Morgunblaðið - 05.05.1988, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988
7
Samið 1 Áburðarverksmiðjunni
Fundað í ÍSAL-deilunni hjá ríkissáttasemjara
KJARASAMNINGAR tókust í Áburðarverksmiðju ríkisins í gærdag
og verða samningamir bomir undir atkvæði starfsmanna á morg-
un, föstudag. Sjö verkalýðsfélög eiga aðild að samningunum fyrir
hönd þeirra 130 starfsmanna, sem þeir taka til.
Samkvæmt heimildum Morgun- um og nýi samningurinn gildir frá
blaðsins eru samningamir á svip- undirskriftardegi til 30. apríl á
uðum nótum og þeir samningar
sem gerðir voru í Sementsverk-
smiðju ríkisins og í Jámblendi-
verksmiðjunni á Grundartanga
fyrir stuttu. Kjarasamningur
starfsmanna Áburðarverksmiðj-
unnar hefur verið laus frá áramót-
næsta ári.
Enn er ósamið við starfsmenn
álversins í Straumsvík. Fundur
aðila hjá ríkissáttasemjara hófst í
gærmorgun og stóð mestan part
dagsins. Nýr fundur hefur verið
boðaður í dag klukkan tíu. Tæp-
lega 500 starfsmenn ÍSAL hafa
boðað verkfall frá og með næst-
komandi laugardegi, 7. maí, en
framleiðsla í verksmiðjunni stöðv-
ast ekki fyrr en tveimur vikum
eftir að verkfall hefur verið boðað,
hafí samningar ekki tekist fyrir
þann tíma.
Fundu sjórekna víndlinga
Vogum.
ÞRÍR strákar úr Vogum fundu
fimm lengjur af vindlingum, sem
höfðu nýlega rekið á land við
Kerlingabúðir undir Vogastapa.
Allir vindlingamir voru þurrar
fyrir utan sjö pakka sem voru sjó-
blautir. Vindlkingapakkamir vom
ekki merktir Áfengis- og tóbaks-
verslun ríkisins.
E.G.
Vátrygging gegn fjárdrætti
Fjárdráttur getur valdið fyrirtækjum, félögum
og stofnunum verulegu fjárhagstjóni. í minni fyrirtækjum
eru fjármál oft á einni hendi og í stórum
fyrirtækjum og stofnunum fara stundum geysilegar fjárhæðir
um hendur fólks sem ber mjög takmarkaða ábyrgð.
Starfsmaður sem hefur leiðst út í að draga sér fé er sjaldnast
borgunarmaður fyrir því tjóni sem hann veldur.
Sjóvá býður nú vátryggingu gegn fjárdrætti. Fyrirtæki,
félög og stofnanir geta tryggt sig gegn slíkum
skakkaföllum, hvort sem refsað er fyrir fjárdráttinn eða ekki.
Vátrygging gegn fjárdrætti dregur
úr rekstraráhættu og skapar
traustan starfsgrundvöll.
Markaðsdeild Sjóvá veitir allar
nánari upplýsingar um vátryggingu
gegn fjárdrætti.
Tryggingarfélag í einu og öllu.
Sjóvátryggingarfélag íslands hf., Suðurlandsbraut 4, sími (91)-692500.
Afþví tilefni viijum
við þakka öllum
þeim, sem versi-
uðu við okkurog
sýnduokkurbið-
lund og ti/iitsemi
meðan á verkfali-
inustóð. Okkar
markmið verður
áfram að tryggja
öllum hagstæð-
ustukjöríKjör-
markaðinum og
Kjötmiðstöðinni.
GARÐABÆ, S. 656400