Morgunblaðið - 16.03.1988, Síða 2

Morgunblaðið - 16.03.1988, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1988 Landakotsspítali hættir bráðavöktum: Skapar erfiðleika hjá öðrum sjúkrahúsum „ÞAÐ ER ljóst, að ef Landakots- spítali hættir bráðavöktum þá verða þær að jafnast niður á Landspitalann og Borgarspítala. Það hlýtur að koma niður á ann- arri þjónustu þessara sjúkra- húsa,“ sagði Pétur Jónsson, framkvæmdastjóri sljórnunar- sviðs Landspítalans. Afnotagjöld RUV: Sótt um 10% hækkun RlKISÚTVARPIÐ hefur sótt um 10% hækkun á afnotagjöldum útvarps og sjónvarps frá og með 1. apríl næstkomandi. Afnota- gjöldin eru nú kr. 3.190 fyrir hvern ársfjórðung en verða kr. 3.409 fyrir hvem ársfjórðung ef heimild fæst fyrir hækkun. „Það hefur verið sótt um að af- notagjöidin verði í samræmi við forsendur fjárlaga," sagði Hörður Vilhjálmsson íjármálastjóri ríkisút- varpsins. í fjárlögum er gert ráð fyrir að afnotagjöld hækki um 15% umfram verðbólgu á árinu. Sam- kvæmt forsendum fjárlaga er áæti- að að verðbólgan verði 18% frá meðalverðlagi 1987-1988 til með- alverðlags yfirstandandi árs. „Ef sú áætlun stenst þá hækka afnota- gjöld um 15% og 18% að auki á öllu árinu," sagði Hörður. Afnotagjöldin hækkuðu síðast um 13%, 1. janúar síðastliðinn. í Morgunblaðinu í gær er haft eftir Loga Guðbrandssyni, fram- kvæmdastjóra Landakotsspítala, að vegna rekstrarerfíðleika sjúkra- hússins sé nauðsynlegt að loka tveimur deildum, með samtals 53 rúmum og í framhaldi af því hætti sjúkrahúsið bráðavöktum þann 1. apríl næstkomandi. Þessum vöktum hafa Landakotsspítali, Borgarspít- ali og Landspítali skipt með sér, en Landakotsspítali hefur tekið fæstar vaktir, enda það sjúkrahús minnst. „Við þurfum að gera skipulags- breytingar til að geta tekið fleiri bráðavaktir," sagði Pétur Jónsson. „Það er viðbúið að biðlistar lengist hjá okkur, því við verðum að hafa rúm laus vegna bráðavaktanna. Þar við bætist, að í sumar verður að loka nokkrum deildum, eins og ver- ið hefur undanfarin ár, vegna skorts á starfsfólki. Þetta gerir því illt Jóhannes Pálmason, fram- kvæmdastjóri Borgarspítalans, sagði að hann fengi ekki séð að Borgarspítalinn gæti bætt við sig bráðavöktum. „Við erum þegar með mikla bráðaþjónustu á slysadeild- inni og það er takmarkað hversu miklu er unnt að bæta við,“ sagði hann. „Við verðum, eins og svo margir aðrir, að loka deildum í sum- ar vegna skorts á starfsfólki. Eg treysti mér ekki til að svara því nú hvemig við bregðumst við, ef Landakotsspítalinn hættir að taka þessar vaktir, enda hafa stjómend- ur og yfírlæknar Borgarspítalans ekki rætt þann möguleika." „Gámað“ í Vestmannaeyjum. Morgunblaðið/Sigurgeir Afli Evjabáta í gáma MEGNIÐ af fiski Eyjamanna hef- ur farið í gáma vegna vinnu- deilna. Líklegt er að í næstu viku selji þeir allt að 1.000 tonn af ferskum fiski á erlendum mörk- uðum, þrátt fyrir að yfirvinnu- bann Verkalýðsfélagsins hafi ver- ið fellt úr gildi. Magnús Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Bergs-Hugins, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að skip frá Eimskip og Sambandinu kæmu á moigun og föstudaginn til Vestmannaeyja og tækju þar gáma með físki sem seidur yrði á erlendum mörkuðum. Hann hefði hlerað að það væri búið að panta 30 gáma í Vest- mannaeyjum og ef það væri rétt færu þaðan 400 til 450 tonn af fiski í gámum á erlenda markaði í næstu viku. Magnús sagðist einnig hafa grun um að þijú Vestmannaeyjaskip seldu um 200 til 300 tonn í Bretlandi í næstu viku. Hilmar Rósmundsson, formaður Útvegsbændafélags Vestmannaeyja, sagði að enda þótt af yfirvinnubanni Verkalýðsfélags Vestmannaeyja hafí ekki orðið færi afli litlu trollbátanna trúlega áfram í gáma, því stór hluti hans væri koli sem ágætt verð feng- ist fyrir í Bretlandi. Afli netabátanna verður hins veg- ar að öllum líkindum verkaður í salt en togaramir eru yfírleitt ekki með físk sem hægt er að salta. Það voru hins vegar söltuð hér 30 tonn af ufsa og blálöngu úr Breka en 160 til 180 tonn úr honum er komið í gáma sem fara með skipi á fímmtu- daginn. Verkakallamir héma lön- duðu úr Breka en skipveijamir settu sjálfír í gámana að vanda," sagði Hilmar. Harkaleg viðbrögð Breta í Rockall-málinu: Sögðust ekki sjá ástæðu til að ræða frekar við Islendinga og Dani - sagði Eyjólfur Konráð Jónsson, að loknum fundi með breskum embættismönnum London, frá fréttaritara Morgunbladsins Valdimar Unnari Valdimarssyni „ÞEIR sögðu það hreint út, að eftir kröfugerð Dana og íslendinga vegna Rockall-svæðisins árið 1985, sæu þeir enga ástæðu til að ræða frekar við þessar þjóðir um málið,“ sagði Eyjólfur Konráð Jónsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, eftir fund sem hann og tveir aðrir nefndarmenn áttu í gær með Roger Beetham ráðuneytis- stjóra í breska umhverfis- og siglingamálaráðuneytinu. íslensku nefndarmennimir fengu veður af því síðastliðinn mánudag, að BP hefði í fyrra verið veitt leyfí til tilraunaborana á Rockall-svæð- inu sem Danir og íslendingar gera tilkall til auk Breta. íslendingamir hittu þá meðal annarra að máli Roger Beetham og ræddu svo aftur í dag við hann í gær. Að sögn Eyjólfs Konráðs Jónssonar skipuðust veður heldur betur í lofti á milli fundanna tveggja. „Það var ólíku saman að jafna. Á mánudaginn fengum við upplýsingar um þessa leyfísveitingu til BP og fengum þá meðal annars að sjá kort sem sýndi hvar þessar tilraunaboranir munu fara fram. Okkur virtist strax að þetta væri á svæði sem verið hefur deiluefni Breta og íslendinga og Dana og bentum viðmælendum okkar á það. Þegar við svo komum á fundinn með Beetham í gær hugðumst við taka upp þráðinn og meðal annars að fá að skoða nánar þetta kort. Það er skemmst frá því að segja að nú feng^um við þvert nei. Ekki var við það komandi að við fengjum að skoða þetta kort. Það fór ekkert á milli mála að einhvers staðar hafði verið kippt í þræði á þeim tæpa sólarhring sem liðið hafði á milli fundanna,“ sagði Eyjólfur Konráð. Það var fleira sem bar vott um það á fundinum í gær að ströng fyrirmæli hefðu borist embættis- mönnum þeim er ræddu við fulltrú- ana í utanríkismálanefnd Alþingis. Þegar íslendingamir vöktu máls á deilunni um Rockall-svæðið og hugsanlegum lausnum á henni voru undirtektir viðmælendanna vægast sagt neikvæðar að sögn Eyjólfs Konráðs Jónssonar. „Þeir skófu ekkert utan af því að þeir teldu sig ekkert eiga vantalað við okkur um þetta mál. Sögðu hreint út að eftir kröfugerð Dana og íslendinga árið 1985 sæu þeir enga ástæðu til að ræða frekar við þessar þjóðir. Þessi harkalegu viðbrögð við málaleitan okkar voru auðvitað töluvert slá- andi, en við reyndum að halda uppi málefnalegum umræðum. Við nafn- greindum til dæmis tvo breska vísindamenn sem vefengt hafa rétt Breta til hins umdeilda svæðis og báðum viðmælendur okkar kurteis- islega að benda á einhveija breska vísindamenn sem héldu fram hinu gagnstæða. Ekki vildu þeir nefna nein slík nöfn, sögðu einfaldlega að bresk stjómvöld væru ekki bund- in ákvörðunum eða tilmælum vísindamanna. Þegar við svo bent- um á ákvæði í alþjóðalögum, þar á meðal hafréttarsáttmála Samein- uðu þjóðanna, til stuðnings þeirri kröfu okkar að Bretar grípi ekki til neinna einhliða aðgerða á hinu umdeilda svæði var engu líkara en verið væri að tala við vegg. Svona var allur þessi fundur og við íslend- ingamir urðum þess fljótlega áskynja að tilgangslaust væri að halda áfram viðræðum á þessum nótum. Fundinum lauk því snemma. Að sögn Eyjólfs Konráðs hafði hann samband við (slenska utanrík- isráðuneytið að fundinum loknum og gerði því grein fyrir gangi mála og viðbrögðum hinna bresku emb- ættismanna. Ólafur Egilsson sendi- herra hafði jafnframt samband við sendiherra Dana og gerði honum grein fyrir gangi þessara viðræðna íslensku sendinefndarinnar og hinna bresku embættismanna. „Málið lítur ekki skemmtilega út eins og staðan er í dag. Bretar hafa gert sig uppvísa að því að bijóta reglur alþjóðalaga um lausn deilumála og íslendingar geta auð- vitað ekki tekið slíku þegjandi og hljóðalaust. Við munum viðra þetta mál aftur á morgun þegar við förum á fund utanríkismálanefndar breska þingsins. Þar fáum við að heyra hljóðið í stjómmálamönnum, sem vonandi verða eitthvað jákvæðari en embættismennimir sem við hitt- um í dag,“ sagði Eyjólfur Konráð Jónsson, formaður utanríkismála- nefndar Alþingis, að lokum. Gurevich efstur með 4,5 vinnmga SOVÉSKI stórmeistarinn Gurevich hefur tekið forustuna á alþjóðlega skákmótinu á Akureyri með 4,5 vinninga. Sjötta umferðin fór fram í gær og urðu úrslit þau að Gurevich vann Adoijan, Tisdal vann Jón G. Viðarsson, Dolmatov og Polugaevsky sömdu um jafn- tefli og sömuleiðis Ólafur Kristj- ánsson og Karl Þorsteins og Jó- hann Hjartarson og Jón L. Arna- son. Skák Helga Olafssonar og Margeirs Péturssonar fór í bið og verður tefld áfram klukkan 11 i dag. Staðan eftir sex umferðir er því þannig að Gurevic er með 4,5 vinn- inga, Jóhann með 4 vinninga og eina óteflda skák. í 3. sæti er Margeir með 3,5 vinninga og biðskák. í 4.-6. sæti eru sovésku stórmeistaramir Dolmatov og Polugaevsky og Karl Þorsteins með 3,5 vinninga. Adoijan og Tisdal eru í 7.-8. sæti með 3 vinn- inga, Helgi situr S 9. sæti með 2,5 vinninga, óteflda skák og biðskák. Jón L. er með 2 vinninga og Akueyr- ingamir Jón Garðar og Ólafur með 0,5 vinninga hvor. Sjöunda umferðin hefst í Alþýðu- húsinu kl. 17 í dag. Þá teflir Mar- geir við Gurevich, Polugaevsky við Helga, Adoijan við Jóhann, Jón L. við Jón G., Karl við Dolmatov og Tisdal við Ólaf. Kosningar í Háskólanum: Vaka hafði betur VAKA, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, fór með sigur af hólmi í kosningum til Stúdenta- ráðs og Háskólaráðs Háskóla íslands, sem fram fóru í gær. Vaka fékk samtals um 51% at- kvæða, sem er mesta kjörfylgi félagsins síðan árið 1956. Kjörsókn var með betra móti í gær. í kosningum til Háskólaráðs greiddu alls 2.098 manns at- kvæði. Vaka fékk 965 atkvæði, en Röskva, samtök félagshyggju- fólks, 933. Hvort félag fær því einn fulltrúa í Háskólaráð. Auðir seðlar og ógildir voru 200. í kosn- ingum til Stúdentaráðs greiddu 2.098 atkvæði og fékk Vaka 955 en Röskva 923. Vaka hlýtur því átta fulltrúa af fimmtán, sem nú voru kosnir f Stúdentaráð, en Röskva sjö. Auðir seðlar eða ógild- ir voru 221. „Þetta er stórkostlegt," sagði Benedikt Bogason, formaður Vöku, er Morgunblaðið innti hann álits á úrslitunum. „Þessi úrslit sýna að ósk stúdenta er sú að Stúdentaráð verði faglegt hags- munabaráttutæki og sinni þeim hagsmunamálum sem snerta stúdenta beint, þannig að stúdent- ar geti staðið sameinaðir að sínum málum. Þeir hafa treyst Vöku til að fara með forystu hagsmuna- baráttu sinnar. Þetta sýnir líka að þrátt fyrir að við höfum verið í minnihluta í Stúdentaráði hefur fólk hlustað á okkur. Pyrst og fremst er þetta þó árangur þrot- lausrar vinnu, þar sem margir hafa lagt sitt af mörkurn," sagði Benedikt Bogason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.