Morgunblaðið - 16.03.1988, Page 33

Morgunblaðið - 16.03.1988, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1988 33 horfur á lækningu því góðar. Rétt er að taka fram að ekki er enn fullsannað að þessi leitarað- ferð borgi sig beint með minni veikindum og aukinni lífslengd með tilliti til alls hópsins, sem rannsakaður er hveiju sinni. Líkindi fyrir því að svo sé eru þó töluverð og telja má nærri fullvíst að slík leit geti í vissum tilvikum bjargað lífi manna. Sumir fræðimenn telja reyndar að fækka megi dauðsföllum af völdum krabbameins í ristli og endaþarmi um a.m.k. helming með þessu vamarráði. Framtak Krabba- meinsfélagsins Þessi grein er m.a. skrifuð til að minna á skipulega leit að æxlum í ristli og endaþarmi á vegum Krabbameinsfélags ís- lands. Árið 1986 var 6.000 ís- lendingum á aldrinum 45—70 ára boðin þátttaka í könnun, sem byggir á leit að blóði í hægðum. Tæplega 40% þessa hóps þáðu boðið. Á sl. ári lauk fyrsta hluta þessarar könnunar. Niðurstöður voru í stuttu máli þær að í 11 einstaklingum fundust æxli, þar af illkynja æxli hjá 3. Krabba- meinsfélagið hefur nú ákveðið að halda áfram þessari leit hjá sama úrtakshópnum og áður. Sérstök áhersla verður lögð á að ná til þeirra 60% einstaklinga, sem ekki voru með síðast, en það er ekkert sem bendir til að tíðni æxla hjá þessum einstaklingum sé lægri en hjá hinum. Þó árangur af þessum fyrsta hluta könnunarinnar sé góður, þá ætti reglubundin leit til langs tíma að gefa enn betri niðurstöð- ur og haldbærari upplýsingar um gagnsemi slíkra hóprannsókna hér á Islandi. Þetta forvamar- starf Krabbameinsfélagsins er lofsvert framtak rétt eins og leit- in að krabbameini í leghálsi og bijóstum. Þetta er ákveðin þjón- usta við landsmenn, jafnframt því sem könnunin er gott framlag til faglegrar vísindastarfsemi hér á landi í læknisfræði. Ég hvet því alla þá sem á ný hefur verið boðin þátttaka í þessari fram- haldsrannsókn að vera með. Því miður er ekki unnt af fjárhags- legum ástæðum að stækka úr- takshópinn og bjóða fleiri þátt- töku. Er því þeim sem áhuga hafa, en geta ekki verið með í könnuninni, bent á að leita lið- sinnis hjá sínum lækni. Höfundur er læknir, aérfræðingur í meltingarsjúkdómum. Hann starfarm.a. hjá Krabbameins- félagi íslands við leit að æxlum I ristli og endaþarmi. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir RÓBIN SMYTH Hver verður for- setafrú Frakklands? Danielle Mitterrand með eiginmanni sínum, Frakklandsforseta, og Hirohito, keisara af Japan. EFTIR rúman mánuð ganga Frakkar til atkvæðagreiðslu sem ræður úrslitum — ef marka má fylgi líklegustu forsetaefiianna í skoðanakönnunum — um hver þriggja kvenna flytur til Elysée- hallar sem næsta forsetafrú Frakklands. ær sem til greina koma eru Danielle Mitterrand, Bernad- ette Chirac og Eve Barre. En í augum Frakka er óeðlilegt að orða þær í sambandi við forsetakosn- ingamar. Elysée-höllin er ekki Hvíta húsið, og kostir eiginkvenna verðandi þjóðarleiðtoga Frakka hafa að jafnaði haft lítil áhrif á val kjósenda. Það var fyrsta for- setafrú Fimmta lýðveldisins, Yvonne de Gaulle, sem lagði línumar varðandi hlédrægni for- setafrúarinnar. Frakkar bám hlý- hug til hennar og nefndu hana jafnan „Tante Yvonne“. Hún stóð ávallt með maka sínum, de Gaulle hershöfðingja, en lét aldrei hafa neitt eftir sér opinberlega. Óframfæmi Yvonne frænku á ekkert skylt við það þegar hún komst naumlega lífs af í árás hægrisinnaðra launmorðingja sem skutu af vélbyssum á bílinn sem hún sat í við hlið eiginmannsins í bænum Petit Clamart. Hún var óframfærin að eðlisfari, og féll því vel inn í það lítt áberandi hlut- verk sem Frakkar vildu að hún gegndi. Hún var mikils megandi merkiskona að sögn rithöfundar- ins Andre Malraux, sem var menningarmálaráðherra í stjóm- artíð de Gaulles hershöfðingja, einmitt vegna þess að hún sætti sig við að vera „þögull áhorfandi". Kjósendur vilja hlédrægni Á síðari ámm hafa eiginkonur franskra stjómmálamanna látið ívið meira á sér bera. En í skoð- anakönnun á vegum tímaritsins Jours de France um miðjan febrú- ar kom fram aðvömn til þeirra um að fleiri atkvæði töpuðust en ynnust með því að þær væm að troða sér fram í sviðsljósið. Að- spurðir hvort þeir kærðu sig um að sjá eða heyra eiginkonur fram- bjóðenda í sjónvarpi eða hljóð- varpi meðan kosningabarátta stendur yfir sögðust 65% þeirra sem svömðu ekki vilja að konum- ar kæmu þar nærri. Að vísu reyndist Danielle Mitt- errand, sem er sjálfstæðust eigin- kvenna stjómmálamanna og segir óhikað skoðanir sínar, lang vin- sælust í skoðanakönnuninni. En sem forsetafrú hefur hún verið meira áberandi í fjölmiðlum en hinar. Claude Pompidou, ekkja annars forseta Fimmta lýðveldisins, minntist þess stolt fyrir nokkram ámm að „þegar maðurinn minn var við völd vissi ég ekki einu sinni hvað allir ráðherramir hans hétu“. Danielle Mitterrand fylgir í engu þessari hefð. Það er ekki aðeins að hún þekki nöfn allra ráðherranna, heldur er henni full ljóst að hve miklu leyti hún er sammála hveijum þeirra. „Henni finnst ég allt of hófsam- ur í stjómmálaskoðunum," hefur Francois Mitterrand sagt. Sú staðreynd að forsetínn hefur þokazt til hægri frá því hann komst til valda sem leiðtogi sósía- lista fýrir sjö ámm sýnir að vinst- ristefna eiginkonunnar hefur ekki haggað honum. Opinberar átölur Eitt sinn þegar hún gagnrýndi opinberlega ríkisstjórn íhalds- manna, sem kjörin var árið 1986, átaldi forsetinn eiginkonu sína opinberlega. En að jafnaði hefur • Danielle annaðhvort gætt þess að stuðningur hennar við málefni Þriðja heimsins komi ekki eigin- manninum í klípu, eða þá að hún hefur borið fyrirætlanir sínar und- ir hann. Þegar hún lýsir umbúða- laust yfir ándstöðu við brottrekst- ur íranskra flóttamanna frá Frakklandi er hún bersýnilega að tjá hneykslun eiginmanns síns á tilraunum hægri stjórnarinnar til að blíðka yfírvöld í Teheran með róttækari aðgerðum en hann gæti sjálfur gripið til. Danielle Mitterrand hefur sam- vizkusamlega sinnt þeim opinbera skyldum sínum að standa við hlið forsetans á ferðalögum erlendis og við hátíðleg tækifæri, þótt hún dragi ekki dul á það að ef hún mætti ráða kysi hún að veija tíma sínum í annað. Hún gengur í fötum.frá fremstu hönnuðum Frakklands til að kynna franska hátísku, en hún sér til þess að klæðnaðurinn stingi ekki í stúf við einfaldan smekk hennar sjálfrar. Samkvæmt skoð- anakönnunum falla verðlaun fyrir glæsileika keppinaut hennar, Bemadette Chirac, í skaut, en hún er gift Jacques Chirac, forsætis- ráðherra, borgarstjóra gaullista í París og frambjóðanda til forseta- kjörs. Hin ljóshærða frú Chirac 'tekur ötullega þátt í stjómmála- baráttunni á bak við tjöldin. Þau hjónin hafa mjög svipaðar skoðan- ir í stjómmálum, þótt hún hafi eitt sinn gert uppsteyt til að forða honum frá ráðgjöfum sem hún taldi' ósvífna og rangsýna. Frú Chirac nýtur mestrar hyili hjá stuðningsmönnum flokks gaullista, RPR. Á framboðsfund- um eiginmannsins breytist tví- klappið, „Chi-rac, Chi-rac“ yfir í þrí-klapp, „Ber-na-dette“ þegar fundarmenn heimta að fá að hylla frúna uppi á ræðupallinum. Ætlar að hafa auga með frúnni Eiginkona þriðja frambjóðand- ans, Eve Barre, er fædd í Ung- veijalandi og minnst þekkt þeirra þriggja. Þau hjón eiga tvo upp- komna syni, og hún fékk að kynn- ast lífinu í sviðsljósinu þegar Gis- card d’Estaing þáverandi forseti skipaði eiginmann hennar, Ray- mond Barre, forsætisráðherra árið 1976. En þegar sósíalistar komust til valda fimm ámm síðar var það henni léttir að flytjast með fjöl- skyldunni í þægilegt einbýlishús í Saint-Jean-Cap-Ferrat á frönsku Riviemnni. Barre kann að meta góðan mat og frú Barre er góður kokkur. Hún kaupir föt sín frekar frá smærri saumastofum en frá þekktu tískuhúsunum. Barre stefnir að því að ná kjöri með því að fella keppinautinn úr röðum íhaldsmanna, Chirac, í fyrri umferð kosninganna, og bera síðan sigurorð af Mitterrand — ef Mitterrand býður sig fram — í seinni umferðinni. Eve Barre yrði þá forsetafrú, en án áhrifa á embætti forsetans. Þegar Barre var spurður hvaða áhrif hann teldi að eiginkona forseta ætti að hafa, svaraði hann afdráttarlaust: „Engin — og ég ætla að hafa auga með að svo verði.“ Höfundur er blaðamaður við brezka blaðið Tbe Observer.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.