans
og dró hann upp á því. Blaðamaður
ákvað, einhverra hluta vegna, að
yfírgefa þilfarið hið snarasta og at-
huga hvort ekki væri til kaffítár í
messanum. Það var líka kalt úti.
„Eins og í viskíglasi fullu af ísmol-
um,“ hefði 2. vélstjóri, Jónas Halldór
Geirsson, Dóri, orðað það.
Dóri er búinn að veiða hvali í 13
sumur og er mikill sagnaþulur. „Eitt
sinn,“ sagði Dóri, „var Ámi Johnsen,
blaðamaður á Morgunblaðinu, stadd-
ur á Reyðarfirði á leið til Norðijarð-
ar. Hann fékk far með Bjarti og bað
um að fá afdrep til að leggja sig um
nóttina, honum væri alveg sama
hvar, í netalestinni þess vegna. Var
hann þá leiddur til hvílu í netalest-
inni en eftir tvo klukkutíma kom
hann skjálfandi af kulda og bað um
að fá að sofa einhvers staðar annars
staðar."
1. stýrimaður, Helgi Geir Valdi-
marsson, bróðir Siguijóns skipstjóra,
sagði að Beitir hefði verið smíðaður
árið 1958 og því næstelsta skipið í
loðnuflotanum. „Aðeins Júpíter er
eldri,“ sagði Helgi. „Beitir hét áður
Þormóður goði og var í eigu Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur. Hann var síðu-
togari og veturinn 1978 til '79 var
honum breytt í nótaveiðiskip í Finn-
landi. Árið 1981 var hann keyptur
„Aksjón“-vaktin í hvíldarstöðu. Talið frá vinstri: Finnur Loftsson
1. vélstjóri, Steinþór Þórðarson (Steini Stellu) háseti, Vilmundur
Tryggvason (Villi) háseti, Sigurbjörn Jónsson háseti og Einar Ár-
mannsson háseti.
Kokkurinn á útkíkkinu.