Morgunblaðið - 11.03.1988, Qupperneq 42
þ42
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1988
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri spekingur! Ég er fædd
á Akureyri 28.6. 1963 um kl.
15. Getur þú frætt mig eitt-
hvað um t.d. persónuleika
minn og hvaða merki eiga
best við mig.“
Svar:
Þú hefur Sól í Krabba, Tungl
í Rísandi merki í Vog, Merkúr
og Venus í Tvíbura, Mars í
Meyju og Ljón á Miðhimni.
Heildarmyndin
Sú heildarmynd sem ég fæ
þegar ég horfi á stjömukort
þitt er að þú sért tilfinninga-
rík og ljúf persóna og jafn-
framt félagslynd, tillitssöm
og vingjamleg.
Tilfinningarík
Það að hafa Sól í Krabba
táknar að grunneðli þitt er í
Krabbamerkinu. Það þýðir að
þú ert tilfinningamanneskja,
hefur sterkt ímyndunarafl,
ert næm og finnur til með
fólki. I grunneðli þínu ert þú
síðan varkár. Það að Sólin er
, f 9. húsi táknar hins vegar
að þú fínnur sjálfa þig í gegn-
um æðri menntun eða erlend
lönd. Það þýðir að þú ert for-
vitnari en gengur og gerist
með Krabbann, að þú ert leit-
andi og leggur ekki jafn mikla
áherslu á öryggi og Krabbar
almennt.
Ljúf
Það að þú hefur Tungl í Vog
táknar að þú hefur ljúfar og
mjúkar tilfinningar, ert fé-
lagslynd, kurteis og jákvæð í
lund. Þú vilt samvinnu en
ekki deilur eða samkeppni.
Daglegt umhverfi þitt þarf
að vera fallegt.
Málgefm
Merkúr og Venus í Tvíbura
táknar að þú ert opin í hugs-
un og vingjamleg gagnvart
fólki. Þú ert einnig forvitin
og vilt pæla f mörgu og kynn-
ast ólikum mönnum og mál-
efnum. Það að Merkúr og
Venus eru f samstöðu táknar
að þú leggur áherslu á fágun
í tali. Eitt helsta vandamál
þitt tengt þessari stöðu er
eirðarleysi, að þú ferð stund-
um úr einu í annað.
Ólík Krabbanum
Þessi tvö merki, Vog og
Tvíburi, eru ólík Krabbanum.
Það táknar að þú getur sveifl-
ast á milli tilfinningasemi og
skynsemishyggju, að stund-
um verða tilfinningar ofan á
en stundum „köld“ skynsemi.
Dugleg
Mars í Meyju táknar síðan
að þú ert dugleg i vinnu, ná-
kvæm, jarðbundin og sam-
viskusöm.
Tungumál
Meðal hæfileika þinna má
nefna tungumál og fjölmiðlun
(Tvíburi), listir og félagsstörf
(Vog, Ljón, Merkúr/Venus).
Þú ættir að geta notið þín í
ferðamálum, tekið á móti
fólki af hlýju, einlægni og
jákvæðum huga. Égtel einnig
að flest nám liggi fyrir þér,
svo fremi sem þú yfirvinnur
ákveðið eirðarleysi. Þín svið
ættu samt sem áður að liggja
í mannlega geiranum, í því
að vinna með fólki.
Hress og jarÖbundin
Algengt er að laðast að fólki
sem er í hinum merkjum
manns. Það ætti þá að vera
Tvíburi/Vog hjá þér. Júpíter
er í Hrút í hjónabandshúsi
þínu og getur það gefið til
kynna Bogmann, mann af
ólíkum uppruna, eða fyrst og
fremst hressan og jákvæðan
persónuleika. En þar sem þú
ert Krabbi með Mars í Meyju
þarf viðkomandi einnig að
vera jarðbundin og skynsam-
ur.
GARPUR
A/A/ E<5
AÐDR'ATTARSU/eÐ-
JNU—,
GRETTIR
DYRAGLENS
LJOSKA
FERDINAND
SMAFOLK
''WHATPIP WEEN/ER
POTO HURT VOU?"
„Kæri höfundur"
„Við höfum móttekið nýj- „Af hverju sendir þú það „Hvenær höfum við sært
asta handrit þitt“ til okkar?“ þig’?“
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Nýlega kom út í Bandaríkjun-
um 200 blaðsíðna bók um útspil
eftir Jeff Rubens, aðstoðarrit-
stjóra „The Bridge World", og
Lawrence Rosler. Bókin heitir
einfaldlega „Journalist útspil",
en þeir félagar kynntu þau fyrst
árið 1964. Flestirtengja hugtak-
ið Joumalist-útspil við grand-
samninga. f stað þess að koma
út með ijórða hæsta spila menn
út því lægra spili, sem liturinn
er sterkari. Ennfremur er reglan
um að tían lofi gosanum og öðru
háspili frá þeim komin. Svo og
sú venja að spila 3. og 5. spilinu
frá langlit í trompsamningi, sem
heita má almenn regla hjá
reyndari spilurum nú til dags.
Hér er spil, sem höfundamir
nota sem dæmi um ágæti þeirr-
ar aðferðar:
Norður gefur; NS á hættu
Norður
♦ D108
♦ KD98
♦ G8
♦ KD84
Vestur Austur
♦ K43 ♦e
¥4 | ¥8532
♦ 10532 ♦ D974
♦ G9732 ♦Á1065
Suður
♦ ÁG9752
¥ ÁG107
♦ ÁK6
♦ -
Vestur Norður Austur Suður
— 1 lauf Pass 1 spaði
Pass 1 grand Pass 3 hjörtu
Pass 4 hjörtu Pass 5 tíglar
Pass 5 hjörtu Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Laufútspilið virðist nokkuð
eðlilegt eftir þessar sagnir. Sam-
kvæmt hinni gömlu ensku hefð
að spila ætíð fjórða hæsta frá
langlit, ætti vestur að koma út
með þristinn. Sem setur austur
í vanda ef sagnhafi lætur lítið
úr borðinu, því suður gæti átt
tvistinn.
Spili menn 3. og 5. er hins
vegar sannað mál að tvisturinn
er frá fimmlit. Austur veit því
að suður á ekkert lauf og getur
látið tíuna ef sagnhafi leggur
fyrir hann áðumefnda gildru.
Hann getur líka dúkkað af
öryggi ef sagnhafi stingur upp
háspili í borðinu!! Og það er
reyndar eina leiðin til að bana
spilinu. Sagnhafi kemur annað
hvort til með að missa vald á
laufinu eða gefa austri stungu
í spaða!
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Danski alþjóðlegi meistarinn
Bjarke Kristensen kom mjög á
óvart á mótinu í Saint John í
Kanada um daginn. Þótt hann
hefði aðeins 2300 stig fyrir mótið
náði hann áfanga að stórmeistara-
titli. Þessi staða kom upp í skák
hans í síðustu umferð. Bjarke
hefur hvítt og á leik gegn ísra-
elska stórmeistaranum Griinfeld.
31. Hxg7! (Þetta er að sjálfsögi
miklu sterkara en 31. Bxe5?
He8) Hxg7, 32. Dxe5 - He8, 3
Re6 - Df7, 34. Dxg7+ - Dxg
35. Rxg7 - He4, 36. Re8+ <
svartur gafst upp.