Morgunblaðið - 05.05.1988, Síða 35

Morgunblaðið - 05.05.1988, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988 35 Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson Bytjað er á byggingu stjómsýsluliúss i Borgaraesi. Húsið verður byggt úr steinsteyptum einingum sem framleiddar eru lyá Loftorku hf. i Borgaraesi. Á myndinni er verið að hífa einingarnar af flutningabíl á byggingarstaðnum við Bjarnarbraut. Sljórnsýsluhús byggt í Borgamesi Borgarnesi. BYRJAÐ er á byggingu tveggja hæða skrifstofuhúss við Bjara- arbraut í Borgaraesi. Fyrirtæk- ið Loftorka hf. byggir og sér um allar framkvæmdir. Húsið verður um 1.457 fermetrar að stærð, byggt úr steinsteyptum einingum sem framleiddar eru hjá Loftorku hf. i Borgaraesi. Að sögn Konráðs Andréssonar foratjóra Loftorku hf. er húsið kallað stjómsýsluhús á þessu stigi. Kemur það til af því hvað margar ríkisstofnanir verða þar til húsa. Stofnanimar eru Fræðsluskrif- stofa Vesturlands, Svæðisstjóm Vesturlands, útibú Veiðimála- stofnunar á Vesturlandi, Fast- eignamat ríkisins, Samtök sveitar- félaga á Vesturlandi auk Verk- fræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. í Borgamesi. Sagði Konráð að óráðstafað væri ennþá um 300 fermetrum í húsinu. Aðspurður kvaðst Konráð áætla að húsið yrði afhent um næstu áramót. Yrði því skilað fullfrá- gengnu að utan og tilbúnu undir tréverk og málningu að innan. Einnig yrði lóð fullfrágengin og bílastæði malbikað. Arkitekt húss- ins er Finnur Bjömsson en burðar- þolsteikningar gerðar af Verk- fræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. í Borgamesi. - TKÞ Hljómsveitin Frakkarnir, sem spilar á tónleikum í Lækjartungli í kvöld. Tónleikar í Lælgartungli TÓNLEIKAR verða í Lækjar- tungli, Lækjargötu 2, i kvöld kl. 22 og standa til kl. 1. Hljómsveitin Frakkamir munu halda sína aðra tónleika á þessu ári en þeir vora endurreistir eftir þriggja ára hlé í febrúar sl. Nýr söngvari syngur nú með hljóm- sveitinni. Frakkana skipa söng- konan Lolla, Björgvin Gíslason, sem spilar á gítar og syngur, Þorleifur Guðjónsson spilar á bassa og syngur og Gunnar Erl- ingsson sem spilar á trommur. Micky Dean kemur í fyrsta skipti fram einn síns liðs og flytur „rapp“-tónlist. Auk þess kemur fram gesta- hljómsveitin „Stuvsuger" sem leikur framsækna rokktónlist. (Úr fréttatilkynningu) Grínmyndin „Fyrirborð“í Bíóhöllinni Ekkert miðar í kennaradeilunni EKKERT hefur miðað i átt til samkomulags í kjaradeilu Kenn- arasambands íslands og fjár- málaráðuneytisins, að sögn Svan- hildar Kaaber, formanns KÍ. Síðasti fundur aðila var árang- urslaus, en hann var haldinn á mánudaginn var. Svanhildur sagði að Samninga- nefnd ríkisins hefði óskað eftir öðr- um fundi, en hann hefði ekki verið tímasettur. Hún legði hins vegar mikla áhérelu á að af honum yrði fyrir stjómarfund í KÍ á föstudag- inn kemur. Hún sagði að ekki kæmi til greina fyrir kennara að ganga til samninga á grandvelli þeirra hugmynda sem Samninganefnd ríkisins hefði lagt fram á fundinum á mánudag. Staðan I viðræðum Hins fslenska kennarafélags og ríkisins er óbreytt. Sfðasti fundur aðila var á miðvikudaginn fyrir viku síðan og hefur annar fundur ekki verið boð- aður. . _____ Enginleyfitil gánmútflutnings HORFUR er á, að offramboð verði á þorski og karfa á fersk- fiskmörkuðum i Vestur-Evrópu í næstu viku og verð falli niður fyrir gildandi viðmiðunarverð Efnahagsbandalags Evrópu. Af framangreindri ástæðu hefur utanríkisráðuneytið ákveðið, að engin leyfi verði veitt til útflutnings á þoreki og karfa í gámum á þessú markaði frá og með mánudegi 9. maí og til mánudags 16. maí nk. BÍÓHÖLLIN sýnir nú kvik- myndina „Fyrir borð“ (Overboard). Leikstjóri er Garry Marshall og með aðal- hlutverk fara Goldie Hawn, Kurt Russell, Edward Herr- mann og Katherine Helmond. Jóhanna Stayton þarf að bíða í snekkju sinni meðan gert er við hana í smábæ einum. Hún fær bæjarsmiðinn til að smfða fyrir sig skáp en þeirra viðskipt- um lýkur með því að hún fleyg- ir honum í sjóinn. Þegar hún verður fyrir því sjálf að detta í sjóinn og vakna upp í spítala algjörlega minnislaus grípur eiginmaður hennar til þess ráðs að segja ekki hver hún er til að verða frír og frjáls en smiðurinn heldur því fram að hún sé kona sín til að hefna sín á henni. Hann flytur hana 5 kofann sinn og þar þarf hún að vinna hús- verk og sjá um fimm syni hans. Þegar hún fréttir sannleikann um fortíð sína stendur hún frammi fyrir því að þurfa að velja á milli eiginmannsins og smiðsins. (Úr fréttatilkynningu) Goldie Hawn og Kurt RusseU í hlutverkum sínum í grínmyndinni „Fyrir borð“ sem sýnd er i Bióhöllinni. Kynna ferðir um Island í Upplýsingamiðstöð ferða- mála, Ingólfsstræti 5, verður haldin kynning á ferðum um ísland auk kynningar á Færeyj- um og Grænlandi dagana 6.-8. maí nk. Kynningin er hugsuð til að hvetja íslendinga til að ferðast um eigið land, en auk þess er ætlunin að kynna starfsfólki í ferðaþjón- ustu hvaða þjónusta er í boði víðs vegar um landið. Stefnt er að því að föstudaginn 6. maí verði sýningin aðeins opin fyrir starfsfólk í ferðaþjónustu en laugardag og sunnudag verði opið fyrir almenning. Kynning fer fram á vegum Ferðamálasamtaka landshlutanna auk þess sem starfsfólk Upplýs- ingamiðstöðvar ferðamála mun vera við kynningu. Þorskverð lágt á Bretlandsmarkaði VERÐ á þorski er lágt í Bretlandi um þessar mundir, frá 53 krón- um upp í 63 fyrir hvert kíló. Verð á karfa hefur verið misjafnt í Þýzkalandi, á þriðjudag fór það yfir 70 krónur, en lækkaði nokk- uð á miðvikudag. Verð fyrir ýsu er gott og þokkalegt fyrir grálúðu. Vigri RE seldi á þriðjudag og miðvikudag 340 tonn, mest karfa og grálúðu. Heildarverð var 20,1 milljón króna, meðalverð 59,12. Þetta er í fyrsta sinn, sem skip selur fyrir meira en 20 milljónir króna í einu, en samtals seldi Vigri fyrir 869.000 mörk. Metið í mörk- um í einstakri sölu er hins vegar 1.090.000. Börkur NK seldi sömu daga 174 tonri, mest þorsk í Grimsby. Heild- arverð var 11,5 milljónir króna, meðalverð 65,78. Meðalverð fyrir þorsk í farmi Barkar var 63,69 krónur. Hólmanes SU seldi sömu daga í Hull, en síðdegis í gær höfðu ekki borizt upplýsingar um söluna. Á þriðjudag vora seld í Bret- landi 244 tonn af gámafíski héð- an. Heildarverð var 13,6 milljónir króna, meðalverð 55,94. Þorekur fór að meðaltali á 53,94, ýsa á 89,48, koli á 53,12 og grálúða á 50,83. í gær voru seld 405 tonn úr gámunum fyrir samtals 24 milljónir króna, meðalverð 59,95. Þorskur fór að meðaltali á 53,84, ýsa á 88,52, koli á 52,32 og grá- lúða á 43,95. Greinargerð Þjóðhagsstofnunar um horfur í atvinnurekstri: Hallarekstur sjávarút- vegs eykst enn á árinu HALLAREKSTUR botnfiskveiða og -vinnslu mun halda áfram að aukast á þessu ári, ef miðað er við síðustu spár Þjóðhagsstofn- unar um verðlags- og launabreyt- ingar, óbreytt gengi krónunnar og óbreytt markaðsverð á botn- fiskafurðum. Þetta kemur fram í greinargerð Þjóðhagsstofnunar um stöðu og horfur i atvinnu- rekstri utan höfuðborgarsvæðis- ins. í greinargerðinni kemur fram að áætlanir í apríllok sýna að afkoma sjávarútvegs hefur versriað mjög að undanfömu og að frysting sé nú rekin með rúmlega 10% halla, saltfískverkun með tæplega 3% hagnaði og vinnslan í heild með 6% halla. Halli í botnfiskveiðum er áætlaður tæplega 2%. Ef litið er á botnfiskveiðar og -vinnslu sem eina heild er áætlað að hallinn sé 6% í hlutfalli við tekjur. Hagnaður var í þessum greinum 1986 og 1987. í greinargerðinni segir að einkum þrennt valdi þessum umskiptum: mikil hækkun innlends kostnaðar, verðlækkun á botnfískafurðum er- lendis og samdráttur afla. Áætlanir hafa ekki verið gerðar um aðrar atvinnugreinar en Þjóð- hagsstofnun segir að afkoma ætti að hafa verið góð í verslun miðað við veltutölur tveggja undanfarinna ára þótt miklar fjárfestingar kunni að hafa rýrt útkomuna. Fataiðnaður á í miklum erfíðleikum og flest er talið benda til að rekstrarstaða ann- ara samkeppnisgreina í iðnaði hafí versnað mikið vegna mikilia inn- lendra kostnaðarhækkana. Einnig hefur samkeppnisstaða ferðaiðnað- ar versnað. Þá kemur fram í grein- argerðinni að landbúnaður hefur verið rekinn með halla árin 1985 og 1986. Leiðrétting í forystugrein blaðsins í gær segir, að borgarstjóri hafi á mánudag sett „fyrstu" skolpdælustöð borgarinnar af stað. Þetta er ekki rétt. Reykjavíkurborg rak fyrir þijár dælustöðvar. Tvær aflminni en sú sem var að koma til sögunnar við Laugalæk era reknar, önnur í Selás- hverfí og hin í Breiðholti. Árið 1985 tók Reykjavíkurborg í notkun nokk- uð stóra dælustöð á Gelgjutanga. Sú stöð var hin fyrsta af fimm, sem byggja þarf vegna hreinsunar norð- urstrandar borgarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.