Morgunblaðið - 09.02.1988, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 09.02.1988, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988 43 Morgunblaðið/Árni Sœberg Ahöfnin á Beiti. Talið frá vinstri: Signrjón Valdimarsson skipstjóri, Jóhann Pétur Gislason yfirvél- stjóri, Armann Hallur Agnarsson háseti, Finnur Loftsson 1. vélstjóri, Víðir Herbertsson háseti, Stein- þór Þórðarson háseti, Jónas Halldór Geirsson 2. vélstjóri, Helgi Valdimarsson 1. stýrimaður, Vilmundur Tryggvason háseti, Sigurbjörn Jónsson háseti, Einar Ármannsson háseti, Sæmundur Sigurjónsson kokk- ur, Sigurður Jóhannesson háseti, Jón Olver Magnússon 2. stýrimaður og Ingvar Freysteinsson háseti. til Sfldarvinnslunnar á Norðfirði og gefíð nafnið Beitir. Árið 1982 var smíðaður á Beiti skutur til þess að hann geti verið á trolli og í fyrra var sett í hann rækjulína. Beitir hefur því verið uppnefndur Breytir," sagði Helgi og kímdi. Klefar fyrir 50 manns í skipinu Yfírvélstjórinn, Jóhann Pétur Gíslason, sýndi blaðamanni gamla teikningu af Beiti frá því að hann var síðutogari. í skipinu voru klefar fyrir fímmtíu manns, lifrarbræðsla, lýsistankar og frystiklefí. Kokkurinn, Sæmundur Siguijónsson, rak trölls- lega ausu framan í blaðamann og sagði: „Svona voru verkfærin þegar fímmtíu menn voru á!“ Sæmundur sagði að skipverjamir á Beiti væru sómapiltar. „Þeir eru rólegir, bæði á sjó og í landi," sagði Sæmundur. „Það er sjaldgæft að við komumst á dansleik á loðnuvertíðinni. Á milli jóla og nýárs eru hins vegar allir í landi og þá er haldin svokölluð Veiði- gleði á Norðfírði. Einn úr hverri skipshöfn er skipaður í nefnd til að sjá um undirbúning fyrir gleðina. Mér fínnast hins vegar þorrablótin á Norðfírði skemmtilegri en þau eru um hveija helgi á þorranum," sagði Sæmundur kokkur. Um miðnættið var búið að landa úr Beiti og haldið á miðin á ný. Um hádegi daginn eftir vorum við stadd- ir um 70 sjómílur austur af Gerpi, á svokölluðu Rauða torgi. Gott var í sjóinn, bjartviðri og hitinn kominn niður undir frostmark. Siguijón skip- stjóri bað mannskapinn að vera kláir- an, því loðnan kom upp á 55 faðma dýpi. Ármann Hallur Agnarsson, háseti, kallaði upp í brúna: „Við vilj- um ekkert blaðamannakast; við vilj- um fá að sjá almennilegt kast!“ Ár- mann sagði að það væri ekki kastað fyrr en loðnan kæmi upp á a.m.k. 50 faðma dýpi. Það gerfi hún hins vegar sjaldan að degi til áður en hún færi að hrygna i febrúar. Beitir á rækjuveiðum eftir loðnuvertíðina Siguijón skipstjóri sagði að Beitir hefði fengið um 22 þúsund tonna loðnukvóta en fyrir þennan túr væri hann búinn að veiða um 6.700 tonn af loðnu. „Það hefur verið mjög góð veiði að undanfömu," sagði Siguijón. „Eftir loðnuvertíðina förum við á rækju en ég veit ekki ennþá hversu stóran rækjukvóta við fáum. Þetta er svo ruglingslegt allt saman," sagði Siguijón sem hefur stundað sjóinn frá fermingu. Loðnan hafði rifíð nætur nokkurra skipa um nóttina og Ármann Hallur sagði að kallamir yrðu að reyna að fá hæfílega mikið í nótina. „Ef þeir eru of gráðugir getur nótin rifnað," sagði Armann Hallur. „Fjögur til sex hundruð tonna köst eru best. Stysti túrinn okkar á þessari vertíð var 23 klukkutíma langur úr höfn í höfn og þá komum við með fullfermi að landi. Sá lengsti var hins vegar fjórir sólar- hringar og þá komum við með tómt skip í höfn, því við lentum í brælu,“ sagði Ármann Hallur. Klukkan 16.20 var loðnan komin upp á 43 faðma dýpi og Siguijön hrópaði: „Látiði baujuna út!“ Hann æddi um brúna og blaðamaður stóð í góðu vari fyrir aftan stólinn, minn- ugur orða 1. vélstjóra. Klukkutíma síðar var búið að snurpa, þ.e.a.s. loka nótinni að neðan, og byijað að dæla loðnunni um borð. Kallinn sagði að sér virtist þetta vera um 300 tonna kast. Við sáum nokkur skip í kring- um Beiti, sum þeirra voru að kasta. Ljósin eru slökkt, þegar kastað er, til þess að loðnan „sökkvi" ekki og menn paufast um með vasaljós í myrkrinu. Þegar búið var að tæma nótina og draga hana inn á ný var fljótlega kastað aftur. Eitthvað af lóðningunni var komið upp fyrir 20 faðma og það lóðaði vel. Háfurinn, sem dregur nótina út, fór ekki strax út en það kom ekki að sök, því loðnan var ekki á mikilli ferð. Klukkan 19.25 var búið að snurpa og ljósin því kveikt á ný. „Það er ábyggilega gott í þessu kasti," sagði Siguijón skipstjóri. „Þetta er stærsta kast sem ég hef séð,“ sagði Dóri 2. vélstjóri. „Þetta eru sjö til átta hundruð tonn,“ sagði Jóhann Pétur yfirvélstjóri. 300.000 kr. háseta- hlutur fyrir janúar Vilmundur Tryggvason háseti sagði að hásetahluturinn eftir jan- úarmánuð yrði um þijú hundruð þús- und krónur. Vilmundur er búinn að vera meira og minna til sjós síðan hann var 13 ára og fínnst loðnuveið- amar yfírleitt frekar einfaldur og þægilegur veiðiskapur, eins og reyndar flestum öðrum í áhöfn Beit- is. Klukkan 21.25 var kastað í niða- myrkri. Siguijón skipstjóri rýndi í asdic-tækið og sagði: „Það eru bútar í þessu.“ Síðan kallaði hann: „Hífa!“ Brátt sást í nótina og Finnur 1. vél- stjóri sagði: „Það er aðeins farið að krauma.“ Kastið var um 150 tonn og Siguijón sagði að það vantaði aðeins um 100 tonn til að fylla skipar ið. „Þetta getur orðið dálftið skrítið. Maður reynir að fá ekki of mikið þegar lítið vantar í lestimar," sagði Siguijón. Sæmundur kokkur sagði að loðnan tæki strikið að Hvalbak og upp að Hrolllaugseyjum og þeir alhörðustu veiddu hana þar á þriðja eða fjórða broti. „Það er fátítt að loðnan hrygni fyrir austan Vestmannaeyjar. Yfír- leitt hrygnir hún í Faxaflóa og Breiðafírði," sagði Sæmundur. Helgi 1. stýrimaður sagði að skipt væri um nót þegar loðnan gengi upp á grunnið. Djúpnótin væri 87 faðmár** en gmnnnótin 50 faðmar. Um mið- nættið kallaði Siguijón: „Klárir!" Og skömmu síðar sagði hann: „Þetta er helvítis bútadrasl eins og áðan!“ Stundarfjórðungi síðar kallaði hann: „Lagó!“ og sjö mínútum síðar var nótin komin út. Það var nógu mikið í þessu kasti til að fylla skipið og klukkán 2.15 var búið að ganga frá öllu á þilfar- inu. Þá voru liðnar um tíu klukku- stundir frá því að fyrst var kastað í þessum túr. í talstöðinni heyrðist að Víkingur hefði fengið rúmlega þús- und tonna kast en vantaði hins veg- ar einungis 400 tonn til að fylla skip- ið. Hákon og Svanur fengu smá- slatta hjá Víkingi en Pétur Jónsson, sem var að koma á miðin, fékk af- ganginn. í talstöðinni var skeggrætt um verðið sem bræðslumar greiddu fyrir tonnið af loðnu: „Tvö þúsund og eitt hundrað á Seyðisfírði, tvöþúsund og fimm hundruð á Þórshöfn og Sigló. Og svo auðvitað bónusgreiðslumar maður! En það voru allar bræðslur orðnar fullar á Austfjörðum og því var ákveðið að landa úr Beiti á Siglu- fírði. Þangað vorum við komnir um miðnætti aðfaranótt fostudags, um_ tveim sólarhringum eftir að Beitir lét úr hööi á Norðfirði. Nýjar vörur frá Espritog Ball < /HOCNS> Ilaugavegi lOll Innréttingarnar einkennast af góöri nútíma- legri hönnun og sígildu útliti sem stenst tímans tönn. Þar sem góðu kaupin gerast. 2 Kópavogi 44444 FALLEGAR OG 'V" Sj IAHA ÍBÚÐINA INNRÉTTINGA- OG HÚSGAGNASÝNING UM HELGINA OPIÐ LAUGARDAG KL 10 - 16 OG SUNNUDAG 14 -17
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.