Morgunblaðið - 05.05.1988, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988
47
„Við höfum beðið nógu lengi“
Handbókin um stöðu kvenna eftir Drude Dahlerup er komin út
Jónshúsi, Kaupmannahöfn.
HANDBÓK um stöðu kvenna
eftir Drude Dahlerup lektor í
stjórnvísindum við Árósahá-
skóla kom út á dönsku á vegum
Norrænu ráðherranefndarinn-
ar 14. aprU sl. Bókin ber tákn-
rænt nafn: „Við höfum beðið
nógu lengi.“ Er verið að þýða
hana á hin Norðurlandamálin
og standa vonir til, að útgáfa
þýddu bókanna náist fyrir Nor-
disk Forum, norræna kvenna-
þingið í Ósló 30. júlí til 7. ágúst.
Hildur Jónsdóttir þýðir bókina
á íslenzku.
Að sjálfsögðu prýðir mynd frá
kvennafrídeginum 1985 í
Reykjavík forsíðu bókarinnar og
ítarleg grein er um íslenzku
kvennaiistana. Valgerður H.
Bjamadóttir ritar grein í kaflanum
„Ráð til kjósenda", en hún og
Auður Styrkársdóttir aðstoðuðu
Drude við upplýsingaöflun um
íslenzkar konur.
Handbókin skiptist í 7 aðalkafla
og þar er í lokin að fínna yfírlit
um stjómmálaflokka,' kvenna-
hreyfíngar og jafnréttisnefndir á
Norðurlöndum. Segir frá nýjum
aðferðum norrænna kvenna til að
auka þátttöku sína í stjómmálum.
Margar nytsamar upplýsingar og
sögulegt yfírlit er skráð um þróun
í fjölda kvenna á þingum land-
anna, í sýslunefndum, sveitar-
stjómum og alls kyns öðmm ráðum
og nefndum. Segir Dmde Dahlemp
í formála, að bókin sé ætluð til
notkunar fyrir konur í stjómmálum
og jafnréttisbaráttu. Upplýsingum
hafí verið safnað, einkum. frá
síðustu 15 ámm, og haft samband
við margar konur og félög kvenna.
Þá séu í bókinni greinar og marg-
ar reynslusögur skrifaðar af öðmm
höfundura, m.a. tilfærðar nokkrar
frásagnir úr bókinni „Blóm og
spark", sem kom út hjá Norrænu
ráðherranefndinni 1985, en þar
ræðir Dmde Dahlemp við konur í
stjómmálum á Norðurlöndum.
Kynningarfundur var haldinn
hjá Norrænu ráðherranefndinni í
tilefni af útkomu bókarinnar. Hon-
um stjómaði Monika Tamm-
Buckle, sem fjallar um jafnréttis-
mál hjá stofnuninni. „Kvennakór-
inn af Danmörku" söng norræna
söngva, en hann er nokkuð þekkt-
ur og telur 24 félaga. Kórinn mun
fara í æfingabúðir nálægt Ósló í
sumar og enda þar með því að
syngja á kvennaþinginu.
Höfundurinn kynnti bók sína á
fundinum og minnti viðstadda á,
að jafnrétti kæmi ekki af sjálfu
sér, fyrir því þyrfti að beijast. Hún
vonaði, að handbókin kæmi að
gagni fyrir allar konur, hvort sem
er í stjómmálum, stéttarfélögum
eða öðram félagsstörfum. Mikil
kvennareynsla sé saman komin í
bókinni; minntist hún þar sérstak-
lega á Kvennalistann á Islandi og
nefndi einnig, að jafnréttisnefndir
em ekki til í Danmörku einu Norð-
urlandanna. Mælti hún mörg
hvatningarorð og sagði að lokum,
að handbókin væri fyrir konur, sem
eins og hún sjálf vildu ekki bíða
lengur.
Dmde Dahlemp hefur unnið við
rannsóknir á kvennasögu og sam-
félagssögu og skrifað mjög mikið
um jafnréttismál og er þekkt fyrir
bækur sínar hér. Sagði hún í við-
tali við fréttaritara, að augu heims-
ins hvfldu á íslandi, hvergi annars
staðar væri hægt að koma á
kvennalistum, því flokksböndin
væm víðast of sterk. Allir á Norð-
urlöndum vissu, að Kvennalistinn
Drude Dahlerup lektor, höfund-
ur bæklingsins um stöðu kvenna.
á íslandi hefði slegið í gegn. Stefna
hans væri sambland af frjálsum
jafnréttishugmyndum og vistfræði,
byggðum á gömlu húsmóður-
dyggðunum. Þess vegna nær hann
til svo margra, en ekki aðeins sérs-
takra hópa, sagði Dmde að lokum.
Kynningarfundurinn endaði á
ijöldasöng um erfíð störf og undir-
okun kvenna, og síðan var fundar-
gestum boðið til opnunar sýningar
Svíans Oscar Reutensvárd í and-
dyri hins veglega húss Norrænu
ráðherranefndarinnar.
- G.L.Ásg.
wtiubix
UÓSRITUNARVÉLAR
TÖLVUPRENTARAR
I fararbroddi
tæknilegra framfara
SUBARU
Y,
Þegar hraða er þörf.
Þegar tíminn er peningar.
Þegar ekki er flogið.
Fjórhjóladrifni fjölskyldubíllinn
frá SUBARU er kjörbíll manna á uppleið
í krefjandi störfum.
SUBARU kemst leiðar sinnar með öllum
þeim krafti og nútímaþægindum
sem japanskt hugvit hefur upp á að bjóða.
SUBARU á stöðugri uppleið.
á..| § kIngvar
= = = § Helgason hf.
.. -g—=—-£ Sýningarsaluiinn.
—— ’ Rauðagerði |
Sími: 91 -3 35 60 a