Morgunblaðið - 30.04.1988, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988
33
Efri deild:
Deilur um Rík-
isendurskoðun
Álverið í Straumsvík.
NOKKRAR deílur urðu meðal
þingmanna í efri deild í gær þeg-
ar frumvarp forseta þingsins um
breytingu á lögum um Ríkisend-
urskoðun kom til umræðu. Töldu
þingmenn Borgaraflokksins i
deildinni að RE væri veitt of
mikið vald með þessari heimild.
Halldór Blöndal var einn þeirra
sem svaraði þessari gagnrýni og
sagði hann frumvarpið vera
nauðsynlegt til að RE gæti hald-
ið uppi reglulegu eftirliti án þess
að leita til dómstóla.
Heilbrigðisráðherra:
Niðurstöður mengnnar-
mælinga í álverinu í mai
GUÐMUNDUR Bjarnason svaraði á fimmtudag fyrirspurn frá Hjör-
leifi Guttormssyni (Abl/Al) um mengun i álverinu í Straumsvík.
Hjörleifur spurði hvaða athuganir hefðu verið gerðar á mengun frá
álverinu vegna gallaðra rafskauta og hver væri afstaða heilbrigðis-
ráðuneytisins og Hollustuverndar rikisins og hvaða kröfur hefðu
verið gerðar um úrbætur. í svari ráðherrans kom fram að i næsta
mánuði er væntanleg skýrsla um niðurstöður mælinga á útblæstri
frá viftum i kerskálum og frá hreinsibúnaði.
Heilbrigðisráðherra sagði Vinnu- í samvinnu við álverið í Straumsvík
eftirlit ríkisins hafa eftirlit með
mengun á vinnustöðum og sjá um
að fýlgjast með mengun í kerskál-
um álversins og áhrifum á starfs-
menn, fyrir þennan þátt yrði félags-
málaráðherra að svara. Hollustu-
vemd ríkisins hefði hins vegar eftir-
lit með mengun sem bærist frá ál-
verinu út í umhverfið og eftirlit
með mengun í Straumsvík.
Sumarið 1986 hefðu farið fram
mælingar á útblástri frá viftum í
kerskálum og frá hreinsibúnaði. í
þeim tilvikum þar sem mikið hefði
verið um opin ker hefði mengun frá
álverinu verið töluvert meiri en við-
unandi gæti talist. Skýrsla um þess-
ar mælingar væri væntanleg í
næsta mánuði. Ennfremur væri
starfandi svokölluð flúomefnd sem
ætti að fylgjast með hvaða áhrif
mengun í álverinu hefði á gróður í
nágrenni þess. Þessi nefnd starfaði
á vegum iðnaðarráðuneytisins og í
tengslum við það.
Varðandi síðari Iið fyrirspumar-
innar, þ.e. hver væri afstaða heil-
brigðisráðuneytisins til mengunar
vegna gallaðra rafskauta, sagði
ráðherra að í lok ágústmánaðar sl.
hefði Hollustuvemd ríkisins skrifað
álverinu í Straumsvík bréf vegna
þessa máls og fengið hin 16. sept-
ember svar þar sem tilkynnt hefði
verið að gölluðum rafskautum hefði
verið skipt út þegar í ágústmánuði.
Ráðuneytið og Hollustuvemd hefðu
þar með talið að þessu máli væri
komið í viðunandi horf. Greininlegt
væri hins vegar að ekki hefði fund-
ist viðunandi lausn á þessu máli og
myndi ráðuneytið taka á málinu í
samráði við Hollustuvemd, Heil-
brigðiseftirlit HafnarQarðar, iðnað-
arráðuneytið og stjómendur álvers-
ins í Straumsvík þegar niðurstöður
áðumefndrar rannsóknar lægju fyr-
ir f næsta mánuði.
Friðrik Sophusson, iðnaðar-
ráðherra, sagði síðustu upplýsing-
ar sem væm til fyrir árið 1986
benda til þess að þá um haustið
hefði minni mengun mælst í gróðri
eða vatni heldur en þá um vorið.
Með þessu væri fylgst og mætti
segja*%ð þegar litið væri til baka
yfir ÖU þessi ár þá hefði mengun
mæld í gróðri og vatni við álverið
farið minnkandi ár frá ári og þá
tæki hann ekkert sérstakt tillit til
þeirra vandræða sem væru nú sér-
stök afleiðinggallaðra rafskautum.
Með frumvarpinu er verið að
gera skoðunarheimildir Rfkisendur-
skoðunar ótvíræðar. Meirihluti fjár-
hags- og viðskiptanefhdar efri
deildar telur að samþykkja eigi
frumvarpið en Júlíus Sólnes (B/Rn)
skilaði séráliti. Telur hann frum-
varpið gefa Ríkisendurskoðun mjög”
víðtæka lagalega heimild til þiess
að rannsaka bókhald og grunngögn
reikninga sem ríkinu væri ætlað að
greiða samkvæmt lögum, verk-
samninga o.fl. Gert væri ráð fyrir
að Ríkisendurskoðun gæti krafist
þess að fá aðgang að bókhaldi
einkaaðila og fyrirtækja þeirra.
Júlíus sagði að hér væri of langt
gengið og um óeðlileg afskipti ríkis-
valdsins af Qárreiðum einstaklinga
væri að ræða. Hann gæti því ekki
samþykkt ' frumvarpið óbreytt.
Þingmenn Borgaraflokksins í efri
deild, þeir Júlíus Sólnes og Guð-
mundur Ágústsson, héldu síðan
uppi gagnrýni á frumvarpið.
Halldór Blöndal, formaður ijár-
hags- og viðskiptanefndar efri
deildar, sagði þetta frumvarp ekki
vera flutt af einhverri mannvonsku
heldur væri þessi heimild nauðsyn-
leg til þess að Ríkisendurskoðun
gæti í reglulegu eftirliti athugað
þau gögn sem henni væri nauðsyn
á án þess að þurfa að leita til dóm-
stóla. Ekki væri verið að skerða
persónuleg réttindi þeirra manna
4 sem ættu viðskipti við ríkissjóð.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
(S/Vf) sagði frumvarpið vera þann-
ig til komið að RE hefði óskað eft-
ir flutningi þess og forsetar Al-
þingis staðið að flutningi þess.
Teldu þeir þýðingarmikið að það
yrði lögfest á þessu þingi. Afar
mikilvægt væri að RE færi ekki
offari í þessum efnum og væri
stofnunin mjög meðvituð um hve
mikill vandi henni væri á höndum.
Bönnuð verði við-
skipti við Suður-
Afríku og Namibíu
í GÆR var lagt fram á Alþíngi
frumvarp um bann við viðskipt-
um við Suður-Afríku og Namibíu
en flutningsmenn eru fimm þing-
menn úr öllum flokkum nema
Borgaraflokki. Frumvarpið kom
til fyrstu umræðu í neðri deild í
gær og var að henni lokinni sent
til meðferðar fjárhags- og við-
skiptanefndar deildarinnar.
Jón Sigurðsson, viðskiptaráð-
herra, skýrði frá því að rfkisstjómin
hefði haft þetta mál til umræðu að
undanfömu og sfðastliðinn fímmtu-
dag hefði verið samþykkt tillaga frá
honum um að fulltrúar stjómar-
flokkanna í utanríkismálanefnd
beittu sér fyrir að fram kæmi í
neðri deild frumvarp um viðskipta-
bann við Suður-Afríku og Namibíu.
Skiptar skoðanir væru um hvort
aðgerðir af þessu tagi hefðu ein-
hver áhrif, sagði viðskiptaráðherra,
þetta væri fyrst og fremst ákvörðun
stjómmálalegs eðlis en ekki við-
skiptalegs.
Albert Guðmundsson (B/Rvk)
taldi þetta vera sýndarmennsku og
ef einhver alvara lægi að baki yrðu
stjómmálatengsl við löndin slitin.
Með frumvarpinu er lagt til að
sett verði bann á innflutning frá
og útflutning til Suður-Afríku og
Namibíu. í greinargerð með frum-
varpinu segir að Norðurlandaþjóð-
imar hafi einum rómi fordæmt kúg-
unarstefnu Suður-Afríku gegn
meirihluta fbúanna og ólöglegar
aðgerðir Suður-Afríku í Namibíu.
Með samþykkt þessara laga skipi
ísland sér í hóp þeirra þjóða sem
með formlegum hætti lýsa yfír við-
skiptabanni á Suður-Afríku f þeim
tilgangi að þrýsta á rfkisstjóm
landsins til þess að láta af stefnu
sinni.
Síðan segin „Þótt almennt megi
segja að Norðurlöndin og önnur
vestræn ríki styðji fijáls viðskipti
er ljóst að um Suður-Afríku geta
venjulegar reglur ekki gilt. Endur-
teknar tilraunir Norðurlandaþjóð-
anna á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna, m.a. í öryggisráðinu, hafa
ekki borið tilætlaðan árangur. Var
því sú leið farin í hinum einstöku
löndum að setja löggjöf sem felur
í sér viðskiptahömlur. “
Innflutningur frá Suður-Afríku
hefur undanfarin ár verið að verð-
mæti 20-30 milljónir króna en út-
flutningur 3-5 milljónir króna. Inn-
flutningurinn firá Suður-Afríku var
0,05% af heildarinnflutningi lands-
manna á síðasta ári og hefur hann
farið minnkandi frá árinu 1984.
Útflutningur hefur haldist hlutfalls-
lega óbreyttur og verið tæplega
0,01% af heildarútflutningi.
Flutningsmenn eru Kjartan Jó-
hannsson (A/Rn), Páll Pétursson
(F/Nv), Olafur G. Einarsson
(S/Rn), Kristfn Einarsdóttir
(Kvl/Rvk), Steingrímur J. Sigfús-
son (Abl/Ne).
STUTTAR ÞINGFRÉTTIR
FUNDIR voru í báðum deildum
Alþingis í gær. Haldnir voru
nokkrír fundir í báðum deildum
og mörg frumvörp afgreidd á
milli umræðna og deilda. t dag
verður síðan haldinn fundur í
sameinuðu þingi.
Nefndarálit um bjórinn
Meirihluti allsherjamefndar
efri deildar hefur skilað frá sér
nefndaráliti um bjórfrumvarpið.
Meirihluti nefndarinnar leggur til
að það verði samþykkt eins og
það kom frá neðri deild. Undir
nefndarálitið rita þau Jóhann Ein-
varðsson (F/Rn), Eiður Guðnason
(A/Vl), Guðmundur Ágústsson
(B/Rvk), Eyjólfur Konráð Jónsson
(S/Rvk), Salome Þorkelsdóttir
(S/Rn) og Stefán Guðmundsson
(F/Nv).
Sala Ferðaskrifstofu
rikisins
Efri deild afgreiddi í gær til
neðri deildar frumvarp sam-
göngumálaráðherra um sölu á 2/s
hluta rfkisins í Ferðaskrifstofu
ríkisins til starfsmanna. Sam-
göngunefnd deiidarinnar tók í
nefndaráliti fram að þegar talað
sé um' „forkaupsrétt starfs-
manna“ sé átt við alla starfs-
menn, jafnt fastráðna sem laus-
ráðna, svo sem sumarráðna
starfsmenn Edduhótela. Guð-
mundur Ágústsson (B/Rvk) flutti
breytingartillögu við frumvarpið-
þess efnis að allur hluti rikissjóðs
yrði seldur.
Kaupleigan milli deilda
Neðri deild afgreiddi í gær til
efri deildar frumvarp félagsmála-
ráðherra um kaupleiguíbúðir. Fé-
lagsmálaráðherra mælti síðan fyr-
ir frumvarpinu í efri deild og var
það afgreitt til annarrar umræðu
og nefndar.