Morgunblaðið - 23.02.1988, Síða 41

Morgunblaðið - 23.02.1988, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988 41 Pétur Guðjónsson „Að hafa aðeins einn þátt verðtryggðan eins og vextina veldur heimskulegri uppskrúf- un á fjármagnskostnaði sem nú er að setja allt á hausinn.“ indi, þ.e. að menn geti lifað af dagíaunum sínum. Væri það gert, kæmi engum til hugar að bijóta þessi sjálfsögðu mannréttindi með launatöxtum langt undir fram- færsluvísitölu. í öðru lagi eru allskyns dellu- kenningar í gangi eins og þessi: „Ef við hækkum lægstu launin þá rísa þau upp allan skalann og úr því skapast mikil verðbólga." Við í Flokki mannsins höfum bent á að það eru ekki laun sem orsaka verðbólgu. Það hefur og komið í ljós á síðastliðnum árum að verð- bólgan hefur aukist án þess þó að launataxtar hafi komið þar nærri. í þessu þjóðfélagi eru alltof háir vextir og það er flármagnskostnað- urinn sem kyndir verðbólgubálið. Þessari staðreynd höfum við haldið fram í langan tíma og loks eru aðrir farnir að taka undir þetta sjónarmið, jaftivel atvinnufyrir- tækin eru farin að viðurkenna að það sé fjármagnskostnaðurinn sem er að sliga þau. Síðast en ekki síst er ein ástæð- an fyrir því að laun eru ekki hærri, að svokallaðir verkalýðsleið- togar komast upp með að semja um laun sem fólk lifir ekki á. Þeir vita jú að þegar komið er á félags- fund mæta fáir og þeir geta komið í gegn næstum hvaða samningi sem er. Með öðrum orðum ástæðan fyrir því að laun eru þetta lág er óvirkni launþega. Þessi óvirkni er skiljanleg því fólk er ekki þjálfað í félagsstarfi og enn hefur engin samstæð hreyfing þeirra, sem vilja breyta til, myndast. Lausnir Hvað er hægt að gera til að breyta ástandinu? í fýrsta lagi vilj- um við’í Flokki mannsins að lág- markslaun taki mið af framfærslu- vísitölu og séu lögbundin. En hver ættu lágmarkslaunin að vera í dag? Við fórum fram á 40.000 kr. í maí sl. Hliðstæð upp- hæð er líklega nær 50.000 núna? Skattftjáls og í þjóðfélagi án mat- arskatts. Þeir atvinnurekendur sem ekki geta borgað þessi lág- markslaun eiga að finna sér eitt- hvað annað að sýsla við en að reka fyrirtæki. Á sama hátt og þeir gera ráð fyrir að borga opinber gjöld, og borga fyrir framleiðslu- vörur og tæki ættu þeir að gera ráð fyrir að greiða góð laun. Þetta á að sjálfsögðu að vera fastur liður í þeirra áætlun og fyrirtæki sem ekki getur boðið mannsæmandi laun hefur ekki rekstrargrundvöll. Annað sem nauðsjmlegt er að breyta hér á landi er „þríliðan" fræga: laun, vextir og verðlag. En kaupmáttur fólks ræðst að miklu leyti af því hvemig samspilið er milli launa, verðlags og ^ármagns- kostnaðar. Ef einn þáttur af þess- um er verðtiyggður, eins og vext- imir eru í dag, er ekki sanngjamt að kippa hinum þáttunum úr sam- bandi. Þar sem í dag en ftjáls verð- lagning er auðvelt að hækka verð- lag eins og hver vill er hinsvegar hafa launþegar enga tryggingu. Annaðhvort á að hafa þetta allt verðtryggt, vextina, launin og verðlagið, eða hafa alls enga verð- tryggingu. Að hafa aðeins einn þátt verðtryggðan eins og vextina veldur heimskulegri uppskrúfun á Qármagnskostnaði sem nú er að setja allt á hausinn. Að lokum hvetjum við til að það verði mikil virkni hjá launþegum. Ef það gerist ekki, heldur sami farsinn áfram að endurtaka sig ár eftir ár, áratug eftir áratug. Því þetta er ekki í fyrsta skipti sem við heyrum að bæta eigi hag hinna lægst launuðu, er það? Góð vísa er yfirleitt ekki of oft kveðin en leiðinlegir farsar em hallærislegir til lengdar. Höfundur er formaður Flokks niflnnm'iM. Pað nálgast stórmál. . . þegar tvö ný SMÁMÁL -------------- - koma upp samtímis. >: Súkkulaðifrauð og Dalafrauð. nmr AUK/SlA K3d1-580

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.