Morgunblaðið - 23.02.1988, Page 27

Morgunblaðið - 23.02.1988, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988 27 Forkosningar Repúblikanaflokksins: Bush spáð öruggum sign í kosningunum 8. mars Kosið í dag í Minnesota og Suður-Dakóta Washington, New York, Dallas. Reuter. GEORGE Bush, varaforseti Bandaríkjanna, mun vinna ör- uggan sigur á helsta keppinaut sínum, þingmanninum Robert Dole, í forkosningum Repúblik- anaflokksins í suðurríkjum Bandarikjanna, ef marka má nið- - urstöður skoðanakönnunar sem birtist í nýjasta hefti tímarits- insIYme. Kosningarnar fara fram í 17 rikjum þann 8. mars og er talið að þá muni skýrast hver verður frambjóðandi Repú- blikanaflokksins i forsetakosn- ingum i haust. Staða Bush þykir hafa styrkst mjög undanfarna daga en í dag, þriðjudag, fara fram forkosningar i tveimur ríkjum og gerir Doie sér vonir um sigur i þeim. Forkosningar fara fram í dag í Suður-Dakóta og Minnesota og kunna niðurstöður þeirra að skipta miklu fyrir þá Robert Dole og Poul Simon, sem er í framboði fyrir Demókrataflokkinn. Kosningar í ríkjum þessum hafa hingað til ekki þótt sérlega mikilvægar og hafa frambjóðendur einkum beint kröft-- um sínum að því að undirbúa kosn- ingamar 8. mars. Sérfræðingar telja að Dole þurfi á góðri kosningu að halda eftir að Bush gjörsigraði hann í New Hampshire í síðustu viku og hann megi tæpast við frek- ari ósigrum fyrir kosningamar 8. mars. Poul Simon varð í örðu sæti í forkosningum demókrata í Iowa og í þriðja sæti í New Hampshire. Hann hefur lýst yfir því að hann verði að sigra í dag ætli hann sér að halda áfram baráttunni. A sunnudag lýsti sjónvarpspréd- ikari einn, Jimmy Swaggart að nafni, því yfír að hann hefði syndg- að gegn guði og mönnum með því að eiga vingott við skækju og kvaðst hann af þeim sökum ekki lengur getað prédikað guðsorð. Fylgismenn sjónvarpsprédikara koma flestir úr röðum repúblikana og er talið hugsanlegt að þetta hneykslismál komi til með að skaða frambjóðendur flokksins einkum sjónvarpsklerkinn Pat Robertson, sem náði óvænt örðu sæti í forkosn- ingunum í Iowa og skaut sjálfum varaforsetanum aftur fyrir sig. Þriðjudaginn 8. mars fara fram forkosningar á vegum Repúblikana- flokksins í 17 ríkjum en demókratar munu kjósa í 20 ríkjum. 12 þessara ríkja heyra til suðurríkja Banda- ríkjanna. George Bush og aðstoðar- menn hans hafa sagt að varaforset- inn muni fara með sigur af hólmi í þessum kosningum sem taldar eru sérlega mikilvægar. Samkvæmt skoðanakönnun tímaritsins Time nýtur Bush mun meiri vinsælda en Robert Dole, í suðurríkjunum. Varaforsetinn mun samkvæmt könnun tímaritsins fá 53 prósent atkvæða í þeim kosningum en Dole aðeins 23 prósent. Bush mætti þingmanninum Jack Kemp í beinni sjónvarpsútsendingu í Dallas á laugardag og fór sá fyrr- nefndi með sigur af hólmi, sam- kvæmt skoðanakönnun sem gerð var eftir að útsendingunni lauk. Robert Dole og Pat Roberston tóku ekki þátt í umræðunni og sögðu þeir sem þátt tóku í könnuninni að það yrði ekki til að auka sigurlíkur þeirra í forkosningunum. 66 prósent aðspurðra töldu Bush hafa sigrað Kemp en aðeins 28 prósent töldu þingmanninn hafa staðið sig betur. Ford-verkfalli lokið á Bretlandi: Verkalýðshreyfingin þyk- ir hafa sótt í sig veðrið Lundúnum, frá Valdimar Unnari Valdinu í GÆR sneru starfsmenn bresku Ford-verksmiðjanna aftur til starfa eftir verkfall, sem stóð í tæpan hálfan mánuð. Lyktir þess- arar vinnudeilu þykja fela i sér umtalsverðan sigur fyrir verka- menn og telja ýmsir að vinnudeil- an marki að ýmsu leyti þáttaskil V-Þýskaland: Herferð gegn hvalveiðum Islendinga ZUrích, frá Önnu Bjarnad&ttur, fróttaritara Morgunblaðsins. GREENPEACE-samtökin í Vest- ur-Þýskalandi undirbúa nú her- ferð sem hafin verður um miðjan mars gegn hvalveiðum íslend- inga. „Eg vil ekki segja i smáatrið- um í hveiju herferðin verður fólg- in,“ sagði Peter Piichschel, hval- asérfræðingur Greenpeace. „En við munum upplýsa almenning um hvalveiðar íslendinga og jafnvel nefna islensk fyrirtæki og við- skiptavini þeirra hér i Þýskalandi á nafn ef allt annað bregst í barát- tunni gegn hvalveiðum." Piichschel sagði að Greenpeace- samtökin myndu standa ein að bar- áttunni í upphafi en leita samvinnu við önnur umhverfis- og dýravernd- unarfélög ef nauðsyn krefði. „Þetta er barátta sem verður að vinnast svo að hvölunum verði ekki útrýmt," sagði hann. „Við sækjumst ekki eft- ir deilum við Íslendinga og viljum ekki bera sigur úr býtum sigursins syni, fréttaritara Morgunbladsins. hvað snertir styrk og áræðni breska verkalýðsfélaga, sem lítt hafa haft sig í frammi undanfarin ár. Verkfallið í bresku Ford-verk- smiðjunum hófst fyrir tveimur vikum eftir að verkamenn höfðu með yfir- gnæfandi meirihluta hafnað samn- ingsdrögum, sem þá lágu fyrir. Þau samningsdrög höfðu gert ráð fyrir töluverðum kauphækkunum en verkamönnum þótti sá böggull fylgja skammrifi að samningurinn átti að gilda til þriggja ára, auk þess sem forráðamönnum Ford-vérksmiðj- anna skyldi gefast kostur á að gera ýmsar breytingar á vinnutilhögun án sérstaks samráðs við verkalýðs- félögin. Ákvæðum af þessu tagi vildu verkamenn ekki una og fóru því í hart. Verkfall hófst og mikill hugur var í verkamönnum, sem vildu fá sinn skerf af þeim mikla hagnaði sem Ford-verksmiðjunar hafa átt að fagna að undanförnu. Samstaða verkamanna var alger og gat enginn farið í grafgötur um að þeir ætluðu sér ekki að gefa eft- ir. Fjárhagslegt tap Ford-verksmiðj- anna var hins vegar orðið gífurlegt og forráðamenn þeirra ákváðu að láta undan. Þeir settu fram nýtt til- boð í upphafi síðustu viku og komu þannig til móts við ýmsar kröfur verkamanna, til dæmis varðandi styttri gildistíma samnings og ákvæði um það hvemig staðið skuli að breytingum á vinnutilhögun. Á Hef fimmtudaginn greiddu verkamenn Ford-verksmiðjanna atkvæði um hinn nýja samning, sem var sam- þykktur með miklum meirihluta, um 70 af hundraði verkamanna greiddu honum atkvæði en um 30 af hundr- aði voru á móti. . Lyktir Ford-deilunnar eru túlkað- ar sem umtalsverður sigur verka- manna og þeirra verkalýðsfélaga sem í hlut áttu. Taka sumir svo djúpt í árinni að segja að með þessari vinnudeilu sé að ýmsu leyti brotið blað í sögu breskrar verkalýðsbar- áttu. Bresk verkalýðsfélög hafa átt mjög erfítt uppdráttar á undanförn- um árum í stjómartíð Margretar Thatcher, og er skemmst að minn- ast kolaverkfallsins, sem lauk með algerum ósigri námumanna. Er gjaman haft á orði hér í landi að ríkisstjóm íhaldsflokksins hafi brot- ið breska verkalýðsforystu á bak aftur, verkalýðsfélög hafa verið á undanhaldi og í vamarstöðu. Nú þykir hins vegar ýmislegt benda til að á þessu sé að verða breyting, verkalýðsfélögum sé að aukast áræðni á ný. Þessu til stuðnings er bent á að Ford-verkfallið sé síður en svo eina vinnudeilan sem verið hafi í sviðsljósinu hér í landi að und- anfömu. Ymsir aðrir hópar launa- fólks hafi látið til sín heyra og hefur þar borið einna mest á hjúkmna- rfræðingum, sem til stuðnings kröf- um um launahækkanir hafa efnt til tíðra vinnustöðvana að undanförnu. vegna. Við vildum helst að Islending- ar sæju sjálfir að sér og ákvæðu að hætta hvalveiðum. Þeir gætu lýst því yfir að þeir ætli að hætta hval- veiðum og lagt til á hvalveiðiráð- stefnunni að veiðum í vísindaskyni verði hætt og þannig leyst málið á alþjóðlegum vettvangi sem er okkur óviðkomandi. Þannig gætu þeir bjargað eigin andliti og þyrftu ekki að bíða ósigur fyrir okkur.“ endurskoðunarskrifstofu mína í Skipholt 50b. Sími 680077. Reynir Ragnarsson, lögg. endurskoðandi. Ný tímarit og metsölubækur berast viku- lega í flugfrakt. Yfir 200 titlar til sölu í dag og yfir 2.000 titlar í pöntunarþjónustu (póstsend- um ef óskað er). Engar kvaðir að kaupa tímarit áfram eftir pöntun og skoðun. Líttu við eða hringdu í síma 686780. ftOftAHúsie LAUGAVEGI 178, SlMI 686780 10% yfir 1.000 kr. 15% yfir 5.000 kr. 20% yfir 10.000 kr. eða magnafsláttur 30% afsláttur á tímaritum siðasta mánaðar. Heildsöludreifing: DCO sf. Sími 91-651815 essemm/slA 24.02

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.