Morgunblaðið - 15.03.1988, Síða 32
32
.VÍTAVÍ A.r ffJJOAQIJWffld OTGA IPVfITf)flOM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1988
rrt •
Biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, prédikaði og þjónaði
fyrir altari.
Séð yfir hluta gesta við vígslu
Breiðholtskirkj u.
Morgunblaðið/BAR
Sóknarpresturinn, séra Gísli
Jónasson.
Breiðholtskirkja vígð
Breiðholtskirkja í Mjódd var
vígð á sunnudag. Biskup Islands,
herra Pétur Sigurgeirsson, vígði
kirkjuna að viðstöddum vígslu-
vottum. Um altarisgöngu sáu
vigslubiskup, séra Ólafur Skúla-
son, sem gegndi fyrstur störfum
sóknarprests í Breiðholtspresta-
kalli, Lárus Halldórsson, sóknar-
prestur 1972-1986 og Gísli Jónas-
son, núverandi sóknarprestur.
Við athöfiiina lék strengjasveit
undir stjóm Áma Arinbjamarsonar
auk trompetleikaranna Jóns Sig-
urðssonar og Ásgeirs Steingríms-
sonar. Þá söng kór kirkjunnar und-
ir stjóm Daníels Jónassonar. Um
550 manns voru viðstaddir athöfn-
ina, meðal þeirra voru forseti ís-
Iands, frú Vigdís Finnbogadóttir,
kirkjumálaráðherra, Jón Sigurðs-
son, Davíð Oddsson borgarstjóri,
Magnús L. Sveinsson forseti borg-
arstjómar og formaður byggingar-
nefndar, Sigurður E. Guðmunds-
son.
Að sögn Sveinbjamar Bjamason-
ar, formanns sóknamefndar var
þetta óneitanlega stór stund fyrir
söfnuðinn, sem í eru um 4000
manns. Hann var stofnaður í nóv-
ember 1972 og hefur hann alla tíð
haft aðsetur í Breiðholtsskóla, við
frábæra aðstöðu að sögn Svein-
bjamar.
Fyrsta skóflustunga að kirkjunni
var tekin í nóvember 1978. Kirkju-
skipið er fullfrágengið en safnaðar-
heimili er enn ólokið og nokkur
vegur frá því að kirkjan verði full-
gerð. Kirkjuna hönnuðu arkitekt-
amir Ferdinand Alfreðsson og Guð-
mundur Kristinsson, auk Harðar
Bjamarsonar tæknifræðings.
Kór Breiðholtskirkju
tveggja blásara.
söng við athöfnina auk strengjasveitar og
Magnús L Sveinsson formaður VR:
Tílboð Ferðabæjar var 43% hærra
en samningurinn við Lionair
MORGUNBLAÐINU barst í gær
frá Magnúsi L. Sveinssyni, for-
manni Verslunarmannafélags
Reykjavíkur, eftirfarandi „svar
VR við rangfærslum fram-
kvæmdastjóra Ferðabæjar hf.“.
„Ekki veit ég hver tilgangur Birg-
is Sumarliðasonar, framkvæmda-
stjóra Ferðabæjar, er að eiga viðtal
við Morgunblaðið, sem birtist sl.
ERT ÞU
KONA?
Viltu:
Fræðast um sérstöðu kvenna við stjórnunarstörf?
Kynnast eigin stjórnunarmáta?
Bæta samstarfshæfni þína?
Viltu:
Auka sjálfsöryggi þitt?
Styrkja sjálfsímynd þína?
Bæta tímastjórnun þína?
Ef svo er, þá er þetta námskeið fyrir þig.
Leiðbeinandi: Steinunn H. Lárusdóttir,
M Ed í stjórnun.
Námskeiðið hefst laugardaginn 19. mars.
Upplýsingar og innritun í síma 11293 kl. 18.00-23.00.
________________FRAMÞRÓUN s/f.__________________________
Námskeið og ráðgjöf á sviði stjórnunar, samskipta og fjölmiðlunar,
Espigerði 12,108 Reykjavík.
Anna G. Magnúsdóttir, Einar I. Magnússon, Sigþór Magnússon og
Steinunn H. Lárusdóttir.
sunnudag, þar sem hann fer með
gróf ósannindi um verðtilboð hans
til VR á flugi til Kölnar í sumar.
Birgir segir í viðtalinu, að Ferðabær
hafí boðið VR að fljúga til Kölnar
„fyrir tæpar 8.700 krónur fram og
til baka“. Þessari tölu er slegið upp
í fyrirsögn blaðsins.
Hið rétta er, að samkvæmt tilboði
Ferðabæjar hefði flugfarið með rútu-
kostnaði Köln/Lúxemborg fram og
til baka kostað 13.575 krónur reikn-
að með sama hætti og tilboðið frá
Lionair, sem hljóðar upp á kr. 9.500.
Tilboð Ferðabæjar er því 43% hærra.
Rétt er að gera nánari grein fyrir
kostnaðarþáttum samkvæmt tilboði
Ferðabæjar. Samkvæmt því var gert
ráð fyrir að fljúga á föstudögum í
júní, júlí og ágúst. Fyrsta ferðin
hefði ekki orðið fyrr en föstudaginn
10. júní þar sem sumarhús sem VR
hefur tekið á leigu í Þýskalandi frá
þeim tíma eru tengd fluginu. Ferð-
imar hefðu því orðið 12 til ágústloka.
Gengið er út frá því að fólk sé 3
vikur í þessum ferðum. Þijár fyrstu
ferðimar eru vélar til Islands tómar,
þar sem fyrsti hópurinn kemur ekki
heim fyrr en eftir 3 vikur. Þannig
er það einnig í lok tímabilsins þegar
verið er að flytja fólkið heim, að
þrjár síðustu ferðimar verða vélam-
ar tómar frá íslandi. Samkvæmt því
hefði verið hægt að selja í 9 ferðir
frá íslandi miðað við að síðasti hóp-
urinn kæmi heim síðasta föstudag í
ágúst. Samkvæmt tilboðinu bauðst
Ferðabær til að „taka á sig tómu
leggina vegna fyrsta og síðasta
flugs“ eins og segir orðrétt í tilboði
þeirra frá 11. febrúar sl. Það þýðir
að VR hefði orðið að borga sem
svarar 11 af 12 ferðum.
Samkvæmt tilboði Ferðabæjar
átti hvert flug fram og til baka að
kosta 26.000 bandaríska dollara.
Það margfaldað með 11 ferðum ger-
ir 286.000 dollara.
í tilboðinu var gert ráð fyrir flug-
vél af gerðinni Boeing 737 með 118
sætum. í verðinu sem reiknað er
með í samningi við Lionair er reikn-
að með 92% nýtingu. Samkvæmt
sömu reglu væri hægt að flytja 977
farþega með flugvél Ferðabæjar.
Flugfarið eitt myndi því verða á
hvern mann, 293 dollarar eða ísl.
kr. 11.720. Þá á eftir að reikna þókn-
un til Ferðabæjar vegna útgáfu fars-
eðla, sem samkvæmt tilboðinu átti
að vera í umsjón þeirra „gegn hóf-
legri þóknun og nánara samkomu-
lagi aðila", eins og segir í tilboðinu.
Algengt mun vera að reikna með
9% ofan á fargjaldið vegna þessarar
þóknunar, sem myndi samkv. því
gera kr. 1.055 á hvern miða. Þá er
eftir að reikna með ferðakostnaði
Köln/Lúx. fram og til baka; sem
ekki var í tilboði Ferðabæjar. Eg hef
ekki ákveðna tölu um þennan kostn-
að, en geri ráð fýrir að hann sé
vart undir 600 krónum á mann mið-
að við báðar leiðir. Þá er eftir að
reikna með svokölluðum Leifsskatti
sem er 200 krónur á mann og er
ekki innifalinn í tilboði Ferðabæjar.
Þegar allt þetta er tekið saman
lítur kostnaður á hvem mann þann-
ig út, samkvæmt tilboði Ferðabæjar:
Flugfar kr. 11.720
Þóknun til Ferðabæjar kr. 1.055
Rúta Köln/Lúx. kr. 600
Leifsskattur___________kr. 200
Samtals kr. 13.575
Samningur VR við Lionair felur
alla þessa kostnaðarliði í sér og
hljóðar hann upp á kr. 9.500 á mann
og er tilboð Ferðabæjar því 43%
hærra.
Rétt er að taka fram, að VR og
BSRB, sem hafa staðið saman að
því að leita eftir hagstæðum orlofs-
ferðum hafa átt ítarlegar viðræður
við Arnarflug um þessar ferðir.
Ferðabær tekur fram að tilboð þeirra
byggist á samstarfí við Arnarflug.
Niðurstaða viðræðna við Arnarflug
var því miður sú, að þeir treystu sér
ekki til að fljúga fyrir gjald sem
væri það nærri tilboði Lionair að
réttlætanlegt væri að taka því. Sú
staðreynd segir sína sögu um sann-
leiksgildi orða Birgis Sumarliðason-
ar.
Þá er einnig rétt að láta það koma
fram að samkvæmt samningi við
Lionair er hægt að flytja nærri helm-
ingi fleira fólk í þessum ferðum en
samkvæmt tilboði Ferðabæjar.“