Morgunblaðið - 11.03.1988, Page 60
| ALHLIÐA PRENTÞJÖNUSTA
:il GuðjónÓLhf.
I / 91-27233 I
wgtmtfiifrlfe
FOSTUDAGUR 11. MARZ 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR.
Dagsbrún:
Landarekki
úr Eyjabátnm
Verkalýðsfélagið Dagsbrún hefur ákveðið að afgreiða ekki fisk
úr bátum frá Vestmannaeyjum, að sögn Guðmundar J. Guðmundsson-
ar, formanns Dagsbrúnar. Sagði hann þetta gert í samúðarskyni við
verkfall Snótar í Eyjum og byggt á áratuga hefð um að verkalýðs-
félög leyfðu það ekki að vinna sem félli niður vegna verkfalls yrði
flutt á annan stað.
Guðmundur sagðist hafa gert
Samtogi í Vestmannaeyjum, útgerð
Breka VE, og Fiskmarkaðinum í
Reykjavík grein fyrir þessari
ákvörðun Dagsbrúnar eftir að hann
hefði heyrt að til stæði að Breki
landaði í Reykjavík á sunnudag.
Hann sagðist vita af einum bát úr
Vestmannaeyjum sem hefði landað
30-40 tonnum af fiski í Reykjavík
eftir að verkfall Snótarkvenna
hófst, en í framtíðinni yrðu hafðar
góðar gætur á að ekki yrði landað
úr Eyjabátum. Guðmundur sagðist
telja ólíklegt að Eyjabátum yrði
leyft að landa nokkurs staðar á
landinu.
Hjörtur Hermannsson, fram-
kvæmdastjóri Samtogs, sagðist
vilja sem minnst segja um málið,
það kæmi bara í ljós hvað gerðist.
Hann sagðist ekki hafa heyrt að
Dagsbrún hefði gefíð út neina sam-
úðarvinnustöðvun ennþá.
Landris við Kröflu:
Vaxandi goshætta
HÆGT landris hefur verið við
Kröflu síðan í lok janúar og fer
land þar enn hækkandi. Að sögn
Páls Einarssonar jarðeðlisfræð-
ings fer goshætta á svæðinu því
heldur vaxandi á meðan þetta
ástand varir, þótt ekki væri
ástæða til að gera meira úr þeirri
hættu nú en í fyrravetur, þegar
Áhuginn á
stærðfræði
minnkandi
„SKORTUR á kennurum, sem
hafa tilskilda menntun til að
kenna stærðfræði er orðinn
mjög mikill. Frá þvi um 1980
hafa að meðaltali tveir út-
skrifast árlega með BS-próf
í stærðfræði frá Háskóla ís-
lands og fáir þeirra farið í
kennslu," sagði Ragnar Sig-
urðsson, formaður íslenska
stærðfræðafélagsins, í sam-
tali við Morgunblaðið
„Nærtækasta skýringin er
sú“ sagði Ragnar, „að laun
kennara séu of lág en ég held
að ástæðumar séu fleiri. Margir
þeirra sem hafa útskrifast með
BS-próf í stærðfræði á undan-
fömum ámm tóku hagnýta
stærðfræði eða tölvufræði sem
aukagrein og það hefur verið
auðvelt fyrir þá að fá vel borg-
aða vinnu við tölvur. Fáir þeirra
em með próf í uppeldis- og
kennslufræðum frá Háskólan-
um og hafa því ekki réttindi til
að kenna stærðfræði í fram-
haldsskólunum. Áhugi á hreinni
stærðfræði virðist hafa farið
minnkandi í heiminum undan-
farinn áratug, ef til vill vegna
tölvanna, en einnig gæti verið
að stærðfræði sé ekki sett nógu
skemmtilega fram í framhalds-
skólunum," sagði Ragnar.
hægt landris var á Kröflusvæð-
inu allt frá því í október 1986
og fram í apríl 1987.
Páll sagði að greinilegt væri að
aðstreymi kviku undir eldstöðinni
hefði nú byijað aftur með vaxandi
þrýstingi í kvikuholunum. Aðspurð-
ur um hvort búast mætti við gosi
á næstunni af þessum sökum sagði
Páll að ómögulegt væri að spá fyr-
ir um slíkt þótt slíkar kvikuhreyf-
ingar væm oft undanfari gosa.
'„Raunar hafa menn verið að búast
við Kröflugosi í nokkur undanfarin
ár,“ sagði hann. „Þegar þrýstingur-
inn fer upp fyrir það sem hann
hefur verið áður má alltaf búast
við gosi, þótt það þurfi ekki endi-
lega að koma á næstu dögum, vik-
um eða mánuðum. Þetta getur líka
alveg eins hætt, eins og raunin
varð á í fyrra," sagði Páll.
Hann sagði að þessu ástandi
fylgdu spmngubreytingar og jarð-
skjálftar, en síðan í byijun febrúar
hefðu mælst frá 5 og upp í 20
skjálftar á dag. Þeir væm hins veg-
ar svo vægir að þeir fyndust ekki
heldur kæmu eingöngu fram á
mælum.
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Þorskurinn kominn á þurrt
ÞEIR á Hraunsvíkinni GK róa stíft í Röstina og Víkurnar vestan Grindavíkur enda er þar boltafisk-
ur ef hann gefur sig. Gísli Jónsson skipstjóri var að taka á móti löndunarmálinu eftir einn róður
á dögunum en var ekkert alltof hress með fiskiriið. Menn lifa þó lengi í voninni um að það batni.
Fólkið fær peningana
eins og um var samið
- segja fiskverkendur í Grindavík
Grindavík.
„HÉR er ennþá traust á milli
manna eftir þennan fund í kvöld
og fólkið fær þá peninga sem fól-
ust f samkomulaginu frá því f
fyrradag,“ sagði Guðmundur Þor-
björnsson formaður Vinnuveit-
endafélags Grindavikur eftir að
fundi lauk með samninganefndum
vinnuveitenda og verkafólks f
Grindavík f gærkvöldi. „í fram-
haldi af þessu hafa orðið þau við-
brögð þjá fiskverkendum í
landinu að þeir ætla að fjölmenna
til viðræðna við fiskvinnslufólk
hjá ríkissáttasemjara og er það
gffurlega stórt skref fram á við
fyrir fiskvinnsluna og fiskvinnslu-
fólk,“ sagði hann.
Á fundinum í gærkvöldi ræddu
samningsaðilar kaupauka og premíu
í saltfiskverkun í framhaldi af
„Grindavíkursamkomulaginu" frá
því í fyrrinótt. Benóný Benediktsson
formaður Verkalýðsfélagsins var
mjög sáttur við þessar viðræður og
sagði að málið væri á góðri leið með
að verða viðunandi, sérstaklega hvað
varðaði bónusinn. „Það er stórmál
fyrir verkafólk í saltfiski að vinnu-
veitendur hafi nú viðurkennt að full
þörf er fyrir lagfæringu á bónusn-
um,“ sagði Benóný.
Fundurinn í gærkvöldi var haldinn
í beinu framhaldi af fundi fiskverk-
enda í gærmorgun er þeir funduðu
um þá stöðu sem upp var komin eft-
ir að framkvæmdastjóm Vinnuveit-
endasambands íslands felldi
Grindavíkursamkomulagið. Á fund-
inn mættu menn frá framkvæmda-
stjóminni og Sambandi fískvinnslu-
stöðvanna. Grindvíkingamir vom
reiðir vegna þeirrar afgreiðslu sem
mál þeirra höfðu fengið.
Kr. Ben.
Sjá viðbrögð við Grindavíkur-
samningunum og umfjöllun um
kjaramálin á bls. 24 og 25.