Morgunblaðið - 16.03.1988, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1988
^TACLESj------
revue avec Knsl
r.-.Arirk Thor
ClNtH
innesdol\r
FndriKsson
joh»nn#l
eftir Ágúst Guðmundsson og
„Hrafninn flýgur“ eftir Hrafn
Gunnlaugsson.
Pjölmiðlar í Frakklandi fylgdust
grannt með hátíðinni, og fóru Is-
lendingar ekki á mis við þá at-
hygli. Meðal annars voru tekin sjón-
varps- og blaðaviðtöl við Friðrik
Þór Friðriksson og Kristínu Jóhann-
esdóttur.
Aðrir íslendingar sem boðið var
á hátíðina voru þau Sigurður Páls-
son meðframleiðandi „A hjara ver-
aldar“, Arnar Jónsson leikari, sem
leikur aðalhlutverk í tveim af
íslensku myndunum sem þarna
voru, Þórarinn Oskar Þórarinsson
annar af hetjum Friðriks Þórs úr
Skyttunum og Guðbjörg Guð-
mundsdóttir blaðamaður. Allur hóp-
urinn kom í boði hátíðarinnar og
Flugleiðaskrifstofunnar í París.
Mánudagurinn 7. mars var
íslenskur dagur en þá hélt Nína
Gautadóttir myndlistarkona boð á
málverkasýningu sem hún var með
í nýlistasafni Rúðuborgar, „Skytt-
urnar" eftir Friðrik Þór Friðriksson
var frumsýnd, og um kvöldið voru
Comptoir d’Islande og Flugleiðir
með boð í ráðstefnuhöll Rúðuborgar
þar sem fór fram landkynning á
vegum þessara fyrirtækja meðan á
hátíðinni stóð.
Lokakvöldið fór svo fram verð-
launaafhending. Dómnefndin, sem
samanstóð af frönskum leikstjórum
og leikurum, ákvað að verðlaunin
fyrir bestu mynd hátíðarinnar
skyldu hlotnast danska leikstjóran-
um Gabriel Axel fyrir myndina
„Babettes Gjestebud", en hún var
einnig kosin besta myndin af al-
menningi.
Blaðamenn kusu bestu myndina
„Álska mej!“ eftir sænska leikstjór-
ann Kay Pollak. Verðlaunin fyrir
bestu túlkun á karlhlutverki fékk
sænski leikarinn Stellan Skársgard
fyrir leik sinn í myndinni „Ormens
vag pá Halleberget" eftir Bo Wider-
berg, og fyrir bestu túlkun á kven-
hlutverki fékk Ewa Fröling fyrir
leik sinn í myndinni „Demoner"
eftir Carsten Brandt sem einnig er
frá Svíþjóð. Einnig fékk danska
myndin „Flamberede Hjerterí' eftir
Helie Ryslinge sérstaka viðurkenn-
ingu. Engin verðlaun féllu í hlut
íslensku myndanna að þessu sinni,
en í þakkarræðunni sem Gabriel
Axel hélt að lokinni verðlaunaaf-
hendingu talaði hann sérstaklega
um kvikmyndagerð íslendinga og
margrómaði það hugrekki sem sýnt
væri þegar þeir stæðu að baki
slíkum myndum sem stærri þjóðir
ættu fullt í fangi með.
Almennt álit blaðamanna og
gesta að hátíðinni lokinni var að
norræn kvikmyndagerð ætti fullt
erindi inn á franskan markað, þar
sem hún gæfi áhorfendum kost á
að kynnast nýrri hlið á kvikmynda-
gerð, og hvemig leikstjórar þessara
landa sæu sín þjóðfélög, þó svo að
sú sýn þætti fremur svartsýn á
köflum!
— Þrjár íslenskar kvikmyndir sýndar
Frá fréttaritara Morgunblaðsins, Dúa Landmark.
NORRÆNA kvikmyndahátíðin í
Rúðuborg í Frakklandi var hald-
in i fyrsta skipti dagana 2.-8.
mars. Yfirvöld Rúðuborgar í
samvinnu við fjölmarga aðra
stóðu að hátíðinni, og er ætlunin
að gera hana að árlegum atburði.
Takmarkið með henni er fyrst
og fremst að gera hana að föstu
stefnumóti þeirra sem standa að
kvikmyndagerð á Norðurlöndum,
og svo að kynna norræna kvik-
myndagerð fyrir Frökkum, og um
leið rækta þau fornu tengsl sem
liggja á milli Normandí-búa og
Norðurlandabúa síðan á dögum
víkinganna.
Hátíðin virðist hafa sannað til-
verurétt sinn fyllilega, því aðsóknin
á þær 37 myndir sem sýndar voru
var framar öllum vonum eða rúm-
lega 10.000 áhorfendur á vikutíma.
Sumar myndirnar þurfti að sýna
oftar en gert var ráð fyrir, og færri
komust í salina en vildu. Sýnt var
frá kl. 10 á morgnana til kl. 11 á
kvöldin, og var mörgum myndanna
fýlgt eftir með umræðum þar sem
áhorfendum gafst kostur á að
spyija leikstjóra og leikendur úr
spjörunum.. Islensku myndirnar í
þessum hópi voru „Útlaginn" eftir
Ágúst Guðmundsson, „Á hjara ver-
aldarí' eftir Kristínu Jóhannesdótt-
ur og „Skyttumarí' eftir Friðrik Þór
Friðriksson, en hún var eina
íslenska myndin sem var í opin-
berri 10 mynda samkeppni sem
hátíðin stóð fyrir. Hinar íslensku
myndirnar voru „Með allt á hreinu“
Norræn kvikmynda-
hátíð í Rúðuborg
DANCMARK HNIANDE ISIANDE NORVEGE
norifi jí
Jf ZU l í V UÍ
du (ji fiémti
ri' U 'ycl í q u v
2 lí u 8 misrx l'Jou
■IWtjkU - FiíAUCE
Danski leikstjórinn Gabriel Axel við verðlaunaafhendingu.
framan kirkjuna í Rúðuborg.
Nína Gautadóttir á málverkasýn-
ingu sinni ásamt dóttur sinni.
Cap D'agde er 1. flokks og einn af
vinsælustu ferðamannastöðum
Suður Frakklands. Tennisvellir,
kappakstursbrautir, „Aqualand",
ferðaleikhús, tívolí, snekkjur, smá-
bátar, litskrúðugt mannlíf og alltaf
eitthvað um að vera. Áætlunarflug
um Amsterdam eða París. Einstakl-
ings- eða hópferðir.
FERDASKRIFSTOFAN
Suðurgötu 7
S.624040