Morgunblaðið - 05.05.1988, Síða 13
886r lAM .ð HUOAaUTMím .GtlQAJavnJDflOM _ ____________________________________________
MORGUNBLASIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988 13
basteignaviöskipti snúast í morgum tiltellum um aleigu tölks. Uryggi viðskipt-
anna skiptir því meginmáli. Með tilkomu nýrra laga um fasteignasölu, vill
Félag fasteignasala vekja athygli á eftirfarandi atriðum:
Frjú ný eyðublöð koma til sögunnar -
söluumboð, söluyfirlit og yfirlýsing húsfélags.
Söluumboðið er skriflegur samningur milli
seljanda fasteignar og fasteignasala um
sölutilhögun eignarinnar. Söluumboðið er
útfyllt og undirritað af báðum aðilum við
skoðun eignarinnar. Er þá greitt
skoðungargjald sem er í dag kr. 5.600,- (með
söluskatti), sem dregst síðan frá söluþóknun er
eignin selst.
Nýju lögin gera ráð fyrir aukinni og mun
nákvæmari upplýsingaskyldu um fasteignir en
verið hefur. Aður en heimilt er að bjóða
fasteign til sölu, verður að útfylla sérstakt
söluyfirlit. í söluyfirliti skulu vera nákvæmar
upplýsingar um eignarheimild seljanda, stöðu
allra áhvílandi veðskulda, lýsingeignar,þ.m.t.
stærð, aldur, ástand, kvaðir, gallar,
byggingarefni, opinber möt eignarinnar,
tekjur og gjöld af eigninni, fyrirhugaðar
endurbætur o.fl.
Til að auðvelda seljendum öflun gagna vegna
gerðar söluyfirlits hefur Félag fasteignasala
útbúið sérstakan leiðarvísi er nefnist
Minnislisti seljanda og liggur hann frammi á
öllum fasteignasölum í Félagi fasteignasala.
• •
Oryggi fasteignaviðskipta er enn aukið með
tilkomu starfsábyrgðartrygginga fasteignasala
í Félagi fasteignasala. Tryggingamar em þær
hæstu og yfirgripsmestu sem um getur hjá
nokkurri starfsstétt hér á landi. Félag
fasteignasala fagnar tilkomu þessara trygginga.
Þær veita viðskiptavinum okkar aukna vernd í
viðskiptunum og okkur aukið öryggi í störfum
okkar.
Fasteignasalar í Félagi fasteignasala eru
sérfræðingar í fasteignaviðskiptum. Fljá þeim
er þekkingin og reynslan sem veitir öryggi og
tryggingu fyrir traustum fasteignaviðskiptum.
MEIRA ÖRYGGI
FÉLAG FASTEIGNASALA