Morgunblaðið - 09.02.1988, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988
5%
óþrifnaði sem jafnan fylgir slíkum
störfum.
En hjá Jónmundi var þessu á
allt annan veg farið. Verkstæðið
var eins og þrifalegt bankaútibú og
þar gekk eigandinn um skartklædd-
ur rétt eins og hann væri að fara
á ball.
Jónmundur var snyrtimenni sVo
af bar. Hann leit út eins og Clark
heitinn Gable, með fínlegt yfír-
skegg, glæsilegur á velli, hár, tein-
réttur og samsvaraði sér vel. Hann
var einhvemveginn eins og nýr,
„svona beint úr kassanum" eins og
sagt er.
Jónmundur hafði yndi af ferða-
lögum og þá sérstaklega til annarra
landa. Á síðastliðnu ári átti ég þess
kost að fara í nokkurra daga frí til
Lúxemborgar með honum og syni
okkar hjónanna. Þessir dagar eru
mér ógleymanlegir. Jónmundur var
þá hinn sanni heimsmaður sem
naut hvíldarinnar til hlítar. Við
spjölluðum frá morgni til kvölds um
lífið og tilveruna og þá fannst mér
sem ég ætti Jónmund allan og það
var góð tilfinning. Við ákváðum að
endurtaka þessa ferð að vori kom-
anda, en þeirri ferð verður nú að
skjóta á frest til næsta lífs.
Síðasta utanlandsferð Jónmund-
ar var farin til Kanaríeyja í nóvem-
ber síðastliðinum. Þar keypti hann
sér forkunnarfagran gráan leður-
jakka. Ég minnist Jónmundar
klæddan þessum jakka í skóm frá
Lloyds með skartbindi eins og beint
úr nýjasta tískublaði.
Jónmundur Guðmundsson fædd-
ist 2. september 1915 á Akranesi
og var því rösklega 72 ára þegar
hann lést. Hann var sonur hjónanna
Guðmundar Guðmundssonar sjó-
manns, f. 1884, d. 1938 og Kristín-
ar Jónsdóttur frá Heimaskaga,
Akranesi, f. 1881, d. 1966.
Hann lauk prófi í vélstjórn frá
Fiskifélagi íslands 1934 og meira-
prófi í vélstjórn árið 1944.
Hann var vélstjóri á ýmsum fiski-
skipum 1936—1942 og var vélstjóri
hjá SR á Siglufirði 1942-1943 og
hjá Hraðfrystihúsi Heimaskaga
1944.
Hann réðst sem vélstjóri á Fann-
eyju RE 4 og starfaði þar næstu
17 árin en þá stofnsetti hann Diesel-
stillingu Jónmundar.
Hann kvæntist þann 26. febrúar
1937 Aðalheiði Ólafsdóttur, f. 25.
ágúst 1915, dóttur hjónanna Ólafs
Halldórssonar bónda og Jóhönnu
Margrétar Halldórsdóttur.
Jónmundur og Aðalheiður höfðu
verið hamingjusamlega gift í meira
en hálfa öld þegar kallið kom.
Þeim var fjögurra bama auðið,
en þau eru: Jóhanna Kristín skrif-
stofumaður, f. 31. júlí 1937, gift
Hans Ploder fagottleikarra í Sin-
fóníuhljómsveit Islands og eiga þau
5 böm. Guðmundur Kristinn bama-
læknir, f. 24. júlí 1939, kvæntur
Ásdísi Þóru Kolbeinsdóttur hjúkr-
unarfræðingi og eiga þau 4 böm.
Fanný verslunareigandi, fædd 21.
apríl 1945 og á hún 4 böm, og
Þórey Rut, flugfreyja, fædd 22.
desember 1953, gift Jóhanni G.
Eiríkssyni verslunarstjóra og eiga
þau 2 böm.
Með okkur Jónmundi tókst góð
vinátta og kveð ég hann með mikl-
um söknuði. Ég þykist þó viss um
að við verðum nánir ferðafélagar í
næsta lífí. Á meðan mun hann vaka
yfir velferð afkomanda sinna og
ástvina eftir því sem því verður við
komið.
Með bestu þökkum fýrir sam-
fylgdina.
Jóhann G. Eiríksson
rEIKnnévar
u’Anusta Herfis^a
Stöðvar 2
AKBANES:
Aöalrássl.
akubeybþ.
Akurvík
KT.SU™>
bolungabvík.
BnarGuöiinnsson
KauRp^Borgtirðinga
eskífJöbðUB:
Elis Guðnason
GBiNDAVÍK:
Batborg
HELLA:
Niosfell
HÚSAVÍK:
Bókaverlun
p Stetánssonar
Sölva Bagnarssonar
iSAFJÖBÐUB:
pólltnn
KEFLAVÍK:
Stapatell
NESKAUPSTAÐUB:
Nesvideó
S5S5SSS
PB28S5.
SELFOSS:
MM-búðin
seyðisfjöbðub.
Stál
STYKKISHÓLMUB:
Húsið
vestmannaeyjab.
Kiami
E3N55»íí
pOBLÁKSHÖFN:
Bássf.
rEYKJAVÍK:
HeimWstæW n»-
Sætúm 8
Hatnarstræt' ó
Krtngtunnt
StSMiódd
Badióbúsið,
wSssf
Mikligaröursf.
■sÆTÚH..-.691S15H^Br15r
15 ^
KRINGI-UNNI 691620
ÍSCUtUUKQV*0
fl ö! PIONŒŒJ ^EISLASPILARAR R*