Morgunblaðið - 13.02.1988, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FÉBRÚAR 1988
23
________________________ihkEgíM mífí
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 424. þáttur
Mynd/Norðurmynd
Akureyrarmeistarar í brids 1988
Sveit Kristjáns Guðrjónssonar varð nýlega Akureyrarmeistari í sveita-
keppni 1988. Aftari röð frá vinstri: Hilmar Jakobsson og Jón Sverris-
son. Fremri röð: Dísa Pétursdóttir, Kristján Guðjónsson og Soffía Guð-
mundsson.
Arnór Ragnarsson
Evrópumót yngri spilara
í Búlgaríu
Bridssamband íslands hefur hug
á að senda sveit á Evrópumót yngri
spilara í bridge sem haldið verður
dagana 5. ágúst til 13. ágúst 1988
í Búlgaríu. Aldursmörk eru þau að
spilarar séu fæddir eftir 1. janúar
1963.
Auglýst er eftir umsóknum til
þátttöku í forkeppni eða forvali um
skipan landsliðs.
I umsókn komi fram: 1. Nöfn
spilara. 2. Heimilisfang. 3. Sími.
4. Fæðingard. og ár.
Umsóknum sé komið á skrifstofu
Bridssambands íslands, sendar í
pósti eða hringdar inn (91-
689360). Umsóknir skulu hafa bor-
ist fyrir 20. febrúar 1988.
(Frá Bridssambandi íslands.)
íslandsmót kvenna og
yngri spilara
Bridssambandið minnir á skrán-
inguna í íslandsmót kvenna og
yngri spilara í sveitakeppni, sem
spilað verður í Sigtúni 9, helgina
20.—21. febrúar. Skráð er á skrif-
stofu BSÍ.
Opna stórmótið
á Laugarvatni
Skráning í Opna tvímennings-
stórmótið sem spilað verður í
Menntaskólanum á Laugarvatni
laugardaginn 5. mars hefur farið
mjög vel af stað. Aðeins er skráð
á skrifstofu Bridssambandsins.
Spilaður verður barómeter og lokað
á 32—34 pör. Mjög góð verðlaun
og silfurstig.
Bridsfélag Akureyrar
Eftir fyrsta kvöldið í Akureyrar-
mótinu í tvímenningi (þátttaka 28
pör) er staða efstu para þessi:
Magnús Aðalbjömsson —
Gunnlaugur Guðmundsson 71
Guðmundur Víðir Gunnlaugsson —
Stefán Vilhjálmsson Ámi Arason — 63
Tómas Karlsson Haukur Jónsson — 45
Pétur Jósefsson Haukur Harðarson — 45
Kristján Guðjónsson Grettir Frímannsson — 30
Stefán Ragnarsson Ámi Bjamason — 29
Kristinn Kristinsson Ragnar Gunnarsson — 27
Sigfús Hreiðarsson 27
Skráning í Opna stórmótið, sem
spilað verður á Akureyri helgina
19.—20. mars nk., er hafín. Skráð
er hjá BSÍ í Reykjavík og stjóm
BA. Stefnt er að 50 para barómeter-
keppni með afar háum peningaverð-
launum. Nánar síðar.
Undanrásir íslands-
mótsins á Vestfjörðum
9 sveitir tóku þátt í úrtökumóti
Vestfjarða fýrir íslandsmótið í
sveitakeppni. Spilað var á Tálkna-
fírði. Svæðið á rétt á tveimur sveit-
um til íslandsmóts. Sigurvegari
varð sveit Ævars Jónassonar frá
Tálknafirði. Með honum spiluðu:
Jón H. Gíslason, Brynjar Olgeirs-
son, Egill Sigurðsson, Bjöm Sveins-
son og Steinberg Ríkarðsson.
í öðru sæti varð sveit Halldörs
Tryggvasonar frá Þingeyri, en með
honum spiluðu: Máni Laxdal, Frið-
geir Magnússon og Gunnar Jóhann-
esson.
Röð efstu sveita:
Ævar Jónasson Tálknafírði 180
Halldór Tryggvason Þingeyri 168
Þorsteinn Geirsson ísafirði 153
Kristján Haraldsson ísafirði 152
Jóhannes Bjamason Þingeyri 133
Bridssamband
Vesturlands
Sunnudaginn 7. febrúar sl. spil-
uðu §órar sveitir af Vesturlandi til
úrslita um Vesturlandsmeistaratit-
ilinn í sveitakeppni í brids. Sveit
Alfreðs Viktorssonar, Akranesi,
varð hlutskörpust með 54 stig. Með
Alfreð í sveitinni vom Gunnar M.
Gunnarsson, Jón Alfreðsson, Karl
Alfreðsson og Þórður Elíasson.
Röð sveitanna varð þessi:
Alfreð Viktorsson 54
Hörður Pálsson 48
Sjóvá 45
Ragnar Haraldsson 33
Ríkan áhuga hafa málvísir
menn á því, að verða við þeirri
kröfu sem Tómas Sæmundsson
setti fram í inngangi Fjölnis
1835 (sjá síðasta þátt). Tómas
sagði meðal annars: „Þar sem
nýjar hugmyndir koma fram og
þörf er á nýjum orðum, ríður á
að þau séu auðskilin og málinu
sem eðlilegust.“ Áhugi manna á
þessu sviði hefur birst afar skýrt
í mörgum bréfum til umsjónar-
manns þessa þáttar, og nú und-
anfarið einkum í tillögum um
orð sem komið gæti í staðinn
fyrir útlendu orðin robot eða
róbóti. Ekki myndi Tómasi
Sæmundssyni hafa þótt þau
máli voru eðlileg. Enn berast
mér góð bréf og skemmtilegar
tillögur til úrbóta. Fyrst er hér
bréf frá Páli Bergþórssyni í
Reylgavík (höfundi orðsins
eyðni):
„Robot = robbi.
Robbi er gamalt íslenskt orð
og sýnist að mörgu leyti heppi-
legt til að tákna það fyrirbæri,
sem- sumir hafa kallað vél-
menni, en gengur undir nafninu
robot á erlendum málum.
Þessi robbi er iðulega fyrir-
ferðarmikið tæki, sem lætur
nokkuð yfír sér, fyllir jafnvel
heil hús, en á íslensku hafa stór-
skomir og grobbnir menn stund-
um verið kallaðir robbar.
Robbinn er nytsamlegur og
þægur eins og sauðskepna, en
sumstaðar hefur tíðkast að hafa
þetta orð um sauði og hrúta.
Varla gegnir robbinn starfí
sínu hljóðalaust, og oft mun
heyrast í honum murrandi hljóð
líkt og í ropandi ijúpukarra, en
til er að þeir hafí verið kallaðir
robbar. Það er líka kostur að
robbi er alíslenskt orð og lýtur
lögmálum tungunnar, en ekki
sakar það heldur, að hljóðlíking-
in við útlenda orðið robot er
greinileg.
Enda þótt orðið robbi verði
tekið til þessa brúks, er engin
þörf á að leggja það niður í
gömlu merkingunum: sauður,
grobbinri, beljaki eða ijúpukarri.
Þvert á móti verður sú notkun
orðsins jafnvel ennþá hnyttnari
en áður, vegna líkingarinnar við
sauðheimska, ropandi ruminn í
verksmiðjunum: robbann.“
★
Hér lauk fyrri þætti í bréfí
Páls Bergþórssonar, og getur
umsjónarmaður ekki stillt sig
um að hrósa þessum skemmti-
legu röksemdum. En Páll hefur
ekki alveg lokið máli sínu, og
hefst nú síðari hluti bréfs hans:
„„í blöðum og vörpum", segir
þú í þætti þínum 30. janúar og
átt greinilega við útvarp og sjón-
varp með orðinu vörp. Þetta líst
mér ágætlega á. Mér hefur þótt
heldur fordildarlegt að tala um
ljósvakamiðla eða ljósvakafjöl-
miðla í merkingunni útvarp og
sjónvarp. Raunar lýsir það líka
vanþekkingu á eðlisfræði, því
að nú heldur því enginn lengur
fram, að rafsegulbylgjur útvarps
og sjónvarps berist í ljósvaka
(eter). Það orð bjó Jónas Hall-
grímsson til, og segir um það í
þýðingu sinni á stjömufræði
Ursins [stafsetningu haldið]:
„ . -. higgja menn að ljósvaki
fílli allan himingeíminn, og segja
ljósið kvikni bar við hristínginn,
að sínu leíti eins og hljóðið
kviknar, við hristíngu jarðlopts
vors.“
Síðan hafa merkilegar til-
raunir sýnt, að þessi tilgáta er
ékki aðeins óþörf til að skýra
hvemig ljósið berst, heldur er
hún beinlínis ósennileg, enda
segir Ursin í stjömufræði sinni,
að þetta sé vafamál. Talið um
öldur ljósvakans lýsir því annað-
hvort vanþekkingu, eða þá að
það er sprottið af háði, sem á
ekkert erindi í þessa umræðu.
Það er heldur engin einföldun
eða hægðarauki að nota orð, sem
er samsett úr þremur eða fjórum
stofnum: ljós-vaka-fjöl-miðill,
síst þegar engin skynsamleg
hugsun býr á bakvið."
★
Umsjónarmaður kveður Pál
Bergþórsson með þökkum og
hleypir að næsta bréfritara,
Reyni Eyjólfssyni í Mosfellsbæ.
Hann segir:
„Korridu sæll, Gísli.
Eg les oft þættina þína um
íslenskt mál í Mbl. og hef gaman
af. Mig langar að leggja orð í
belg um róbótana.
Mér líst ekki vel á að kalla
þessi tól róbóta, orðið fellur illa
að íslensku og er auk þess langt.
Þá væri illskárra að tala um
róba (nf. et. róbi, beygist eins
og púki).
Mér hefur annars dottið í hug
orðið vélmi, sem er nk. stytting
á orðinu vélmenni. Þetta er
kk.-orð, beygist í et. [... eins
og pálmi, flt. vélmar...].
Dæmi um samsetningar: ind-
ustrial robot = iðnaðarvélmi.
Robotics - vélmafræði.
Dæmi um setningar: „Þetta
verk hentar best að gera með
vélma: . .. Vélminn okkar verð-
ur ekki lengi að sjá fyrir þessu.“
Það væri fróðlegt að heyra
álit þitt.
Með bestu kveðjum."
Ég þakka Reyni þetta góða
bréf, og vandast nú málið. Við
fyrstu sýn og ímyndaðan hljóm
er ég ekki hrifínn af „vélman-
um“. Mér þykir hins vegar sem
fyrri uppástunga Reynis fari
nærri tillögu Páls Bergþórsson-
ar. En nú er orðið úr miklu að
moða. Nú þarf með bestu manna
yfírsýn að koma sér saman um
gott orð um vélmennið. Og síðan
þarf markvissa viðleitni til að
festa orðið við sífellda notkun.
Nýjustu uppástungumar eru
forkur, robbi, róbi og vélmi.
Hvað fínnst ykkur? Ég tek feg-
ins hendi við svari.
★
Salómon sunnan sendir svo-
fellt fréttabréf:
Hér er uppfullt af íbúum heppnum
og alstaðar bruggað í hreppnum;
öl, kaffi og mjólk
fer ofan í fólk,
en blávatnið berum við skepnum.
POST- OG SIMSTOÐVA A HOFUÐBORGARSVÆÐIIVU
Frá og með 16. febrúar 1988 breytist afgreiðslutími póst- og símstöðva á höfuð-
borgarsvæðinu. Opiðverðurfrákl. 8.30-16.30 mánudaga, þríðjudaga, miðviku-
daga og föstudaga og frá kl. 8.30-18. OO fimmtudaga.
R- 1 Pósthússtræti 5 Póst- og símstöðin Kópavogi
R-4 Kleppsvegi 152 Póst- og símstöðin Garðabæ
R-5 Rauðarárstíg 27 Póst- og símstöðin Hafnarfirði
R-7 Neshaga 16 Póst- og símstöðin Seltjarnarnesi
R-8 Ármúla 25 Póst- og símstöðin Mosfellsbæ
R-9 Arnarbakka 2 i _ 1 !
R- W Hraunbæ 102c
R-11 Lóuhólum 2-6
PÚBtútíbúMR-3, Kringlunni, nropiö mánudaga tíifústudaga frá kl. 8.30-18.00.
- - ----"1-6, Umfor&ai ------ “
.
Umdæmisstjóri