Morgunblaðið - 15.03.1988, Síða 50

Morgunblaðið - 15.03.1988, Síða 50
7f<MTfííWM' 50 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1988 + Eitt og annað fært til betri vegar eftir Ragnar Gunnarsson I janúartölublaði Þjóðlífs ritar Óskar Guðmundsson, ritstjóri blaðsins, grein um félag hér í borg, sem heitir Tilraunafélagið og hefur að markmiði „að efla samband iifsins á jörðunni við fullkomnari lífsstöðvar í alheimi". í grein þess- ari er minnst nokkuð á tvö önnur félög, Félag nýalssinna (FN) (og Félag áhugamanna um stjörnulíf- fræði (FÁS), og með þeim hætti að fátt er rétt um þau sagt. Óskar hefur staðfest, að upplýsingar þær sem hann fékk um FN og FÁS hafi að mestu veitt Magnús nokkur Skarphéðinsson, Tilraunafélags- maður, en hann var einmitt um tíma í FN. Undirritaður hefur dvalist erlendis og birtast eftirfarandi at- hugasemdir þess vegna svona seint eftir útkomu tímaritsins. Félag nýalssinna og félag áhugamanna um stjörnulíf- fræði Óskar greinir réttilega frá því að FN hafi verið stofnað eftir and- lát dr. Helga Pjeturss (ef einhvetjir ekki vita skal sagt að Helgi Pjet- urss (1872—1949) var jarðfræðing- ur og heimspekingur, sem reit §öl- margar greinar um lífið, eðli þess og tilgang, og er flestar þeirra að fínna í ritsafninu Nýall). Síðan seg- ir hann: „Hins vegar urðu átök í félaginu og það klofnaði fyrir nokkrum árum í tvennt; annars vegar hélt FN áfram að starfa___ og hins vegar var stofnað nýtt félag — FÁS .. .“ Hér er mjög hallað réttu máli. FÁS var ekki stofnað í kjölfar neinna átaka. Það er rétt að snarpar um- ræður hafi orðið í FN fýrir mörgum árum (meðan Magnús Skarphéðins- son var enn félagsmaður) um stjómun félagsins og starfshætti. Síðar var samþykkt að opna aðra sambandsstöð og það í Reykjavík, en fram að því hafði félagið haft miðstöð í Kópavogi. Reyndar segja félagar í FN og FÁS (t.d. Helgi Guðlaugsson, gjaldkeri FÁS og Nýalssinni um áratugaskeið) að ósk um að sambandsstöð yrði í Reykjavfk hafi ekki síst verið sett fram af landfræðilegum ástæðum, ef svo má segja, þ.e. félagsmenn búsettir í Reykjavík töldu eðlilegt að hafa samastað þar, í stað þess að þurfa að sækja fundi í annað bæjarfélag. FN keypti húsnæði á Njálsgötu 40, og voru haldnir þar fundir á vegum þess í 5—6 ár. Á þessum tíma heltust ýmsir úr lest- inni en aðrir komu í staðinn og varð úr þessu blandaður hópur; voru sumir úr FN en aðrir ekki. Raddir fóru að heyrast í báðum félögum að heppilegra væri að breyta þessum óformlega starfshópi í sjálfstætt félag og var það gert í febrúar J983. Er fjarri sanni að það hafi gerst sem afleiðing einhverra átaka. Stofnað var Félag áhuga- manna um stjömulíffræði, sem starfar á grundvelli heimspekikenn- inga dr. Helga Fjeturss og heldur reglulega miðilsfundi fyrir félags- menn en einnig gesti þeirra á sér- fundum. FÁS festi kaup á hús- næðinu á Njálsgötunni og er lög- skráður eigandi þess. Óskar ritar: „Sumir telja að Helgi (Pjeturss) hafi sjálfur verið mjög andvígur því að eitthvert félag yrði til um kenningar hans.“ Manni sem hefur lesið Ný- alsbækumar vel kemur þessi stað- hæflng vægast sagt spánskt fyrir sjónir, hvaða sumir em þetta með leyfi? Helgi Fjeturss reyndi oft og lengi að vekja athygli manna á kenningum sínum og skoðunum. Skipakranar HMF framleiðir skipakrana í miklu úrvali: Krana sem leggja má saman auk krana sem búnir eru útdregnum gálga með vökva- knúinni framlengingu. HMF kranarnir fást með mismunandi lyftigetu, allt frá 2,7 til 28 tonnmetra. HMF skipakranar eru vel varðir gegn tæringu. Þeir eru sand- blásnir og vandlega ryðvarðir fyrir lökkun og eru stimpilstangir krómnikkelhúðaðar eða úr krómhúðuðu, ryðfríu stáli.HMF er vörumerki Höjbjerg Maskinfabrik A/S í Danmörku sem framleitt hefur krana í 30 ár. LOAfDVElARHF SMIDJUVEGI66, PÓSThÓU=20. 202KÓFAVOGI,S.9176600 Ragnar Gunnarsson „Vel má vera að unnt sé að slíta setningar í Nýal úr samhengi og halda því fram að þar með hafi Helgi verið úr hófi fram þjóðernis- sinnaður. En samheng- inu má ekki gleyma og nógu vandlega verður að lesa.“ Hann var sannfærður um að hafa uppgötvað a.m.k. að hluta til nátt- úrulögmál í tengslum við eðli iífsins (t.d. svefns og drauma) og fram- hald þess og taldi það varða heill alls mannkyns að málflutningur sinn yrði ekki þagaður í hel. Þor- steinn Jónsson á Ulfsstöðum, aðal- hvatamaðurinn að stofnun FN á sínum tíma, mun hafa sagt eitthvað á þá leið, að Helgi Fjeturss hafl ekki viliað \Ma sjálfan sig, ef svo má að orði kom- ast, og er það mjög skiljanlegt en telja má fráleitt að Helgi hafl verið mótfallinn því að menn stofnuðu samtök um kenningar Nýals eftir sinn dag. Gefíð er í skyn í greininni að Helgi Guðlaugsson sé formaður FÁS: ____var stofnað nýtt félag — FÁS, sem Helgi Guðlaugsson leiðir.“ Helgi var að vísu einn af stofnendum FÁS og hefur unnið manna mest í þágu félagsins, en formenn hafa verið þrír; þeir Bene- dikt Björnsson, Gunnar Þ. Karlsson og sá sem þetta ritar. Engin tengsl við félagið Norrænt mannkyn Hér á undan er bent á að FN og FÁS eru tvö sjálfstæð félög. í grein Óskars er hins vegar auðvelt að misskilja það. Hann segin „Hreyfing Nýalssinna á tvö hús, á Njálsgötu 40 og Álfhólsvegi 121___ Auk þess eiga Nýals- sinnar jörð á Suðurlandi...“ Félag Nýalssinna á þá landareign, sem að vísu er aðeins jarðarpartur. Hin villandi framsetning Óskars er aftur á móti sýnu verri í ljósi þess sem á eftir kemur í greininni: „ ... fólk úr Félagi Nýalssinna stofn- aði félagsskapinn Norrænt mannkyn, sem e.o. nafnið gefur til kynna byggir á kenningum um að kynstofn hvíta mannsins sé öðrum æðri_____“ Félagsmaður í FN hefur tjáð undirrituðum að stofnendur félagsins Norrænt mannkyn séu reyndar langflestir ekki í FN. FÁS hefur engin tengsl við félagið Norrænt mannkyn og er á móti allri mismunun kynstofna hvort sem fullyrðing Óskars um stefnu þess félags er rétt eður ei. Ef einhveijir (heimildarmaður Óskars eða aðrir) hafa skilið Helga Fjéturss sem svo að hann vilji mis- muna mönnum eftir kynþætti, og skoðunum hans megi að einhveiju leyti líkja við hinar ömurlegu og m 1444 AFMÆUSTILBOB 4 STERKUR 0G ENDINGARGÚÐUR SNOWCAP ÍSSKÁPUR Á STÚRKOSTLEGU AFMÆLISTILBOÐSVERDI 280 lítra tvískiptur kæliskápur með 45 lítra frystihólfi. Hægri/vinstri opnunarmöguleikar. Sjálfvirk affrysting. Mál: h: 145cm, b: 57cm, d: 60cm. Verð áður 26.400.- Afmælistilboösverð 21.900.- GÆÐI Á GÓÐU VERÐI O) 3 cu R? 2Qfe. SKIPHOLT 7 S: 20080 - 26800

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.