Morgunblaðið - 05.05.1988, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988
fclk í
fréttum
Reuter
Fiskimenn frá Taiwan tnXcti myndir af „hafmeyjum" á Gullnu strönd suður af Taipei. Fegurðardísimar
fóru á ströndina síðastliðinn þriðjudag vegna myndatöku CBS sjónvarpsstöðvarinnar. Ungfrú ísland,
Anna Margrét Jónsdóttir, stendur fyrir miðri mynd.
Reuter
Þijár fegfurðardrottningfanna sem dvejja nú í Taipei við undirbúningf
„Miss Universe“ keppninnar. Önnu Margréti Jónsdóttur, 22 ára,
þarf varla að kynna, norski keppandinn heitir Bente Brunland, 21
árs, og kemur frá Osló og brasiliska stúlkan Isabel Bedushi er 18
ára gömul.
UNGFRÚ ALHEIMUR
Fegurðardísirnar
mættar til leiks
Keppni um titilinn „Miss Universe“ eða Ungfrú alheimur fer fram mánudag-
inn 23. maí, annan i Hvítasunnu, í Taipei sem er höfuðborg eyjarinnar
Taiwan suðaustur af Kína. Fegurðardísimar eru nú þegar komnar til Taipei
til ýmiskonar undirbúnings. Fulltrúi íslands í keppninni er Ungfrú ísland
1987, Anna Margrét Jónsdóttir. Keppninni verður að sjálfsögðu sjónvarpað
beint víða um lönd. Þetta er í 37. skiptið sem keppnin um Ungfrú alheim fer
fram.
Þessarimynd
var smelltaf
nokkrum
keppendanna
umtitilinn
Ungfrú al-
heimurá
kynningar-
kvöldiílok
aprfl. Fegurð-
ardrottningar
Kóreu, Sin-
gapúr, Grikk-
lands, Malasíu
ogSriLanka
eru býsna
glaðbeittar.
HÚNAVAKA Á BLÖNDUÓSI
Söngurinn kom úr
Skagafirði en
flosískan að sunnan
Húsfyllir var á Vökudraumi
Húnavöku sem Ungmenna-
samband A-Húnavatnssýslu
gekkst fyrir á dögunum. Ketmats-
maðurinn Flosi Ólafsson flutti
hátíðarræðu kvöldsins en séra
Hjálmar Jónsson stýrði hátíðinni.
í stuttu máli má segja að það
hafi verið þreifandi §ör og fór þar
fremstur Kvosar-bóndinn og ket-
matsmaðurinn Flosi Ólafsson.
Flosi kom víða við í ræðu sinni
og séra Hjálmar fór á kostum eins
og við var að búast og urðu marg-
ar vísur til þetta kvöld. Fleiri
komu við sögu á Vökudraumnum
en Hjálmar og Flosi og má þar
nefna tónlistarfólk úr Skagafirði.
Bræðumir Pétur og Sigfús Pét-
urssynir frá Álftargerði og Bjöm
Sveinsson frá Varmalæk í Skaga-
firði sáu um sönginn og píanóund-
irleikur var í höndum Sólveigar
S. Einarsdóttur frá Mosfelli. Sól-
veig og Katharina L. Seedell
flautuleikari léku einnig saman
nokkur þekkt klassísk verk.
Leikhópur frá Skagaströnd
flutti nokkur létt lög og mátti í
þeim greina áhrif frá Hallbimi
Hjartarsyni og hinum mikla §ölda
bankaútibúa á Skagaströnd.
Grunnskólanemar á Blönduósi
botnuðu Vökudrauminn með end-
ursýningu á hinni frábæru rokk-
sýningu sinni. Það var geysilega
góð stemmning á þessari hátíð
og var listafólki mjög vel tekið.
Jón Sig.
Aðalræðumað-
ur Vökudraums
var Kvosar-
bóndinn og ket-
matsmaðurinn
FIosi Ólafsson.
Bræðumir Pétur og Sigfús
Péturssynir skemmtu með söng
á Vökudraumnum við undirleik
Sólveigar S. Einarsdóttur.
Morgunblaðið/J ón Sig.