Morgunblaðið - 05.05.1988, Síða 1

Morgunblaðið - 05.05.1988, Síða 1
80 SIÐUR B 0ir«pwM$wfI> STOFNAÐ 1913 101. tbl. 76. árg. FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Beirút: Frönsku gísl- unum sleppt Beirút, Reuter. ÞREMUR frönskum gfslum, sem sleppt var f Vestur-hluta Beirút f gærkvöldi, var f nótt flogið heim til Frakklands. Mönnunum þremur, Marcel Carton, Marcel Fontaine og Jean-Paul Kauffmann, var sleppt f Summerland-hótelinu skömmu eftir sólsetur f gær, en undanfarin þijú ár hafa þeir verið gfslar hryðjuverkamanna, sem fylgja írans- stjórn að málum. Mennimir þrír eru mjög mátt- famir og vom fluttir til hersjúkra- hússins Val de Grace um leið og þeir komu til Parísar. Mennimir, tveir stjómarerindrekar og einn blaðamaður, vom fyrstu Frakkamir, sem rænt var í Beirút og hinir síðustu sem var sleppt. Með lausn þeirra virðist Jacques Chirac, forsætisráðherra Frakka, hafa efnt heit það, sem hann gaf um leið og hann tók við embætti forsætisráðherra fyrir tveimur ámm, en þá sagðist hann mundu fá gislana heim. Gíslamir hefðu vart geta endur- heimt frelsi sitt á heppilegri tíma fyrir Chirac, en aðeins þrír dagar em þar til FVakkar ganga til seinni umferðar forsetakosninganna og velja milli þeirra Chiracs og Fran?- ois Mitterrands forseta Frakklands. Talið er að lausn gíslanna muni styrkja stöðu Chiracs til muna, en hann hefur unnið ötullega að henni. Sérlegur sendimaður Chiracs, Jean-Charles Marchiani, hefur verið á þönum milli Parísar og Beirútar til þess að freista þess að fá gíslana lausa og sögðu ónafngreindir emb- ættismenn í Frakklandi að hann hefði verið í Beirút undanfama tvo daga. Þrátt fyrir að Chirac virðist hafa unnið nokkum sigur með lausn gíslanna herma heimildir að það hafi ekki verið Frökkum að kostnað- arlausu. Breska útvarpsstöðin BBC sagði í gær að orðrómur væri uppi um að Frakkar hefðu heitið þvf að endurgreiða íransstjóm flárfúlgur, sem frystar vom í frönskum bönk- um þegar Khomeini erkiklerkur steypti íranskeisara af stóli. Þá hafi Frakkar ennfremur greitt mannræningjum lausnargjald. Þetta fékkst þó ekki staðfest hjá frönskum stjómvöldum. Líbanon: Reuter ísraelskir skriðdrekar og brynvagnar ffnkemba svæði f Suður-Lfbanon f leit að skæruliðum samtakanna Hizbollah, en þau eru hliðholl íransstjóm. Israelsher upprætir víghreiður Hizbollah 40 skæruliðar og 3 Israelar í valnum Reuter. AÐ MINNSTA kosti 40 líbanskir skæruliðar og þrír ísraelskir her- menn féllu þegar ísraelsher gerði skyndiárás á þorpið Maido- un í Suður-Líbanon í gær. 17 fsra- elskir hermenn særðust f bardög- um við skæruliða Hizbollah- samtakanna, en barist var um hvert hús f þorpinu, sem er að- eins 5 km frá hersveitum Sýr- lendinga f landinu. Með orr- ustunni náðu tveggja sólarhringa hemaðaraðgerðir ísraela f Lfbanon hámarki, en þær hafa miðast að þvf að leita uppi búðir fslamskra skæruliða og eyða þeim. Sýrlenskar hersveitir að- höfðust ekkert meðan á þessu Pólland: Kirkjan skerst í leikinn Varsiá. Reuter. Varsjá, Reuter. ÓLGA meðal pólskra verkamanna breiddist frekar út f gær og ákvað kaþólska kirkjan að gera út sátta- semjara, en biskupar hennar sögð- ust óttaslegnir vegna verkfalla í landinu og hugsanlegra afleiðinga þeirra. Verkamenn í annarri skipasmfðastöð f Gdaúsk hafa Iagt niður vinnu að undirlagi Sam- stöðu, hinna ólöglegu verkalýðs- samtaka, og sama gerðu náma- menn f koparnámu f vestanverðu landinu. „Borgarar sem bera örlög þjóðar- innar sér fyrir bijósti hljóta að vera óttaslegnir vegna ókyrrðar í landinu að undanfömu og verkfalla á sumum svæðum," sagði meðal annars í yfir- lýsingu, sem biskupar Póllands gáfu út f gær. Þeir sendu fimm kaþólska leikmenn til þess að kynna sér af- stöðu verkfallsmanna í Gdansk og Kraká og eiga þeir að meta mögu- leika á lausn málsins. Ekki er talið að stjómvöld hyggist beita valdi til þess að beija verkföllin niður og sagði í tilkynningu frá Reuter Fjórir verkfallsmenn f Gdaúsk veifa sigurtákni, en það hefur einnig veríð óopinbert tákn Samstöðu. Stjómmálaráðinu, eiginlegri ríkis- stjóm Póllands, að það hefði skilning á óánægju borgaranna og vildi leysa verkföllin í samvinnu við verkamenn. stóð, en um 1.500 fsraleskir her- menn tóku þátt f aðgerðunum og héldu þeir aftur til ísraels f gærkvöldi. Dan Shomron, yfirmaður ísra- elska herráðsins, sagði að aðgerðir þessar hefðu miðað að því að tryggja öryggi ísraels og útrýma hryðjuverkamönnum í suðurhlúta Líbanons, en að undanfömu hafa hryðjuverkasveitir ítrekað farið yfir landamærin til ísraels. Shomron sagði í sjónvarpsviðtali að Hizbollah-samtökin hefðu breytt Maidoun f virki, grafíð skotgrafir og neðanjarðarbyrgi. ísraelskar hersveitir og bandamenn þeirra í Suður-líbanska hemum (SLA) sprengdu öll hús og víghreiður í þorpinu í loft upp, en skæruliðar Hizbollah, sem þjálfaðir hafa verið af írönskum byltingarvörðum, flæmdu alla þorpsbúa burt með valdi á sfðasta ári. Talsmaður hersins, Ra’anan Gissin ofursti, sagði að tilgangur aðgerðanna hefði ekki einvörðungu verið sá að uppræta Hizbollah, held- ur einnig sá að vara Líbani við þvi að hýsa eða aðstoða á annan hátt palestínska skæmliða. Fimm ísraleskir hermenn og 17 palestínskir hryðjuverkamenn hafa fallið í þeim átta árásum, sem Frels- issamtök Palestínu (PLO) hafa gert inn í ísrael, það sem af er ársins. í engri þessara árása tókst hryðju- verkamönnunum að komast til byggða í ísrael. Dauðþreyttir og fomgir fsraelskir fallhlífahermenn sögðu blaðamönn- um í gærkvöldi, að flestir hinna særðu og föllnu hefðu orðið fyrir skotum þegar barist var um þorpið hús úr húsi. „Við urðum fyrir áföll- um og einn þeirra, sem féll, var yfírmaður okkar, sem féll þegar hann fór inn í Maidoun og skoraði á hryðjuverkamennina að gefast upp,“ sagði 19 ára gamall óbreyttur hermaður. Dan Shomron sagði að ísraelar hefðu gert allt, sem í þeirra valdi stæði, til þess að Sýrlendingar skæmst ekki í leikinn. Yfirmaður ísraelshers í norðurhluta ísraels, herfylkisstjórinn Yossi Peled, sagði að aðgerðimar hefðu heppnast vel þrátt fyrir mannfallið. „Við guldum okkar fyrir, en takmarkinu var líka náð.“ Angólu-viðræðurnar: Bjartsýni eftirfyrstu fundarlotu Lundúnum, Reuter. CHESTER Crocker, aðstoðarut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, segist vera bjartsýnn á árangur Angólu-viðræðnanna, en fyrstu lotu þeirra lauk í Lundúnum í gær. Crocker, kvaðst vera mjög ánægð- ur með þá alvöru sem einkennt hefðu viðræðumar, fulltrúar landanna hefðu algerlega sneitt hjá orðagjálfri og tilgangslausum rökræðum um rétt og rangt, eins og gjaman vildi henda á samkundum sem þessum. Þátt í viðræðunum tóku fulltrúar ríkisstjóma Angólu, Bandaríkjanna, Kúbu og Suður-Afríku. Viðræðumar stóðu í tvo daga, en fyrirhugað er að taka þráðinn upp að nýju innan nokkurra vikna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.