Morgunblaðið - 15.03.1988, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 15.03.1988, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1988 43 Morgunblaðið/Garðar Rúnar Sigurgeirsson Frá æfingu á leikritinu „Stóri klunnalegi blórinn með uppsnúnu uggana", sem Leikfélag Seyðisfjarðar sýnir um þessar mundir en þar fara börn með öll hlutverkin. Seyðisfjörður; Barnaleikritið „Stóri klunnalegi blórinn með uppsnúnu uggana“ Seyðisfirði. LEIKFÉLAG Seyðisfjarðar frumsýndi á föstudaginn barna- leikritið „Stóri klunnalegi blór- inn með uppsnúnu uggana" eftir danska leikritaskáldið Börge Hansen i þýðingu Emils Emils- sonar, sem um langt árabil hefur verið burðarásinn í leikfélaginu. Leikstjóri er Margrét G. Óskars- dóttir. Þetta verk hefur ekki áður verið sett upp hér á landi. Öll hlutverkin eru leikin af bömum á aldrinum 5—13 ára. Alls taka þátt í sýning- unni um 80 manns. Þessi sýning er því ein sú viðamesta sem leik- félagið hefur ráðist í. Þetta er 26. verkefni félagsins, en það varð 30 ára á síðasta ári. Tónlistin í leikrit- inu er frumsamin af þeim Aðalheiði Borgþórsdóttur og Kristrúnu Helgu Bjömsdóttur, sem jafnframt er stjómandi hljómsveitarinnar. Leikritið segir frá 5 krökkum,. sem eru að leika sér í indíánaleik. Þau hafa tapað teppinu, sem þau höfðu hnuplað af þvottasnúru. Þá kemur til þeirra skrýtin stelpa, sem upplýsir þau um að stóri klunnalegi blórinn með uppsnúnu uggana hafi örugglega stolið teppinu. Það er nefnilega alltaf hann, sem gerir allt, sem okkur er kennt um, svo sem að nenna ekki að læra heima fyrir skólann, pissa í buxumar o.s.frv. Það verður úr að þau leggja af stað í ferðalag til þess að finna þennan ósvífna blóra. Þau fara út á þjóðveginn, í gegnum skógin, nið- ur að sjónum og ofan í sjóinn. Þetta er því mikil ævintýraferð, sem þau lenda í. Leikfélagið ætlar að taka upp þá nýbreytni að gefa nemendum af öllum Austíjörðum kost á því að koma í leikhúsferð til Seyðisfjarðar. í því skyni verði a sýningar miðað- ar við þá daga, sem heiðar og fjall- vegir eru ruddir hér austanlands. Með þessum hætti vill Leikfélag Seyðisijarðar stuðla að því að þessi landshluti verði sjálfum sér nógur um skemmtanir fýrir böm og ungl- inga. — Garðar Rúnar Atriði Úr fyrri hluta laikritsins Ó þú. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Biskupstungur: Ó þú frumsýnt í Aratimgri Selfossi. UNGMENNAFÉLAG Biskups- tungna frumsýndi í Aratungu á laugardaginn leikritið Ó þú, sem er ástarsaga pilts og stúlku í létt- um dúr, eftir Ingibjörgu Hjartar- dóttur, Sigrúnu Óskarsdóttur og Unni Guttormsdóttur. Leikstjóri er Edda V. Guðmundsdóttir. Ungmennafélagið verður 80 ára á þessu ári og er hér um afmælis- sýningu að ræða en félagið var stofnað vorið 1908. Leikendur eru 16 talsins en alls taka 20 manns þátt í uppfærslu verksins. Aformað er að sýna verk- ið í nokkmm félagsheimilum í sýsl- unni og er önnur sýning í Aratungu 14. mars, 16. mars í Arnesi, 18. mars á Flúðum, 21. mars í Þjórsár- veri og 22. mars í Aratungu. Sýn- ingamar heíjast klukkan 21.00. Sig. Jóns. MICR©SOFT HUGBÚNAÐUR HORFU HINN BJARTI TÓNN gefur þér tilefni til að breyta skammdeginu. Þú málar bara yfir það! HÖRPUSKIN ný innanhússmálning meö 10% gljástigi sem gerir hana áferðarfallega og auðvelda í þrifum. HÖRPUSKIN skaltu nota á herbergin og stofurnar. Hún er afar einföld í notkun og þekur mjög vel. HÖRPUSKIN - líttu á björtu hliðarnar. HMntOQ, '"wn, vatno|?ynn*nl*o InrtmáWnfl w nolkun«r A «toln, júm ofl trú. HARPA gefur lífinu lit. HÖRPUSKIN fæst í 10 björtum staðallitum en litamöguleikarnir eru mun fleiri. Skiptu um lit á skammdeginu - með HÖRPUSKINI. AUK hf. 111.15/SlA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.