Morgunblaðið - 13.02.1988, Síða 24

Morgunblaðið - 13.02.1988, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1988 Fuglavemdarfélag Islands: FRÓÐLEGUR FUNDUR UM REYKJAVÍKURTJÖRN eftir Sverri Þórðarson Nokkru fyrir jólin hélt Fugla- verndarfélag íslands fræðslufund í Norræna húsinu. Voru þar fluttir tveir fyrirlestrar um Tjömina og fuglalífið. Þeir sem þar töluðu voru Ólafur Karl Nielsen líffræðingur og Jóhann Óli Hilmarsson sem um nokkurt skeið var eftirlitsmaður með Reykjavíkurtjöm. Miðluðu þeir fundarmönnum ótrúlega miklum fróðleik þessa kvöldstund um þenn- an gimstein höfuðborgarinnar, Reykjavíkurtjöm. Þessi fræðslufundur hófst með því að fundarmönnum var sagt frá sjálfri Reykjavíkurtjöm. Elstu heimildir herma að forðum hafi hún verið talin fullir 12 hektarar að stærð. Það var í þá daga er Skot- húsvegurinn hafði ekki verið lagð- ur. Hann skipti 'Ijöminni þannig að upp frá því hefur verið talað um aðal tjamarsvæðið sem Norður- Ijömina og Syðri-Tjömina sunnan Skothúsvegar, í sjálfum Hljóm- skálagarðinum. Norður-Tjömin hafði náð langleiðina að Alþingis- húsinu og Dómkirkjunni. Nú er 'Ijömin, þ.e.a.s. þetta svæði sem hér hefur verið lýst, talin ná yfir um 9 hektara alls. En vatnasvæði Tjamarinnar er stærra. Sunnan Hljómskálagarðsins og Hringbraut- arinnar em tvær tjamir sem til- heyra vatnasvæði Tjamarinnar. Er önnur þeirra Vatnsmýrartjöm, en hin Hústjöm. Svo nefnist tjömin litla við Norræna húsið. Fyrirlesaramir gerðu fundar- mönnum mjög glögga grein fyrir fuglalífi Tjamarinnar og sögðu frá hinum Qölmörgu fuglategundum sem telja verður með fasta búsetu þar. Nefndu þeir jafnvel tölur yfir iQölda einstaklinga af hinum ýmsu fuglategundum. Einnig greindu þeir frá því að álitlegur hópur flækings- fugla hefur árvissa viðkomu á Tjöminni og er þar lengur eða skemur. Sýndar vom myndir og kort sem sýndu sveiflur í fjölda ein- stakra fuglategunda m.m. Var auð- heyrt að fuglafræðingar og aðrir fræðimenn sem láta sig skipta fuglalífið á Tjöminni, hafa viðað að sér miklum og gagnlegum fróð- leik um þennan þátt lífríkisins. Á sumrin skipta fuglamir á Tjöminni hundmðum. En þeir ræddu líka um umhverfi Reykjavíkurtjamar frá sjónarmiði fuglanna, það er að segja framtíðar- horfumar fyrir fuglalífið á Reykjavíkurtjöm. Þar skiptir að sjálfsögðu höfuðmáli vatnsbúskap- ur Tjamarinnar. Varðandi hann þarf margt að athuga gaumgæfi- lega. Eins og horfir þarf að fara varlega. Skurður sem liggur sunnan úr Vatnsmýrinni norður eftir mýr- inni, og undir Hringbrautina í Suð- ur-Tjömina flytur allt vatnið í Ijömina. Uppi em ráðagerðir um að sunnan Hringbrautarinnar rísi hús og byggingar, jafnvel stórbygg- ingar. Er að sjálfsögðu óhjákvæmi- legt að gera nauðsjmlegar ráðstaf- anir tímanlega til þess að þessi skurður skili áfram sínu hlutverki sem lífæð Reykjavíkurtjamar, eða að tímanlega verði leitað þeirra ráða sem duga til að tryggja vatns- búskap Tjamarinnar, verði ekki hjá því komist að valda röskun sem jrrði til þess að þessi skurður í Vatnsmýrinni tepptist. Fuglafræðingar og þeir sérfræð- ingar sem gjörst vita um fuglalífið við 'Ijömina telja að suður í Vatns- mýrinni sé um að ræða alls um 50 hektara lands. — Fyrir all nokkmm ámm hafði einhver nefnd á vegum Reykjavíkurborgar fengið tillögu þess efnis að innan þessa svæðis yrði afgirt og friðuð rneð öllu svo sem 5 hektara spilda. Á því svæði er varpland fuglanna yið Tjömina, ekki aðeins andanna heldur og mófugla. Því skal skotið inn hér að æðarfuglinn gerir sér ekki hreiður á þessu svæði. Hann heldur sig í sjálfum tjamarhólmunum er að hreiðurgerð kemur. Gert var kort af þessu friðlýsta svæði og málið allt undirbúið til frekari úrvinnslu hjá borgaryfirvöldum. En lítið mark virðist hafa verið tekið á þessum tillögum og þær dagað uppi ein- hversstaðar í kerfinu. En það er í sjálfu sér fagnaðarefni að þær em til og eiga sennilega engu minni rétt á sér nú en hér fyrr á ámm. Fyririesaramir viku máli sínu í sambandi við lífríki Tjamarinnar að botnleðjunni í henni. Því hefði verið hrejrft að rétt væri áð dæla eða grafa upp botnleðjuna. Við því var varað á þessum fræðslufundi, að ganga í það af einhveiju offorsi eins og verið væri að grafa mógraf- ir með stórvirkum vélskóflum. Fram kom að botnleðjan er matarkista andamnganna fyrst eftir að þeir koma á Tjömina. f botnleðjunni finna þeir æti, t.d. krabbadýr. Það tekur ungana nokkum tíma að venj- ast annarri fæðu sem býðst, t.d. brauðinu. Því væri botnleðjan mikil- væg fyrir ungviðið og nauðsynlegt að fella rannsóknimar á henni að öðmm þeim rannsóknum sem að- kallandi em í sambandi við viðhald fuglalífsins á Tjöminni. Fyrirlesaramir sögðu fundar- mönnum ítarlega frá sjálfu fuglalíf- inu á Tjöminni og birtu máli sínu til frekari skýringar kort og myndir af fuglategundum sem þar teljast heimilisfastar og alimargar tegund- ir fugla, sem flokkast undir flæk- ingsfugla og hafa þar lengri eða skemmri viðdvöl. Var auðheyrt að fuglafræðingar og aðrir sérfræðingar fylgjast náið með fuglalífinu á Tjörninni. Eiga þeir í fómm sínum miklar og ítar- legar upplýsingar um hinn mikla fjölda einstakra fuglategunda sem halda sig á Tjöminni. A Tjörninni em að staðaldri yfír sumarmánuð- ina fleiri hundmð fuglar. Síðan þessi fræðslufundur var haldinn í Fuglavemdarfélaginu hafa blöðin flutt þau tíðindi að Reykjavíkurborg ætlar að snúa sér til náttúmfræðinga um að fram- kvæma víðtækar rannsóknir á fugla- og lífríki Tjamarinnar eins og það er oft kallað: Allt lífsmynstr- ið sem á einn eða annan hátt teng- ist fuglalífinu þar. Er það vissulega fagnaðarefni, enda aðkallandi m.a. vegna fyrirhugaðra framkvæmda á svæðinu sunnan Tjamarinnar, en þar er gert ráð fyrir ýmsum meiri- háttar mannvirkjum sem snerta mun náttúmmynstrið og getur auð- veldlega haft áhrif á fuglalífið. Eins og sagt var frá hér að ofan höfðu einhverjir í kerfinu fengið afhent einhvers konar vinnuplagg, ábendingar til bæjaryfirvalda um friðunaraðgerðir suður f Vatns- mýrinni, sem ekki hafa komið í ljós síðan. En nokkm eftir að þessi desem- berfundur í Fuglavemdarfélaginu var haldinn gerði borgarráð og borgarstjóm samþykkt um að láta fara fram ítarlega rannsókn á vatnasviði Tjamarinnar. Leitað yrði eftir samstarfí við Náttúruvemdar- ráð. Þar segir um rannsóknina m.a.: Einkum skal athuga með hvaða hætti endumýjun vatns í Tjöminni á sér stað. Hvaða áhrif framtíðar- byggingar geti haft í þeim efnum, svo og þýðing þess að Reykjavíkur- flugvöllur og umhverfi hans sé í óbrejdtri mjmd annars vegar og hins vegar hver áhrif þess yrðu, ef flugvöllurinn yrði lagður niður og íbúða- og þjónustubyggð skipulögð á svæðinu? Kannað verði samhengi náttúmlegs umhverfis Tjamarinnar við það dýralíf sem þar þrífst, eins og segir í samþykktinni. Þá verði skoðað með hveijum hætti megi stemma stigu við vaxandi leðjufyll- ingu í Tjöminni, án þess að skaða það dýralíf, sem henni tengist. í samþykktinni segir að heimila skuli borgarstjóra að leita til inn- lendra og erlendra aðila sem hafa mesta þekkingu og besta í þessum efnum. Náttúmvemdarráð hefur þegar fjallað um þetta mál og tilnefnt tvo fulltrúa sína í samstarfsnefndina um þessi mál. Það em þeir: Gísli Már Gíslason vatnalíffræðingur og Einar E. Sæmundsen landslagsarki- tekt. Þeir eiga báðir sæti í Náttúm- vemdarráði. Höfundur er blaðamaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.