Morgunblaðið - 19.02.1988, Side 27

Morgunblaðið - 19.02.1988, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1988 27 Starfsmanni Fríðargæslustofnunar SÞ rænt í Líbanon: Reagan beitir sér fyr- ir lausn gíslamálsins Washington og Beirút, Reuter. RONALD Reagan Bandaríkja- forseti sagði í gær að leitað yrði allra leiða til að fá William Higg- ins ofursta f Bandaríkjaher og starfsmann Friðargæslustofnun- ar SÞ lausan. Higgins var rænt í nágrenni bæjarins Tyre í Suð- ur-Líbanon á miðvikudag. Að sögn Abdels Majids Salahs háttsetts embættismanns hjá Amal, samtökum shfta sem ráða f suður- hluta Líbanons, var Higgins rænt af sama hópnum og þeim sem hald- ið hefur öðrum vestrænum mönnum í gíslingu í Líbanon. Higgins sem er 43 ára gamall ofursti og yfirmað- ur Líbanonsdeildar Friðargæslu- stofnunar SÞ var rænt af þremur skeggjuðum mönnum sem veifuðu byssum til að fá hann út úr bifreið sinni. Higgins er einn 17 banda- rískra starfsmanna Friðargæslu- stofnunarinnar f Suður-Líbanon. Stofnunin var sett á laggimar árið Eervptaland: Sonur Nassers sak- aður um hryðjuverk Kairó, Reuter. Rikissaksóknarí í Egyptalandi hefur krafist dauðadóms yfir syni Gamals Abdels Nassers heit- ins, forseta landsins. Sonur Nass- ers er ásamt öðrum sakaður um að hafa myrt tvo israelska emb- ættismenn og sært tvo banda- ríska stjómarerindreka f skotár- ásum f Kairó. Khaled Abdel Nasser sem er 38 ára gamall verkfræðingur og býr í sjálfskipaðri útlegð í Júgóslavíu er ásamt 19 öðrum Egyptum sakaður um að hafa stofnað samtökin „Egypska byltingin" sem bera ábyrgð á þremur skotárásum und- anfarin þijú ár. í ágúst 1985 og mars 1986 féllu ísraelskir embætt- ismenn í Kairó í skotárásum og tveir bandarfskir sendiráðsstarfs- menn særðust í árás í maí síðast- liðnum. Rfkissaksóknari í Egyptalandi sagði á fréttamannafundi að réttað yrði í máli Nassers að honum fjar- stöddum. Hann sagði ennfremur að Reuter Khaled Abdel Nasser. alþjóðalögreglan Interpol hefði ver- ið beðin um að handtaka Nasser. Á meðal annarra sem sakaðir eru um hryðjuverkin er frændi Nassers, Gamal Shawki Abdel Nasser og ýmsir háttsettir menn í opinberri þjónustu. Næsti forstjórí WHO: Heilu kynþættirnir í hættu vegna alnæmis TaItva DAirfnr Tokyo. Reuter. ALNÆMI stefnir óðfluga að því að verða ógnun við tilveru heilu kynþáttanna, segir Hiroshi Nakajima, sem nýlega var til- nefndur til að taka við af núver- andi framkvæmdastjóra Alþjóða heilbrisrðismálastofnunarinnar, WHO. Nakajima, sem tekur við starfinu hjá WHO í júlímánuði næstkom- andi, sagði í viðtali við Reuters- fréttastofuna fyrr í þessari viku, að baráttan gegn alnæmi yrði eitt af forgangsverkefnum stoftiunar- innar undir sinni stjóm. Hann lagði áherslu á, að sjúkdómurinn væri á mjög mismunandi alvarlegu stigi eftir heimshlutum. í sumum löndum ógnar sjúk- dómurinn heilu kynþáttunum, en annars staðar er hann einkum bundinn við ákveðna áhættuhópa," sagði hann. „Og því verður að grípa til viðeigandi ráðstafana á hveijum stað.“ „í sumum Afríkulöndum hefur sjúkdómurinn búið um sig meðal almennings og veiran finnst hjá tfunda hveiju bami við fæðingu," bætti hann við. Nakajima, sem er 59 ára að aldri, verður fyrstur Japana til að gegna framkvæmdastjórastarfi hjá stofnun á vegum Sameinuðu þjóð- anna, þegar hann tekur við af Hol- lendingnum Halfdan Mahler. Nakajima hefur unnið hjá Al- þjóða heilbrigðismálastofnuninni f 15 ár og verið svæðisstjóri við vest- anvert Kyrrahaf með aðsetur f Manila á Filippseyjum. Búist er við, að tilnefning hans f embætti fram- kvæmdastjóra WHO verði endan- lega samþykkt á þingi stofnunar- innar f mafmánuði. Massachusetts: Kosið um hvort Jane Fonda fái að fara inn fyr- ir bæjarmörkin Chicopee i Hanachiuetts, Reuter. BEIÐNI bandarísku leikkon- unnar Jane Fonda um að fá að taka kvikmynd f smábæn- um Chicopee f Massachusetts verður borin undir atkvæði, eftir að öldungaráði bæjarins (bæjarstjóm) bárust mótmæli frá samtökum fyrrveraandi Vfetnam-hermanna þar f bæ. ósk Fonda um að fá að taka upp kvikmynd f bænum hefur valdið nokkrum úlfaþyt í Chicopee, þar sem menn minn- ast hennar aðallega sem róttækl- ings, sem barðist gegn stefnu Bandarfkjanna f Suðaustur-Asfu á síðasta áratug. Sérstaklega er fyrrverandi Víetnam-hermönnum uppsigað við leikkonuna fyrir að hafa far- ið f mjög auglýsta heimsókn til Hanoi, sem þá var höfuðborg Norður-Vfetnams, einmitt þegar Vfetnamstríðið stóð sem hæst. Hafa þeir megna fyrirlitningu á Fonda og vilja hvorki heyra hana né sjá f heimabæ sfnum. 1948 til að standa vörð um friðar- samninga varðandi landamæri ísra- els. Að sögn var gerð tilraun til að ræna Higgins fyrir 10 dögum en þá mistókst hún. Hringt var í fréttastofu í Líbanon í gær og sagt að samtökin „íslömsku byltingarsveitimar" bæru ábyrgð á mannráninu. Þau samtök hafa ekki komið fyrr við sögu. Sá sem hringdi sagði ekki til nafns en endurtók í sífellu að Higg- ins hefði verið fluttur frá Tyre til Beirút og þaðan á ótilgreindan stað. „Higgins er nú meðal hinna gfslanna og verður ekki látinn laus fyrr en hann hefur komið fyrir dóm sakaður um að vera einn af yfir- mönnum CLA (bandarísku leyni- þjónustunnar)," sagði sá sem hringdi. Daoud Daoud, starfsmaður Amal í Tyre, segir að Higgins hafi verið rænt vegna þess að hann sé banda- rískur, til að ógna Friðargæslu- stofnuninni og Friðargæslusveit SÞ í Líbanon. Einnig gæti verið að William R. Higgins ofursti, starfsmaður Friðargæslustofnunar Sam- einuðu þjóðanna. mannræningjamir vildu fá lausnar- gjald fyrir Higgins. „Rannsókn málsins er komin vel á veg . . . Við höfum lýsingu á mannræningj- unum og nokkrir grunsamlegir menn hafa verið teknir höndum," sagði Daoud. „Ég held að ekki hafi verið farið með Higgins til Beirút því öllum leiðum milli Tyre og Beir- út var samstundis lokað," bætti hann við. Abdel Salah vildi ekki nafngreina samtökin sem rænt hefðu Higgins en gaf í skyn að þar væri á ferð- inni Flokkur Guðs (Hizbollah) sem studdur er af írönum. Hann sagðist hafa miklar áhyggjur af því ef sam- tökin væm í vaxandi mæli að hreiðra um sig f suðurhluta landsins þar sem Amal hefur ráðið ríkjum. IAýjar frábœrar vorvörur frá LE (ÍAIIAGE j&krrtmaker ' PAniS Laugavegi 45 - Sími 11388

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.