Morgunblaðið - 19.02.1988, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 19.02.1988, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1988 15 en vatnsmagn hefur ekki mælst minna en þá, síðan starfsemi hófst þar 1972. 1985 var hins vegar besta árið. Sjá má, að árið í fyrra og það sem af er þessu ári eru í meðallagi. Raforkuframleiðsla: Nægar vatnsbirgð- ir í Þórisvatni þó frost haldist næsta mánuðinn Vatnsbirgðir i Þórisvatni eru í nú meðallagi og horfur á, að Landsvirkjun geti framleitt allt það rafmagn, sem þörf er fyrir næsta mánuðinn a.m.k., þó frost- hörkur verði. Guðmundur Helgason, rekstrar- stjóri landsvirkjunar, tjáði blaðinu, að vatnsbúskapur væri í þokkalegu meðallagi núna. I Þórisvatni eru vatnsbirgðir í meðallagi og þótt ekki væru mikil snjóalög á vatna- svæðinu, þá væri ekki ástæða til að óttast vatnsskort. Hamv sagði dijúga snjóamánuði eftir, febrúar, mars og jafnvel apríl. Af þessum sökum getur Landsvirkjun annað allri eftirspum eftir raforku, bæði forgangs- og umframorku. Guð- mundur sagði, að þó frost héldust á hálendinu næsta mánuðinn, ætti það ekki að koma að sök, ekki þyrfti að skammta neina orku þrátt fýrir það. Upplýsingar um arfgengar heilablæðingar á Islandi eftír Gunnar Guðmundsson Fyrir rúmlega 50 árum var arfgengum^ heilablæðingum fyst lýst af dr. Áma Ámasyni sem var héraðslæknir í Dalasýslu. Þeir sem veikjast af þessum sjúkdómi em yfirieitt á aldrinum 18—28 ára. Einkenni em með ýmsum hætti, en fyrst og fremst er um margskonar lamanir að ræða, mismunandi miklar. All margir sjúklinganna ná sér nokkuð vel eftir fyrsta áfallið, en algengt er að þeir fái fleiri en eitt áfall, sem leiða fyrr eða síðar til dauða. Við vitum þó um sjúklinga sem ekki hafa veikst fyrr en á sjötugsaldri. Margir með þennan sjúkdóm em öryrkjar um margra ára skeið, og sálarstríð og fötlun þeirra er mik- il. Þrátt fyrir þennan mikla kross sem lagður er á þetta fólk, þá berst það hetjulegri baráttu gegn hinum óvægna vágesti. Rétt er að geta þess að heila- blæðingar em hérlendis eins og á Vesturlöndum þriðja algengasta dánarorsök fólks, kemur næst á eftir hjartasjúkdómum og krabba- meini. Um 18% af heilablæðingum hjá ungu fólki hérlendis er vegna arfgengra heilablæðinga. Nýlega hefur verið lýst í Japan arfgeng- um heilablóðföllum sem virðast af sömu gerð og hérlendis. Rannsóknir undanfarinna ára hafa leitt í ljós að um er að ræða ríkjandi arfgengi. Sýnt hefur ver- ið fram á að heilaæðar sjúklinga. með þennan sjúkdóm fella út sérs- takt efni sem nefnist amyloid eða mylidi. Frekari greining á efninu Dr. Gunnar Guðmundsson hefur leitt í ljós að þetta er sam- sett af lífefninu gamma-trace, öðm nafni cystatin-C. Þetta efni er í vel flestum líkamsvökvum, en sérlega er mikið magn af því ( mænuvökva hjá heilbrigðum. Gamma-trace (Cystatin-C) er mjög kröftugur hamlari (inhibit- or) á svonefnda cystatin prot- einasa, en það em hvatar (enzym), sem bijóta niður prótein líka- mans, sem er liður í eðlilegri vefja- starfsemi. Hjá sjúklingum með þennan sjúkdóm er magnið af cystatin-C mjög lækkað í mænu- vökva og er talið er að cystatin- C-sameindin sé gölluð. Athugun á mænuvökva hjá fólki í þessum ættum gerir okkur kleift að greina sjúkdóminn áður en lamanir gera vart við sig. Nýlegar rannsóknir hafa einnig sýnt fram á að áðumefnt Cystat- in-C fellur út í æðar í eitlum. Þannig hefur fengist enn önnur grejningaraðferð á sjúkdómnum. Ýmsar rannsóknir em í fullum gangi, bæði hér og erlendis. Ein rannsóknin beinist að því að at- huga erfðaefni DNA hjá sjúkling- um, finna og kanna erfðaefni gensins, sem stýrir myndun cy- statin-C, og jaftiframt kanna á hvaða litningi það er. Ef það tekst má e.t.v. greina hvort fóstur sé sjúkt eða ekki, eftir 7—8 vikna meðgöngu. Það má í stuttu máli segja að tilgangur þessara rannsókna sé í fyrsta lagi að fá ömgga greiningu á sjúkdómnum, áður en fólk veik- ist, og geta sagt fyrir hvort við- komandi beri í sér erfðagallann eða ekki. í öðm lagi að fínna hina raun- vemlegu orsök og þar með hugs- anlega möguleika á að stöðva þessi sjúklegu efnahvörf með ein- hveijum efnum eða lyfjum. Ógjörlegt er að segja að svo komnu máli hversu langt við eig- um í land með að ná þessum ár- angri, en vonandi tekst það innan alltof margra ára. Einum þætti megum við samt ekki gleyma, en það er aðstoð við þá sem fengið hafa einkenni sjúk- dómsins eða bera hann í sér. Rannsóknir em dýrar og þarf því, ef vel á að vera, mun meira fjármagn en veitt er til þeirra af opinbem fé. Það sem helst vanhagar um er fé til að launa margskonar rann- sóknafólk svo og ýmis tæki sem ekki em hér fyrir hendi, en em nauðsynleg. Er hér um að ræða dýran tækjaútbúnað. SÉÐASTIS JÉNS! Nú fer hver að verða síðastur til að gera innkaup ársins á hljómplötum, kassettum og geisladiskum. Stórmarkaðurinn verðúr aðeins opinn í viku í viðbót og enn erum við að bæta úrvalið. Það er því vel ferðarinnar virði að kíkja við aftur þó þú sért þegar búinn að koma. Þið sem ekki hafið enn látið sjá ykkur eruð nú á síðasta sjéns. LP 299.-/CD 499.- ÍSLENSKT Stuðkompaniið - Skýjum ofar Greifarnir - Sviðsmynd LP LP 199.- 199.- Gunnar Þórðarson - (loftinu LP og k. 299.- Meö lögum skal land byggja LP 199.- Greifarnir - Dúbl í horn LP og k. 299.- Endurfundir-ýmsir LP 99,- Ríó tríó - Á þjóðlegum nótum LPog k. 399,- Ballöður-ýmsir LP 99,- Hörður Torf ason - Hugf læði LP og k. 299.- Lífiðer lag-ýmsir LP 99,- Rauðir fletir-Minn stærsti... LP og k. 299,- Sprengiefni-ýmsir LP 99,- Bjartmar Guðlaugs. - (fylgd... LP og k. 299,- Sverrir Stormsker - Hitt er... LP 499,- Grafik - Leyndarmál LP og k. 299,- Sverrir S. - Lífsleiðin(n) LP 499,- Model - Model LP og k. 299,- ERLEIMT Laddi - Ertubúnaðvera... LP og k. 299,- Jólastund - Með ísl. lögum LPogk. 99,- Sverrir Stormsker - Guðspjöll LP og k. 499,- Def Leppard - Hysteria LP 399,- Bubbi M. - isbjarnarblús LP 299.- John Cougar - The Lonesome LP 299,- EGO-EGO LPogk. 299,- Lightofday-O.S.T. LP 99,- EGO - ímynd LP 299.- The Cars - Door to door LP 299.- EGO-Breyttirtímar LP 299,- Bee Gees - ESP LP og k. 299,- Utangarðsmenn - Geislavirkir LP 299,- Michael Jackson-Bad LP 549,- Stuðmenn-Tívolí LP 299,- The Rolling S. - Some girls LP 499,- Stuðmenn - Sumar á Sýrlandi LP 299,- The Rolling S. - Sticky fingers LP 499,- Laddi-Alltílagi með það LP 199.- The Rolling S. - Black and blue LP 499,- Laddi - Einn voða vitlaus LP 199,- The Rolling S. - Its only rollin roll LP 499,- Litla hryllingsbúðin LP 199,- The Rolling S. - Goats head LP 499,- Mezzoforte-4 LP 199,- soup Mezzoforte - Rising LP 199,- Bananarama-Wowl LP 299,- Mezzoforte - No limits LPogk. 199,- Shona Laing - South LP 299,- Sama og þegið LP 199.- The Other Ones - The Other... LP 299.- Jól alla daga LP og k. 99.- Black Sabbath -The eternal... LP 299,- HurðaskellirogStúfur LP 99.- Pepsi & Shirlie - All right now LP 299,- Strumpar-jólaplata LP 99,- The Communards - Red LP 299.- H.L.H. flokkurinn - jólaplata LP 99.- Madonna-You can dance LP 499.- H.L.H.flokkurinn- Loverboy-Wildside LP 299,- í rokkbuxum LP 199.- ofl. ofl. ofl. stokior STÓRÚTSÖLUMARKAOURINN, FOSSHÁLS113-15 STÓRÚTSÖLUMARKAOURINN RAUOARÁRSTÍO 16 PÓSTKRÖFUSÍMI: (91) 11620. LP 299.-/CD 499.- LP 299.-/CD 499.-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.