Morgunblaðið - 30.04.1988, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988
43
Guðlaug Eiríks-
dóttir - Minning
Fædd 23. mal 1895
Dáin 24. aprU 1988
Það var á vordögum 1916, um
það leyti sem farfuglamir koma frá
fjarlægum löndum til sumardvalar,
að leið mín lá að Berghyl til for-
eldra Guðlaugar, Laugu, eins og
hún var oftast nefnd. En ég kom
ekki sem sumargestur eða í stutta
heimsókn, heldur til langrar dvalar
í fóstur.
í stórum bamahópi Berghyls-
hjóna, Sigríðar og Eiríks, var Lauga
ein þeirra. Það kom mest í hennar
hlut að annast mig. Hún var elst
af systmnum og einnig hafði hún
áður verið hjá foreldmm mínum í
Jötu að gæta mín. Það kom því
einhvemveginn eins og af sjálfu sér
að ég varð nokkurskonar skjólstæð-
ingur hennar. En allir á heimilinu
vom samtaka um að gera mér dvöl-
ina sem besta.
Lauga var fíngerð, falleg, hljóð-
lát og góð í orðsins fyllstu merkingu
og naut ég þess í ríkum mæli. Ung
að ámm fór Lauga til Reykjavíkur
að læra herrafatasaum og kom það
að góðum notum, því þá var allur
fatnaður heimasaumaður. Og árin
liðu við venjuleg sveitastörf. Á
Berghylsheimilinu vom bæði ungir
og aldnir en þar var kynslóðavanda-
mál nútímans óþekkt.
Það hlaut að koma að því að einn
öðmm fremur heillaðist af Laugu,
þessari jmdislegu stúlku. Ungi
bóndasonurinn Jón Jónsson frá
Þverspymu, næsta bæ, og Lauga
felldu hugi saman og gengu í hjóna-
band 5. júlí 1919. Lauga fór með
sínum góða og trausta manni á
æskuheimili hans. Þar bjuggu þau
öll sín búskaparár og allt gekk vel,
aðeins lítill farfugl varð dapur en
reyndi að leyna afbrýðiseminni útí
unga manninn sem tók Laugu.
Ég fór einnig burt en úr fjarlægð
fylgdist ég með ungu hjónunum í
Þverspymu og bömunum þeirra 10
sem öll em hin mannvænlegustu.
Oft hefur vinnudagurinn verið
langur hjá ungu konunni, því þá
var ekkert rafmagn eða heimilis-
tæki til hjálpar, en hjónin vom sam-
hent og hamingjusöm. Það létti
þeim lífsbaráttuna og veitti þeim
góða afkomu.
Og tíminn líður. Á 60 ára af-
mælisdegi Laugu 1955 komu böm
þeirra og vinir í heimsókn. Þar á
meðal var eldri sonur minn, 8 ára,
en þau hjónin í Þverspymu höfðu
boðið mér að taka hann um tíma
að sumrinu og ekki vom settar kröf-
ur um meðgjöf. Það verður aldrei
þakkað eins og vert er og því síður
launað þau fjögur sumur sem hann
dvaldi þar og svo einnig yngri bróð-
ir hans í önnur ijögur sumur. Eftir
að sumarvem þeirra lauk var alltaf
sama hlýjan og umhyggjan gagn-
vart bræðmnum (sumargestunum).
Þau Lauga og Jón vom komin
við aldur er þau hættu búskap. Jón
andaðist 1965. Sonur þeirra Val-
geir og Guðrún Þorsteinsdóttir,
kona hans, ásamt Siguijóni bróður
Valgeirs em löngu tekin við bú-
skapnum. Hjá þeim naut Lauga
umhyggju og ástúðar eins og best
verður á kosið.
Lauga andaðist 24. apríl á
sjúkrahúsinu á Selfossi, en þar hafði
hún dvalið í þijú ár.
í dag er hún kvödd frá Hmna-
kirkju. Langur og farsæll ævidagur
er liðinn, en hvíldin er kærkomin
þegar kraftar em þrotnir.
Eg sakna hennar sárt eins og
forðum, en eins og þá veit ég að
hún er í góðum höndum.
Ég og fjölskylda mín þökkum
henni og bömum hennar af heilum
Minning:
Sigurður Stefáns-
sonf Sauðárkróki
Fæddur 15. desember 1895
Dáinn 22. apríl 1988
Sá sem guðimir elska deyr ung-
ur. Þessi orð koma mér í hug þegar
ég minnist afa míns, Sigurðar Stef-
ánssonar, sem lést föstudaginn 22.
apríl. Hann var á 93. aldursári en
alla tíð og fram á síðustu stundir
ungur í anda, en þannig tel ég að
skilja beri hin tilvitnuðu orð hér að
ofan. Ifyrir rúmum hálfum mánuði
áttum við tal saman og ræddum
þá ýmis dægurmál. Hann spurði
um krakkana og handboltann, sem
hann fylgdist grannt með, og ég
spurði hann álits á pólitíkinni á
þessum síðustu og verstu tímum.
Þótt hlutimir gerist hratt og breyt-
ingar séu tíðar um þessar mundir,
fylgdist hann ætíð vel með öllu og
virtist aldrei hraka að marki hvað
þetta varðaði þótt Elli kerling hafi
sett mark sitt á hann að öðm leyti
eins og gengur.
Ifyrir nokkmm ámm þurfti afí
að leggjast inn á spítala í stuttan
tíma og þótti honum það afleitt.
Sérstaklega fannst honum það
slæmt að jafnaldrar hans sem með
honum lágu, vildu „alltaf vera að
tala um gamla tímann", eins og
hann orðaði það. -Það átti ekki við
hann að líta um of til baka og alls
ekki að lifa í gamla tímanum eins
og oft vill verða hjá eldra fólki.
Nú munum við afí ekki spjalla
lengur saman í síma um menn og
málefni en minningamar sem hann
skildi eftir á sinn hægláta og gam-
ansama hátt eru óvenju sterkar.
Árni Indriðason
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgnublaðið tekur afmælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.
hug ævilanga vináttu og velgjörðir.
Innilegar samúðarkveðjur sendi ég
bömum hennar, tengdabömum,
ættingjum og vinum og einnig
Sigríði systur heiinar, sem ein er á
lífí Berghylssystkina.
Guðrún Einarsdóttir
Sem strákar vomm við bræður
svo lánsamir að vera sendir sumar
eftir sumar í sveit að Þverspymu í
Hrunamannahreppi til Guðlaugar
Eiríksdóttur og Jóns G. Jónssonar
og bama þeirra. Þann 24. þ.m. lést
Guðlaug á 93. aldursári, en Jón
lést fyrir 23 árum. Það bar iðulega
við að sumardvölin hófst á afmælis-
degi Laugu, þann 23. maí.
Það vom fyrst óttablandnar til-
fínningar sem bærðust í litlum
bijóstum á gamla BSÍ-planinu við
Kalkofnsveg þegar mömmu og
pabba var veifað í kveðjuskyni út
um afturrúðuna á rútunni. Maður
herti upp hugann og reyndi að vera
stór. Én þessar hræringar vom
ekki lengi að hverfa þegar austur
var komið. Við okkur tók gott fólk
og myndarheimili. Þar var sannkall-
að vor í lofti og hugurinn hreifst
af því sem fyrir augu og eyru bar.
Sumrin vom alltof fljót að líða og
við bundumst óijúfanlegum bönd-
um við heimilisfólkið, náttúmna og
dýrin.
Lauga var ekki skyld okkur, en
móðir okkar var að hluta alin upp
á Berghyl í Hmnamannahreppi þar
sem Lauga óx úr grasi. Vegna þess-
ara tengsla, að viðbættri þeirri ró,
hlýju og umhyggju sem hún færði
okkur verður hún ætíð í minning-
unni okkar sanna amma, því öðmm
ömmum kynntumst við aldrei. Það
var ómetanlegt að kynnast við-
horfum og verkum Laugu.
Fjölmennum hópi afkomenda
vottum við samúð okkar, en öll
getum við þakkað fyrir að hafa átt
samleið með rammíslenskri heiðurs-
konu.
Hörður Erlingsson,
Oddi Erlingsson.
Leiðrétting
í minningargrein hér í blaðinu í
gær um Þorbjöm Sigurðsson á
Höfn í Homafírði stendur að hann
og kona hans, Ágústa Vignisdóttir,
hafi lifað í farsælu hjÓnabandi í 12
ár. Hér átti að standa í 42 ár. Beð-
ist er velvirðingar á mistökunum
um leið og þetta er leiðrétt.
Blóma- og
skreytingaþjónusta ©
hvert sem tilefnið er. '■*
GLÆSIBLÓMIÐ
GLÆSIBÆ,
Ál(hcimum74. sími 84200
Morgunblaðið/Jón G. Gunnareson
Frá fimleikasýningunni í iþróttahúsinu á Höfn.
Höfn:
Sund off fimleikar
Höfn, Hornafirði.
LANGÞRÁÐUR dagur í lífi
sundáhugafólks rann upp sl.
laugardag er Sundlaug Hafnar-
hrepps opnaði í fyrsta sinn á
þessu ári.
Bæjarbúar fjölmenntú til fyrsta
sundsprettsins, þrátt fyrir um-
gangspestir og langvarandi kvef-
hrelling. En á næstunni gefst mönn-
um kostur á að komast í sund bæði
kvölds og morgna, en um miðjan
dag fer fram sundkennsla.
Ungar áhugasamar fímleika-
stúlkur í Sindra efndu svo til fím-
leikasýningar á sunnudag. Þær
hafa stundað þessa íþrótt í eitt ár
og era mjög áhugasamar. Ekki era
allar háar í loftinu, enda á aldrinum
5—10 ára.
- JGG
ÚTHVERFI
Síðumúli o.fl.
Sæviðarsund, hærri tölur
VESTURBÆR
Framnesvegur1-35
AUSTURBÆR
Barónsstígur
Skólavörðustígur
SELTJNES
Barðaströnd
ARBÆJARHVERFI
Hraunbær raðhús
KOPAVOGUR
Nýbýlavegur