Morgunblaðið - 16.03.1988, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1988
45
Maðurinn hefur lengi vaðið reyk.
Allt frá upphafi mannlegs sam-
félags hefur löngunin að vera mest-
ur búið í manninum. Hver og einn
vill vera örlíti hafinn yfir alla hina.
Langanirnar að drottna og eignast
fylgjast oft að, því sá sem á eignir
getur notað vald peninganna til að
drottna og upphefja sig. Æðsta
takmark þessa hugarfars kemur
fram í orðum Júlíusar Sesar, keis-
ara í Róm: „Ég kom, ég sá, ég sigr-
aði“ sem útleggst ég kom í heim-
inn, sá heiminn og sigraði heiminn
eða „til að leggja hann að fótum
mínum mér til ánægju". Maður sem
tileinkar sér þennan hugsanagang
vill stríð, þegar honum finnst heim-
urinn þurfi að lúta sér.“ Vegna
þessa hugarfars hefur heimurinn
orðið vitni að endalausum bardög-
um, orustum og stríð allt frá upp-
hafi mannlegs samfélags. Við erum
öll meðvituð um þá staðreynd að
stríð skilar sér annaðhvort í sigri
eða ósigri og stríð er skortur á ein-
ingu í heiminum.
Friðarhugarfar
„Heimsfriði er hægt að ná,
opinbera, veita og staðfesta,
þegar hver og einn einstaklingur
setur vald kærleikans
ofar kærleikanum á valdinu."
„Við höfum farið á mis við frið-
inn. Við höfum ekki hlustað eftir
andlegri þrá hjá okkur sem mótar
andlegt hugarfar og leysir okkur
úr hlekkjum jarðneskra eigna og
langana.“ Það felst ekki í að hafna
„líkamanum, fjölskyldunni, vinn-
unni, ættingjum, eigin landi eða
heiminum. Nei við eigum að hafna
okkar eigin fáfræði, okkar röngu
hugmyndum á Guði og sannleikan-
um“. Við vitum að „aflið sem
drottnar getur aldrei leyst vanda-
mál heimsins, heldur afl andlegs
hugarfars sem er í algerri andstöðu
við orð Júlíusar Sesar, „kom, sá og
sigraði". Það segir: „Hver og einn
einstaklingur kom, til að sjá, elska"
og mynda einingu. „Að elska er
sjálfsgjöf, sem ekki er gefin með
’ómarlund heldur byggð á þeirri
tilfinningu að allir hafí hluta af
raunveruleikanum." Aflið sem
myndar einingu er „aflið sem fínnst
það vera ónógt þegar einn úr heims-
fjölskyldunni vantar." Frá andlegu
sjónarmiði er sú þjóð best, sem
„lítur á mannkyn sem eina þjóð,
eina sál“. Þegar þjóðir verða með-
vitaðar um það að allar þjóðir til-
heyra einni og sömu fjölskyldunni,
„þegar þær verða eitt með þjáning-
um, gleði og árangri hvor annarr-
ar, þegar þær gera sér ljóst að þær
hafa sama upprunann og sama við-
urkennda markmiðið og þegar þjóð-
ir eru ekki haldnar þeirri fírru, að
árangur þeirra verði lítill, ef þær
styðji við bakið á þeim sem veikari
eru.
Þeir sem vinna að andlegu hugar-
fari hafa komist að því að vera
háður (öðrum) hefur ekki leyst þá
frá þjáningum, frekar aukið við
þær. „Þess vegna vinna þeir að al-
gjöru sjálfstæði. Treysta á sig og
vænta einskis frá öðrum, nú fái
þeir eitthvað launað þá eru þeir
ánægðir. Fái þeir ekki laun eru
þeir samt sem áður jafn ánægðir.
Þeir vita að „friður hefst þar sem
mannlegar væntingar enda“. „Um
leið og við væntum einhvers frá
veröldinni og veröldin mun ekki
uppfylla væntingar okkar munum
við enda í vonleysi. Þess vegna sam-
þykkja þeir veröldina eins og hún
er og reyna að horfa ekki í van-
kanta náungans. Þegar við horfum
á mistök annarra, þá samlögumst
við þeim. Því dýpra sem við köfum
sjáum við skýrt að ófullkomleiki
hinna er ófullkomleiki okkar en
aðeins í öðrum líkömum og hugum.
„Þeir hinir sömu vita að þeir eiu
ekki fullkomnir. Það að reyna að
vera eitthvað meiri heldur en maður
er skapar innri ófrið. Þess vegna
gefa þeir heiminum það sem þeir
eru, bæði kosti og galla. Þeir vita
að neikvæð öfl og þar á meðal eig-
in neikvæð öfl þurfa ekki að vera
neikvæð. „Með hnífí getur maður
stungið annan mann, með sama
hnífí getur maðurinn skorið ávexti
og gefíð öðrum.“ Einn mikilvægasti
liðurinn í andlegu hugarfari er
„framfaralíf eða það að fara út fyr-
ir takmörk sín ... fara fram úr
sjálfum sér á hveijum degi, hverri
klukkustund, hverri sekúndu." Vera
alltaf að gera eitthvað betur. Fram-
faralífíð er eitt af fáu sem veitir
manninum sanna ánægju. Fram-
faralífsiðkendur reyna að vænta
einskis þegar þeir fara út fyrir eig-
in takmörk. „Ef við væntum ein-
hvers af gerðum okkar munum við
verða vonlaus, ef árangurinn verður
ekki eins og við vildum að hann
yrði. Okkur mun fínnast að okkur
hafí mistekist. „Mistök er reynsla
sem hjálpar okkur við að stækka
okkur.“ Framfaralífsiðkendur vita
að eigin væntingar þurfa ekki að
fara saman við vilja okkar æðsta,
en það æðsta er það sem við erum
að reyna að keppa að. Af þeim sök-
um gleðjumst við hver sem niður-
staðan verður og bjóðum Guði ár-
angurinn.
Upptök raunverulegs friðar
„Maðurinn finnur upp strið.
Maðurinn uppgðtvar frið.
Hann finnur upp stríðið hið ytra.
Hann uppgötvar friðinn hið innra.
Maðurinn hafnar stríði.
Maðurinn sáir friði.“
Hvers vegna hefur okkur, þess-
um fáu sem vilja vinna að friði,
ekki gengið betur?
Við vitum það, að við mótum
heiminn með eigin hugarfari. „Ef
við höfum engan innri frið þá miðl-
um við eirðarleysi og árásargirni."
Það „að missa innri frið er mesta
ólán sem hent getur nokkurn mann.
Ekkert ytra afl getur rænt einstakl-
inginn friði nema hans eigin hugs-
anir og gerðir." Við erum komin
að meininu. Við styðjumst við hug-
ann sem oft leiðir okkur af braut
sannleikans. Sköpun hans er
hræðsla, efí, áhyggjur, örvænting
og aðrar skaðlegar tilfínningar.
Hugurinn efast stöðugt. Afleiðingin
kemur fram í ótrúlegu ósamræmi
f hugsun. Á þessu augnabliki reisir
hugurinn himinháa kastala sem
hiynja á því næsta. Ytri kraftur
hugans „syngur með ímynduninni
og dansar við takmarkanir og deyr
í vonleysi. Ytri styrkurinn segjr:
Sjáið ég hef kraftinn til að eyða
gjörvallri sköpun Guðs.“ „Við verð-
um að vera á verði gegn neikvæðum
hugsunum, hugsunum sem tak-
marka okkur og gera okkur ófijáls.
Þessar hugsanir hafa kraft lífeðlis-
ins. Við skulum aldrei leyfa þeim
að vaxa og verða að fjöllum. Við
verðum að horfast í augu við þær
og stjóma þeim.“ Á þann veg getum
við með langri þjálfun náð tökum
á huganum og látið stjómast af
okkar æðra eðli. Stjórnast af hjarta
okkar og sál.
HJARTAÐ „gefur ást, kærleika
og ljós til þess að við sjáum skapar-
ann í öllum," í öllum gerðum okk-
ar, í allri sköpuninni. „Hjartað vill
einingu, vill fínna einingu og verða
að einingu." Hjartað veit að leiðin
liggur upp á við en ekki aðeins fram
á við, eins og hugurinn heldur. Innri
kraftur hjartans er kraftur sálarinn-
ar og öfugt við kraft hugans „gefur
sköpuninni stöðugt ljós kærleika,
ljós umhyggju og ljós friðar. Innri
krafturinn segir: Sjáið ég hef kraft-
inn til að uppljóma alla tilvem
Guðs.“
SÁLIN er æðsti og eini raun-
vemlegi hluti okkar. Hún er hluti
af alheimsguðnum. Hún er ótak-
markaður friður, ljós, kærleikur,
hamingja og kraftur. Við komumst
í samband við hana í gegnum hjart-
að. Sálin fyllir geyma hjartans líkt
og bensínafgreiðslumaður geymi
bíls. Sálin er, hefur og mun alltaf
vera tilbúin að leiðbeina þér. Ef þú
fómar lægra eðli þínu fyrir það
æðra, gefur þig allan á vald sálar-
innar og lætur að vilja hennar á
hveiju augnabliki sólarhringsins
muntu gjörsigra þína einu raun-
vemlegu óvini, hræðslu, kvíða, efa
og annan ófullkomleika ófrelsis og
takmarkanir. Með tíð og tíma og
með mikilli ástundun munu eigin-
leikar Guðs verða að þínum.
Leiðin að friði
„Það er aðeins í gegnum guðssameiningu,
guðsopinberun og guðsstaðfestingu
að við getum öðlast frið,
takmarkalausan frið,
takmarkalaust Ijós, takmarkalausa gleði."
Heimseining næst með andlegu
hugarfari. Þegar menn fara á vit
eigin sálar þá fara menn að njóta
auðs friðarins og kærleikans. Þessu
fylgir breyting á verðmætamati.
Áfleiðingin lýsir sér í breyttu hugar-
fari (andlegu hugarfari). Að sama
skapi eykst þráin í fjársjóði sálar-
innar, sem við köllum andlega þrá.
En spurningin er hvemig náum við
til sálarinnar? Aðferðimar em mjög
vel þekktar án þess að fólk hafí
gert sér grein fyrir mikilvægi
þeirra. Þær em einbeiting, bænir
og hugleiðsla. Að lifa andlegu lífi
er alls ekki flótti frá raunvemleik-
anum. Engum er ráðlagt að ganga
í klaustur eða gerast einbúi í helli
uppi á fjallstindi. Við vinnum að
friði í borgum, tökum þátt í daglegu
lífí innan um venjulegt fólk. Hug-
leiðslan er afl sem hjálpar okkur
að fá frið í daglegu lífí. Hún hjálp-
ar okkur að horfast í augu við örlög
heimsins. Hún gerir okkur fært að
breyta mannlegu samfélagi úr sam-
félagi hræðslu og efa í samfélag
friðar, ástar, gleði og krafts. Hug-
leiðslu og bænir er best að iðka á
ákveðnum kyrrum stað og helst á
sama tíma á hveijum degi. Best er
að hugleiða á sama tíma á hveijum
degi. Betra er að hugleiða og fara
með bænir með fullri einbeitingu í
stuttan tíma heldur en með lélegri
einbeitingu í langan tíma. Best er
að hugleiða einu sinni til tvisvar á
dag í korter eða jafnvel styttri tíma
til að byija með. Sá sem hugleiðir
á morgnana fer í vinnuna hamingju-
samur, rólegur og yfirvegaður.
Honum gengur betur að leysa verk-
efni dagsins og umgangast aðra
heldur en sá sem fór í vinnuna í
stressi og ójafnvægi.
BÆNIR. Bænaiðkandinn fínnur
fyrir tilveru Guðs hátt uppi í himin-
ha^ðum. Honum fínnst Guð vera
langt fyrir ofan sína huglegu sýn
eða í svokölluðu himnaríki. í bænum
sínum talar hann en Guð hlustar.
Hann biður Guð um hitt og þetta.
í bæninni leitar hann upp til Guðs.
HUGLEIÐSLA. Hugleiðandinn
eða hugræktarmaðurinn fínnur Guð
almáttugan hvergi annars staðar
en í eigin hjarta, þó að hann viti
að almættið í heild sinni búi í öllu
á jörðu og á himni. í hugleiðslunni
reynir hugleiðandinn að halda hug-
anum hljóðum nema hann spyiji inn
á við. í hugleiðslunni hlustar iðk-
andinn en Guð talar. Öfugt við það
sem gerðist í bænalífínu kemur Guð
til hugleiðandans en hugleiðandinn
ekki til Guðs. I hugleiðslu ýtum við
burtu skýjabreiðum hugsana. Við
erum að leita að æðra sjálfí okkar
og til þess þurfum við lausn frá-*-~*
hugsunum og það gerum við með
því að kyrra hugann með einbeit-
ingu.
Vitund okkar er eins og haf og
hugsanir okkar eins og fískar.
Venjulega erum við stödd á yfír-
borði hafsins sem fullt er af óróa
og gauragangi, en þegar við hug-,
leiðum förum við smátt og smátt
dýpra og óróleikinn hverfur. Því
dýpra sem við köfum því meiri verð-
ur kyrrðin. Fram hjá okkur synda
fiskar (hugsanir), en við veitum -
þeim enga athygli. Við köfum dýpra
og dýpra inn í eigið haf friðar og
kærleika. Það er djúpt í djúpinu,
sem við getum hlustað og spurt
okkar æðra sjálf. „Þegar við hlust-
um á Guð þá er engin hugsun, ekki
nein framtíð eða í dag. Það er allt
núna. í hinu óendanlega núi vöxum
við í átt að Guði. Þegar við höfum
fengið skilaboð getum við athugað
hvort þau eru komin frá æðra sjálf-
inu með því að kafa dýpra inn í
þau. Ef þau veita okkur gleði eða
hamingjutilfinningu er mjög líklegt
að við höfum náð sambandi við
sálina. Ef ráðleggingamar eða svör-
in eru ólík þeim sem við bjuggumst
við er mjög líklegt að þau komi frá
sálinni. Til að ná og þroska sam-
bandið við sálina er dagleg iðkun
og agi nauðsynlegur. Því meira sem
við iðkum því ríkulegri verða launin
eða mestu fjársjóðir alheims, friður,
hamingja, gleði, kraftur, ljós sem
við deilum með öðrum. Friðurinn
verður óendanlegur og við munum
njóta allra athafna í daglegu lífí og
fyrirgefa galla, veikleika og ófull-
komleika sambræðranna. Við sjáum
að okkar guðlegi stjómandi er í
öllum. Við munum hjálpa öðrum á
braut stöðugs friðar og sá dagur
mun renna upp að heimurinn öðlist
frið.
Höfundur er verslunarmadur.
Amsterdam Verð frá
Hamborg Verð frá
KaupmannahöfnVerð frá
London
Luxembourg
Salzburg
Mílanó
íbúðir
Sumarhús
Verð frá
Verð frá
Verð frá
Verð frá
Verð frá
Verð frá
19.400 kr.
21.600 kr.
18.300 kr.
22.300 kr.
17.400 kr.
24.700 kr.
27.600 kr.
6.678 pr. viku
7.102 pr. viku
FLUG OG BÍLL
Amsterdam, Hamborg, Kaup-
mannahöfn, London, Luxembourg
og Salzburg á ákveðnum brottfarar-
dögum. Við bjóðum einnig gistingu
í sumarhúsum og íbúðarhótelum í
beinum tengslum við flug og bíl.
Börn 2-11 ára frá 50% afslátt af flug-
fargjaldinu.
FERDASKRIFSTOFAN
Suðurgötu 7
S. 624040