Morgunblaðið - 16.03.1988, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1988
63
■ BOBBY Robson, þjálfari
enska landsliðsins í knattspymu
hefur valið Gary Pallister í liðið
sem mætir Hollendingum í vináttu-
landsleik 23. mars. Pallister kemur
frá Middlesbrough og hefur ekki
leikið áður með landsliðinu. Hann
kemur í stað Terry Butcher sem
er að jafna sig eftir fótbrot. Tony
Cottee kemur að nýju inn í landslið-
ið, eftir að hafa tekið út þriggja
leikja bann og hann kemur í stað
Clive Allen sem náði sér ekki á
strik í landsleik gegn fsrael fyrir
skömmu. Þá mun Chris Waddle
missa af leiknum, en hann fer í
aðgerð við kviðsliti á sama tíma.
■ SIGBJÖRN Óskarsson, stór-
skytta Vestmannaeyjarliðsins í
handknattleik er meiddur á hendi.
Það flísaðist upp úr beini á putta
hans á æfingu í sl. viku. Sigbjörn
lék aðeins í vöminni í leik Eyja-
manna gegn Fylki um sl. helgi.
Eyjamenn leika næst mjög
þýðingarmikinn leik gegn HK. Þá
er óvíst hvort að Sigbjörn verði
orðinn góður, þannig að hann geti
leikið í sókn.
■ HOLLENDINGAR ætla að
rejma að koma í veg fyrir að þekkt-
ir ólátabelgir fái miða á leiki í Evr-
ópukeppninni í knattspymu sem
hefst í V-Þýskalandi í júní. Til
þess að koma í veg fyrir að verstu
áhangendur liðsins fái miða verða
umsækjendur að fylla út umsókn
með persónulegum upplýsingum.
Þá verður athugað hvort að þeir
séu að skrá yfír þekkta ólátabelgi
og ef svo er fá þeir ekki miða. Þá
hefur verið mælst til þess að sem
flestir miðar verði seldir tii hópa
og félaga með a.m.k. 50 meðlimi.
Búist er við að Englendingar beiti
svipuðum ráðum til að koma í veg
fyrir ólæti í Evrópukeppninni.
■ ÞA U mistök urðu í gær í grein
um ívar Webster að dómstóll KKÍ
var kallaður aganefnd KKÍ. Það
var ekki rétt og það var dómstóll
KKÍ sem dæmdi í málinu en ekki
aganefndin. Við biðjumst því vel-
virðingar á þessum mistökum.
■ ALBERTO Tomba kom ekki
heim frá Kanada fyrr en í gær.
Hann slakaði á eftir Olympíuleikana
í Calgary, en þegar hann kom voru
200 aðdáendur sem tóku á móti
honum og voru konur í meirihiuta
í þeim hópi. Faðir Tomba tók á
móti honum, en sú saga gekk fjöll-
um hærra að Tomba fengi nýja
Ferrari bifreið fyrir sigurinn.
„Ég hef heyrt þessa sögu um
Ferraríinn. Alberto er óður í bíla,
en við sjáum til...“ Alberto Tomba
tekur þátt í heimsbikarkeppni í
Svíþjóð um helgina, en hann er 12
stigum á eftir Pirmin Zurbriggen.
Þrátt fyrir harða keppni segir
Tomba að þeir séu enn vinir: „Við
erum ennþá góðir vinir og ég hef
boðið honum að koma heim til að
bragða að matnum hjá mömmu."
■ SO VÉTMAD URINN Igor
Poiyanski setti í gær heimsmet í
100 metra baksundi. Hann synti á
55,17 sekúndum og bætti gamla
metið um 2/100 úr sekúndu. Metið
setti hann í sundkeppni milli Sov-
étrikjanna og Austur-Þýskalands
í Mosvku.
I VRENI Schneider missir af
síðustu keppnunum um heimsbikar
kvenna á skíðum. Hun meiddist illa
á báðum hnjám er hún féll í keppni
í Aspen fyrir skömmu og hefur
ekki náð sér enn. Möguleikar henn-
ar um sigur í heimsbikarkeppninni
eru því úr sögunni. „Það hefði ver-
ið gaman að vinna tvöfalt í heims-
bikarkeppninni eftir að hafa unnið
tvöfalt á Ólympíuleikunum, en það
kemur annað keppnistímabil eftir
þetta og þá verð ég búinn að ná
mér, “ sagði Schneider. Hún var
ekki sú eina sem meiddist í Aspen.
Stöllur hennar Maria Walliser og
Beatrice Gafner meiddust einnig
og keppa ekki meira í vetur.
KNATTSPYRNA
Margirfrægirknattspyrnukappartil íslands:
Þýskt stórskotalið herjar
á Laugardalsvellinum
Stórskytturnar Gerd „Bomber" Mullerog UweSeelerfremstaríflokki
MARGAR heimsfrægar knatt-
spyrnustjörnur verða í sviðs-
Ijósinu á Laugardalsvellinum
17. júní í sumar. V-þýskt
úrvalslið kemur hingað í heim-
sókn. Það er skipað gamal-
kunnum knattspyrnumönnum
frá V-Þýskalandi, Argentínu og
Brasilíu. Þetta er „Portas-lið-
ið“ sem hefur innanborðs leik-
menn eins og markaskorarana
miklu Gerd Miiller og Uwe Se-
eler, Paul Breitner, Wolfgang
Overath og Brasilíumennina
Jairzinho, Carles Alberto og
Paulo Cesar.
Leikurinn er fjáröflunarleikur,
til að fjármagna íþróttarvallar-
gerð við Litla-Hrauni. Framkvæmd-
ir við völlinn hefl'ast í byijun apríl.
Hagvirki mun sjá um verkið og
Þýsk-íslenska sér um hitaleiðslur
undir völlinn.
Það er Halldór Einarsson, Henson,
sem sér um fjáröflunarleikinn, en
eins og menn muna þá léku tvö
úrvalslið á Laugardalsvellinum í
fyrra. Sá leikur heppnaðist mjög
vel.
„Ég fékk skeyti frá V-Þýskalandi
í morgun, þar sem tilkynnt var að
fjórtán manna hópur komi hingað
til lands frá Frankfurt 16. júní og
færi aftur utan 19. júní,“ sagði
Halldór í viðtali við Morgunblaðið
I gær.
KNATTSPYRNA
Gerd MQIIer tiyggði V-Þjóðveijum
heimsmeistaratitilinn 1974
Halldór sagði að enn væri ekki ljóst
hvaða leikmenn komi með „Portas-
liðinu." Liðið Ieikur íjölmarga leiki
á ári og er hópurinn mjög breytileg-
ur hveiju sinni. Auk áðumefndra
leikmanna hafa leikmenn eins bg
Frans Beckenbauer leikið með lið-
inu. Hann kemst þó ekki þar sem
hann mun stjóma landsliði V-
Uvra SmIw, fyrrum landsliðsfyrir-
liði V-Þýskalands. Hann skoraði tvö
mörk gegn íslandi í landsleik á Laug-
ardalsvellinum 1960, 5:0.
Þýskalands í Evrópukeppni lands-
liðs á sama tíma. Aðrir kappar sem
hafa leikið með liðinu, eru: Bemd
Hölzenbein, Jurgen Grabowski,
Hannes Löhr, Klaus Fischer, Rainer
Bonhof, Helmut Haller, Sigi Held,
landsliðsþjálfari íslands, Giinter
Netzer, sem em allir frægir v-
þýskir landsliðsmenn. Brasilíu-
KNATTSPYRNA
Carlos Alborto, var fyrirliði heims-
meistaraliðs Brasilíu 1970 í Mexikó.
maðurinn Marinho hefur einnig
leikið með liðinu og Argentínu-
maðurinn Oscar Alberto Ortiz. •
Þessar stórstjömur kappa við annað
úrvalslið, sem verður einnig skipað
frægum köppum. Tveir" íslesnkir
leikmenn leika með því úrvalsliði.
Það eru þeir Ásgeir Sigurvinsson
og Amór Guðjohnsen.
Tap gegn Haarlem
Olympíulandsliðið mátti þola tap, 0:1, fyrir hollenska 1. deildarlið-
inu Haarlem í Hollandi í gærkvöldi. íslenska liðið var betra í
leiknum, en náði ekki að koma knettinum í mark Haarlems.
„Þar sem það er búið að rigna mikið hér. Því fór leikurinn fram á
gervigrasvelli. Við áttum ekki von á því, þar sem við komum hingað
til Hollands til að æfa og leika á grasi,“ sagði Guðni Kjartansson,
aðstoðarmaður Siegfried Held, landsliðsþjálfara. Allir leikmenn
ólympíuliðsins fengu að leika. Hollendingamir skoruðu sigurmarkið
með skalla á síðustu sek. fyrri hálfleiksins.
Asgeir með rauðu hundana
Asgeir Sigurvinsson, fyrirliði Stuttgart, sem hefur verið með rauðu
hundana, féll á læknisskoðun í gær fyrir leik Stuttgart og Frank-
furt. Hann var því áhorfandi þegar Stuttgart lagði Frankfurt að velli, 1:0,
í Stuttgart í gærkvöldi.
„Leikurinn var frekar dapur,“ sagði Ásgeir. „Þetta var vinnusigur, sem
færir okkur í áttina að UEFA-sæti,“ sagði Arie Haan, þjálfari Stuttgart.
20 þús. áhorfendur sáu Rainer Schutterle, sem lék í peysu nr. 10, skora
sigurmarkið á 68. mín.
Karlsruher lagði Hannover, 2:1, í gærkvöldi.
KNATTSPYRNA
Marseille
áfram
Marseille frá Frakklandi
tryggði sér rétt til að leika
í undanúrslitum í Evrópukeppni bik-
armeistara í gærkvöldi. Féiagið
lagði finnska liðið Palloseura að
velli, 3:0.
30 þús. áhorfendur sáu kappana Bem-
ard Genghini, Klaus Allofs og Jean-
Pierre Papin skora mörkin.
■Þær fréttir bárust frá Barcelona I
gærkvöldi að fjórir vamarleikmenn
Bareelona væru með flensu - og gætu
ekki leikið UEFA-leikinn gegn Leverk-
usen í kvöld.
■Mikil gremja braust út í Aberdeen í
gærkvöldi, þegar dómarinn Andrew
Waddell lét ekki leik Aberdeen og Celtic
í skosku deildarbikarkeppninni fara
fram. Ástæðan fyrir því er að hann
taldi völlinn of blautann vegna rign-
inga. 23 þús. áhorfendur fóu því fílu-
ferð á völlinn.
■Dundee Utd. og Dundee gerðu jafn-
tefli, 2:2, eftir framlengdan leik f 8-liða
úrslitum skosku bikarkeppninnar í gær-
kvöldi.
■Coventry vann stórsigur, 4:0, yflr
Luton í ensku 1. deildarkeppninni í
gærkvöldi. Swindon lagði Bamsley, 3:0,
f 2. deild og f 4. deild lagði Darlington
Peterborough að velli, 2:1.
HANDKNATTLEIKUR
Yfirlýsing frá
Valdimar Gnmssyni
Morgunblaðinu barst í gær
eftirfarandi yfirlýsing frá
Valdimar Grímssyni, handknatt-
leiksmanni úr Val:
„Því miður er margt sagt í bræði
sem ekki stenst og ætti ekki að
segjast. Það hef ég nú gert um
einn af okkar albestu handbolta-
mönnum.
Víkingurinn Guðmundur Guð-
mundsson á frábæran handbolta-
feril að baki og á sá ferill örugg-
lega eftir að lengjast. Ummæli
mín um Guðmund voru höfð eftir
mér þegar hitinn eftir leikinn var
hvað mestur. Guðmundur hafði
eftir leik Vals og Víkings á mánu-
dagskvöldið ásakað mig við blaða-
mann um ítrekuð gróf brot, svo-
kölluð júgóslavnesk brögð.
Ásökum Guðmundar er alröng og
skil ég ekki að sannur íþróttamað-
ur, eins og ég tel Guðmund vera,
skuli vilja eyðiléggja íþróttaferil
Valdimar Qrfmsson.
nokkurs manns með yfírlýsingum
sem þessari. í þessum sama
íþróttaanda bið ég Guðmund af-
GuAmundur QuAmundsson.
sökunar á fljótfæmislegu orðavali
mínu um hann.
Valdimar Grímsson."