Morgunblaðið - 19.02.1988, Side 54

Morgunblaðið - 19.02.1988, Side 54
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1988 s»4 Ég er búinn að gieyma hvernig er merkti getraunaseðilinn____ HÖGNI HREKKVÍSI Kanadíska riddaraliðslSgreglan: Sjónvarpið kemur af fjöllum Til Velvakanda Fréttamanni Ríkissjónvarpsins varð heldur betur á í messunni í beinni útsendingu frá setningarhátíð vetrarólympíuleikana í Calgary sl. laugardag. Þar var að hans sögn „Kanadíska Qallalögreglan" mætt á staðinn og þótti mér það undarlegt því ekki kannast ég við neina fjalla- lögreglu í Kanada. Þama var að sjálf- sögðu átt við Konunglegu kanadísku riddaraliðslögregluna, Royal Cana- dian Mounted Police, sem fræg er fyrir afrek sín. En fyrst ég er á annað borð að minnast á þessa heimsfrægu lög- reglu langar mig að íjalla um mál sem tengir nafn hennar við ísland. Fyrir skömmu birti blað Vestur- íslendinga f Kanada, Lögberg- Heimskringla, athyglisverða grein um íslenska konu, Jónínu Van Nor- man. Fjórir sona hennar starfa eða hafa starfað í Kanadísku riddaraliðs- lögreglunni sem þykir mikil frami. Jónína fluttist frá Islandi árið 1910 en giftist í Kanada árið 1927. Það er ekki auðvelt að komast í Kanadísku riddaraliðslögregluna og O N I i:\MAL YEAH/ALDARAFMÆLISÁK. FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987-3 I The Jonina Van Norman family Jonina Van Norman has kindly -•ni us inlormalion on her four sons and daughlcr. The highlighls o( her life story are Iwo-fold Firslly. she : from lceland in 1910. and sc cundly her four sons served in ihe Royal Canadian Mounled Police ll was January 1927 when she joinea her husband. Roberl Simon Van Norman. in marriage. and sel- lled near Deckcr. Maniloba where Ihey farincd for many years. and raiscd Iheir (ive childrcn. In 1947 Robert David joined ihc R.C.M.P.. servingal Punds Inlel and Frobisher Bay. Me iravelled lo hi» nurlhcrn posling via Ihe C. D. Howc Archc Palrul Vcssel un her inaiden voyagc. Laler he was sccondcd lo Ihc Drpartmenl of Norlhern Affairs whcrc hc workcd Dcwline radar . Hc was auardcd Ihc IJuccn s Coronalion Mcdal. Roberi joined ihc H.C.M.P in 1950 and scrvcd in B.C. for 28 years. al- iiung Ihc rank oi Slaff Scrgcanl Brian bccamc a ineinbcr of ihe R-C.M.P- durmg 1950 llis poalings rily officer dunng ihc v Cliarlcs and Pruuc.v Mai inchargcul scxur.ly duru oí Popc Juhn Paui II Allci he cilh icndcni Kn Jack Juhn McPhcc Iwaiia . beruf Ihe KC.M P m l-.J P ly he hulds Ihc lallk «4 lll\|H-. charge of Ihc air scrv kcs i Canada -ller daughlcr Kuritiv I cnmpaiiy Ik-i faimly icuJr in WiiuujHV adviscs Ihal slx- livcs ...inl..rl-l Liuns Manor licrc m \Yinin|H g lias 14 giutnkliildun alid -I g giandcluldicn Shc | ay s hiyh n ■ lo hcr Juugldcis II. lavv Whcn Junina tvuidi d llic slnp carricvl hcr ..v»..y n..m la r n. Iccland lllllc i.-ul.l sl.c í.aVv Urian Kcnnclh Vun Nurinun. born July 23. 1931. John McPlicc Van I Nurinan. born May 26. 1943, Knbcrl David Van Norinan. born April I 2. 1928. Karilas Uarbara Van Norinan. Tinkess. born Ocl. 13. 1933 | and Kubcrl Malcoim Van Norman. born Dec. 21. 1929. I,,( uvcli ihc aiid Ik-I l^isbaiid musl highcsl lcvcl of uchicvciiK'iit wilh | liavc Ih-v-ii giHxl iiarcnls hnnour. Fyrir skömmu birti blað Vestur-íslendinga í Kanada, Lögberg-Heims- kringla, grein um íslenska konu, Jónínu Van Norman en fjórir sona hennar starfa eða hafa starfað í Kanadísku riddaraliðslögreglunni. er það áreiðanlega einsdæmi að §ór- ir bræður nái svo langt. Ég heimsótti aðalskóla Konung- legu kanadísku riddaraliðslögreglun- ar sl. sumar og þekki nokkuð til starfsemi hennar. Geta þeir sem hafa áhuga fyrir R.C.M.P. haft samband við mig. Ingólfur Guðmundsson, námsstjóri Málefnum bænda illa stjómað Til Velvakanda Mér finnst að illa hafi verið farið með bændastéttina af þessum ráða- mönnum þeirra. Fyrir nokkrum árum voru þeir eggjaðir til að rækta og bæta tún sín og brugðust allir vel við. Svo var bændum sagt að auka bústofn sinn en eftir nokkur ár fór framleiðslan að verða of mikil. Þá varð að fara að skammta þeim kvóta, sem kallaður er. Einhveijir komu með það, Kklega læknar, að feitt kjöt, nýmjólk og smjör væri óhollur matur. Þá hlóðst þessi vara upp, fólk- ið hætti að kaupa þessar vörur eins mikið og áður, þvf það trúði þessu og vildi verða langlíft. En þessi vara er ekki óholl. Ég hef frá fyrstu tíð borðað feitt kjöt, og aldrei fengið það of feitt, og eins mjólk og smjör. Ég er kominn á efiri ár og er hraustur ennþá. Svo eru þessir ráðamenn bænda búnir að eyðileggja hrossamarkaðinn erlendis með því að leyfa útflutning á graðhestum. Þetta áttu þeir aldrei að leyfa. Svo kóróna þessir ráðamenn bænda vitleysuna með því að fara að ráðleggja bændum að fara í refa- rækt og minkarækt. Þetta var meiri bjamargreiðinn, því þetta er það versta sem bændum hefur verið att útí. Refa- og minkarækt er ekki annað en lotterí og verður aldrei til að leysa vandamál bænda. Það er dýrt að stunda þennan búskap og hann skilar aldrei hagnaði. Það hefði aldrei átt að heimila innfiutning á refnum. Til hvaða úrræða skyldi verða gripið til næst? Ég er alveg sammála húsmóður- inni sem kallar sig Sölku og skrifaði í Velvakanda sunnudaginn 7. febrú- ar. Mæður ættu að fara eftir því sem hún segir, þá myndi þjóðfélagið breytast til batnaðar. Því bömin okk- ar em viðkvæmar blessaðar sálir fram til fimm ára aldurs. Þá er gott að kenna þeim góða og fagra siði. Þau geta búið að því allt sitt lff ef ekki er farið gætilega í uppeldinu á fyrstu árunum. Og alltaf er móður- höndin farsælust - það var hún að minnsta kosti í gamla daga. Ingimundur Sæmundsson Víkverji skrifar Ný umferðarlög taka gildi um næstu mánaðamót. Lög þessi voru samþykkt á Al- þingi í fyrra. Sáralítil kynning hefur farið fram á nýju lögunum og breytingum sem þeim eru samfara og er það reyndar í samræmi við venjur íslendinga. Þeir gera sér ekki of mikla rellu út af hlutunum fyrr en þörf krefur. En nú eru sem sagt ekki nema tæpar tvær vikur þar til breytingin verður og er kynn- ingarstarf komið á fullt skrið. Full ástæða er til að hvetja fólk til að kynna sér þær breytingar sem verða, en þær eru í mörgum atriðum viðamiklar. Lögreglan í Reykjavík verður með upplýs- ingasíma fram til mánaðamóta. Þangað getur fólk hringt og leitað svara við spumingum um nýju umferðarlögin. Spuming- amar og svör lögreglunnar við þeim birtast hér í Morgunblað- inu. XXX A Inýútkomnu Vökublaði er birt bréf fulltrúa Vöku í rit- nefnd Stúdentablaðsins, Sveins Andra Sveinssonar, þar sem hann segir sig úr nefndinni. Sveinn Andri rökstyður ákvörð- un sína og lýsir yfír óánægju sinni með ritstjóra blaðsins. Síðan segir hann: 120 þúsund krónur á mánuði er alltof há upphæð fyrir jafnlitla vinnu. Var í raun viturlegra, eins og gert var í janúar, að borga hon- um (þ.e. ritstjóranum) 60 þús- und krónur fyrir að gefa blaðið ekki út! XXX * Iblaðinu Víkurfréttir, sem gefíð er út í Keflavík, var nýlega að fínna athyglisverða klausu. Hún er svona: Nokkuð Ijóst er að afleiðingar af tíðum Glasgow-ferðum em ekki bara sjokk þegar greiðslukortareikn- ingamir koma inn um bréfalúg- una. Þessi mikli gróði, sem hús- mæður og aðrir héldu sig sjá, hvarf við fyrstu sýn ef marka má fréttir frá kaupmönnum hér á Suðumesjum og víðar. Nú streyma til þeirra Glasgow- farar með „of lítinn leður- jakka“,„of stórar buxur", eða hreinlega föt, sem enginn vildi þegar heim var komið, og vilja fá verslanimar til að kaupa vaminginn og þá auðvitað á Glasgow-prís! Kaupmenn héma hafa að vonum ekki tekið þess- um tilboðum fegins hendi heldur afþakkað þessi „góðu“ boð og glott út í annað ...

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.