Morgunblaðið - 23.02.1988, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Meinatæknir
óskast til Rannsóknastofu mjólkuriðnaðar-
ins. Laun samkvæmt samkomulagi.
Umsóknir sendist til Rannsóknastofu mjólk-
uriðnaðarins, pósthólf 5166, 125 Reykjavík.
Spennandi starf
Óskum að ráða starfskraft 35-50 ára til
starfa í Ijósa- og gjafavöruverslun í Kringl-
unni. Vinnutími er seinnipartur dags og ann-
ar hver laugardagur.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
10. mars merktar: „H - 4683“.
Heildverslun
óskar eftir góðum starfskrafti í fjölbreytt starf
s.s. við skrifstofustörf, skipulagningu og út-
keyrslu á léttum vörum. Þarf að geta hafið
störf fljótlega.
Umsóknir leggist á auglýsingadeild Mbl.
merktar: „X - 4682“ fyrir næstu mánaðamót.
Lagerstarf
Heildsölufyrirtæki í Garðabæ óskar eftir að
ráða starfsmann á lager.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist auglýsinga-
deild Mbl. fyrir 26. febrúar merktar:
„Lagerstarf - 4940“.
Framkvæmdastjóri
Frjálst framtak hefur í hyggju að ráða fram-
kvæmdastjóra fyrir byggingasvið sitt. Við-
komandi þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
1. Aldur:
Æskilegur aldur á bilinu 28-38 ára.
2. Menntun:
Viðskiptafræðimenntun eða sambæri-
leg menntun æskileg.
3. Starfsreynsla:
Viðkomandi þarf að hafa 5-12 ára
starfsreynslu í stjórnunarstörfum, en
þar er átt við reynslu af skipulagi og
stjórnun verkefna, reynslu í fjármálum
og markaðsmálum. Þá þarf viðkomandi
að eiga auðvelt með að umgangast
fólk.
Starfið býður upp á eftirfarandi:
1. Þróun:
Skipulag og þróun stórs bygginga-
svæðis með fjölda af sérfræðingum.
2. Samningar:
Samninga við fjölda fyrirtækja í bygg-
ingaiðnaði og samstarf við þá.
3. Stjórnun:
Stjórnun á mjög stóru verkefni í bygg-
ingariðnaði, sem felur í sér fjármála-
stjórn, skipulag og framkvæmd á sölu
bygginga og samvinnu við sérfræðinga.
4. Samvinnu:
Vinnu í fyrirtæki í miklum uppgangi
með fjölda af hæfu starfsfólki.
Þeir, sem hafa áhuga á að sækja um ofan-
greint starf, eru vinsamlegast beðnir um að
leggja inn skriflega umsókn, sem tilgreini öll
þau atriði, sem til greina geta komið við mat
á hæfni umsækjanda.
Með allar umsóknir verður farið sem trún-
aðarmál og öllum verður svarað.
Si?
Frjálst framtak
Ármúla 18, 108 Reykjavík,
sími82300.
Mosfellsbær
Blaðburðarfólk óskast í Holtahverfi.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma
666293.
fltaQQmiItfiiMfr
Garðabær
Óskum að ráða starfskrafta til pökkunar-
starfa og fleira, strax.
Upplýsingar á staðnum og í síma 54481
milli kl. 17.00 til 19.00 í dag.
Grensásbakarí
Lingási 11,
Garðabæ.
Verkstjóri
Matvælafyrirtæki óskar eftir að ráða verkstjóra.
Starfssvið:
Blöndun hráefna.
Umsjón með pökkun.
Umsjón með birgðum og innkap í samráði
við innkaupastjóra.
Mannahald.
Áríðandi er að viðkomandi geti unnið sjálf-
stætt, sé nákvæmur og beri skynbragð á
það hreinlæti, sem þarf við matvælafram-
leiðslu. Æskilegur aldur 25-45 ára.
Upplýsingar sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „J - 4685“ fyrir 1. mars nk.
Ræstingafólk
óskast til að þrífa sameign í verslunarhús-
inu, Gerðubergi 1.
Einnig óskast húsvörðurtil starfa á sama stað.
Upplýsingar gefur Guðjón Pálsson, eftir kl.
19.00, í síma 77772.
Framkvæmdastjóri
Fyrirtæki í augiýsingaiðnaði óskar eftir kraft-
miklum framkvæmdastjóra sem fyrst. Hlut-
deild í rekstrinum eða eignaraðild kemur til
greina. Fyrirtæk'rð er vel búið tækjum og er
í góðu húsnæði og með traust viðskiptasam-
bönd.
Gott tækifæri fyrir aðila sem vill vinna hjá
sjálfum sér og rækta upp fyrirtæki og hefur
góð sambönd í viðskiptalífinu.
Svar óskast sent auglýsingadeild Mbl. fyrir
fimmtudagskvöldið 25. þ.m. merkt:
„Auglýsing - 3563“.
Bílaverkstæði
- mótttaka fólksbíla
Viljum ráða áhugasaman mann til afgreiðslu
í móttöku fólksbílaverkstæðis.
Framtíðarstarf.
Viðkomandi þarf að vera lipur og hafa góða
framkomu í hvívetna.
Almenn þekking á bílum nauðsynleg.
Samviskusemi, reglusemi og stundvísi áskilin.
Vinnutími frá kl. 07.45-17.30, hálf klst. mat-
artími. Mötuneyti á staðnum.
Upplýsingar gefur Ásgeir Þorsteinsson, þjón-
ustustjóri. Umsóknareyðublöð liggja frammi
hjá símaverði.
iHlHEKLAHF
I Laugavegi 170-172. Sími 695500.
Háseta
vantar á 200 lesta netabát sem rær frá
Grindavík.
Upplýsingar í símum 92-68755 og 92-68413.
Vísirhf.,
Grindavík.
Hejlsugæslan
Álftamýri
óskar eftir að ráða starfskraft til ræstinga.
Upplýsingar í síma 688550.
Blönduós
Staða húsvarðar
við Félagsheimilið á Blönduósi er laus til
umsóknar. Umsóknarfrestur er til 1. mars.
Upplýsingar gefur formaður rekstrarnefndar,
Sturla Þórðarson, í símum 95-4356 og
95-4357.
Starfsreynsla
28 ára gamall maður óskar eftir vel launaðri
atvinnu í Reykjavík eða úti á landi. Hefur versl-
unarpróf og 10 ára starfsreynslu við innflutning
og önnur skyld störf. Góð meðmæli.
Upplýsingar í síma 72550 eftir kl. 17.00.
Offsetprentari
Óskum eftir að ráða offsetprentara.
Upplýsingar veitir Óðinn Rögnvaldsson í
síma 38383.
XxKassagerð Reykjavíkur hf.
KLEPPSVEGI 33-105 REYKJAVlK - S. 38383
Þroskaþjálfar
Við þjálfunarstofnunina Lækjarás eru eftirfar-
andi stöður lausar til umsóknar. Umsóknar-
frestur er til 5. mars nk.
1. Staða deildarþroskaþjálfa á væntanlegri
dagvistardeild fyrir eldri í Blesugróf. Full
staða. Verksvið: Umönnun, meðferð og
verkstjórn 8 einstaklinga á aldrinum 47-63
ára.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálf-
stætt, hafa góða skipulagshæfileika og
vera tilbúinn að taka þátt í að móta starf-
semina á deildinni.
2. Staða deildarþroskaþjálfa, full staða. Verk-
svið: Umsjón, þjálfun og verkstjórn 10 ein-
staklinga á aldrinum 26-50 ára.
Viðkomandi þarf, auk sjálfstæðra og skipu-
legra vinnubragða, að hafa innsýn í meðferð
einstaklinga með geðræn vandamál.
Báðar þessar stöður veitast frá 15. mars nk.
eða eftir nánara samkomulagi.
3. Staða deildarþroskaþjálfa, full staða. Verk-
svið: Umsjón, þjálfun og umönnun 4ra fjöl-
fatlaðra einstaklinga á aldrinum 29-33 ára.
Viðkomandi þarf auk sjálfstæðra og
skipulegra vinnubragða að hafa innsýn í
sjúkraþjálfun og aðra meðferð mikið fatl-
aðra einstaklinga. Staðan veitist frá 15.
maí eða eftir nánara samkomulagi.
Við bjóðum ykkur: 1. Faglegann stuðning. 2.
Aðstoð vegna kostnaðar við barnagæslu. 3.
Góða vinnuaðstöðu og góðan anda á vinnustað.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Styrktarfélags vangefinna, Háteigsvegi 6, og
á stofnunum félagsins. Nánari upplýsingar
veitir forstöðukona í síma 39944.