Morgunblaðið - 15.03.1988, Page 74

Morgunblaðið - 15.03.1988, Page 74
74 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1988 Ferðalangarnir komnir til Þorlákshafnar Morgunblaðið/Jón H Sigurmunmdsson Átta ungmenni í hrakn ingum á Selvogsheiði Þorlákshöfn. Um hádegisbilið á sunnudag lagði fólk upp frá Hafnarfirði á jeppum og ætlaði Krísuvíkur- leiðina og þaðan upp í Bláfjöll. Þegar komið var að Grinda- skörðum sneru þrír bílanna við en fjórir héldu áfram, tveir Bron- co, einn Willys og Ford pick-up diesel. Fljótlega skall á blindbylur og sá ekki út úr augum. Einn jeppanna varð viðskila við hina og fór um klukkutími í að leita að honum. Þegar séð varð að ekki var hægt að komast í Bláíjöll var ákveðið að -fylgja vörðum sem liggja yfir í Sel- vog. Ferðin gekk hægt en vörðurn- ar enduðu loks á íjallsbrún ofan við Hlíðarvatn. Þar var stoppað og sá fólkið ljósin í Selvogi. Allir bflamir voru með talstöðvar og var fólkið mjög vel búið að öðru leyti en því að ekkert nesti var með í ferðinni. Um ellefuleytið náðist talstöðvarsamband við talstöðvar- áhugamann í Þorlákshöfn, kallnúm- er 5295, og lét hann aðstandendur vita um ferðir fólksins, sem reikn- aði með að verða komið í bæinn upp úr miðnætti. Til að komast niður af ijallinu þarf að aka nokkuð langt í austur og er þar mjög erfitt yfirferðar þannig að ferðin gekk treglega og óhöppin byijuðu að dynja á. Fjór- hjól sem var með í ferðinni var fljót- lega bensínlaust, eitt dekkið á Will- ysnum affelgaði sig, annar Bronco- inn hætti að hlaða og drap á sér, millikassinn í Fordinum brotnaði og allir voru að verða bensínlausir. Þegar þannig var komið var ákveðið að dvelja í bílnum um nótt- ina og bíða birtu og athuga hvort ekki létti til. Ekki tókst að ná tal- stöðvarsambandi aftur. Klukkan 6 á mánudagsmorgun vöktu tveir drengir úr hópnum heimilisfólkið á Götu í Selvogi eftir að hafa gengið í um eina og hálfa klukkustund frá staðnum þar sem dvalið hafði verið um nóttina. Vegna myrkurs og of- ankomu höfðu þeir gengið framhjá afleggjaranum að Vogsósum sem þó var miklu nær. Í Götu fengu drengirnir að borða og gátu látið vita af sér og hringt í björgunar- sveitina í Þorlákshöfn sem komin var á staðinn um klukkan sjö. Þegar þangað var komið hafði tekist að gangsetja annan Bronco- inn með því að flytja rafgeymi á milli bíla. Á þessum Bronco og björgunarsveitarbílnum var fólkinu síðan ekið til Þorlákshafnar en þangað var komið um hálf níuleyt- ið. Engum ferðalanganna varð meint af volkinu enda voru þeir vel búnir þótt hungur og kuldi hafi lítil- lega gert vart við sig um nóttina. - JHS Morgunblaðið/Ámi Helgason Þátttakendur í keppninni um titilinn ungfrú Vesturland. Ungfrú Vesturland, Halldís Höskulsdóttir er önnur frá hægri, ljósmyndafyrirsæta Vesturlands, Halldóra Birna Jónsdóttir, er þriðja frá vinstri og vinsæiasta stúlkan, Kristín Maggý Erlingsdóttir, er önnur frá vinstri. Halldís Höskuldsdóttir varð fegurðardrottiiing Vesturlands Stykkishólmi. Fegurðarsamkeppm Vestur- lands fór fram á Hótel Stykkis- hólmi föstudagskvöldið 11. mars sl. og var hún mjög vel sótt. Hófst hátíðin með matarveislu þar sem yfir 300 mættu og voru sumir langt að komnir. Þetta er fyrsta fegurðarsamkeppnin sem hér hefur farið fram. — Undirbúningur hefur staðið nokkum tíma og sérstaklega hafði sviðið í félagsheimilinu verið tekið skemmtilega í gegn af Jóni Svan Péturssyni, sem sýndi betur en nokkru sinni áður að hann er lista- maður. Luku menn sérstöku lofs- orði á hversu vel til hefði tekist. Undirbúningur keppninnar var í höndum Eyglóar Bjamadóttur og Jóhönnu Hauksdóttur sem stóðu sig með prýði. I upphafi kvöldsins lék Lúðra- sveit Stykkishólms í hálftíma, undir stjóm Daða Þórs Einarssonar, en hún er skipuð 40 hljóðfæraleikur- um. Sviðslýsingu annaðist Birgir Sigurðsson. Dómnefndina skipuðu Ólafur Laufdal formaður, Erla Har- aldsdóttir danskennari, Friðþjófur Helgason Ijósmyndari, Guðrún Erna Magnúsdóttir og Sturla Böðvars- son. Carolyn Parkes sýndi dansa og danspar frá Dansskóla Auðar Har- alds sýndi samkvæmisdansa og var gerður að góður rómur. Jóhannes Kristjánsson kom með raddir kunnra manna úr íslensku þjóðlífi og gæddi þá skemmtilegu lífi. Kynnir var Bjarni Sigtryggsson frá Reykjavík. Þegar þátttakendur gengu inn á sviðið tóku dómarar til óspilltra málanna og varð niðurstaða þeirra sú að Halldís Höskulsdóttir, Laug- argerði, ætti að krýnast sem feg- urðardrottning Vesturlands. Tók sinn tíma að kveða upp úrskurðinn enda fleiri sem stóðu nærri. Guðrún Möller frá Reykjavík krýndi fegurð- ardrottninguna en Guðrún var feg- urðardrottning Islands árið 1982. Þá var kjörin ljósmyndafyrirsæta og hlaut þann titil Halldóra Jóns- dottir, Stykkishólmi. Vinsælasta stúlkan var kjörin Kristín Maggý Erlingsdóttir frá Ólafsvík. - Árni Nílján ára Keflavík- urmær fegurðar- drottning Suðumesja GUÐBJORG Fríða Guðmunds- dóttir, 19 ára nemi í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja, var valin feg- urðardrottning Suðurnesja 1988 úr hópi 8 stúlkna í Glaumbergi í Keflavík sl. laugardagskvöld. Guðbjörg Fríða Guðmundsdóttir verður því fulltrúi Suðurnesja í keppninni um titilinn fegurðar- drottning íslands. Oddný Nanna Stefánsdóttir, 18 ára nemi í Fjölbrautaskóla Suður- nesja, var valin besta ljósmyndafyr- irsætan og Margrét Örlygsdóttir, 22 ára framreiðslunemi úr Njarðvík, var valin vinsælasta stúlkan. Það var Kristín Jóna Hilmarsdóttir feg- urðardrottning Suðumesja 1987 sem krýndi Guðbjörgu Fríðu eftir að kjörið hafði verið tilkynnt. Guðbjörg Fríða Guðmundsdóttir er fædd og uppalin í Keflavík. For- eldrar hennar eru Guðmundur Ing- ólfsson og Guðrún Guðmundsdóttir. Guðbjörg Fríða er yngst 5 dætra þeirra Guðmundar og Guðrúnar. I samtali við blaðamann Morgun- blaðsins sagði Guðbjörg að þetta hefði verið ólýsanleg tilfinning og að hamingjuóskum og blómum hefði rignt yfir hana. Hún ætlar Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Guðbjörg Fríða Guðmundsdóttir fegurðardrottning Suðurnesja 1988. að halda sínu striki í náminu, en hún stundar nám við Fjölbrauta- skóla Suðurnesja, og undirbúa sig undir aðalkeppnina sem haldin verður í Reykjavík í vor. - BB Stúlkurnar 8 sem kepptu um titilinn fegurðardrottning Suðurnesja 1988. Oddný Nanna Stefánsdóttir, 18 ára nemi i Fjölbrautaskóla Suðurnesja, sem valin var besta ljósmýndafyrirsætan er þriðja frá hægri og Margrét Örlygsdóttir, 22 ára Njarðvíkingur, sem valin var vinsælasta stúlkan, er fjórða frá hægri. Formannafundur LH: Af sökunarbeiðni til Eyf irðinga A formannafundi Landssam- bands hestamannafélaga, sem var haldinn á laugardaginn, var sam- þykkt afsökunarbeiðni til eyfirsku félaganna vegna ákvörðunar stjórnar LH um staðsetningu næsta landsmóts hestamanna á Vindheimamelum í Skagafirði en fjögur hestamannafélög við Eyja- fjörð hafa sagt sig úr LH vegna þessa máls. Þessi formannafundur er sá fyrsti sem haldinn er og var að sögn Leifs Kr. Jóhannessonar formanns LH fyrst og fremst haldinn til þess að ná sáttum í þessum deilum. Á fundin- um voru formenn nær allra hesta- mannafélaga á landinu, þ. á m. ey- firsku félaganna. Leifur sagði í sam- tali við Morgunblaðið að stjórn LH hefði viljað koma til móts við Eyfirð- inga og reyna að ná samkomulagi. Hann sagði miklar umræður hafa orðið á fundinum og í þeim hefði komið fram einróma álit manna, að stjóm LH hefði haft fullan rétt til að ákveða landsmótsstað. Eftir nokkrar umræður hefði komið fram fyrirspum frá einum fundarmanna um hvað þyrfti til að ná sáttum. Eyfírðingar svöruðu því til, að sögn Leifs, að afsökunarbeiðni stjórnar- innar þyrfti og var þá gert fundar- hlé til að semja hana. Afsökunar- beiðnin var síðan samþykkt og sagði Leifur, að stjóm LH hefði teygt sig mjög langt til að reyna að ná sátt- um. „Það vona allir, að takist sættir í þessu máli, það var farin að vera full mikil harka í þessu,“ sagði Leif- ur Kr. Jóhannesson. Eyfirðingar féll- ust á bókun um afsökunarbeiðni með fyrirvara um afgreiðslu heima í fé- lögum sínum. A fundinum var lögð fram till-iga um traustsyfirlýsingu á stjórn LH. Þeirri tillögu var síðan vísað frá að tillögu Tryggva Gunnarssonar for- manns Snæfellings. Jón Ólafur Sigfússon, formaður Léttis á Akureyri, sagði í samtali við blaðið, að afsökunarbeiðni stjómar LH væri fyrsti leikurinn. Málið væri nú í biðstöðu. „Menn em að hugsa sitt ráð, við höldum fundi eftir páska og ræðum þá stöðuna. Það liggur ekkert á, þar sem félög okkar eru utan LH og innganga verður ekki aftur fyrr en aðalfundir félaganna hafa samþykkt hana. Þeir fundir verða eftir um ár,“ sagði Jón Ólafur. „Þetta er viðurkenning á því, að á okkur hafi verið brotið. Þessi afsök- unarbeiðni ein og sér sameinar félög- in ekki á ný en þetta er fyrsti vottur- inn.“ Um tillöguna um traustsyfirlýs- ingu til stjórnarinnar sagði Jón Ólaf- ur: „Þetta var tillaga borin fram af aðstandendum Vindheimamela og varamanni úr.stjóm LH. Tillagan var kynnt í upphafi fundarins og það sýnir að þeir voru ekki á neinum friðarbuxui.i í upphafi fundar. Ég túlka frávísunina sem vott um sam- komulagsvilja og vissan sigur fyrir Eyfirðinga."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.