Morgunblaðið - 19.02.1988, Side 34
u
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1988
Morgunblaðið/Svavar B. Magnússon
Bangsi þeirra ólafsfirðinga, uppstoppaður i gagnfræðaskólanum.
Olaf sfirðingar
eiga líka bangsa
MORGUNBLAÐIÐ greindi frá heldur súrt í brotið þar sem þeir
því á þriðjudag að alls hefðu eiga sitt eigið bjamdýr, uppstopp-
54 bjarndýr verið unnin hér á aðan bangsa í gagnfráeðaskólan-
landi. Tekið var fram að um. Sá var unninn á Grímseyjar-
isbjörninn, sem skotinn var í sundi árið 1976. Það var þriggja
Grímsey árið 1969 væri sá eini manna skipshöfn á Amari OF sem
sem til væri uppstoppaður hér- vann bjöminn. Skipstjóri í túmum
lendis. var Hrafn Ragnarsson.
Þetta fannst Ólafsfirðingum
Afgreiðslu fjárhagsáætiunar
dvalarheimilanna frestað
Fjárhagsáætlun bæjarins samþykkt annars samhljóða
Fjárhagsáætlun Akureyrar-
bæjar fyrir árið 1988 var sam-
þykkt samhyóða á fundi bæjar-
stjóraar í fyrrakvöld, en þá fór
seinni umræða um áætlunina
fram. Áætlunin var samþykkt
með nokkrum breytingartillög-
um sem lúta að þvi að auka örlít-
ið fé til viðhalds skólabygginga.
Bæjarstjóra frestaði hinsvegar
afgreiðslu fjárhagsáætlunar
dvalarheimilanna, Hlíðar og
Skjaldarvíkur, þar sem meining-
in er að fara betur ofan í rekstur
þeirra.
Sigurður J. Sigurðsson bæjarfull-
trúi sagði í samtali við Morgun-
blaðið að rekstraráætlun dvalar-
heimilanna stefndi í 35 milljóna
króna halla á árinu 1988 ef þær
breytingar, sem gert er ráð fyrir
þar, ná fram að ganga. Þar er fyrir-
hugað að fækka ófaglærðu fólki og
ijölga til muna faglærðum sem
hefði aukin kostnað í för með sér
auk þess sem grert er ráð fyrir veru-
legu viðhaldi á eignum. „Við viljum
finna aðrar og betri leiðir til úrbóta
þar sem staða dvalarheimilanna er
hefur verið afar slæm að undan-
fömu. Á sl. ári var halli á rekstri
dvalarheimilanna 27 milljónir
króna. Gert var ráð fyrir að sex
milljónir myndu leiðréttast með
halladaggjöldum og bæjarsjóður
þyrfti að bera 21 milljóna króna
bagga sjálfur.“
Sigurður sagði að hjúkrunar-
umönnun á dvalarheimilunum væri
orðin það mikil að hún væri miklu
meiri en eðlilegt getur talist inn á
slíkum stofnunum. Þetta kæmi
hinsvegar til af því að ekki eru til
nægjanlega mörg langlegurými á
sjúkrahúsum. „Þessi aukna þörf
hefur hinsvegar ekki fengist viður-
kennd nema að hluta til. Við erum
að reyna áð fá leiðréttingu í heil-
brigðisráðuneytinu á að fá viður-
kennd fleiri vistrými sem hjúkr-
unarrými sem kæmi þá til með að
breyta daggjöldum nokkuð. Jafn-
framt viljum við meina að daggjöld,
sem greidd eru í dag, ,séu of lág
og þurfi einnig leiðréttingar við,“
sagði Sigurður.
Fyrirlestur
um fomleifa-
rannsóknir
í Eyjafirði
Náttúrufræðistofnun Norður-
lands og Háskólinn á Akureyrí
standa fyrir fyrirlestri um fora-
leifarannsóknir í Eyjafirði á
morgun, laugardag.
Margrét Hermannsdóttir fom-
leifafræðingur flallar um efnið, en
hún starfar nú að rannsóknum við
Háskóla ' íslands. Ifyrirlesturinn
hefst kl. 14.00 á morgun f Verk-
menntaskólanum á Eyrarlandsholti.
Allir áhugamenn um fomleifarann-
sóknir em velkomnir.
„Unga Akur-
eyri“ komið út
RITIÐ „Unga Akureyri" er kom-
ið út í áttunda sinn.
Riti þessu, sem borið er í öll hús
á Akureyri einu sinni á ári, er ætl-
að að gefa upplýsingar um félög
og félagasamtök, sem hafa á ein-
hvem hátt með æskulýðsmál að
gera og vilja koma boðskap sfnum
á framfæri við ungt fólk, segir í
frétt frá Æskulýðsráði Akureyrar.
Þetta er einnig uppsláttarrit fyrir
hvem þann sem þarf á upplýsingum
að halda um ýmis konar tómstunda-
störf, sem á boðstólum era á Akur-
eyri.
Eiginmenn
- Unnustar
Konudagstilboð
á sunnudaginn:
Spergilssúpa.
Lambalærí „Bearnise".
Verð aðeins kr. 600.
Munið barnaafsláttinn.
Horft af brúnni
Frumsýning4. mars.
Forsala aðgöngumiða hafin.
MIÐASALA
ÍA
96-24073
ISKPÉLAG AKUREYRAR
V/SA ‘
Mánaberg ÓF lenti
í árekstrí víð ísjaka
Tjón skiptir milljónum króna
MÁNABERG ÓF lenti i árekstri
við fsjaka á Kögurgrunni sl.
sunnudagskvöld í norðaustan 8-9
vindstigum og blindhríð. Eftir
óhappið var siglt inn á ísafjarð-
ardjúp þar sem skemmdir voru
kannaðar, en eftir það hélt togar-
inn aftur á miðin.
„Ég var nýlega komin út úr
ísröndinni þarna og allt f einu birt-
ist jakinn, sem hefur verið á stærð
við hálfan fótboltavöll, út úr svart-
nættinu. Við voram að toga á þetta
3-4 sjómílna hraða þegar ég allt í
einu sá jakann framundan, í um
það bil tíu metra fjarlægð. Ég
reyndi fyrst að beygja en sá fljótt
að það gekk ekki. Ég stoppaði skip-
ið og rakst jakinn stjómborðsmeg-
inn undir sjólínu skipsins. Það var
mikill skriður á jakanum og stefndi
hann hratt suður á bóginn, sagði
Jón Guðmundsson skipstjóri í sam-
tali við Morgunblaðið.
Jón sagði að skemmdir næmu
einhveijum milljónum króna. „Þetta
er geysilegt tjón. Síða skipsins gekk
inn um hálfan metra neðan við
sjólínu á um það bil tveggja metra
löngu svæði."
sgeir Ásgeirsson hjá útgerðar-
Tilleigu
verslunarhúsnæði fmiðbæ
Akureyrar.
Upplýsingar í síma 96-23464.
fyrirtækinu Sæbergi á Ólafsfirði
sagði í samtali við Morgunblaðið
að von væri á togaranum inn til
löndunar nk. mánudag og þá er
gert ráð fyrir þvf að skipið fari í
slipp á Akureyri. Mánabergið, sem
áður hét Bjami Benediktsson RE,
er um 1.000 tonn að stærð. Ásgeir
sagðist ekki vita til að fleiri togarar
hefðu skemmst vegna íss, en þó
hafði hann heyrt um ýmsa aðra
minni báta af Norðurlandi sem lask-
ast höfðu lítillega. Sjálfsáhætta fyr-
irtækjanna er helmingi meiri í
fstjónum en öðram tjónum.
Morgunblaðið/GSV
*
A skautaballi
Hátt í tvö hundrað krakkar dönsuðu á vélfrystu
skautasvelli Skautafélags Akureyrar á öskudag,
en þar var haldið skautaball á vegum félagsins,
sælgætisgerðarinnar Lindu og Hþ'óðbylgjunnar.
Hér eru krakkarair í biðröð eftir „nammipokun-
um“ sínum.
ALLTAFÁ UPPLEIÐ Landsins bestu PIZZUR Opnunartími opiö um helgar fró kl 11.30 - 03.00 Virkadaga frákl. 11.30-01.00