Morgunblaðið - 05.05.1988, Side 23

Morgunblaðið - 05.05.1988, Side 23
I MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAl 1988 23 Yfirlit yfir kaffibaunamálið: Ákæra, málavextir og héraðsdómurinn MÁLFLUTNINGUR hófst í gær i Hæstarétti i svonefndu „kaffibauna- máli“. Mál þetta höfðaði ákæruvaldið á sinum tima gegn nokkrum starfsmönnum Sambands íslenzkra samvinnufélaga, þeim Erlendi Ein- arssyni, forstjóra SÍS, Hjalta Pálssyni, framkvæmdastjóra innflutnings- deildar SÍS, Sigurði Araa Sigurðssyni, deildarstjóra fóðurvörudeildar og seinna forstöðumanni skrifstofu SÍS i London, Gisla Theodórssyni, um skeið forstöðumanni sömu skrifstofu og Araóri Vaigeirssyni, deild- arstjóra fóðurvörudeildar SÍS. Gegn þeim Erlendi Einarssyni og Hjalta Pálssyni var málið höfðað fyr- ir að hafa gerzt sekir um flársvik, slqalafals og um brot á lögum um skipan gjaldeyrismála með stjóm þeirra og framkvæmd á umboðs- störfum SÍS fyrir Kaffíbrennslu Ak- ureyrar hf. vegna innflutnings á kaffibaunum frá Brasilíu með milli- göngu Norræna samvinnusambands- Morgunblaðið/Þorkell ins (NAF) á tímabilinu frá því í nóv- ember 1979 fram til ársloka 1981:- Ákæran um flársvik er á því byggð, að Erlendur hafi sem for- stjóri og Hjalti sem framkvæmda- stjóri Innflutningsdeildar, sem sá um innflutning á kaffinu, sammælzt um að koma því tl leiðar með ákvörðun um að leyna umbjóðanda sinn mikl- um afslætti, sem stóð til boða frá umsömdu kaffiverði, að Kaffi- brennsla Akureyrar var látin greiða miklum mun hærra verð fyrir kaffið en hinir erlendu seljendur áskildu sér að nýttum þessum afslætti. Hann nam samtals á fyrrgreindu tfmabili 4.605.129 dollurum auk þess sem Kaffibrennslan var látin greiða af sömu ástæðum samtals 217.816 doll- ara hærri vexti en í raun þurfti að greiða. Þetta var allt í því skyni að skapa SÍS færi á að fénýta bæði afsláttinn og vaxtamuninn, sem þeir svo gerðu aðallega með því að nota afsláttinn til lækkunar á kaffireikn- ingum sem greiddir voru seljendum í erlendum bönkum af skrifstofu SÍS í London, samtímis því sem þeir létu seljendur útbúa og senda skrifstofu SÍS í London aðra vörureikninga fyrir sömu kaffisendingar með öðru og hærra verði, sem að beiðni skrif- stofunnar voru innheimtir hjá Kaffi- brennslu Akureyrar. Nokkur hluti þessara fjármuna eða samtals 1.526.203 dollarar var svo seinna endurgreiddur Kaffibrennslu Akureyrar eða frá miðjum maí 1981 fram á fyrri hluta ársins 1982 og þá jafnframt, með launung um raun- verulega flárhæð afsláttarins, látið að því liggja, að þar með væri hann að fuilu endurgreiddur. Af slætti leynt Ákæran um flársvik er byggð á þvf, að þeir Erlendur og Hjalti hafí í þeim tilvikum, þegar afsláttur á kaffisendingum var nýttur til lækk- unar á vörureikningum, látið hina erlendu seljendur kaffisins gefa út í blekkingarskyni gagnvart forráða- mönnum Kaffibrennslu Akureyrar tvöfalda vörureikninga mismunandi efnis fyrir vörukaupum, þar sem önnur reikningssettin höfðu að geyma nettóverð kaffikaupanna. Þeir vörureikningar hafí verið látnir ganga til banka { London, þar sem þeir voru greiddir af skrifstofu SÍS en hin reikningssettin, sem höfðu að geyma brúttóverð kaffikaupanna , þ. e. samningsverðið án afsláttar, látin ganga með milligöngu skrif- stofu SÍS í London til innheimtu í Landsbanka íslands, Akureyri. Þar greiddi kaupandi kaffisins, Kaffi- brennsla Akureyrar, þá í þeirri trú, að þeir hefðu að geyma rétt kaffí- verð og lagði þá jafnframt til grund- vallar umsóknum um gjaldeyrisyfír- færslu svo og til grundvallar um- sóknum um að nýta þá gjaldfresti, sem til boða stóðu. Gegn þeim Sigurði Ama Sigurðs- syni, Gísla Theódórssyni og Amóri Valgeirssyni er málið höfðað fyrir hlutdeild í flársvika-, slqalafals- og gjaldeyrisbrotum þeim, sem lýst er hér að framan. SÍS annaðist á árunum 1979-1981 innflutning á hrákaffi fyrir Kaffi- brennslu Akureyrar (KA) og hafði gert það árum saman áður og eins síðar. Þessi viðskipti fóm fram á þann veg, að KA pantaði hrákaffi hjá innflutningsdeild SÍS-fóðurvöru- deild, sem hafði samband við skrif- stofu NAF í Kaupmannahöfn vegna samninga NAF við IBC i nafni sam- vinnufélaganna á Norðurlöndum. Skrifstofa NAF leitaði síðan tiiboða í hrákaffikaup frá útflyljendum í Brasilíu. Tilboð um sölu á hrákaffi komu síðan til KA fyrir milligöngu fóðurvörudeildar og var það KA, sem tók á grundvelli upplýsinga frá fóður- vörudeild endanlega afstöðu til þeirra verðtilboða, sem bárust hveiju sinni. SÍS útvegaði síðan fjármagn til þess að greiða kaffisendingamar. Fór sú fyrirgreiðsla nær eingöngu fram fyrir milligöngu skrifstofu SIS í London, sem á þessum árum heyrði skv. stjómskipulagi SÍS undir Erlend Einarsson, en forstöðumenn hennar voru tveir á því tímabili, sem málið nær yfir, það er fyrst Gísli Theódórs- son og síðan Sigurður Ami Sigurðs- son. A árinu 1979 varð offramboð á hrákaffi og tóku þá að falla afslætt- ir. I fyrstu lét SÍS þessa afslætti, sem ekki voru sérlega háir, falla til KA og báru vörureikningamir þá með sér um hve háan afslátt væri að ræða hveiju sinni til frádráttar verði hverrar kaffisendingar. Eftir að afslættimir fór að hækka eða seint á árinu 1979 bárust Gísla Theódórssyni í London boð frá Sig- urði Amasyni hér heima, að honum myndu framvegis berast tveir vöru- reikningar vegna hverrar sendingar og skyldi hann taka lán ! banka í London fyrir lægri ijárhæðinni, en senda hærri reikninginn i útibú Landsbankans á Akureyri til inn- heimtu hjá Kaffibrennslu Akureyrar. í framkvæmd rann mismunurinn til SÍS i Reykjavík. Þetta gerði Gisli og síðan eftir burtför hans frá London Sigurður Ami. KA'voru ennfremur reiknaðir vextir eftir á í samræmi við hærri reikningana, enda þótt fjár- mögnunin i London væri í samræmi við fjárhæð lægri reikningana, sem raunverulega þurfti að greiða hrá- kaffísölum hveiju sinni. Þá voru umboðslaun SÍS reiknuð af hærri fjárhæðinni og greiddi Kaffíbrennsl- an þau. í héraðsdóminum segir, að úr þvi að fram sé komið, að KA hafí greitt SÍS umboðslaun vegna kaffiviðskip- tanna, teljist SÍS hafa borið að gegna umboðsskyldum gagnvart KA. Þar segir ennfremur, að eðli þessara við- skipta hafi ekki breytzt, þó að SÍS hafi fjármagnað hrákaffikaupin, enda hefði 3ji aðili getað annast það að óbreyttu sambandi SÍS og KA. Þá þáði SÍS sérstaka þóknun fyrir þessa þjónustu og var þessi þjónusta ekki þess eðlis, að neinu breytti um réttarstöðu aðila. KAÍgóðritrú KA greiddi hrákaffið eftir reikn- ingi frá seljanda ( Brasilíu og víðar, en ekki eftir reikningi frá SIS. KA sá um innflutninginn að öllu leyti og máttu stjómendur fyrirtækisins vera í góðri trú um, að SÍS gætti hags- muna KA varðandi hrákaffikaupin. Að dómi sakadóms breytir sú stað- reynd, að SÍS er nefnt kaupandi á mörgum af hinum erlendu vörureikn- ingum, ekki samkomulagi SÍS og KA um stöðu fyrirtækjanna í málinu, enda bendi allt til þess, að tilviljun hafí ráðið, hvort fyrirtækið hinir er- lendu seljendur kaffisins hafí talið kaupanda. Tengsl fyrirtækjanna leystu SÍS ekki undan þeirri skyldu að uppfylla umboðssamninga þeirra á milli. Það er þvi mat dómsins, að sannað sé, að um umboðsskipti hafi verið að ræða, sem SÍS hafi innt af hendi fyrir KA. Ifyrir þetta reiknaði SÍS sér umboðslaun og hrákaffikaupin voru ekki færð í bækur SÍS sem inn- kaup og síðan bein sala til KA. Þegar allt framangreint er virt, er það mat dómsins, að KA hafi borið allur afslátturinn. Þá þykir notkun tveggja vörureikninga og sú leynd, sem varð að hvíla yfir viðskipt- unum sýna, að þeim, sem stóðu að þessum gerðum, hafí verið ljóst, að SÍS ætti ekki óskorað tilkall til af- sláttarins. Með hliðsjón af þessu þyk- ir sannað, að um fjársvik og brot á 248. gr.' almennra hegningarlaga sé að ræða í héraðsdóminum er komizt svo að orði, að sú fullyrðing Erlends Ein- arssonar sé afar ósennilegt, að hann hafi ekki vitað, hvemig staðið var að hrákaffinnflutningnum, tveim settum reikninga og miklum afs- lætti, sem gefínn var vegna viðskip- tanna og leynt fyrir Kaffibrennslu Akureyrar. Enginn annar af hinum ákærðu né vitni hafí hins vegar bo- rið það svo óyggjandi sé, að um bein eða óbein afskipti hafí verið að ræða af hálfu hans. Niðurstaða héraðs- dóms var því sú, að Erlendur var sýknaður, þar sem ekki þótti alveg nægjanlegum stoðum skotið undir lögfulla sönnun fyrir sök hans. Yrði Erlendur því að njóta þessa vafa og bscri að sýkna hann. Vegna stöðu sinnar sem æðsti yfírmaður innflutningsdeildar og framburðar Sigurðar Ama, Amórs svo og vitna um vitneskju hans um viðskiptin við Kaffibrennsluna og framkvæmd þeirra, var talið sannað þrátt fyrir neitun Hjalta Pálssonar, að það hafí verið hann, sem átti hlut að því að leggja á ráðin um það, hvemig að þessum viðskiptum skyldi staðið, þar á meðal notkun tvenns konar vömreikninga, launung á hin- um mikla afslætti og óhóflegar vaxtatölur. Þeir Sigurður Ami, Gísli og Amór voru einnig fundnir sekir fyrir refsi- verða háttsemi. Niðurstaða dómsins var sú, að Hjalti Pálsson var dæmdur (12 mán- aða fangelsi, Sigurður Ami í 7 mán- aða fangelsi, Gísli f 3 mánaða fang- elsi og Amór í 2 mánaða fangelsi. Hins vegar þótti mega ákveða, að fresta skyldi fullnustu refsinga þeirra Sigurðar Arna, Gísla og Amþórs og 9 mánaða af refsingu Hjalta. Dómi þessum var áfrýjað af öllum hinna sakfelldu og einnig af hálfu ákæruvaldsins. Þá var sýknudómn- um yfír Erlendi Einarssyni einnig áfrýjað af hálfu ákæruvaldsins. ■■■■■■■■■■ 4 Dreifing: Bergdal hf • Skúlagötu 61 • 101 Reykjavík • Sími 91-22522 ui iiiiiiiiuuiiiumiitiiiiiiuumumimumuuitum Hob-nobs frá McVities er svo stökkt og brakandi að nær ógerlegt er að borða það hljóðlega. Hob-nobs kökurnar eru stórar og matarmiklar enda í þeim bæði hafrar og heilhveiti. Hob-nobs er hreinasta afbragð með kaffl og sumum finnst það jafnvel enn betra með svolitlu smjöri. Hob-nobs. Það er þó ekki heimabakað? BRAKl BRAK! BRAKl BRAK!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.