Morgunblaðið - 30.04.1988, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988
Minning:
Tómas S. Sveinsson,
Vestmannæyjum
Fæddur 14. ágúst 1903
Dáinn 20. apríl 1988
Það var um miðjan september
sl. sem frændi minn og vinur, Tóm-
as Sveinsson, hringdi til mín frá
Vestmannaeyjum, og bað mig að
ganta fyrir sig ryðvörn á bílinn sinn.
A tilsettum tíma í október kom
hann svo með bílinn sinn og gisti
hjá okkur hjónum í nokkra daga,
meðan ryðvörnin fór fram. Eins og
vant var, ríkti nánast jólahátíð á
okkar heimili, meðan Tommi dvaldi
hjá okkur. Það fylgdi honum sami
hressi andblærinn og vant var, við
skiptumst á skoðunum í pólitík,
hann fræddi mig um menn og mál-
efni fyrri tíma og ég skaut honum
í heimsókn til ættingja á höfuð-
borgarsvæðinu á meðan á dvöl hans
stóð. Að lokum fylgdi ég honum til
Þorlákshafnar, þaðan sem hann
hélt heim með Heijólfi. Allt virtist
eins og áður, hann var hress og
kátur.
Það kom því eins og þruma úr
heiðskíru lofti, hálfum mánuði
seinna, er ég fékk þær fregnir úr
Eyjum, að hann hefði verið fluttur
veikur á sjúkrahúsið þar. Nokkrum
dögum síðar var hann kominn á
Landspítalann. Lengi vei var haldið
í vonina um, að hér væri ekki al-
vara á ferðum, en þar kom, að ljóst
var, að maðurinn með ljáinn hafði
reitt til höggs. Hetjulegri baráttu
Tómasar Sveinssonar gegn því lagi
lauk ekki fyrr en 20. apríl sl.
Tómas Stefán Sveinsson, eins og
hann hét fullu nafni, var fæddur í
Selkoti, Austur-Eyjafjallahreppi,
t
Móðir mín,
MARGRÉT ÞÓRARINSDÓTTIR,
Háaleitisbraut 26,
Reykjavík,
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu ísafirði föstudaginn 29. apríl.
F.h. vandamanna,
Jósefína Gísladóttir.
t
Eiginkona min,
SIGRÚN ÞÓRARINSDÓTTIR,
Tunguvegi 2,
lést á Sólvangi þann 26. apríl.
Eyjólfur Guðmundsson,
Þórir Eyjólfsson, Helga Pálsdóttir,
Guðni R. Eyjólfsson, Guðríður Karlsdóttir.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
RANNVEIG ÞÓR,
lést á Droplaugarstöðum að kvöldi 28. apríl sl.
Borghildur og HHmar Fenger,
Hrund og Örn Þór,
Hjördís Þór McCrary.
t
Eiginmaður minn og faðir,
PÁLL KR. PÉTURSSON,
Ljósheimum 14,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum fimmtudaginn 28. apríl.
Álfdís Ragna Gunnarsdóttir,
Ólöf S. Pálsdóttir.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
INGIBJÖRG SVEINSDÓTTIR
frá Felli í Biskupstungum,
til heimilis í Miðtúni 7,
lést á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur 28. apríl.
Dætur og tengdasynir.
t
Eiginmaöur minn,
RAGNAR Á. SIGURÐSSON
sparisjóðsstjóri,
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað þann 29. apríl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Kristín Lundberg.
14. ágúst 1903. Foreldrar hans
voru hjónin Sveinn Jónsson, bóndi
þar, og kona hans, Anna Valgerður
Tómasdóttir. Sveinn, faðir hans, var
sonur Jóns Jónssonar á Lambafelli,
sem var víðfrægur völundur í hönd-
unum, ættaður austan úr Skafta-
fellssýslu. Frá honum eru komnir
víðfrægir snillingar, og má þar til
nefna Guðjón í Smiðjunni í Vest-
mannaeyjum o.fl. Sjálfur var
Sveinn, faðir Tómasar, annálaður
snillingur í höndunum og það sagði
Tómas mér sjálfur, að oft á tíðum
hefði faðir hans gengið frá orfinu
á Selkotsengjum, til þess að sinna
viðgerðum á amboðum og búshlut-
um sveitunganna. Um annað endur-
gjald en þakklætið fyrir þá þjónustu
var ekki að ræða, en það dugði
skammt til þess að seðja svanga
munna eða að koma heyfeng í hús.
Á þessu var þó ein undantekning,
að sögn Tómasar, en það var Eyjólf-
ur Þorsteinsson á Hrútafelli, sem
ávallt sendi vinnumann til þess að
vinna fyrir Svein, meðan hann gerði
við þá hluti, sem hann hafði sent
honum til viðgerðar. Ósjálfrátt Ieið-
ir maður hugann að því, að rausn
og höfðingsskapur Tómasar og
hans systkina sé frá föður þeirra
kominn. Móðir Tómasar vár Anna
Valgerður, dóttir Tómasar Stefáns-
sonar, bónda í Selkoti, en ætt þeirra
hefur búið í Selkoti allt frá árinu
1780 til þessa dags.
Tómas var hinn fjórði í röð sex
systkina, sem öll náðu fullorðins-
aldri. Hin eru: Guðrún, húsfreyja í
Skarðshlíð, fædd 1897, gift Jóni
Hjörleifssyni, bónda og oddvita þar,
hún lést 1983. Guðjón, fæddur
1898, kvæntur Mörtu Eyjólfsdóttur
frá Hvoltungu, en hann lést af slys-
förum 1968. Hjörleifur, fæddur
1901, kvæntur Þóru Þorbjarnar-
dóttur frá Eskifírði, en hann býr
hjá syni sínum í Reykjavík. Gróa,
fædd 1905, gift Gissuri Gissurar-
syni frá Drangshlíð, en þau bjuggu
í Selkoti. Hún dvelur nú að Hraun-
búðum í Vestmannaeyjum. Yngstur
var Sigfús, fæddur 1907, kvæntur
Guðrúnu Gissurardóttur frá
Drangshlíð, en þau búa í Kópavogi.
Sveinn Jónsson, faðir Tómasar,
féll frá 1920. Þá þegar höfðu tveir
elstu synirnir, þeir Guðjón og Hjör-
leifur, farið í verið til Vestmanna-*
eyja, til þess að létta undir með
heimilinu. Það kom því í hlut Tóm-
asar að vera móður sinni innan
handar við búskapinn. Skaplyndi
hans gerði það að verkum, að hon-
um nægði ekki að gefa bara rollum
og kúm, kvölds og morgna. Því var
það, að hann leitaði til sveitunga
sinna, sem útræði stunduðu, um
skiprúm. Fyrir tilstilli Eyjólfs Þor-
steinssonar á Hrútafelli fékk hann
að lokum að fljóta með á skipi, sem
Vigfús Guðmundsson í Eystri-
Skógum stýrði. Tómas var fiskinn
og þegar ljóst var hversu mikið
þessi 16 ára unglingur dró úr sjó,
ákvað skipstjórinn að hann fengi
fullan hlut, eins og aðrir á skipinu.
Á þennan hátt létti Tómas undir
með móður sinni við rekstur heimil-
isins og dró svo sannarlega björg í
bú.
Árið 1922 hleypir Tómas síðan
heimdraganum og fer til Vest-
mannaeyja, þar sem hann átti heim-
ili upp frá því. Fyrst var hann á
útgerð Jóns Ólafssonar á Hólmi,
frænda síns, en Jón og Hjörleifur,
bróðir Tómasar, áttu saman bátinn
Ófeig, sem Tómas reri á sínar fjór-
ar fyrstu vertíðar í Vestmannaeyj-
um. Árið 1927 sótti Tómas vél-
stjóranámskeið í Eyjum, og stóðst
prófið með mestu prýði eins og af
t
Eiginmaður minn og faöir okkar
HÓLMSTEINN HELGASON
útgerðarmaður á Raufarhöfn,
lést á Hrafnistu í Reykjavík 29. apríl.
Jóhanna Björnsdóttir og börn.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGRÚN JÓNSDÓTTIR
frá Patreksfirði,
Hjallavegi 10,
Reykjavik,
verður jarðsungin frá Áskirkju mánudaginn 2. maí kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vildu minn-
ast hennar er bent á líknarstofnanir.
GarðarJohannsson
Hjörvar Garðarsson,
Jón Sverrir Garðarsson,
Reynir Garðarsson,
Jóhann Baldvin Garðarsson,
Guðjón Steinar Garðarsson,
Vignir Ingi Garðarsson,
Ágústa Rósa Þórisdóttir,
Erna Sveinbjarnardóttir,
Helga Eygló Guðlaugsdóttir,
Guðfinna Óskarsdóttir,
Emelia Ástvaldsdóttir,
Guðlaug Þorsteinsdóttir,
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar
móður okkar,
EMELÍU J. BERGMANN
frá Flatey á Breiðafirði.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki öldrunardeildar Borgar-
spítalans, B-5, fyrir frábæra umönnun.
Hallbjörn Bergmann,
Jónina Bergmann.
honum mátti vænta. Síðan ræðst
hann til Karls Guðmundssonar í
Reykholti í Vestmannaeyjum sem
vélstjóri og er hjá honum næstu
árin á Skúla fógeta og Tjaldi. í
umræðum mínum við Tómas kom
fram, að hann mat Karl Guðmunds-
son mjög mikils og taldi hann einn
af hæfustu skipstjórum Vest-
mannaeyja á þessum árum.
Árið 1934 verða þáttaskil í lífi
Tómasar, því að þá taka sig saman
tvennir bræður, þeir Karl Guð-
mundsson, sem áður er getið, og
Jón bróðir hans, og þeir bræður,
Guðjón og Tómas Sveinssynir, og
kaupa nýjan bát frá Danmörku.
Báturinn var 21 tonn að stærð og
hlaut nafnið Ver, með einkennis-
stafína VE-318. Jón varð skip-
stjóri, Tómas vélstjóri, Guðjón sá
um aðgerð aflans og veiðarfæri og
Karl tók að sér bókhaldið. Þessi
bátur reyndist hin mesta happa-
fleyta og varð að minnsta kosti einu
sinni aflahæsti báturinn í Eyjum,
enda var vel að útgerðinni staðið.
Þessi útgerð stóð til ársins 1948
þegar Guðjón seldi sinn hlut og
flutti frá Eyjum. Eftir það eignaðist
útgerðin tvo báta, sem báðir báru
nafnið Ver, en 1963 seldu þeir fé-
lagar síðasta bátinn og hættu út-
gerð.
Tómas Sveinsson hætti sjó-
mennsku árið 1942 og fór í land,
eins og sagt er. Eftir það gegndi
hann ýmsum störfum, svo sem
verkstjórn hjá Netagerð Vest-
mannaeyja þar til hún hætti störf-
um, var vélgæslumaður hjá Fiskiðj-
unni hf., verzlunarmaður hjá Hall-
berg Halldórssyni, gæslumaður hjá
Sjúkrahúsi Vestmannaeyja og póst-
afgreiðslumaður. Öllum þessum
störfum sinnti Tómas af stakri sam-
viskusemi.
Árið 1930 gekk Tómas að eiga
Líneyju Guðmundsdóttur frá
Skagaströnd, mikla gáfu- og mann-
kostakonu. Það reyndist Tómasi
mikið happaspor, því Líney reyndist
honum hin besta húsmóðir og
lífsförunautur. Ungu hjónin hófu
búskap í Reykholti í Vestmannaeyj-
um, en 1931 flytja þau í nýtt hús,
sem Tómas hafði látið reisa á Fax-
astíg 13, þar sem þau bjuggu allt
til ársins 1983, er þau seldu húsið
og fluttu að Hraunbúðum, dvalar-
heimili aldraðra.
Tómasi og Líneyju varð þriggja
bama auðið, en þau em: Anna,
fædd 28.4.1931, gift Símoni Kristj-
ánssyni, framkvæmdastjóra frá
Stað í Vestmannaeyjum, en þau
eiga tvær dætur. Guðmar, skip-
stjóri, fæddur 6.4. 1933, látinn
25.7. 1967, kvæntur Sigríði Láms-
dóttur, en þau áttu þijú böm.
Sveinn, prentari og fyrmm vélstjóri
og forseti bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja, fæddur 24.11. 1935,
kvæntur Ólöfu Waage og eiga þau
fjögur böm.
Þó Tómas Sveinsson væri gæfu-
maður og lifði langa æfi, varð hann
þó að bergja hinn beiska bikar, sem
lífið býður upp á. Á þjóðhátíð Vest-
mannaeyja árið 1962 varð Líney
fyrir því slysi, að flugeldur lenti í
höfði hennar, þannig að hún hefur
ekki beðið þess bætur síðan. Eftir
það sá Tómas um öll hin erfíðari
heimilisstörf og taldi það svo sann-
arlega ekki eftir sér. Annað áfall í
lífi Tómasar varð hinn 25. júlí 1967,
þegar Guðmar sonur hans lést frá
konu og þremur börnum. Guðmar
var óvenjulegur drengur og öllum
harmdauði, sem honum kynntust.
Þrátt fyrir þessi áföll í lífinu lét
Tómas ekki bugast. Hann minnti á
fornkappana, sem stæltust við
hveija raun.
Það er erfitt að leiðarlokum að
tjá sig sem skyldi. Ég vil þó þakka
Tómasi Sveinssyni fyrir allt það sem
hann var mér og minni fjölskyldu.
Ég þakka allar samverustundirnar,
sem við áttum saman, alla fræðsl-
una, sem hann miðlaði mér, og alla
vináttuna, sem aldrei verður metin.
Fyrir hönd systkinanna í
Skarðshlíð hef ég verið beðinn að
færa þakkir fyrir allt, sem Tómas
Sveinsson var því heimili.
Ég bið Guð að styrkja Líneyju,
böm og barnabörn í þeirra miklu
sorg.
Utför Tómasar verður í dag frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum.
Hilmar E. Guðjónsson