Morgunblaðið - 16.03.1988, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 16.03.1988, Blaðsíða 30
30 . MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1988 Sovétríkim Þrír mútuþægir flokksleiðtogar fremja sjálfsvíg Moskvu, Reuter. ÞRÍR fyrrverandi háttsettir yfirmenn í lýðveldinu Úzbekistan í Sov- étríkjunum, sem sakaðir voru um mútuþægni í kjölfar rannsóknar á spillingu meðal opinberra starfsmanna í héraðinu, hafa framið sjálfsvíg að sögn dagblaðsins Komsomolskaja Pravda í gær. I lögregluskýrslum þar sem fjallað er um fimm ára rannsókn á spillingu ríkisstarfsmanna í héraðinu, kemur meðal annars fram að fjórir fyrrum flokksritarar kommúnistaflokksins í Úzbekístan, fyrrum formaður og fyrrum varaformaður flokksins hafi verið handteknir. Þrír þessara manna hafa að sögn dagblaðsins Komso- molskaja Pravda framið sjálfsvíg í fangelsinu. Að sögn sovéskra stjómvalda var tugum milljóna rúbla stolið í valdatíð fyrrum formanns kommúnistaflokks- ins fÚzbekístan, Sjarafs Rasjidovs, á árunum 1959 til 1983. Rasjidov lést 1983 en skömmu áður hófst rann- sókn á spillingu og grimmdarverkum háttsettra manna innan flokksins og ríkisgeirans í lýðveldinu, sem meðal annars leiddi til handtöku mannanna þriggja sem frömdu sjálfsvíg. Flakiðaf sovésku farþegavélinni Á þessari mjmd, sem sovéska fréttastofan TASS sendi frá sér um helgina, má sjá flakið af farþegavél- inni, sem ellefu manna djass-fjölskylda gerði tilraun til að ræna og beina til Vesturlanda. Að sögn TASS sprakk sprengja um borð í véljnni, þegar sérsveitir hersins gerðu áhlaup á hana. Átta manns létu lífið, þar af fímm úr fjölskyldunni. Öfgasamtök hafa gert Ind- SvíÞiáð: land að eiturlyfjamiðstöð Nýju Delhí, Reuter. INDLAND er orðið að mikil- vægri miðstöð eiturlyfjasmygls til vestrænna landa, og þarlend öfgasamtök fjármagna starf- semi sína með þeim viðskiptum, að því er Buta Singh, innanríkis- ráðherra Indlands, sagði í gær. Singh sagði á fundi alþjóðalög- reglunnar Interpol og. yfirmanna stofnanna í Evrópu og Suður-Asíu, sem fást við eiturlyfjavandann, að eiturlyfj'asmygl og eiturlyfjaneysla væri orðið alvarlegt vandamál í STEYPU MÓT DOKA OG VEGGJAMÓT FYRIR KRANA DOKAFLEX 20 LOFTASTOÐIR OG BITAR MÓTAKRÆKJUR OG TENGI HANDFLEKAMÓT TRÉ - STÁL - ÁL HAKI VERKPALLAR OG UNDIRSTÖÐUTURNAR ÞÚ FÆRÐ LÍKA ALLA ALMENNA BLIKKSMÍÐI HJÁ OKKUR ALLAR NANARI UPPLÝSINGAR: 'S BREIÐFJÖRÐS BLIKKSMIÐJA HF SIGTÚNI 7 R.VÍK SÍMI 2 90 22 Indlandi. „Indland er nú orðið ein helsta miðstöð eiturlyfjasmygls til Vesturlanda," sagði Singh. Hann benti á að Indland er mitt á millí „gullna þríhymingsins" í Indókína og „gullna hálfmánans" í Afganist- an, þar sem ópíum er framleitt. Singh sagði að það væri aug- ljóst samband milli eiturlyfja- smygls og glæpa sem öfgahópar fremdu annars vegar, og vopna- smyglara og skipulagðra glæpa- • samtaka hins vegar. „Fjármunir sem fengnir eru vegna þessara óleyfilegu viðskipta eru notaðir til að yfírtaka lögleg viðskipti, og einnig til að grafa undan efnahag Indlands og öryggi fjölmargra þjóða.“ Hann sagði að lögregluyfír- völd hinna ýmsu landa ættu vinna meira saman og reyna nýjar leiðir til að fást við vandann. Tveir læknar sakfelldir fyrir morð á vændiskonu Stokkhólmi, Reuter. SVO getur farið að rétta þurfi á ný fundnir hafa verið sekir um morð dómari í málinu, lét af störfum á nokkrir kviðdómendur höfðu látið að dómurinn kynni að vera rangur ungrar telpu. . <► Á þriðjudag í síðustu viku voru læknamir tveir fundnir sekir um að hafa árið 1984 myrt Catrinu da Costa, 27 ára gamla vændiskonu. Saksóknari sagði að þeir hefðu tælt hana inn í krufningastofu spítala og eftir að hafa átt við hana kynmök hefðu þeir myrt hana, hlutað líkið í sundur og skilið bútana eftir á rusla- haugi. Saksóknari byggði á fram- burði dóttur annars læknisins sem í máli tveggja lækna í Svíþjóð sem á vændiskonu. Birgitta Karlholm, fimmtudag í sfðustu viku eftir að f ljós þá skoðun sina f blaðaviðtali en hann var byggður á framburði var 18 mánaða gömul er atvikið átti sér stað. Seinna sagði hún móður sinni frá því að hún hefði séð föður sinn og félaga hans myrða konuna en þeir neita staðfastlega. Veijendur hinna ákærðu drógu framburð telpunnar í efa og sögðu að ekki þætti sýnt að da Costa hefði verið myrt. Höfuð hinnar látnu hefur ekki enn fundist og segja lögfræðing- amir að hún gæti hafa látist af öðr- um orsökum. í viðtölum við Aftonbladet viður- kenna nokkrir kviðdómendur að þeir hafí ekki verið vissir í sinni sök. Sex manna kviðdómur og dómari í málinu skáru úr um sekt mannanna. Fimm töldu þá seka en einn kviðdómandi og dómarinn, Brigitta Karlholm, sögðu mennina saklausa. í dómnum segir að þeir skuli gangast undir geðrannsókn áður en refsingin fyrir brotið verður ákveðin. Birgitta Karl- holm segist ekki geta unnið með kviðdómnum að málinu eftir þær yfírlýsingar sem fram hafa komið í fjölmiðlum. Allt bendir því til að rétta þurfí á ný í málinu. « Þjóðernisróstur breiðast út í Kína: Skipulega stefnt að fækk- un tíbetsku þjóðarinnar — segja talsmenn tíbetskra þjóðernissinna The Daily Telegraph. MÓTMÆLI Tfbetbúa að undan- förnu hafa ekki einvörðungu beinst gegn yfirráðum Kínverja heldur hafa stjórnvöld einnig verið sökuð um að reyna að hefta fjölgun tibetsku þjóðarinnar. Ónefndir heimildarmenn i Pek- ing hafa staðfest að óeirðir hafi brotist á nokkrum stöðum utan eiginlegra landamæra Tíbets af þessum sökum. Tíbet munkar fullyrða að sfjórnvöld neyði kon- ur með skipulegum hætti til að gangast undir ófrjósemisaðgerð- ir og fóstureyðingar. Heimildarmenn sem nýkomnir eru til Peking frá Qinghai-héraði segja að átta munkar séu enn í haldi eftir að hafa mótmælt stefnu stjómvalda. Er þetta í fyrsta skipti sem fréttir berast af mótmælum meðal Tíbetbúa , sem búa utan eig- inlegra landamæra landsins. Hermt er að tíbetskir þjóðemissinnar hafi efnt til mótmæla í fjölmörgum hér- uðum, sem heyrðu undir Tíbet allt til ársins 1965, eftir mannskæðar Router íbúar í Lhasa, höfuðborg Tíbets, við lík eins þeirra sem létu Iifið í óeirðunum í borginni þann 5. þessa mánaðar. óeirðir í Lhasa, höfuðborg Tíbets, í október á síðasta ári. Bær einn í Qinghai-héraði, sem nefnist Tongren, gengur þessa dag- ana undir nafninu „Litla Lhasa“. í desembermánuði efndu námsmenn og kennarar þar til fjölmennra mótmæla vegna yfírráða Kínveija. Tíbet munkar tóku einnig þátt í mótmælunum og voru tíu þeirra handteknir. Tveimur þeirra hefur verið sleppt en mikil spenna er sögð ríkjandi í héraðinu ekki síst eftir að þjóðemissinnar tóku á ný að festa upp veggspjöld þar sem stefna stjómvalda er fordæmd. Ófrjósemisaðgerðir Þjóðemissinnar saka stjómvöld um að standa fyrir skipulegum ófijósemisaðgerðum auk þess sem fullyrt er að tíbetskar konur séu neyddar til að láta eyða fóstrum þó svo að lög kveði á um að minni- hlutahópar skuli undanþegnir regl- um stjómvalda um „æskilega fjöl- skyldustærð". Hermt er að sjö kon- ur hafi látið lífíð á þessu ári eftir að hafa gengist undir slíkar aðgerð- ir í Huangnan-héraði. Þjóðemis- sinnar segja að embættismenn flokksins í héraðinu hafi verið verð- launaðir vegna fjölda læknisað- gerða á tíbetskum konum, sem þar búa. Einn heimildarmaðurinn held- ur því fram að flokksfulltrúar láti ofsækja ungar tíbetskar stúlkur og elta þær uppi. „Þeir meðhöndla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.