Morgunblaðið - 13.02.1988, Síða 28

Morgunblaðið - 13.02.1988, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1988 mam Vínarráðstefnan: Skilnaði lokið Reuter Joan Collins (t.v.) svarar spurningum fréttamanna með bros á vör þegar endanlega hafði verið gengið frá skilnaði þeirra Pet- er Holm, sem er lengst til hægri á myndinni. Málaferlum lauk með þvi Collins sættist á að borga Holm 180 þúsund doUara, eða 6,7 milljónir íslenzkra króna. Þar af greiðast 98 þúsund dollarar sem vangoldin þóknun fyrir að sýsla með auð eiginkonunnar. Auk þessa heldur Holm bifreið að verðmæti 40 þúsund dala, sem þau keyptu á sínum tima. Hins vegar fær Collins 400 þúsund dollara villu í Suður-Frakklandi. Glasnost hvorki fram- fylgt í orði né verki Vín, frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. FULLTRÚAR vestrænna ríkja á Ráðstefnu um öryggi og samvinnu í Evrópu (RÖSE) í Vínarborg hafa orðið fyrir vonbrigðum með hversu lítil áhrif glasnost-stefna Mikhaíls Gorbatsjovs Sovétleiðtoga hefur haft á framvindu mála á ráðstefnunni. „Það er eins og sov- ésku fulltrúarnir hafi ekki fengið fyrirmæli um að vinna í anda glasnost-stefnunnar," sagði Hjálmar Hannesson, sendifulltrúi íslands á ráðstefnunni. „Framkvæmd hennar kemur hvorki fram í ræðum fulltrúanna né í viðbrögðum þeirra við tillögum okkar, sérstaklega á sviði mannréttindamála. Þetta veldur miklum vonbrigðum.“ Yfir 150 tillögur hafa verið lagð- ar fram á ráðstefnunni síðan hún .hófst í nóvember 1986. Það er tímafrekt að semja um hin ólíku sjónarmið sem koma þar fram og ráðstefnan hefur þrívegis verið framlengd. Viðræðum um öryggis- mál og viðskipti hefur þó þokað nokkuð vel áfram en mannréttinda- mál draga ráðstefnuna á langinn. „Það er tregða við að samþykkja tillögur vestrænna þjóða sem eru í I NÁMSKEIÐ í SICUNCUM verða í júní, júlí og ágúst CRUNNNÁMSKEIÐ IKI. 8-16 mánudaga - föstudaga, 5 daga námskeiö. 40 klst. samræmi við glasnost," sagði Hjálmar. „Við höfum meðal annars lagt til að ákveðin tímamörk verði sett á afgreiðslu ferðaumsókna þeirra Sovétborgara sem vilja heim- sækja dauðvona ættingja erlendis svo að leyfin verði ekki veitt þegar það er um seinan; að frelsi til trúar- bragðafræðslu verði aukið; og að ákvæðum um ævilangt ferðabann þeirra sem hafa einhvem tíma haft vitneskju um atriði varðandi öryggi Heimsækir Gorbatsjov páfa í apríl? London, Reuter. DAGBLAÐ kaþólikka í Bret- landi hefur greint frá því að Míkhaíl Gorbatsjov, Sovét- leiðtogi, heimsæki Jóhannes Pál páfa II. í apríl. í dagblaðinu The Universe er haft eftir háttsettum heim- ildarmönnum innan kaþólsku kirkjunnar að leynilegar við- ræður hafi átt sér stað í nokkra mánuði þar sem heimsókn Gorbatsjovs í Páfagarð hafi verið undirbúin. Talað er um að Gorbatsjov heimsæki páfann um leið og opinber heimsókn hans í Ítalíu standi yfir, en að sögn ítalskra embættismanna hefur ekki ver- ið ákveðið hvenær Gorbatsjov komi til Ítalíu, þótt þeir búist við að það verði á þessu ári. Talsmenn páfa hafa áður sagt að Gorbatsjov væri velkominn í Páfagarð þegar hann heim- sæki Italíu. ríkisins verði breytt, til að nefna örfá dæmi. Kommúnistaríkin hafa ekki fallist á neina þessara til- lagna.“ Fulltrúum landanna 35, sem und- irrituðu Helsinki-sáttmálann, var boðið til Feneyja á fund um mann- réttindamál um síðustu helgi. Þar voru fulltrúar flóttamanna, andófs- manna og talsmenn helstu mann- réttindahreyfínga á Vesturlöndum saman komnir. Fulltrúar Sovétríkj- anna sóttu fundinn og sátu undir harðri gagnrýni um mannréttinda- brot. „Þetta var í fyrsta skipti sem fulltrúar Sovétríkjanna sækja slíkan fund. Þeir sögðu að breyting- ar stæðu fyrir dyrum í Sovétríkjun- um og menn yrðu að sýna þolin- mæði,“ sagði Hjálmar. „Það má vera en við höfum ekki orðið varir við að þeir vilji skjalfesta þessar breytingar hér í Vín.“ Vínarráðstefnunni átti fyrst að ljúka í júlí á síðasta ári. Hjálmar sagði að vonir stæðu nú til að sam- komulag um öll helstu atriðin næðist fyrir páska og gengið yrði frá lokaskjali að páskafríi loknu. 'Lokasamþykktir þeirra ráðstefna, sem boðað hefur verið til í því skyni að fylgja eftir Helsinki-sáttmálan- um, verða að vera samþykktar ein- róma. Ein þjóð getur því staðið í vegi fyrir að þeim ljúki, eins og gerðist þegar Malta þráaðist við að samþykkja lokaskjal Madrid-fund- arins í þijá mánuði. Hjálmar átti ekki von á að svipað gerðist í Vín. „Tregða Austur-Evrópuríkjanna er væntanlega bragð til að ná fram sem flestum af kröfum þeirra á sviði öryggis- og efnahagsmála. Þau munu væntanlega gefa eitt- hvað eftir í mannréttindamálum alveg undir lok ráðstefnunnar þótt rúmensku fulltrúamir, til dæmis, virðist nú vera óhagganlegir." Samhliða Vínarráðstefnunni fara fram undirbúningsfundir 23 aðild- arríkja NATO og Varsjárbanda- lagsins fyrir viðræður um fækkun herafla allt frá Atlantshafí til Úral- fjalla. Hjálmar sagði að mikil tor- tryggni ríkti milli þjóða bandalag- anna tveggja og gerð erindisbréfs fyrir viðræðumar gengi seint. B Kl. 18-22 aö kvöldisömu daga og kl. 8-18 laugardag og sunnudag. 40 klst. Þátttökugjald í grunnnámskeiöi er kr. 12.000. Fjöldi nemenda á hverju námskeiöi: 5. Siglt er á skútu skólans frá Reykjavík um Faxaflóa og nágranna- hafnir heimsóttar. FRAMHALDSNÁMSKEIÐ 10 daga sigling og búið um borð. Siglt er á stærri skútu um Breiðafjörð og til Vestfjarða. Þátttökugjald kr. 24.000,- fæði undanskilið. Á NÁMSKEIÐUM SKÓLANS SAFNA NEMENDUR REYNSLUTÍMA TIL RYA RÉTTINDA í SÉRSTAKA SJÓFERÐABÓK. SKIPSTJÓRI STAÐFESTIR SÍCLINCA TÍMANN. INNRITAÐ verður í húsnæði skólans að Lágmúla 7 alla virka daga næstu viku kl. 16-18. Á sama tíma má fá nánari upplysingar í síma 68 98 85. Innritunargjald er 25% þátttökugjalds. KREDITKORTAÞJÓNUSTA. Bandaríkin: Marijúana margfalt hættulegra en tóbak Boston. Reuter. marijúanavmdlingum er þrisvar sinnum meiri tjara og fimm sinn- um meiri kolsýringur en í hefð- bundnum tóbakssígarettum Kom þetta fram í rannsókn visinda- manna við Kaliforníuháskóla. Niðurstöðumar, sem birtust í fyrradag í hinu virta læknariti New England Joumal of Medicine, þykja skýra hvers vegna fólk, sem reykir þrjá eða fjóra marijúanavindlinga á dag, verður fyrir sömu lungna- skemmdum ogþeir, sem reykja heilan pakka af venjulegum sígarettum. Það kom líka í ljós, að þeir, sem reykja marijúana, draga reykinn betur að sér og halda honum fjórum sinnum lengur ofan í lungunum en sígarettu- reyknum. Við það vaxa eituráhrif marijúanareyksins um allan helming. Þegar marijúana er reykt, „er fjórum sinnum meiri tjara í lungunum en þegar venjulegar sígarettur eru reyktar", sagði Tzu-Chin Wu, einn vísindamannanna. Hingað til hafa margir haldið, að marijúanareykingar væru hættu- minni fyrir lungun en sígarettur- eykingar vegna þess, að marijúana- neytendur reyki til jafnaðar fáa vindl- inga á dag en nú hefur annað komið á daginn. Auk þess er það svo, að þeir, sem reykja marijúana, nota undantekningarlítið venjulegar síga- rettur einnig. Sovétríkin: 22 menn lét- ust í árekstri Moskvu. Reuter. TUTTUGU og tveir létu lífið þeg- ar strætiavagn varð fyrir járn- brautarlest í bænum Totskoje í Suðaustur-Rússlandi síðastliðinn þriðjudag. Var skýrt frá þessu í blaðinu Sov- jetskaja Rossíja og sagði þar, að öku- maður strætisvagnsins hefði ekki virt aðvörunarljós við lestarteinana. Margar sjúkrabifreiðar komu strax á vettvang en „tuttugu og tveimur varð ekki bjargað" sagði i blaðinu, sem hafði það eftir lögreglunni, að slysið mætti eingöngu rekjatil glæpsamlegs kæruleysis.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.