Morgunblaðið - 15.03.1988, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1988
VEÐUR
Áburðarverksmiðjan í Gufunesi:
Sekkjunarstöðin, sem lokið var við í janúar sl. er nýjasti hluti verk-
smiðjunnar. Áður unnu 28 manns við sekkjun en nú eru starfsmenn
5, enda er nýja stöðin að mestu sjálfvirk.
Of mikið gert úr
áhættu af notkun
gamla geymisins
- segir Hákon Björnsson
„AÐ okkar dómi eru þessar dramatísku iýsingar á mikill hættu við
áframhaldandi notkun gamla ammoníaksgeymisins stórlega ýktar enda
er ekki vitað til að slys hafi orðið af völdum samskonar geyma annars
staðar. Við teljum því að óskir borgaryfirvalda um að við hættum að
nota hann svona fyrirvaralaust séu ekki byggðar á réttum forsend-
um,“ sagði Hákon Björnsson, framkvæmdastjóri Áburðarverksmiðjunn-
ar í Gufunesi, er hann var inntur álits á þeim umræðum sem orðið
hafa að undanförnu um geymslu ammoníaks á vinnusvæði Áburðar-
verskmiðjunnar í Gufunesi.
Forsaga málsins er sú, að í janúar
1986 gaf Vinnueftirlit ríkisins út
skýrslu sem nefnd var „Hættumat
vegna ammoníaksgeymis Áburðar-
verksmiðju ríkisins í Gufunesi". Nið-
óhappi voru hins vegar taldar mjög
litlar. í framhaldi af þessari skýrslu
skipaði þáverandi félagsmálaráð-
herra starfshóp í febrúar 1986, til
að gera tillögur um úrbætur vegna
urstaða skýrslunnar var í stuttu /hugsanlegrar hættu af geymslu
máli sú, að kæmi mikill og skyndileg-
ur leki að kúlugeymi verksmiðjunnar
fullum, gæti það haft alvarlegar af-
leiðingar fyrir stóran hluta
Reykjavíkursvæðisins vegna amm-
oníaksmengunar. Líkur á slíku
ammoníaks undir þrýstingi á verk-
smiðjusvæðinu í Gufunesi. Niður-
staða starfshópsins var í stuttu máli
sú að hætta gæti einkum stafað af
utanaðkomandi atburðum, svo sem
náttúruhamförum, flugslysi eðajafn-
Morgu nblaðið/S verrir
Hákon Björnsson, framkvæmdastjóri Áburðarverksmiðju ríkisins í Gufunesi. í baksýn er ammoníakskúl-
an umdeilda.
vel skemmdarverki. Hvað varðar
náttúruhamfarir var það einkum
jarðskjálfti sem hætta gæti stafað
af og í framhaldi af því var skjálfta-
þol kúlunnar kannað af Verkfræði-
stofnun Háskólans. Niðurstaða þeirr-
ar könnunar var sú að styrkja þyrfti
burðarvirki kúlunnar nokkuð til að
þola hugsanlega stærstu skjálfta,
þótt líkur á slíkum skjálfta væru
mjög litlar. Auk þess var lagt til að
gerðar yrðu ýmsar breytingar á
geyminum, svo sem með kælingu
innihaldsins og einangrun auk ann-
arra öryggisráðstafanna.
Hákon sagði að starfshópurinn
hefði gert tillögur um ákveðnar
breytingar á gamla geyminum en að
lokinni nánari athugun, þar sem í
ljós kom að bygging nýs kælds geym-
is myndi verð hagkvæmari og heppi-
legri samþykkti stjóm verksmiðjunn-
ar í byijun febrúar síðastliðinn að
ráðast í þær framkvæmdir.
„Þegar að því kom að fá sam-
þykki borgarráðs fyrir byggingar-
leyfi á nýjum geymi fór hins vegar
að bera á þessum umræðum um
mikla áhættu vegna áframhaldandi
notkunar gamla geymisins," sagði
Hákon. „í framhaldi af þessu fóru
fjölmiðlar að láta málið til sín taka
„Okkar skoðun er því sú að hættan
á áframhaldandi notkun gamla
geymisins sé ekki svo • mikil sem
menn hafa viljað vera láta og að
ekki sé ástæða til að tjúka upp til
handa og fóta og hætta að nota
hann á meðan sá nýi er í byggingu,
ekki síst ef tekið er tilliti til þess
tekjutaps sem það hefði í för með
sér fyrir verksmiðjuna," sagði Há-
kon.
Hann sagði að þrátt fyrir sam-
drátt í sölu á áburði á árinu 1987
hefði afkoma aburðarverksmiðjunar
verið góð. Samkvæmt uppgjöri sem
nú lægi fyrir hefði orðið tekjuafgang-
ur af rekstrinum á árinu 1987 upp
á 30,5 milljónir króna. Á untianföm-
um árum hefði verið leitast við að
draga úr rekstrarkostnaði og halda
fjárfestingum í lágmarki. Jafnframt
hefði verið lögð áhersla á að lækka
ÍDAGkl. 12.00:
Heimild: Veðursiofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR Í DAG, 1S.3. 88
YFIRLIT í gœr: Búist er við stormi á suðvesturdjúpi. Um 1000 km
suðvestur af Reykjanesi er víðáttumikil 970 mb laegö sem hreyfist
austur. Yfir Noröaustur-Grænlandi er 1025 mb hæð.
SPÁ: Norðaustanátt með éljum norðan til en úrkomulaust sunnan
til. Frost víðast 5—10°
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Norðan- og norðaustanátt og víða um
eða yfir 10° frost. Él norðanlands en úrkomulaust sunnan til.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Syðst á landinu lítur út fyrir vaxandi
austanátt með snjókomu og vægu frosti en fyrir norðan verður
áfram norðan- og norðaustanátt og kalt með éljum einkum í út-
sveitum.
Heiðskírt
TAKN:
o
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y. Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / # \
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■J 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
V Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík hiti +10 1 veóur snjókoma alskýjað
Bergen 0 skýjað
Helsinki +2 snjókoma
Jan Mayen •f-9 skýjað
Kaupmannah. 0 snjókoma
Narssarssuaq 2 léttskýjað
Nuuk +7 léttskýjað
Osló 0 léttskýjað
Stokkhólmur +1 léttskýjað
Þórshöfn 2 skýjað
Algarve 18 léttskýjað
Amsterdam B skýjað
Aþena vantar
Barcelona 13 hálfskýjað
Berlín 3 hálfskýjað
Chicago +6 snjóél
Feneyjar 11 þokumóða
Frankfurt 3 rigning
Glasgow 3 reykur
Hamborg 1 snjóél
Las Palmas 22 þokumóða
London 6 súld
Los Angeles 10 heiðskírt
Lúxemborg 6 rigning
Madrid 16 léttskýjað
Malaga 20 hálfskýjað
Mallorca 13 þokumóða
Montreal +4 snjókoma
New York 3 alskýjað
París 9 alskýjað
Róm 14 slcýjað
Vfn 1 slydda
Washington 2 alskýjað
Winnipeg +17 léttskýjað
Valencia 14 mistur
og þá fóru að koma ýmsar yfirlýsing-
ar frá borgarstjóra, annars vegar um
geymslu á ammoníaki og hins vegar
um ýmsa aðra þætti í rekstri Áburð-
arverksmiðjunnar. Okkur finnst því
að við séum komnir í eins konar áróð-
ursstríð við borgarstjóra. Sú skoðun
hefur komið upp í borgarráði, að
með -hliðsjón af skýrslu starfshóps
félagsmálaráðherra um áhættu af
notkun gamla geymisins, sé ástæða
til að óska eftir að við hættum að
nota hann. Okkur finnst hins vegar
að í þessum málflutningi sé lögð of
mikil áhersla á þessa dramatísku
hættulýsingu, en ekki haft nógu
mikil hliðsjón af þeim forsendum,
sem liggja að baki. Geymirinn hefur
verið í notkun hér síðan 1964 og
samskonar geymar hafa verið notað-
ir víða um heim og við vitum ekki
til að neins staðar hafi hlotist óhapp
af. Í forsendum skýrslunnar er gert
ráð fyrir mjög sérstæðum kringum-
stæðum til að slys geti hlotist af
geyminum. Það er þá helst mjög stór
jarðslqálfti, stærri en vitað er til að
hér hafi orðið síðan ísland byggðist."
Hákon sagði að verksmiðjan fram-
leiddi sjálf um 9.500 tonn af ammon-
íaki á ári og flytti inn á milli 2.000
og 2.500 tonn. Ef hætt yrði notkun
gamla geymisins myndi það þýða um
17% samdrátt í framleiðslu á tilbún-
um áburði, sem samsvaraði afkomu-
rýmun sem næmi 35 til 40 milljónum
króna á. ári. Gert væri ráð fyrir að
bygging nýs geymis tæki 14 til 18
mánuði og því mætti gera ráð fyrir
55 til 60 milljón króna verri afkomu
en ella hjá verksmiðjunni á meðan á
byggingu nýja geymisins stæði.
skuldir fyrirtækisins. í árslok 1987
voru skludir tæplega 492 milljónir
króna og höfðu þá verið greiddar
niður um 148 milljónir króna frá því
í árslok 1986.
Aðspurður um þá samþykkt borg-
arráðs að beina þeim tilmælum til
ríkisstjómarinnar að skipuð verði
nefnd til að gera allsheijarúttekt á
þjóðhagslegri hagkvæmni Áburðar-
verksmiðjunnar sagði Hákon meðal
annars:
„Við viljum gjaman að slík úttekt
fari fram því að okkur finnst að í
þesari umfjöllun hafi borgarstjóri
slegið um sig með ýmsum fullyrðing-
pm þess efnis að verksmiðjan sé
óhagkvæm og að hún sé baggi á
þjóðinni. Því hefur líka verið haidið
fram að hún sé ljót og-tæknilega
úrelt. Við viljum hins vegar halda
hinu gagnstæða fram og höfum því
ekkert á móti slíkri úttekt, svo að
hið sanna geti þá komið í ljós. Hér
vinna nú 148 manns og það þurfa
því að vera mjög sterk rök fyrir því
að leggja verksmiðjuna niður.“
Hákon sagði að hugmyndir um að
flytja verksmiðjuna á ánnan stað
væri ekki raunhæf að sínu mati. Það
yrði kannsi hægt að flytja einstaka
vélarhluta, en byggingar og hafnar-
aðstaða yrði ekki flutt. _
Aðrir starfsmenn Áburðarverk-
smiðjunnar, sem Morgunblaðið ræddi
við, vom á einu máli um að í umræð-
unni að undanfömu hefði verið gert
of mikið úr hættunni af notkun
gamla geymisins, þótt vissulega væri
ástæða til að fagna því aukna ör-
yggi, sem hlytist af byggingu nýs
geymis.