Morgunblaðið - 05.05.1988, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988
45
Ályktun íslenskra ungtemplara:
Býður alþingi á bjórball?
í TILEFNI samþykktar Neðri
deildar Alþingis á bjórfrumvarpi
18. aprU sl. gerði stjórn íslenskra
ungtemplara eftirfarandi sam-
þykkt á fundi sfnum 26. apríl sl.:
Undanfarið hefur ítrekað komið
fram í máli ýmissa alþingismanna
að afgreiða verði frumvarpið frá
Alþingi til að það flækist ekki leng-
ur fyrir öðrum störfum þar.
í þessu kemur fram undarleg
skammsýni. Nær er að líta svo á
að með því að samþykkja lög sem
leyfa sölu bjórs í landinu hefjist
bjórmálið fýrst.
Framkvæmd þess máls er ennþá
óráðin en hún kemur til kasta al-
þingismanna og ráðherra. Ákveða
þarf vínandastyrkleika bjórsins sem
leyfður yrði, verð, sölustaði og
dreifingu. Líklegt er að handhöfum
vínveitingaleyfa fjölgi um allt land
þar sem aðdráttarafl bjórsins yrði
virkjað á veitingahúsum sem fyrst
og fremst byggðu afkomu sína á
sölu bjórs og ekki er ólíklegt að
fljótlega komi sú „sanngimiskrafa"
frá íbúum á þeim stöðum á landinu
þar sem veitingahúsarekstur svarar
ekki kostnaði að þeir hefðu sama
aðgang að bjómum og aðrir.
Hvemig yrði tekið á hugmyndum
um að leyfa bjórsölu í verslunum?
Er það ekki svipað sanngimismál
fyrir þá sem þyrftu að ferðast lang-
an veg eftir bjór að fá hann nær
eins og þá sem ekki ferðast til út-
landa að fá hann inn í landið?
Hversu mikið tillit verður tekið til
jafnréttiskröfunnar.
Með samþykkt bjórfrumvarpsins
á Alþingi verður það fyrst pólitískt,
flokks- og byggðapólitískt. Keppi-
nautar um bjórgróða myndu setjast
að þingmönnum og reyna að beita
þeim fyrir sig. „Réttlætismálin"
munu að líkindum verða mörg. Al-
þingismönnum verður væntanlega
treyst til að kippa þeim í liðinn.
Það er mikill misskilningur að
með því að samþykkja bjórfrum-
varpið sé afskiptum stjómmála-
manna og alþingismanna af bjóm-
um lokið. Þvert á móti; þá fyrst
byijar ballið.
Brids
Arnór Ragnarsson
Hjónaklúbburínn.
Lokið er átta umferðum í aðal-
sveitakeppninni og er staða efstu
sveitaþessi:
Sveit Ámínu Guðlaugsdóttur 150
Sveit yalgerðar Eiríksdóttur 143
Sveit Ásthildar Sigurgíslad. 142
Sveit Dóm Friðleifsdóttur 133
Sveit Gróu Eiðsdóttur 132
Sveit Svövu Ásgeirsdóttur 129
Þann 10. maí verður síðasta
spilakvöldið en 21. maí verður aðal-
fundur félagsins haldinn í Hreyfíls-
húsinu og hefst kl. 18.
Sumarbrids 1988
Sumarbrids 1988 hefst nk.
fímmtudag, 5. maí. Húsið er opnað
kl. 17.30 (hálf sex) og hefst spila-
mennska í riðlunum um leið og
þeir fyllast. Skráningu verður hætt
kl. 19.30.
Sumarbrids er spilaður í tvímenn-
ingsformi, hvert kvöld sjálfstæð
keppni, en gefín stig fyrir heildar-
árangur eftir sumarið. Spilað verður
á hverjum þriðjudegi og fimmtudegi
í allt sumar, í Sigtúni 9 (húsi Brids-
sambandsins). gengið inn að aust-
an. Öllum er frjáls þátttaka meðan
húsrúm leyfír, en um 130 manns
geta mest spilað í einu. Sökum
þessa eru spilarar beðnir um að
mæta tímanlega til skráningar.
Umsjónarmenn verða sem fyrr
Ólafur og Hermann Lárussynir.
Sumarbrids er tilvalið tækifæri
fyrir áhugafólk að kynnast skipu-
lögðum keppnisbrids. í öllum riðlum
eru spilarar af ýmsum styrkleika,
frá landsliðsspilurum til byrjenda,
en aðalatriðið er þó félagsskapur-
inn.
Það er Bridssamband íslands
sem stendur að Sumarbrids. Allar
nánari upplýsingar eru gefnar á
skrifstofu sambandsins í síma 91-
689360 (Ólafur).
Bikarkeppni BSÍ
Bridssambandið minnir á skrán-
inguna í Bikarkeppni Bridssam-
bandsins, Sanitas-bikarkeppni
1988. Bridssambandið og Sanitas
hf. hafa gert með sér samkomulag
um skipulagningu þessarar bikar-
keppni. Þátttaka er öllum opin og
tilkynnist til skrifstofu Bridssam-
bandsins fyrir miðvikudaginn 18.
maf kl. 16. Eftir þann tfma verður
hætt að skrá f Sanitas-bikarkeppni
Bridssambandsins.
íslandsmótið í parakeppni
íslandsmótið í parakeppni (blönd-
uðum flokki) verður spilað f Sigtúni
9 helgina 14.—16. maf. Skráning
er vel á veg komin, en henni lýkur
miðvikudaginn 11. maí kl. 16. Spil-
aður verður barómeter með 3 spil-
um milli para, allir við alla, með
tölvuútreikningi. Öllum er fijáls
þátttaka. Skráð er á skrifstofu
Bridssambandsins, sem einnig veitir
allar nánari upplýsingar.
Skilafrestur meistarastiga
Bridssambandið minnir á að
skilafrestur áunninna meistarastiga
frá félögum/svæðasamböndum, er
mánudagurinn 16. maí. Eftir þann
tlma verður vorstigameistaraskráin
unnin og dreift til félagsmanna f
byijun júní/lok maí.
mára smna
urjjirps jíber"
meö öílu
15.980,
Snúningsfótur
úr ryðfríu stáli.
Snúningsfótur kemur í veg fyrir
að fáninn snúist upp á stöngina.
w
Allur frágangur er til fyrirmyndar.
Flagglinufesting úr varanlegu
nælonefni.
Allar festingar eru úr heit-galvan-
iseruðu stáli. Stöngin er fellanleg.
Islenskí fáninn fæst fijá okkur
í öllunt stærðum.
Jj'
Einnig\þjóðfánar flestra
annai
Allir fi gifilutir fáanlegir stakir.
SEND M UM ALLT LAND.
Ellingsen hefur undanfarin ár boðið
sænskar fánastangir frá Formenta ab.
Þessar stangir eru til afgreiðslu strax í 6, 7 og
8 metra lengdum. Aðrar lengdir eru sérpant-
aðar. Með stönginni fylgja allar festingar og
nauðsynlegir aukahlutir.
Fáninn er ekki innifalinn í verðinu.
Formenta stangirnar eru framieiddar úr þykku
„glass fiber" efni, sem stenst mjög vel ágang veðurs og
þarf ekkert viðhald. Stöngin vegur aðeins 18 kg. með
öllum festingum sem auðveldar uppsetningu og alla með-
höndlun. Við útvegum aðila til uppsetningar, sé þess óskað.
Grandagarði 2, 101 Rvík-Sími 28855