Morgunblaðið - 11.03.1988, Side 29
29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1988
Flýðu til Vestur-Berlínar;
Brutust í gegn á vörubifreið 1
Leyfilegt að selja Kín-
verjum hátæknibúnað
Washington, Rcuter.
BANDARÍKJASTJÓRN hefur ákveðið að heimila að nýju sölu á hátækni-
búnaði til Kína. Hefur þar með verið numið úr gildi bann sem stjóm-
völd settu i október á siðasta ári vegna meintrar sölu Kínvetja á flug-
skeytum til írans.
Tilkynnt var um ákvörðun þessa í
lok opinberrar heimsóknar Wus Xu-
eqians, utanríkisráðherra Kína, til
Bandaríkjanna á miðvikudagskvöld.
Charles Redman, talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins, sagði
stjómvöld vera fyllilega sátt við „yfir-
lýsingar og aðgerðir" Kínveija varð-
andi írönsku flugskeytin. Kínveijar
hafa aldrei viðurkennt opinberlega
að hafa selt írönum flugskeyti af
gerðinni „Silkworm" en stjóm Reag-
ans Bandaríkjaforseta taldi sig hafa
fullnægjandi sannanir fyrir þessu er
sölubannið var leitt í lög. Heimildir
herma að íranir hafi komið flugskeyt-
um þessum upp við Hormuz-sund á
Persaflóa. Höfðu Bandaríkjamenn af
því áhyggjur að með þeim gætu íran-
ir ógnað bandarískum herskipum sem
halda uppi flotavemd á flóanum.
Vestur-Berlín. Reuter.
ÞRÍR Austur-Þjóðveijar flýðu
yfir til Vestur-Berlínar í gær og
fóru þannig að því, að þeir óku
vörubifreið í gegnum vegar-
tálma á brú.
Talsmaður lögreglunnar í Vest-
ur-Berlín sagði, að mennimir, sem
Jakörtu, Reuter.
SUHARTO Indónesiuforseti var
í gær endurkjörinn án mótfram-
boðs i fjórða skipti. Fimmta
kjörtimabil hans, sem hefst í
dag, stendur til 1993. Þrátt fyrir
að friður rikti um kjör hans voru
menn ekki á einu máli um hver
hreppa skyldi varaforsetaemb-
ættið.
Um það tókust á leiðtogar Golk-
ar-fylkingar Suhartos forseta og
flokks heittrúaðra múslima. Deilur
sem þessar hafa ekki komið áður
upp á 22 ára valdaskeiði Suhartos,
en þær urðu m.a. til þess að einn
þingfulltrúa hersins sté í ræðustól
og gagmýndi málsmeðferð.
„Við hermenn Indónesíu, sem
trúum á guð og stöndum vörð um
heiðarleika og réttlæti, höfum heyrt
orðróm þess efnis að ekki sé rétt
staðið að útnefningu varaforseta,"
sagði stórdeildarhershöfðinginn
Bretland:
eru á aldrinum 27-37 ára, hefðu
ekið 7,5 tonna þungum trukki fram-
hjá varðmönnum og vegartálmum
á leið sinni að Glienecker-brú og
farið síðan í gegnum hindranimar
á henni sjálfri. Þegar þeir komu
vestur yfir hringdu þeir í lögregluna
Ibrahim Saleh. Hann skundaði í
pontu þegar eftir kjör Suhartos og
kvaddi sér hljóðs utan dagskrár og
var þingheimi greinilega brugðið.
Honum var síðar fylgt til sætis, en
yfirmaður öryggis- og upplýsinga-
deildar hersins sagði að Saleh túlk-
aði ekki skoðanir þingflokks hers-
ins.
Varaforsetaembættinu er enn
óráðstafað og er talið að Suharto
verði að höggva á hnútinn sjálfur.
ERLENT
og létu vita af sér.
Glienecker-brúin hefur verið not-
uð við fangaskipti milli austurs og
vesturs og síðast í febrúar 1986
þegar Anatólíj Stsjaranskíj, sovésk-
um baráttumanni fyrir mannrétt-
indum, var sleppt. Aðeins sendi-
ráðsmenn í Austur-Berlín og full-
trúar hemámsveldanna hafa fengið
að nota brúna.
Vörubifreiðin, sem Austur-Þjóð-
veijamir notuðu við flóttann.
Eins og sjá má er hún nokkuð
skemmd eftir vegartálmana.
Bandaríkin:
verði aflétt hömlum við því, að ein-
staklingar verði að vera skráðir félag-
ar í stéttarfélögum til að fá að starfa
innan starfsgreinanna.
íhaldsflokkurinn sterkur
í tveimur skoðanakönnunum, sem
birtar voru um helgina, hefur íhalds-
flokkurinn ótvíræða forystu. í The
Sunday Times var fylgi flokkanna:
íhaldsflokkurínn 46%, Verkamanna-
flokkurinn 38% og Bandalagið 14%.
í The Observer var fylgið: íhalds-
flokkurinn 47%, Verkamannaflokkur-
inn 36%, Fijálslyndi lýðræðisflokkur-
inn 12% og Jafhaðarmannaflokkur
Davids Owens 2%. í báðum þessum
könnunum hefur íhaldsflokkurinn
tapað nokkru fylgi frá fyrra mánuði
og Verkamannaflokkurinn bætt við
sig. Áhyggjur almennings af heil-
brigðisþjónustunni virðast fara
minnkandi. 59% segjast hafa áhyggj-
ur af henni, en í síðasta mánuði voru
það 64%. 45% sögðust vera ánægð
með frammistöðu Thatcher, en 35%
með Neil Kinnock, leiðtoga Verka-
mannaflokksins.
í heimsókn Wus kom einnig fram
að Kínveijar væru reiðubúnir til að
styðja bann á vegum Sameinuðu þjóð-
anna við vopnasölu til írans væri
mikill meirihluti aðildarríkja Öryggis-
ráðsins fylgjandi því. Kváðust banda-
rískir embættismenn telja yfirlýsingu
þessa mikilvæga og lýstu sig ánægða
með hana. Þá kvaðst Wu einnig vera
fyllilega sammála því að nauðsynlegt
væri að Sovétmenn kölluðu innrásar-
lið sitt heim frá Afganistan. Hið sama
sagði hann gilda um herlið Víetnama
í Kambódíu. Efnahagsmál bar einnig
á góma og sagði Wu Kínveija vænta
þess að Bandaríkjamenn réðust í
frekari fiárfestingar í Kína. Hét hann
því og að ekki yrði horfið frá „fijáls-
lyndisstefnu" stjómvalda í efnahags-
málum.
Wu fór á hinn bóginn ekki dult
með að Kínveija og Bandarílqamenn
greindi á um ákveðin mál. Nefndi
hann að stuðning Bandaríkjastjómar
við Taiwan, einkum vopnasölu, og
hvatti ráðamenn til að styðja samein-
ingu Taiwan og Kína þar eð slíkt
myndi treysta stöðugleika í Austur-
Asíu. Ónefndur bandarískur embætt-
ismaður sagði að málefni Tíbet hefðu
verið rædd á fundum Wus og banda-
rískra embættismanna en Banda-
ríkjamenn hafa vænt Kínveija um
að bijóta gegn grundvallarréttindum
Tíbetbúa.
Sveitarfélög selji íþróttahús og garða
Samráð um gjaldskrár lögfræðinga og annarra bannað
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frimannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
EINKAVÆÐING ríkisstjómar
Margaretar Thatcher heldur
áfram af fullum krafti. Hún hefur
kynnt áætlun sína um að fá bæjar-
og sveitarstjómir til að selja ýmsar
eigur sinar. Þá hafa einnig verið
lögð fram áform um að auka sam-
keppni i ýmsum starfsgreinum,
svo sem meðal lögfræðinga og
arkitekta. í nýjustu skoðanakönn-
unum hefur íhaldsflokkurinn
verulegt forskot á Verkamanna-
flokkinn.
Kosið til bæjar- o g
sveitarstjórna 5. maí
Á fundi fulltrúa íhaldsflokksins í
sveitarstjómum víða um land, sem
haldinn var um helgina, hóf forsætis-
ráðherrann áróðursherferð stjómar-
innar fyrir nýjum lögum um skatt-
heimtu sveitarfélaga. Þau eiga að
koma til framkvæmda á næstu tveim-
ur árum, en hafa verið mjög um-
deild. Hinn 5. maí næstkomandi verða
kosningar til sveitarstjóma, og hvatti
forsætisráðherrann sitt fólk til dáða.
Á mánudag hélt Thatcher blaða-
mannafund, þar sem kynnt var áætl-
un um að fá sveitarstjómir til að
selja ýmsar eigur sínar, t.d. íbúðir,
íþróttamannvirki, almenningsgarða
og land. Þessar eigur eru metnar á
um eitthundrað milljarða punda
(tæpl. 7000 milljarða ísl. kr.).
Þessi áætlun felur í sér skráningu
á öllum eigum bæjar- og sveitar-
stjóma hjá umhverfismálaráðuneyt-
inu; hafin verði aðstoð við þá, sem
eru að ljúka skóla í fátækrahverfum
stórborganna, til að tryggja þeim
vinnu í eitt ár, tryggt verði, að öll
aðstoð frá ríkinu til fyrirtækja í fá-
tækrahverfum renni beint til þeirra
en ekki sveitarstjómanna. Þessar
aðgerðir miða að því að þvinga sveit-
arsfjómimar til að einbeita sér að
nauðsynlegri þjónustu við borgarana
fremur en að fjárfesta í eignum.
Ný samkeppni
Young lávarður, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, kynnti síðan á þriðju-
dag áætlun um að auka samkeppni
í starfsgreinum, sem hafa verið und-
anþegnar henni fram að þessu. Hún
nær til arkitekta, lögfræðinga, fast-
eignasala og endurskoðenda. Aðalat-
riðið í þessari áætlun verður tiilaga
um, að samráð um ákveðna gjaldskrá
innan starfsgreinanna verði bannað.
Yfirvöld eiga jafnframt að fá aukin
völd til að rannsaka þær starfsgrein-
ar, þar sem grunur leikur á um, að
slíkt samráð sé að ræða — og vald
til að refsa.
íhaldsflokkurinn hét því í kosn-
ingayfirlýsingu sinni á síðastliðnu ári
að auka samkeppni í starfsgreinum,
sem notið hafa lögvemdar. Thatcher
lítur svo á, að þetta sé næsta verk-
efni, eftir að búið er að ná tökum á
verkalýðshreyfingunni.
Lagt verður til, að aflétt verði
banni við auglýsingum innan þessara
starfsgreina, stéttarfélögum verði
ekki heimilt að leggja til lágmarks-
gjald fyrir tiltekna þjónustu. Einnig
Indónesía:
Suharto nær endurkjöri
Cloer vöfflujárnin eru sjálfvirk, hitaeinangruð
með nákvæmri stiglausri bakstursstillingu.
Smekklegt útlit í dökku eða Ijósu ber
gæðunum vitni. Nýbakaðar vöfflur eru
hreint lostæti.
Fást í næstu raftækjaverslun