Morgunblaðið - 30.04.1988, Page 25
25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988
Skammt frá minnismerki óþekkta hermannsins eru þessar loftvarna-
byssur. Hvort þær eru til minningar um heimsstyijöldina eða við-
búnaður ef til átaka kæmi nú á tímum skal ósagt látið.
Vetrarmyndir frá Múrmansk
MÚRMANSK er stærsta hafnar-
borgin á Kóla-skaga í norður-
hluta Sovétríkjanna, austan við
Noreg. Á skaganum er eitthvert
mesta víghreiður veraldar. Það
eru ekki oft sem sjást myndir frá
Múrmansk og allra síst herskip-
um þar. Eru Sovétmenn mjög
varir um sig, þegar þeir sjá menn
munda ljósmyndavélar á þessum
sióðum. Morgunblaðinu bárust
þó nýlega nokkrar myndir þaðan
og birtast þær hér.
Þegar siglt er inn til Múrmansk má hvarvetna sjá herskipalægi. A þessari mynd sést annað tveggja
þyrlumóðurskipa sovéska flotans af svonefndri Moskvu-gerð. Þessi skip eru 17.000 lestir og eru 191
metri á lengd. í sovéska flotanum eru aðeins flugmóðurskip af Kiev-gerð og orrustubeitiskip af Kirov-
gerð stærri.
Eitt af einkennum allra sovéskra
borga er minnismerki um siðari
heimsstyrjöldina og framgöngu
Rauða hersins á þeim erfiða
tíma. Myndin sýnir risavaxna
styttu af hermanni við Múr-
mansk.
Banda-
ríkjastjórn
úthúðað
í Moskvu
Moskvu. Reuter.
Sovétmenn réðust í gær með
heift að Bandaríkjastjórn og sök-
uðu Ronald Reagan forseta um
heimsveldishroka í ummælum
sinum um sovésk stjórnvöld. Þá
var sagt, að vígbúnaðaráætlanir
Bandarikjastjórnar gætu spillt
fyrir samskiptum ríkjanna.
Yfírlýsingar Sovétstjórnarinnar
um Reagan og Bandaríkjastjóm
voru birtar í flokksmálgagninu
Prövdu og Tass-fréttastofunni og
koma fyrir almenningssjónir þegar
aðeins einn mánuður er til fundar
þeirra Reagans og Míkhaíls Gor:
batsjovs, leiðtoga Sovétríkjanna. í
liðinni viku kvaðst Gorbatsjov vera
orðinn leiður á predikunartóninum
frá Washington og í fyrradag var-
aði stjómmálaráðið Bandaríkja-
stjóm við að troða skoðunum sínum
og gildismati upp á aðra. Sagði í
Prövdu, að Reagan væri vanur að
krydda ræður sínar með „heims-
veldishroka, sem jaðrar við afskipti
af innanlandsmálum okkar“.
Tass-fréttastofan sagði, að áætl-
anir NATO um að endumýja
skammdræg kjamorkuvopn gæti
hrundið af stað nýju vígbúnaðar-
kapphlaupi, grafið undan því, sem
áunnist hefði í samskiptum risa-
veldanna, og gert að engu ávinning-
inn af samningunum um meðal-
drægu vopnin
SYNING 3 0.4.
KL. 10-17
O G 1.5.
KL. 13-17
HÚSMUNAVERSLUN
ENGJATEIGI 9 105 REYKJAVlK
S I M I 68 91 55
Glæsileg sýning á
húsgögnum frá
í dag og á morgun.
Eftir hönnuöina
Peter Maly, De Pas,
d'Urbino, Lomassi,
Franco Raggi, Claude Brisson,
Michel Ducaroy og
Annie Hiéronimus.
APGUS/SÍA