Morgunblaðið - 09.02.1988, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRUAR 1988
53
Minning:
Benedikt Jóns-
son frá Aðalbóli
Ég stend til brautar búinn,
mín bæn til þín og trúin
er hjartans huggun mín,
minn veiki vinaskari,
ég veit, þótt burt ég fari,
er, Herra Guð, í hendi þín.
(Matth. Jochumsson)
Nú er langri ævi lokið. Sæl er
hvíld eftir vegferð langa. Benedikt
Jónsson frá Aðalbóli í Miðfirði hefur
endað lífshlaup sitt á nítugasta og
þriðja ári. Þetta var viðburðaríkt
lífshlaup.
Við Benedikt vorum bræðrasynir
og nágrannar í rúm þijátíu ár.
Hann var tuttugu árum eldri en ég
og því hálf fullorðinn maður er ég
man fyrst eftir honum. Það mun
hafa verið sumarið 1920 að haldin
var feiknamikil samkoma á Aðal-
bóli og til skemmtunar var, að
reyndir voru nokkrir hestar á hólm-
anum fyrir neðan túnið. Þar man
ég Benedikt fyrst. Hann sat rauðan
hest, fangreistan, spriklandi af fjöri
með geislandi augu. Hann hét Bóa-
dýr, mjög smár en þó sló hann öllum
hinum hestunum við og var fyrstur
í mark.
Þessi samkoma var ein af mörg-
um sem haldnar voru á Aðalbóli. Á
þeim gleðistundum var spilað, sung-
ið, dansað og glaðværð höfð í önd-
vegi.
Eg minnist þess hve húsbóndinn
gat hlegið dillandi hlátri á þeim
góðu stundum. Benedikt var spila-
maður með ágætum og hygg ég
að það hafi verið færri dagar af
árinu sem ekki var þreifað á spilum
á Aðalbóli, þótt ekki væri það látið
koma niður á heimilisverkunum.
Oft vaf margt um manninn á
þeim bæ, bæði heimamenn og gest-
ir, enda þau hjón, Benedikt og Ól-
öf,, sem látin er fyrir fáum árum,
rómuð fyrir myndarskap og gest-
risni. Það sýnir best hvað þau voru
góðir húsbændur að sama fólkið var
hjá þeim árum saman.
Hestamennska var snar þáttur í
lífi Benedikts. Hann átti mörg hross
og afburða reiðhesta. Sjálfur var
hann harðduglegur ferðamaður,
enda eftirsóttur leiðsögumaður
ferðamanna upp um fjöll og firn-
indi, ratvís og öruggur. Stóðrekstur
stundaði hann í mörg ár og þótti
þar liðtækur sem og í öðru. Eitt
sinn hafði ég tal af einum rekstrar-
manni. Hann sagði Benedikt vera
á við tvo til þrjá menn í þessu
starfi. Seinna fór Benedikt að kaupa
hross til slátrunar og selja til Laug-
arvatnsskóla og víðar og fór þá
jafnan suður Tvídægru. Gaman
þótti frænda að fara í hestakaup
við menn og slapp hann oftast vel
frá því starfi.
Benedikt var litríkur maður, allt-
af eitthvað að gerast þar sem hann
var. Hann var vel lesinn, stálminn-
Blómastofa
Fríöfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
tll kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
ugur og hafði sérstaklega góða frá-
sagnargáfu. Það kom enginn að
tómum kofanum hjá honum er ís-
lendingasögur voru á dagskrá. Ég
var ungur að árum og kunni lítt til
verka við veiðistörf er ég fyrst fór
að fara með nafna mínum og
frænda fram til heiða og stunda
veiðistörf í Amarvatni. En sú iðja
var stunduð um árabil frá fremstu
bæjunum í Austurárdal. Slíkar ferð-
ir voru sem ævintýraheimur fyrir
mig. Þessar ferðir voru farnar
snemma vors eða um leið og menn
héldu að vötn væru orðin íslaus.
Stundum var kuldalegt út að líta á
morgnana, snjóhrafl yfir öllu, allt
frosið sem frosið gat í bátunum,
árar og tollar svellaðir. Svo það var
ekki heiglum hent að halda árunum
á sínum stað, er þær vildu renna
upp úr tollunum. En Benedikt hélt
ró sinni hvemig sem aðstæður vom.
Enda hef ég ekki séð neinn hand-
leika árar af jafn mikilli leikni og
veija bátinn áföllum óg hann.
Já, það er margs að minnast frá
liðnum árum er við kveðjum síðasta
bóndann sem bjó á Aðalbóli í Aust-
urárdal. Ég þakka honum sam-
fylgdina.
Nú'er dalurinn okkar kominn í
eyði. Ekki sést framar ijúka á bæj-
unum, enginn á ferð. Állt er autt
og hljótt nema áin sem líður eftir
dalnum og bíður þess að laxinn
streymi eftir henni inn til heiða.
Við vottum sonum hans og fjöl-
skyldum þeirra samúð.
„Sofðu vært hinn síðsta blund,
uns hinn dýri dagur ljómar,
Drottins lúður þegar hljómar
hina miklu morgunstund."
(V. Briem)
Benedikt og Ólöf frá
Bjargarstöðum.
SVAR
MITT
eftir Billy Graham
Tíminn er dýrmætur
Eg verð að viðurkenna að ég er víst orðin þræl-
bundin við framhaldsþættina í sjónvarpinu. Eg veit
að eg eyði of löngum tíma til að horfá á þá, en eg
er eins og límd við stólinn og get alls ekki slitið
mig frá þeim. Er þetta þó ekki skaðlaust?
Mig grunar að þú vitir svarið við spurningum þínum því að það
er sektartónn í bréfi þínu. Þér finnst þú ættir að nota tímann betur.
Já, eg held að þú ættir að hugleiða á ný hvernig þú notar tímann.
Fyrir þessu eru að minnsta kosti tvenn rök. Mér þykir ekki ólík-
legt að þú eyðir svo löngum tíma við sjónvarpið — eg álykta af.orðum
þínum — að þú vanrækir eitt og annað sem þér ber að gera. Tíminn
er ákaflega dýrmætur. Mínúta sem fer í súginn er glötuð um aldur
og ævi. „Notið hveija stundina,“ segir Biblían (Kól. 4,5). Já, við
megum vissulega njóta hvfldar og hressingar.
En Guð hefur líka lagt skyldur okkur á herðar, í fjölskyldunni, á
vinnustað o.s.frv.
í öðru lagi þarftu að spyija sjálfa þig hvort þú getir ekki notað
tímann á gagnlegri hátt, þér til hagsbóta, og jafnvel hvort þú sért
ekki að skaða sjálfa þig með þessari sjónvarpssetu. (Þannig ættum
við að spyija um allt sem heltekur okkur og þá á eg ekki frekar við
það að horfa á sjónvarpsþætti en hvað annað sem við gerum.)
í Biblíunni er grundvallarregla sem við skyldum miða hugsanir
okkar og athafnir við:
„Allt sem er satt, allt sem er göfugt, rétt og hreint, allt sem er
elskuvert og gott afspurnar, hugfestið það“ (Fil. 4,8). Ef þetta væri
ævinlega mælistikan er eg hræddur um að margt sem við gerum
okkur til gamans og upplyftingar og þar með talið ýmislegt í fjöl-
miðlunum nú á dögum — fengi lága einkunn.
Eg hef verið að hvetja þig til að hlaupa ekki frá skyldunum. En hér
á eg líka við skylduna í andlegum efnum. Hefur þú nokkum tíma
hugsað í alvöru um afstöðu þína til Guðs? Notarðu daglega tíma til
að biðja og lesa í Biblíunni, þannig að þú reynir að læra æ meira
um vilja Guðs um líf þitt?
Hafir þú aldrei gert það skaltu helga líf þitt Kristi og leitast við
að fylgja honum á hveijum degi og dragast sífellt nær honum.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu samúð og
virðingu við andlát
SIGURÐAR E. ÓLASONAR HRL.
Unnur Kolbeinsdóttir,
börn og tengdabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð við fráfali og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
VILBORGAR WIGELUND.
Erla Wigelund, Kristján Kristjánsson,
Svala Wigelund, Steinþór Steingrímsson,
Hrefna Wigelund Steinþórsdóttir, Þorsteinn Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
LOKAÐ
í dag þriðjudag frá kl. 13.00-16.00 vegna jarðarfarar
JÓNMUNDAR GUÐMUNDSSONAR.
Verslunin Fanný.
Laugavegi 87.
t
Faðir okkar,
JÓN SÆMUNDSSON
verslunarmaður,
Hátúni 4, Reykjavik,
áður hreppstjóri á Hólmavik,
sem andaöist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð mánudaginn 1.
febrúar, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 10.
febrúar kl. 1 3.30.
Blóm og kransar afþökkuð en þeir sem vilja minnast hans eru
beðnir. að láta Sjálfsbjargarfélögin njóta þess.
Ragnar Sk. Jónsson,
Theodór A. Jónsson.
t
Otför
BJARNHEIÐAR SIGURRÍNSDÓTTUR,
Skipholti 32,
fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík i dag, þriðjudaginn 9. febrúar,
kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast
hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Páll Sveinsson,
Steinunn Pálsdóttir, Sturla Már Jónsson,
Ásta Ólafsdóttir, Guðni Þ. Valdimarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar,
GUÐJÓN BENEDIKTSSON
vélstjóri,
áður til heimilis f Gunnarssundi 7,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þann 5. febrúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Börnin.
t
Útför sonar okkar,
ÞORSTEINS,
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 10; febrúar kl. 15.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er
bent á hjálpar- og björgunarsveitir.
Sesselja Þórðardóttir,
ívar Þorsteinsson.
t
Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður
og afa,
HRAFNS JÓNSSONAR
forstjóra,
Vaðlaseli 2, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar 4A, Borgarspítalan-
um fyrir frábæra umönnun og aðstoð.
Erla Höskuldsdóttir.
Valdimar Hrafnsson, Ásdís Þórðardóttir,
Ólöf Hrefna Hrafnsdóttir,
Hrafnhildur Hrafnsdóttir, Trausti Tómasson,
Guðbjörg Hrafnsdóttir, Bragi Blumenstein,
Sveinn Þór Hrafnsson, Bryndís Jóhannsdóttir,
Daniel C. Gribb, Jóhanna Jónasdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vináttu við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
LOVISU HALLDÓRSDÓTTUR,
Bergstaðastræti 71,
Reykjavik.
Hrafnhildur Þórðardóttir,
Hjördfs Þórðardóttir,
Andrea Þórðardóttir,
Hjörleifur Þórðarson,
Ásdís Þórðardóttir,
barnabörn og
Lárus Hallbjörnsson,
Guðmundur Karlsson,
ísleifur Bergsteinsson,
Jensína Magnúsdóttir,
Valdimar Hrafnsson,
barnabarnabörn.
Legsteinar
MARGAR GERÐIR
Mamom/Granít
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður