Morgunblaðið - 23.02.1988, Side 44

Morgunblaðið - 23.02.1988, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988 SIEMENS SIEMENS uppþvottavél LADY SN 4S20 með Aqua- Stop vatnsöryggi. Vandvirk og hljóðlát. O 5 þvottakerfi. 0 Fjórföld vöm gegn vatnsleka. 0 Övenjulega hljóðlát og spameytin. Smith og Norland, Nóatúni 4, s. 28300. SPECK Lensi-, slor-, skolp-, sjo-, vatns- og holræsa-dælur. Útvegum einnig dælu- sett meö raf-, Bensín- og Diesel vélum. SfliaofflaiuigKuiir dJfeirD©©®ini ©fcD Vesturgötu 16, sími 13280 SIEMENS Siwamat5830þvotta- vélin frá Siemens fyrír vandiátt fólk OFrjálst hitaval. OÁfangaþeytivinding fyrir allan þvott, líka ull. Mesti vindu- hraði 1200 sn./mín. OSparnaðarkerfi þegar þvegið er í hálffylltri vól. OSkyndiþvottakerfi fyrir íþrótta- föt, gestahandklæöi og annað sem lítið er búið að nota. OHagkvæmnihnappur til að minnka hita og lengja þvotta- tíma: Sparar rafmagn. OHægt er að fá þurrkara með sama útliti til að setja ofan á vélina. OAIIar leiðbeiningar á íslensku. Hjá SIEMENS eru gæði, ending og fallegt útlit ávallt sett á oddinn. Smith og Norland Nóatúni 4, s. 28300. Spurt og svarað Lesendaþjónusta Morgunblaðsins Nýju húsnæðislánín HÉR Á eftir fara spurningar sem lesendur Morgunblaðsins hafa beint tíl þáttarins Spurt og svarað um nýju húsnæðisl- ánin og svðr Húsnæðisstofnun- ar ríkisins við þeim. Þjónusta þessi er í því fólgin að lesendur geta hringt í síma Morgun- blaðsins, 691100, milli klukkan 10 og 12 virka daga og borið upp spumingar um nýju hús- næðislánin. Morgunblaðið leit- ar svara hjá Húsnæðisstofnun ríkisins og birtast þau síðan í þessum þætti. Neyðarlári Már spyn Hvaða reglur gilda um svoköll- uð neyðarlán til þeirra sem misst hafa íbúðir eða hús sín á nauðung- aruppboði? Svar: Þeir sem misst hafa íbúðir sínar á nauðungaruppboði og sækja um lán úr Byggingarsjóði ríkisins til bygginga eða kaupa á íbúðar- húsnæði, geta talist vera að byggja eða kaupa í fyrsta sinn. Umsóknir þeirra geta því verið afgreiddar í forgang. Að sjálf- sögðu er þetta háð því að umsækj- andi og maki hafi greitt í lífeyris- sjóði í 20 mánuði af síðustu 24 mánuðum fyrir umsóknardag, og að viðkomandi lífeyrissjóðir hafi gert samning við Húsnæðisstofn- un um skuldabréfakaup af stofn- uninni. íbúðareigendum f greiðsiuerfið- leikum, sem fullnægja ákveðnum skilyrðum, standa nú til boða sér- stök lán úr Byggingarsjóði ríkis- ins. Þeir sem misst hafa íbúðir sínar á nauðungaruppboði, og ekki hafa fest kaup á annarri íbúð, eru ekki lánshæfir úr þessum lánafiokki, þar sem það gildir um öll lán Húsnæðisstofnunar, að þau eru veitt gegn veði í íbúð viðkom- andi umsækjanda. Reglur um lánveitingar Bygg- ingarsjóðs rfkisins vegna greiðslu- erfiðleika: Lánshæfni umsækjenda íbúðareigendur í greiðsluerfíð- leikum, sem fullnægja eftirfarandi skilyrðum, eru lánshæfin 1 .Fjárhagsvandi umsækjanda sé til kominn vegna fjármögnun- ar fbúðarhúsnæðis af hóflegri stærð miðað við §ölskyldu- stærð hans. 2. Umsækjandi hafi fest kaup á íbúð, eða íbúð orðið fokheld, sem sótt er um lán til, eftir 1. janúar 1980 og fyrir 1. sept- . ember 1986. 3. Umsækjandi eigi ekki fleiri íbúðir en þá sem sótt er um lán til. 4. Eignarhluti umsækjanda í íbúð sé lægri en nemur tvöföldu hámarksláni úr Byggingar- sjóði ríkisins til kaupa á not- aðri íbúð. Með eignarhluta er hér átt við brunabótamat íbúðar, eða áætlað söluvirði ef fyrir liggur að það er lægra, að frádregn- um lánum sem stafa af bygg- ingu eða kaupum íbúðar. 5. Árstekjur umsækjanda 1987 hafi verið undir eftirfarandi mörkum: Pjölsk.stærð: Árstekjur ’87 (brúttó) (krónur) 1. 1.000.000,- 2. 1.250.000,- 3. 1.500.000,- 4. 1.650.000,- 5. 1.750.000,- Ef um stærri fjölskyldu er að ræða metur húsnæðismála- stjóm hvert tilfelli sérstaklega, svo og ef um er að ræða sér- þarfir svo sem vegna veikinda. 6. Aðrir lánamöguleikar umsækj- anda séu fullkannaðir og nýtt- ir. 7. Fyrir liggi að lán vegna greiðsluerfiðleika úr Bygging- arsjóði ríkisins leysi fjárhags- vanda umsækjanda. Ef umsækjandi er í hjónabandi eða óvígðri sambúð, skulu tölulið- ir 1—7 miðast við báða aðila. Lánsfjárhæðír, lánskjör og samráð við aðrar lánastofnanir 1 Fjárhæðir veittra lána verði allt að kr. 600.000,- og lánstfmi allt að 40 ár, afborgunarlaus fyrstu tvö árin, en lánskjör að öðru leyti hin sömu og á lánum úr Byggingarsjóði ríkisins til byggingar eða kaupa á íbúð. Lán nemi aldrei hærri Qárhæð en svo, að lán umsækjanda úr Byggingarsjóði ríkisins samtals séu jöfn hámarksláni til kaupa á notaðri íbúð. 2. Ráðgjafarstöð Húsnæðisstofn- unar skal meta greiðslugetu og greiðslubyrði lána umsækjenda og hafa samráð við aðrar lána- stofnanir um lenginu lána sem þar eru fyrir hendi, ef þurfa þykir. Tryggingar 1. Veitt lán ásamt áhvílandi lán- um, uppfærðum, skulu vera innan við 75% af brunabótamati íbúðar en innan við 90% af brunabóta- mati ef íbúð er verkamannabú- staður. Ef fyrir liggur að íbúð er ekki veðhæf skv. ofannefndum mörk- um, er heimilt að taka veð í við- komandi íbúð, enda sé baktrygg- ing jafnframt veitt, annað hvort í annarri íbúð eða með sjálfsskuld- arábyrgð þriggja einstaklinga. Gögn, sem þurfa að fylgja umsókn 1. Afrít af skattframtölum síðustu 2ja ára. 2 .Afrít af veðbókarvottorði. 3. Brunabótamat. 4. Afrít af síðustu geiðslukvittun- um allra lána. Afgreiðsla til fórgangshópa Rósa spyr: Hvenær get ég átt von á að fá húsnæðislán? Ég sótti um í júlí 1987. Ég er búin að fá tilkynn- ingu um lánsrétt og er í forgangs- hópi. Svar: Samkvæmt þeirri áætlun, sem starfað er eftir í dag, er gert ráð fyrir að umsækjendur sem sóttu um lán í júlí 1987 og eru í for- gangshópi fái fyrri hluta láns um mitt ár 1989. Tilkynning um það yrði send viðkomandi einu ári áður, eða um mitt þetta ár, eins og lög gera ráð fyrir. Oldruðum er ekki hlíft eftir SigTirvin Einarsson r Margar eru þær nefndimar í þjóðfélagi okkar og sumar þeirra lítt þekktar. Ein þeirra er svonefnd daggjaldanefnd. Hún er skipuð fímm mönnum og þ.á m. fulltrúum tveggja ráðherra. Hún ákveður hversu háan dvalarkostnað vist- fólk á elliheimilum greiðir á hveij- um mánuði. Og svo er að sjá að hún óttist að of mikil auraráð þessa gamla fólks séu því óholl líkamlega eða andlega. Þegar við gömlu hjónin fluttum inn á elliheimilið Seljahlíð í Breið- holti í júní 1986 þótti okkur dvalar- kostnaðurinn ískyggilega hár. Hann reyndist 57.288 krónur á mánuði fyrir okkur hjónin, en þetta var þá sýnu meira en tvö- föld mánaðarlaun margra lág- launamanna. Ég var þó áhyggju- laus um afkomuna því að ég átti rétt á lífeyri úr tveimur góðum lífeyrissjóðum, þ.e. lífeyrissjóði al- þingismanna og lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Þetta hefir gengið eftir þannig að lífeyris- greiðslur beggja sjóðanna hafa að jafnaði dugað fyrr dvalarkostnaði okkar hjóna auk þess sem ellilaun voru óskert. En dvalarkostnaðurinn dafnaði vel í höndum daggjaldanefndar. Á nítján mánuðum hefir mánaðar- reikningurinn okkar hækkað um 28.062 krónur og er orðinn í jan- úar 1988 85.350 krónur. Að sjálf- sögðu gegnir öðru máli um dvalar- kostnað einstaklinga. Þeir greiða helming þess, er hjón greiða. En með nýja árinu kom til sögunnar staðgreiðsluskatturinn, sem sneri dæminu við. Á Alþingi sitja konur, sem sýnt hafa skilning og umhyggju í garð þeirra, sem höllum fæti standa. Hafa Qármál aldraðra á elliheimil- um farið framhjá þeim? Það er mjög iíklegt að svo sé, enda er gamalt fólk lítið fyrir að kvarta opinberlega, en einhver verður að gera það þegar lítið hóf er á hlut- unum. Höfundur er fyrrverandi alþingis- maður. Sigurvin Einarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.