Morgunblaðið - 19.02.1988, Síða 60

Morgunblaðið - 19.02.1988, Síða 60
| 'ALHLIÐA PRENTÞJÓNUSTA 1 GuÓjónÓ.hf. 1 / 91-27233 FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR. Landsbanki lækkar vexti um allt að 2% . - — LANDSBANKINN mun lækka vexti um allt að 2% á mánudag. Mest verður vaxtalækkunin á óverðtryggðum skuldabréfum og sérlgaramnlánsreikningum, eða 2%, en minni á öðrum inn- og útlánum, til dæmis 1% á al- mennum sparisjóðsbókum. Auk þess verður frekari vaxtalækkun un næstu mánaðamót verði horf- ur á að verðbólgan haldist í skefj- um. Hugsanlegt er að aðrir bank- ar lækki vexti meira eftir helgina en ekki tókst að fá það staðfest í gær. Jónas H. Haralz bankastjóri Landsbankans sagði við Morgun- ^^^blaðið í gær að hækkun lánskjara- *®^®lísitölu 1. mars verði mun minni en undanfama mánuði. Lands- bankinn hefði því ákveðið að lækka vexti um allt að 2% frá og með 21. þessa mánaðar og frekari lækkun muni verða um næstu mánaðamót verði horfur á að verðbólgan haldist í skefjum. Valur Valsson bankastjóri Iðnað- arbankans sagði við Morgunblaðið í gær að engin ákvörðun hefði ver- ið tekin um vaxtalækkun þar enda lægi lánskjaravísitalan fyrir kom- 'MAandi mánuð ekki fyrir. Baldvin Tryggvason sparisjóðsstjóri bjóst við að ákvörðun um vaxtalækkun sparisjóðanna lægi fyrir í dag. Karl gegn Kasparov ÞRÍR íslendingar taka þátt í úr- slitum heimsmeistaramótsins í hraðskák í Saint John í Kanada í dag, þeir Karl Þorsteins, Helgi Ólafsson og Margeir Pétursson. <«32 skákmenn keppa i úrslitunum í og eru þeir Gary Kasparov og Anatoly Karpov báðir mættir til leiks. í gærkvðldi var talið lfklegt að Karl tefldi gegn heimsmeist- aranum Kasparov í fyrstu um- ferð. í fyrstu umferð er keppendum raðað saman samkvæmt ELO-stig- um og þar sem Karl er stigalægst- ur, en heimsmeistarinn efstu á list- anum, tefla þeir trúlega saman í fyrstu umferð, flórar 5 mínútna skákir. Tvær umferðir verða í dag og síðan verður teflt á morgun og sunnudag. Um útsláttarkeppni er að ræða. Helgi og Karl tryggðu sér sæti í úrslitunum fyrir nokkru, en •■■Þ'Margeir í gær. Varð hann í 3.-4. sæti á úrtökumóti ásamt Torres, á eftir Gipslis og Gurevic. Logandi kín- verja hent í barnavagn LOGANDI kínveija var hent of- an í barnavagn um hálf fjögur í gærdag. Kornabarn lá sofandi í vagninum. Kínveijinn sprakk ofan í vagnin- um, sem stóð við Nesveg, og í sama mund sást til unglinga á harða- hlaupum í nágrenninu. Bamið mun ekki hafa orðið fyrir áverkum við '•prenginguna en var flutt á slysa- deild til rannsóknar í öryggisskyni. 80tonnaf ufsa í hali 30 tonn náðust - 50 fóru í súgínn GLÍMA sjómanna við Ægi og íbúa hans er margvfsleg. Oftast stendur baráttan um að ná sem mestum afla, en mikill afli getur einnig valdið mönnum erfiðleikum. Skipveijar á Breka VE 61 voru á veiðum á Papagrunni fyrir skömmu og fengu þá um 80 tonna hal af ufsa. Svo stór höl nást ekki inn án sérstakra aðgerða. Þvf brugðu menn á það ráð, að skeyta belg frá öðru trolli við það, sem fullt var og hleypa fiskinum á milli. Ætlun- in var svo að ná aflanum inn í tvennu lagi. Því miður sprakk pokinn f trollinu þegar um 30 tonn voru komin yfir f aukabelginn. 50 tonn fóru þvf f súginn, 30 náðust og þykir það reyndar vægast sagt gott að fá 30 tonn í hali. Kristján Ragnarsson; Skipulag Kvosar- innar og ráðhúsið: Niðurstaða ráðherra birt í dag JÓHANNA Sigurðardóttir, félags- málaráðherra, mun að öllum líkindum skila niðurstöðu sinni um skipulag Kvosarinnar og bygg- ingu ráðhúss borgarinnar innan þess dl borgaryfirvalda f dag. Jóhanna sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær, að bíða yrði þessa dags til að fá upplýsingar um það hvort skipulagið yrði staðfest eða ekki af hálfu ráðuneytis hennar. Grunnskólakennarar; Telja hæfi- leg laun vera 60-90 þús- und á mánuði KÖNNUN á högum og viðhorfum kennara, sem menntamálaráðu- neytið kynnti i gær, gefur meðal annars til kynna að langflestir kennarar tefja að ekki eigi að vera fleiri en 20 nemendur i bekk. Telja þeir það m.a. stuðla að því að færri þurfi á stuðningskennslu að halda. Meirihluti kennaranna vill ekki að nemendur flytjist á milli bekkja án þess að taka próf og flestum þykir hæfilegt að mán- aðarlaun þeirra séu á milli 60.000 og 90.000 krónur á mánuði. Könnunina gerði Þórólfur Þór- lindsson að beiðni Ragnhildar Helga- dóttur fyrrverandi menntamálaráð- herra. Hófst undirbúningur árið 1985, en fyrstu niðurstöður lágu fyr- ir í nóvember 1986. Alls voru 827 kennarar í úrtakinu eða 27% allra grunnskólakennara. Sjá nAnar um könnunina á bls. 16. Gasolía fyrir flotann 80% dýrari hér en í Bretlandi Lækkun á innkaupsverði látin renna óskipt til olíufélaga hér „MÉR er óskiljanlegt hvers vegna verð á gasolíu hefur ekki verið lækkað um leið og verð á bensíni og svartolfu um siðustu mánaða- mót. Tvfvegis, 1. október í fyrra og um nýliðin mánaðamót, var lækkun á innkaupsverði á gasolíu látin renna óskipt til olíufélag- anna. Opinberlega var sagt að engin breyting yrði á gasolíuverðinu, en ósagt látið að hækkun á álagningu olfufélaganna yrði 45 aurar eða 26,3% á lítra á þriggja mánaða tímabili. Álagning olfufélaganna með verðjöfnunargjaldi, sem notað er til að selja olíuna á sama verði um allt land, er nú 54,5% af innkaupsverði gasolíu," sagði Kristján Ragnarsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, í samtali við Morgun- blaðið. „Á sama tíma og við kaupum þessa olíu á 4,80 krónur lítrann í Bretlandi og Þýzkalandi og 5,20 í Noregi, kostar hann 8,60 hér heima eða 80% meira,“ sagði Kristján. „Þegar ákveðið var um síðustu mánaðamót að útsöluverð á gasolíu hækkaði ekki, var tillag til inn- kaupajöfnunarreiknings fyrir þessa olíu hækkað úr 6 aurum í 21 á lítra, þrátt fyrir að innstæðan á reikningnum hafí verið um 38 millj- ónir króna. Lögum samkvæmt á að stefna að því við verðlagningu að þessi reikningur sé á hveijum tíma sem næst núllinu og hart hef- ur verið gengið eftir því þegar hann hefur verið neikvæður. Þessi ákvörðun verðiagsráðs nú stríðir því gegn ákvæði laganna í þessu efni. Er þessi ákvörðun var tekin, var verð á gasolíu í birgðum hér heima 158 dollarar á tonnið, en skráð verð í Rotterdam 148,5 og augljóst að verð færi lækkandi eins og komið hefur á daginn því 15. þessa mánaðar var verðið komið niður í 135,5 dollara. Þrátt fyrir þetta og talsverða inneign á inn- kaupajöfnunarreikningi er ákveðið. að lækka verðið ekki. Ef litið er á þetta mál í víðara samhengi, má benda á það að um leið og verð á gasolíu í birgðum hér fer niður fyrir 158 dollara, hækkar skiptahlutfall til sjómanna um 1% í kjölfar lækkandi útgerðarkostnað- ar. Hefði verð á olíunni verið lækk- að, hefði það ekki aðeins bætt kjör útgerðar og sjómanna, heldur einn- ig dregið úr þörf þeirra á hækkuðu fískverði. Við það hefði staða fisk- vinnslunnar orðið skömminni skárri en nú, þar sem hún hefði ekki þurft að reikna með jafnmiklum kostnað- arhækkunum og hún þarf með óbreyttu verði á gasolíu," sagði Kristján Ragnarsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.