Morgunblaðið - 05.05.1988, Síða 23
I
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAl 1988
23
Yfirlit yfir kaffibaunamálið:
Ákæra, málavextir
og héraðsdómurinn
MÁLFLUTNINGUR hófst í gær i Hæstarétti i svonefndu „kaffibauna-
máli“. Mál þetta höfðaði ákæruvaldið á sinum tima gegn nokkrum
starfsmönnum Sambands íslenzkra samvinnufélaga, þeim Erlendi Ein-
arssyni, forstjóra SÍS, Hjalta Pálssyni, framkvæmdastjóra innflutnings-
deildar SÍS, Sigurði Araa Sigurðssyni, deildarstjóra fóðurvörudeildar
og seinna forstöðumanni skrifstofu SÍS i London, Gisla Theodórssyni,
um skeið forstöðumanni sömu skrifstofu og Araóri Vaigeirssyni, deild-
arstjóra fóðurvörudeildar SÍS.
Gegn þeim Erlendi Einarssyni og
Hjalta Pálssyni var málið höfðað fyr-
ir að hafa gerzt sekir um flársvik,
slqalafals og um brot á lögum um
skipan gjaldeyrismála með stjóm
þeirra og framkvæmd á umboðs-
störfum SÍS fyrir Kaffíbrennslu Ak-
ureyrar hf. vegna innflutnings á
kaffibaunum frá Brasilíu með milli-
göngu Norræna samvinnusambands-
Morgunblaðið/Þorkell
ins (NAF) á tímabilinu frá því í nóv-
ember 1979 fram til ársloka 1981:-
Ákæran um flársvik er á því
byggð, að Erlendur hafi sem for-
stjóri og Hjalti sem framkvæmda-
stjóri Innflutningsdeildar, sem sá um
innflutning á kaffinu, sammælzt um
að koma því tl leiðar með ákvörðun
um að leyna umbjóðanda sinn mikl-
um afslætti, sem stóð til boða frá
umsömdu kaffiverði, að Kaffi-
brennsla Akureyrar var látin greiða
miklum mun hærra verð fyrir kaffið
en hinir erlendu seljendur áskildu sér
að nýttum þessum afslætti. Hann
nam samtals á fyrrgreindu tfmabili
4.605.129 dollurum auk þess sem
Kaffibrennslan var látin greiða af
sömu ástæðum samtals 217.816 doll-
ara hærri vexti en í raun þurfti að
greiða. Þetta var allt í því skyni að
skapa SÍS færi á að fénýta bæði
afsláttinn og vaxtamuninn, sem þeir
svo gerðu aðallega með því að nota
afsláttinn til lækkunar á kaffireikn-
ingum sem greiddir voru seljendum
í erlendum bönkum af skrifstofu SÍS
í London, samtímis því sem þeir létu
seljendur útbúa og senda skrifstofu
SÍS í London aðra vörureikninga
fyrir sömu kaffisendingar með öðru
og hærra verði, sem að beiðni skrif-
stofunnar voru innheimtir hjá Kaffi-
brennslu Akureyrar.
Nokkur hluti þessara fjármuna eða
samtals 1.526.203 dollarar var svo
seinna endurgreiddur Kaffibrennslu
Akureyrar eða frá miðjum maí 1981
fram á fyrri hluta ársins 1982 og
þá jafnframt, með launung um raun-
verulega flárhæð afsláttarins, látið
að því liggja, að þar með væri hann
að fuilu endurgreiddur.
Af slætti leynt
Ákæran um flársvik er byggð á
þvf, að þeir Erlendur og Hjalti hafí
í þeim tilvikum, þegar afsláttur á
kaffisendingum var nýttur til lækk-
unar á vörureikningum, látið hina
erlendu seljendur kaffisins gefa út í
blekkingarskyni gagnvart forráða-
mönnum Kaffibrennslu Akureyrar
tvöfalda vörureikninga mismunandi
efnis fyrir vörukaupum, þar sem
önnur reikningssettin höfðu að
geyma nettóverð kaffikaupanna.
Þeir vörureikningar hafí verið látnir
ganga til banka { London, þar sem
þeir voru greiddir af skrifstofu SÍS
en hin reikningssettin, sem höfðu að
geyma brúttóverð kaffikaupanna ,
þ. e. samningsverðið án afsláttar,
látin ganga með milligöngu skrif-
stofu SÍS í London til innheimtu í
Landsbanka íslands, Akureyri. Þar
greiddi kaupandi kaffisins, Kaffi-
brennsla Akureyrar, þá í þeirri trú,
að þeir hefðu að geyma rétt kaffí-
verð og lagði þá jafnframt til grund-
vallar umsóknum um gjaldeyrisyfír-
færslu svo og til grundvallar um-
sóknum um að nýta þá gjaldfresti,
sem til boða stóðu.
Gegn þeim Sigurði Ama Sigurðs-
syni, Gísla Theódórssyni og Amóri
Valgeirssyni er málið höfðað fyrir
hlutdeild í flársvika-, slqalafals- og
gjaldeyrisbrotum þeim, sem lýst er
hér að framan.
SÍS annaðist á árunum 1979-1981
innflutning á hrákaffi fyrir Kaffi-
brennslu Akureyrar (KA) og hafði
gert það árum saman áður og eins
síðar. Þessi viðskipti fóm fram á
þann veg, að KA pantaði hrákaffi
hjá innflutningsdeild SÍS-fóðurvöru-
deild, sem hafði samband við skrif-
stofu NAF í Kaupmannahöfn vegna
samninga NAF við IBC i nafni sam-
vinnufélaganna á Norðurlöndum.
Skrifstofa NAF leitaði síðan tiiboða
í hrákaffikaup frá útflyljendum í
Brasilíu. Tilboð um sölu á hrákaffi
komu síðan til KA fyrir milligöngu
fóðurvörudeildar og var það KA, sem
tók á grundvelli upplýsinga frá fóður-
vörudeild endanlega afstöðu til þeirra
verðtilboða, sem bárust hveiju sinni.
SÍS útvegaði síðan fjármagn til
þess að greiða kaffisendingamar.
Fór sú fyrirgreiðsla nær eingöngu
fram fyrir milligöngu skrifstofu SIS
í London, sem á þessum árum heyrði
skv. stjómskipulagi SÍS undir Erlend
Einarsson, en forstöðumenn hennar
voru tveir á því tímabili, sem málið
nær yfir, það er fyrst Gísli Theódórs-
son og síðan Sigurður Ami Sigurðs-
son.
A árinu 1979 varð offramboð á
hrákaffi og tóku þá að falla afslætt-
ir. I fyrstu lét SÍS þessa afslætti, sem
ekki voru sérlega háir, falla til KA
og báru vörureikningamir þá með
sér um hve háan afslátt væri að
ræða hveiju sinni til frádráttar verði
hverrar kaffisendingar.
Eftir að afslættimir fór að hækka
eða seint á árinu 1979 bárust Gísla
Theódórssyni í London boð frá Sig-
urði Amasyni hér heima, að honum
myndu framvegis berast tveir vöru-
reikningar vegna hverrar sendingar
og skyldi hann taka lán ! banka í
London fyrir lægri ijárhæðinni, en
senda hærri reikninginn i útibú
Landsbankans á Akureyri til inn-
heimtu hjá Kaffibrennslu Akureyrar.
í framkvæmd rann mismunurinn til
SÍS i Reykjavík. Þetta gerði Gisli og
síðan eftir burtför hans frá London
Sigurður Ami. KA'voru ennfremur
reiknaðir vextir eftir á í samræmi
við hærri reikningana, enda þótt fjár-
mögnunin i London væri í samræmi
við fjárhæð lægri reikningana, sem
raunverulega þurfti að greiða hrá-
kaffísölum hveiju sinni. Þá voru
umboðslaun SÍS reiknuð af hærri
fjárhæðinni og greiddi Kaffíbrennsl-
an þau.
í héraðsdóminum segir, að úr þvi
að fram sé komið, að KA hafí greitt
SÍS umboðslaun vegna kaffiviðskip-
tanna, teljist SÍS hafa borið að gegna
umboðsskyldum gagnvart KA. Þar
segir ennfremur, að eðli þessara við-
skipta hafi ekki breytzt, þó að SÍS
hafi fjármagnað hrákaffikaupin,
enda hefði 3ji aðili getað annast það
að óbreyttu sambandi SÍS og KA.
Þá þáði SÍS sérstaka þóknun fyrir
þessa þjónustu og var þessi þjónusta
ekki þess eðlis, að neinu breytti um
réttarstöðu aðila.
KAÍgóðritrú
KA greiddi hrákaffið eftir reikn-
ingi frá seljanda ( Brasilíu og víðar,
en ekki eftir reikningi frá SIS. KA
sá um innflutninginn að öllu leyti og
máttu stjómendur fyrirtækisins vera
í góðri trú um, að SÍS gætti hags-
muna KA varðandi hrákaffikaupin.
Að dómi sakadóms breytir sú stað-
reynd, að SÍS er nefnt kaupandi á
mörgum af hinum erlendu vörureikn-
ingum, ekki samkomulagi SÍS og
KA um stöðu fyrirtækjanna í málinu,
enda bendi allt til þess, að tilviljun
hafí ráðið, hvort fyrirtækið hinir er-
lendu seljendur kaffisins hafí talið
kaupanda.
Tengsl fyrirtækjanna leystu SÍS
ekki undan þeirri skyldu að uppfylla
umboðssamninga þeirra á milli. Það
er þvi mat dómsins, að sannað sé,
að um umboðsskipti hafi verið að
ræða, sem SÍS hafi innt af hendi
fyrir KA. Ifyrir þetta reiknaði SÍS
sér umboðslaun og hrákaffikaupin
voru ekki færð í bækur SÍS sem inn-
kaup og síðan bein sala til KA.
Þegar allt framangreint er virt,
er það mat dómsins, að KA hafi
borið allur afslátturinn. Þá þykir
notkun tveggja vörureikninga og sú
leynd, sem varð að hvíla yfir viðskipt-
unum sýna, að þeim, sem stóðu að
þessum gerðum, hafí verið ljóst, að
SÍS ætti ekki óskorað tilkall til af-
sláttarins. Með hliðsjón af þessu þyk-
ir sannað, að um fjársvik og brot á
248. gr.' almennra hegningarlaga sé
að ræða
í héraðsdóminum er komizt svo
að orði, að sú fullyrðing Erlends Ein-
arssonar sé afar ósennilegt, að hann
hafi ekki vitað, hvemig staðið var
að hrákaffinnflutningnum, tveim
settum reikninga og miklum afs-
lætti, sem gefínn var vegna viðskip-
tanna og leynt fyrir Kaffibrennslu
Akureyrar. Enginn annar af hinum
ákærðu né vitni hafí hins vegar bo-
rið það svo óyggjandi sé, að um bein
eða óbein afskipti hafí verið að ræða
af hálfu hans. Niðurstaða héraðs-
dóms var því sú, að Erlendur var
sýknaður, þar sem ekki þótti alveg
nægjanlegum stoðum skotið undir
lögfulla sönnun fyrir sök hans. Yrði
Erlendur því að njóta þessa vafa og
bscri að sýkna hann.
Vegna stöðu sinnar sem æðsti
yfírmaður innflutningsdeildar og
framburðar Sigurðar Ama, Amórs
svo og vitna um vitneskju hans um
viðskiptin við Kaffibrennsluna og
framkvæmd þeirra, var talið sannað
þrátt fyrir neitun Hjalta Pálssonar,
að það hafí verið hann, sem átti hlut
að því að leggja á ráðin um það,
hvemig að þessum viðskiptum skyldi
staðið, þar á meðal notkun tvenns
konar vömreikninga, launung á hin-
um mikla afslætti og óhóflegar
vaxtatölur.
Þeir Sigurður Ami, Gísli og Amór
voru einnig fundnir sekir fyrir refsi-
verða háttsemi.
Niðurstaða dómsins var sú, að
Hjalti Pálsson var dæmdur (12 mán-
aða fangelsi, Sigurður Ami í 7 mán-
aða fangelsi, Gísli f 3 mánaða fang-
elsi og Amór í 2 mánaða fangelsi.
Hins vegar þótti mega ákveða, að
fresta skyldi fullnustu refsinga þeirra
Sigurðar Arna, Gísla og Amþórs og
9 mánaða af refsingu Hjalta.
Dómi þessum var áfrýjað af öllum
hinna sakfelldu og einnig af hálfu
ákæruvaldsins. Þá var sýknudómn-
um yfír Erlendi Einarssyni einnig
áfrýjað af hálfu ákæruvaldsins.
■■■■■■■■■■ 4
Dreifing: Bergdal hf • Skúlagötu 61 • 101 Reykjavík • Sími 91-22522
ui iiiiiiiiuuiiiumiitiiiiiiuumumimumuuitum
Hob-nobs frá McVities er svo stökkt og
brakandi að nær ógerlegt er að borða það
hljóðlega.
Hob-nobs kökurnar eru stórar og
matarmiklar enda í þeim bæði hafrar og
heilhveiti.
Hob-nobs er hreinasta afbragð með kaffl
og sumum finnst það jafnvel enn betra með
svolitlu smjöri.
Hob-nobs. Það er þó ekki heimabakað?
BRAKl
BRAK!
BRAKl
BRAK!