Morgunblaðið - 15.03.1988, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1988
27
Morgunblaðið/Sverrir
Snorri Orn Snorrason og Sverrir Guðjónsson sem flytja munu lög
frá endurreisnartimanum á Háskólatónleikum á morgun í Norræna
húsinu.
Háskólatónleikar
í Norræna húsinu
ATTUNDU Háskólatónleikar á
vormisseri verða haldnir í Nor-
ræna húsinu miðvikudaginn 16.
mars kl. 12.30-13.00.
Á tónleikunum munu Sverrir
Guðjónsson kontra-tenór og Snorri
Öm Snorrason lútuleikari flytja
ensk, spönsk, þýsk og ítölsk lög frá
endurreisnartímabilinu. Á efnis-
skránni eru einnig þijú íslensk þjóð-
lög.
(Fréttatilkynning)
Helgi Hálfdanarson:
Lítið hús við litla Ijöm
Fyrir nokkru hafði ég orð á
því, að ég teldi tjamhúsmálið svo-
kallaða með öllu tapað. En seint
skyldi örvænt; og viti menn! nú
glæðist von að nýju.
Nú er sem sé hugsanlegt, að
borgarstjórinn okkar falli frá
þeirri frægu skoðun sinni að fylgi
Reykvíkinga við Bakkabæ standi
í öfugu hlutfalli við niðurstöður
skoðanakannana, og muni hann
þá fremur láta til leiðast að efna
til almennrar leynilegrar at-
kvæðagreiðslu. Því könnun sú,
sem Skáís hefur nýverið gert,
bendir til þess, að hugmyndinni
um ráðhús í Tjöm hafl aukizt
fýlgi um skeið, og það svo, að
Bakkabændur mættu við una.
Bomar hafa verið brigður á
niðurstöður Skáíss vegna óheppi-
legra vinnubragða. En ekki sé ég
ástæðu til þess.
Að vísu kynni að slá i baksegl,
ef það gæti orðið öllum ljóst, að
þetta smákríli, sem kallað hefur
verið „litla snotra ráðhúsið", er
ferlíki á stærð við Hallgríms-
kirkju, í hrópandi ósamræmi við
allt umhverfíð, svo ekki sé minnzt
á þau óleysanlegu vandamál
skipulags og umferðar, sem hljóta
að fylgja, og þarflausan ógrynn-
is-kostnað, sem bæjarbúum er
ætlað að rogast með.
Víst kann það að þykja nokkuð
dularfullt, að fýlgið við Bakkabæ
geti tekið skyndilegum breyting-
um, svo sem könnun Skáíss bend-
ir til. Heyrt hef ég þá tilgátu, að
ýmsir þeirra flokksmanna borgar-
stjórans, sem hafa verið og em
andvígir smíðinni, telji naumast
annað fært, úr því sem komið er,
en halda áfram í Tjörninni vegna
þess mikla kostnaðar, sem þar
hefur nú þegar verið álpazt út í.
Að vísu eru þær miljónir, sem
þarna færu í súginn, naumast
umtalsverður hégómi hjá því þarf-
leysu-bruðli, sem fram undan
væri. Samt er sennilegri skýring
vandfundin. Raunar gæti hún átt
við fleiri en pólitíska fylgismenn
borgarstjórans, þó ekki væri nema
eðlilegt, að einmitt þeim sárnaði
hvað mest að sjá hann sólunda,
ekki aðeins dýrmætum íjármún-
um að óþörfu, heldur ef til vill
jafnframt dýrmætu fylgi. Þetta
er alltjent æði miklu trúlegra en
hitt, að þeim sem í gær þótti ráðs-
konan á Bakka ófríð og illa siðuð,
þyki hún allt í einu hið prúðasta
fegurðarkvendi í dag. Þess vegna
er því haldið fram, að raunveruleg
andstaða gegn tjamhýsinu sé söm
við sig, en purkunarlaus frekja
Bakkabænda hafí borið þann ár-
angur sem til var ætlazt, að þeg-
ar greinilega hefði verið hafizt
handa af fullum krafti og nógu
miklu til kostað, þætti mörgum
illskárra að halda áfram en að
reyna að snúa við.
Ef tillaga um stórhýsasmíðar
við Tjörnina yrði borin undir
Reykvíkinga í almennri atkvæða-
greiðslu og samþykkt, hlyti það
vitaskuld að valda vonbrigðum
öllum þeim, sem vilja vemda
Tjamarsvæðið og viðkvæmar
menningarminjar alls gamla
hverfisins; því þótt þeir að sjálf-
sögðu sætti sig við niðurstöðu,
sem fengist á lýðræðislegan hátt,
hver sem hún yrði, þá stæðu rök-
semdir þeirra óhaggaðar eftir sem
áður.
Hins vegar hefðu engir meiri
ástæðu til að óska þess, að tillaga
um ráðhús í Tjöm yrði felld, en
Bakkabændur sjálfír. Samþykkt
hennar gæti hvort sem ér ekki
þvegið af þeim þann svarta blett
að fara fram með einræðis-
offorsi, meðan allt bendir til þess,
að mikill meirihluti Reykvíkinga
sé andvígur gerðum þeirra. En
ólukka þeirra hin mesta yrði sú
að hljóta að halda áfram því verki,
sem æ betur sést, hvílíkt glapræði
var að steðja út í, halda áfram
að baka framtíðinni grófari vanda
en leystur yrði á nokkum boðleg-
an hátt.
í stað þess að velja einhvern
þeirra ótal mörgu staða í bænum,
sem allir Reykvíkingar gátu sam-
einazt um og í einingu glaðzt yfir,
er valin einmitt sú skákin, sem
allir vissu að mjög mikill fjöldi
bæjarbúa var afar mótfallinn.
Háttvísir menn hefðu ekki kosið,
að ráðhús staðarins, sem öllum
ætti að vera kært, sprytti upp í
algerri óþökk mikils Muta bæj-
arbúa.
Aðfarir bo rgarstjórans að und-
anfömu hefðu Fom-Grikkir trú-
lega kallað „oflæti“, sem þeir
töldu að boðaði fall þeirra sem
það hefðu í frammi. Ég óska þess
sannarlega, að oflæti verði borg-
arstjóranum ekki að neinu því
falli, sem honum yrði meint af.
En óttinn við allsheijar atkvæða-
greiðslu ætti að hafa rénað, og
horfumar á því, að hún fáist fram,
batnað að sama skapi. Sjáum
hvað setur!
JVC kynnir GR-CU
VideoMovie
Getur smátt orðið ennþá smærra?
Já, GR-Cll VideoMovie er einfaldari, léttari
og mirmi en nokkur önnur VideoMovie vél.
Hjá JVC er smæðin samt ekki aðalatriðið,
heldurgæðin. Hin nýja GR-Cll býr
yftr fullkomnustu tækni sem völ er á.
4
Með tilkomu GR-Cll geta allir skrásett í lifcindi
myndum, uppvöxt, afmæli og giftingar
með ágætum ársuigri. Hú eða
fcirið í ferðalag með frábærum félaga.
GR-Cll er nefhilega mjög létt
á sér og skörp, og alveg sérlega minnug.
Já, fyrirþá sem vilja taka lífið
raunverulega upp er GR-Cll eina lausnin.
Glasgow-verð!
Aðeins kr.:
54. 900 stgr.
FaCO • Laugavegi 89 • SS? 91-13008
Fæst ( Reykjauík hjá Nesco Kringlunni, Kaupstað ( Mjódd
og Leysi Nóatúni auk Faco.
Og hjá hinum ffölmörgu JVC söluaðilum úti á landi.
Munið JVC1988 uideobæklinginn með upplýsingum um
GR-Cl 1. Haflð samband og uið sendum ykkur eintak.
stórstirnið frá
Raunveruleg stærð
VideoMovie
s4UTO FOCUS HCl CCD 950 12 þrefalt sjálf
SJÁLFSKESPA HAGÆÐA MYND MVNDFLAGA GROMM LUX súm þræoing