Morgunblaðið - 19.02.1988, Page 16

Morgunblaðið - 19.02.1988, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1988 KÖNNUN A HÖGUM OG VIÐHORFUM GRUNNSKOLAKENNARA: Kennarar telja brýnt að ekkí séu fleiri en 20 nemar í bekk Hæfileg laun á bilinu 57.000 til 89.000 KENNARAR telja að fækka eigi nemendum í bekkjardeildum og telja um 90% þeirra að æskileg- ast sé að hafa 20 nemendur eða færri i hveijum bekk. Flestum kennurum þykir hæfilegt að fá 57.000 til 89.0000 krónur i laun á mánuði. Þeir te\ja ekki rétt að nemendur flytjist á milli bekkjar- deilda án þess að þreyta próf og þeir telja að agavandamál i skól- um hafi aukist og að samvisku- semi nemenda og virðing þeirra á kennurum hafi minnkað. Meiri- hluti þeirra telur að afburða- nemendum sé haldið niðri í skól- um. Þetta kom meðal annars fram í könnun sem Ragnhildur Helgadóttir þáverandi mennta- málaráðherra fól Þórólfi Þór- lindssyni prófessor að gera árið 1984. Undirbúningur könnunarinnar hófst árið 1985 og voru svör að berast fram á mitt ár 1986. Þá hvort nemendur ættu að flytjast á milli bekkja án þess að taka próf svöruðu yfir 72% þeirra neitandi. Einnig hefur verið deild um hvort kunnátta nemenda sé meiri eða minni nú en áður. Um 56% kennara telur að hún sé svipuð, en 36% telja að hún sé minni. Meirihluti kennara, eða 63%, telja að afburðanemendum sé hald- ið niðri eins og skólastarfi sé háttað í dag. Þá kom í ljós að sú skoðun að fækka eigi nemendum í bekkja- deildum gengur eins og rauður þráður í gegnum niðurstöður könn- unarinnar. Um 90% grunnskóla- kennara telur æskilegast að hafa 20 nemendur eða færri í bekkjar- deild. Sem rök fyrir þvi nefna þeir meðal annars að auðveldara sé að veita nemendum kennslu við hæfi í fámennum bekkjardeildum og Hvað vilja kennarar fá f laun 1353% 13.93% □ □ ■ 56 þús. kr og< 57-73 þús. kr. 74-89 þús. kr. 90 þús. kr og > færri nemendur þurfi þá á stuðn- ingskennslu að halda. Rúmlega helmingur kennara tel- ur að grunnskólalögin hafi reynst fremur illa eða mjög ila í fram- kvæmd. Miðað við núverandi aðstæður er meirihluti kennara fylgjandi því að bekkir séu blandaðir og boðið sé upp á stuðningskennslu. Meirihluti íslenskra kennara virð- ist vera sammála um að grunnskól- amir eigi að leggja megináherslu á að kenna grundvallargreinamar lestur skrift og reikning. Meirihluti þeirra telur mjög æskilegt eða frem- ur æskilegt að foreldrar hafi áhrif á það sem kennt er í skólanum og að þeir miðli af eigin reynslu í kennslustundum. Hins vegar telur meirihluti kennara að foreldrar eigi ekki að hafa áhrif á hvemig kennsl- an fer fram. Þegar könnuð voru viðhorf kenn- ara til agavandamála, áhuga nem- enda á námi, samviskusemi þeirra og virðingu fyrir kennumm var stuðst við svör þeirra 573 kennara sem kennt hafa í 5 ár eða lengur. Um 62% þeirra telja að agavanda- mál hafí aukist, um 50% að áhugi nemenda sé svipaður og áður og 57% telja að samviskusemi nem- enda sé minni en áður. Rúm 60% kennaranna telja .að virðing nem- enda fyrir kennurum hafi minnkað. hófst skráning gagna og lágu fyrstu niðurstöður könnunarinnar fyrir í nóvember 1986. Úrtakið var valið með því að fyrst var sendur spum- ingalisti til allra grunnskólakennara á landinu og bárust svör frá 2517 kennurum, eða 83,9% þeirra sem fengu spumingalista. Af þeim vom 65 spumingalistar ónothæfir. Tæp- lega þriðji hver listi, eða 825 tals- ins, vom valdir með hjálp tilviljun- artöflu þannig að algjör tilviljun réð hverjir lentu í úrtakinu. Nær úrtak- ið til 27% allra gmnnskólakennara. Þátttakendur rituðu ekki nafn sitt á spumingalistann. Birgir ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra sagði á blaða- mannafundi þar sem niðurstöður könnunarinnar vom kynntar að þær væm gott innlegg í þá miklu um- ræðu sem væri nú um skólamál. Líta mætti á þessar niðurstöður sem gagnasafn, enda hafi þessi könnun verið geysilega viðamikil. Háskóla íslands hefur verið falið að varðveita niðurstöður könnunar- innar. Gert er ráð fyrir að mennta- málaráðuneytið, samtök kennarra og aðrir geti gengið. í gögnin og unnið upp úr þeim eftir þörfum. Guðmundur Magnússon aðstoð- armaður menntamálaráðherra sagði að það væri mikilvægt fyrir menntamálaráðuneytið að hafa að: gang að þessum gögnum því verið væri að endurskoða ýmislegt í sam- bandi við skólamál, til dæmis nám- skrá grunnskólanna, grunnskóla- lögin og fleira. Sagði hann að niður- stöðumar nýttust í mótun íslenskr- ar menntastefnu. Þórólfur Þórlindsson prófessor sagði að í könnuninn hefði komið f ljós að um 40% kennara telur hæfilegt að fá 57—73 þúsund krón- ur í laun á mánuði og rúmlega 30% telur 74—89 þúsund krónur aftur á móti hæfileg laun. Þá kemur fram að um 80% er mjög mótfallinn bón- usgreiðslum og 69% er mjög ósam- mála því að taka eigi tillit til hæfni kennarans til viðbótar við starfs- reynslu og prófgráður. Lág laun telja 63% kennara vera helstu ástæðu fyrir þvf að þeir vilji hætta kennslu. Rúmlega helmingur starfandi grunnskólakennara hefur kennt í 9 ár eða skemur. Sagði Þórólfur að -Tón Torfi Jónasson dósent hafi bent á að samkvæmt þessum niðurstöð- um og ef tekið er tillit til fjölda þeirra sem útskrifast úr Kennara- skóla íslands á næstu árum sé fyrir- sjáanlegt að verulegur skortur verði á kennurum með kennsluréttindi á komandi árum. Hann benti á að því hafi verið haldið fram að kennarar væru í seinni tíð mótfallnir prófum. Annað kemur hins vegar fram í könnun- inni. Þegar kennarar voru spurðir Fjöldi ára í kennslu 3og< 4-6 7-9 10-14 15-19 20-24 25 og> Ár Hvort nemendnr ®ttu aö flytjast milli bekkja f grannskólanum án þeu aö taka próf Hvemig grunnskólalögin frá 1974 hafa reynst f framkvæmd 8.79% 1.50% 44.66% ■ mjög vel E3 frekar vel 4505% ■ frekar illa i%3 mjög illa Æskilegastur fjöldi nemenda f bekkjardeild miðað við núverandi aðstæður 0.60% 10.18% 23.75% |? g|| 28.14% Ip' yyyyyy/yvA 0 fæni en 15 ® 15'17 /Z/Zv////yyi H 1820 [ - J K2 21-23 □ 24-36 37.33%

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.