Morgunblaðið - 13.02.1988, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 13.02.1988, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1988 17 Þvílíkur Jón í Hvammi Það er ótrúlega leiðinlegt að bíða á bið- stofu hjá læknum, jafnvei þó staflar af lúnum glansblöðum á íslensku og dönsku séu til boðs, full af lífsreynslusögum. Ég var að blaða mig í gegnum það þriðja án þess að finna nokkuð áhugavert þegar tvær konur komu inn í biðstofuna og settust andspænis mér. Önnur var í blárri kápu, hin pelsklædd. Þeirri pelsklæddu var mjög erfitt um gang og dæsti mikið þegar hún var sest. — Nei, það er sko ekkert hlaupið að því að komast í klúbb á íslandi, sagði hún. — Annað gæti maður haldið með alla þá klúbba! svaraði Blákápa og fýldi grön. — Flestir eru bara fýrir karlmenn. — Erekki verið.aðopnaþáfyrirkonum? — Jú að vísu. En hann Sigurbergur minn vill ekki ganga í klúbb. Það útilokar mig frá svo mörgum. Svo er líka annað. - Hvað þá? — Maður þarf að vera eitthvað sérstakt. — Vera eitthvað sérstakt? Það eru eng- ir tveir eins. — Pelsklædda konan leit á vinkonu sína eins og hún væri að virða fyrir sér ómálga barn. — Þú þarft að vera í starfsgrein sem engin í klúbbnum er í. — Starfsgrein? — Ég ætlaði aldrei að komast inn af því að ég er ritari. Það er svo mikið af þeim. — Já, það get ég ímyndað mér. — Það gekk um síðir. En eins og ég sagði þá var það ekkert áhlaupaverk. — Það hefur þó aldrei verið erfiðara en þegar við gengum í stúkuna forðum og alls konar kapellánar sátu í kringum okkur og börðu hömrum í borð til skiptis. Og í hvert skipti hrökk ég við eins og ég hefði verið barin í bakið, segir Blákápa og hlær svo að tanngarðurinn berst frá eyra til eyra. — Jú, vina mín, það var erfiðara. Ég er enn með verki í löppunum, segir sú pelsklædda og strýkur á sér kálfana. — Löppunum! Var þetta fimleikaklúb- bur? — Öðru nær en jafn erfitt fyrir því. Það byijaði með því að ég lagði inn gott orð hér og þar svo lítið bar á. Og loksins kom til mín kona sem hafði verið falið að bjóða mér í klúbb. Ég sagðist þurfa að hugsa mig um, svona til málamynda. Það er óþarfí að láta þessar kerlingar halda að maður hafi veri að bíða eftir því alla ævina að komast í klúbb. Þegar hún hafði sam- band við mig aftur sagði ég henni að ég ætlaði að þiggja boðið. Hún tjáði mér að næsti fundur væri á þriðjudaginn klukkan sex upp í Húsi versl- unarinnar. Þetta er nefnilega almennilegur klúbbur þar sem er farið út að 'borða, ekki staðið í tertusamkeppni í heimahúsum. — Vel á minnst. Ég er nýbúin að fá svo góða uppskrift sem ég ætlaði að gefa þér, segir Blákápa. En hin lætur ekki slá sig út af laginu. — Ég spurði hana hvort hún ætti við staðinn þarna uppi. Ég lenti nefnilega einu sinni í svo dýrðlegri veislu uppi á íjórtándu hæð. Hún samsinnti og sagði að þetta væri þarna uppfrá. —Það eru naumast flottheit, segir Blá- kápa. — Þriðjudagseftirmiðdagurinn fór í undirbúning. Mér finnst svo erfitt að vita hvemig ég á að vera klædd þegar ég er að fyra í fyrsta sinn. Þú veist, að vera nógú fín en ekki eins og jólatré. Eg mátaði öll fötin mín en fannst ekk- ert passa alveg. Þá skrapp ég yfir til Jónu í næsta húsi og fékk lánaða peysu sem hún var nýbúin að kaupa sér. Hún var dálítið þykk og heit en mjög elegant og eins og sniðin við leðurpilsið mitt. Ég lét það eftir mér að fara í blástur hjá hárgreiðsludömunni á horninu. Svo tók ég góðan tíma að snyrta mig. — yesenið alla tíð, tautar Blákápa. — Ég var svo lengi að hafa mig til að klukkan var orðin rúmlega sex þegar ég kom upp í Hús verslunarinnar. Eg var dálítið á tauginni yfir að vera of sein á fyrsta fundinn. — Nokrar mínítur til eða frá skipta nú varla máli, segir Blákápa. — Kannski ekki, en ég vissi ekki nema þetta væri eins og í stúkunni og þær væm famar að bíða með hamrana, svarar hin. — auk þess vissi ég ekki hvernig ég átti að komast upp. — Það hlýtur að vera lyfta. — Það var það sem stúlkan í veitinga- salnum niðri sagði. Hún sagði mér að fara inn um næstu dyr og taka lyftuna. Ég bmnaði þangað og var svo heppin að lyft- an var einmitt að koma niður. Ég hentist inn í hana og var næstum búin að hlaupa um koll manntötur sem var á leiðinni út. Ég studdi á takka 13 en maðurinn staldr- aði við og sagði að þetta þýddi ekki. Þessi lyfta færi ekki neitt það væm allir famir og búið að læsa henni. Karlremba, hugsaði ég og svaraði að hún hlyti að fara upp því ég þyrfti að komast á fund á fjórtándu hæð. Maðurinn sagði að þetta væri einhver misskilningur og kom aftur inn í lyftuna til mín. Því flökraði aðeins að mér hvort hann ætlaði að fara að reyna við mig, enda leit ég býsna vel út með hárið svona nýblásið. —Reyna við þig um hábjartan dag, taut- ar Blákápa. — Þetta var í skammdeginu, mann- eskja. Jæja, ég ýtti fastar á takkann en lyftan haggaðist ekki. Maðurinn sagði að þetta væri ekki til neins. Ég skyldi prófa lyftuna á fyrstu hæð. Eftir æma fyrirhöfn fann ég lyftuna á fyrstu hæð. En það var sama hvemig ég þjösnaðist á takkanum, hún fór ekki af stað heldur. — Þessar lyftur em gallagripir, segir Blákápa. —Ég var ekki á því að gefast upp. Ég skyldi komast upp á fjórtándu hæð. Ég gekk út úr lyftunni og leit í kringum mig. Þá sá ég stigann. — Ætlarðu að segja mér að þú hafir labbað stigana upp á fjórtándu hæð? Aug- un í Blákápu víkka. Ég ætlaði mér í þennan klúbb hvað sem það kostaði. Ég kyngdi þrisvar og lagði af stað. Þetta var þröngur hvítur steinstigi. Hann liðaðist hæð af hæð í óend- anlegu tilbreytingarleysi. Þegar ég var komin á fjórðu hæð fannst mér ég vera stödd á geðsjúkrahúsi. Allt hvítt og kalt og _svo róandi að ég varð 'oróleg. Á sjöttu hæð staldraði ég við og hu- gleiddi alvarlega hvort ég ætti að hætta við allt saman. Ég var orðin kófsveitt og hárið farið að síga. Peysan hennar Jónu í næsta húsi var að drepa mig úr hita. Ég hefði náttúrlega bara átt að fara í ljósu blússunni minni. — Og hvað, spyr Blákápa. — Hættirðu. við? — Ég hélt áfram upp á áttundu hæð, segir konan í pelsinum og verður þung- búin á svip. — Áttundu hæð, hvers vegna ekki lengra? — Þar endaði stiginn. — Endaði stiginn? — Já, hann bara endaði. Þrír hvítir veggir, læstar dyr, allt búið skemmtilegt eins og börnin segja. — Hvað í ósköpunum gerðirðu? — Gerði! Labbaði til baka niður þessar átta hæðir. Klukkan rúmlega hálfsjö kom ég aftur til byggða. Ég fann snyrtingu og þvoði framan úr mér málninguna. Þetta var hvort sem er allt mnnið í graut. — Ég er nú svo yfir mig hlessa, stynur Blákápa. — Og ég hefði getað sparað mér þennan sjo hundmð kall sem fór í að blása hárið. — Þvílíkur Jón í Hvammi, segir Blá- kápa. - Svo fór ég inn í veitingasalinn og uppgötvaði lítinn sal bakatil. Þar vom þær. — Með hamrana? spyr Blákápa spennt. — Nei, með púrtvín og sjerrí. — Ég trúi þú hafir fengið þér einn létt- an. — Tvo tvöfalda. Ég var tekin í klúbbinn og þetta varð fínt kvöld. En eins og ég sagði. Það var ekki hlaupið að því. Ég ætla að athuga hvort hann Einar á ekki eitthvað handa mér við þessari stífni í kálfanum. Ég er alltaf að fá sinadrátt, segir hinn pelsklæddi klúbbfélagi og rís á fætur því nú var röðin komin að henni. Ég horfði á eftir henni þar sem hún staulaðist inn ganginn eins og spýtukerling og velti því fyrir mér hvað þeir væm eigin- lega að gera með lífsreynslusögur í lúnum glansblöðum á svona stað. Og svo mikið veit ég nú að það er ekki hlaupið að því að komast í klúbb á íslandi. IÐUNN STEINSDÓTTIR . í tiiefni af opnun söluumboðs á Suðurnesjum fyrir Bílvang sf. höldum við veglega bílasýningu laugardag og sunnudag hjá Bílabragganum, Bakkastíg 14, Njarðvíkum, frákl. 13-17 j mmr/ ^ BíLVANGUR sf HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 BÍLABRAGGINN Bakkastíg14 Njarðvíkum S. 92-14418
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.