Morgunblaðið - 05.05.1988, Side 58

Morgunblaðið - 05.05.1988, Side 58
I 58 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988 A HÖGNI HREKKVÍST „fjETTA CrR. Sl/AKA KATTAMATAfSAUQcýsiNG!'' Vargfugh fjölgar af mannavöldum Til Velvakanda. Fyrir nokkru var fjallað um fjölg- un vargfugls í Velvakanda og talað um nauðsyn þess að fækka honum. Ná á það sína skýringu að varg- fugli hefur fjölgað og hún er að mikið æti fellur til fyrir hann. Fýll- inn er að vísu ekki talinn til varg- fugla en honum hefur fjölgað mikið ekki síður en máfnum. Þessir fuglar sitja um að komast í slóg sem fleygt er af fískiskipum. Eins komast þeir oft í fískúrgang frá fískvinnslum. Væri hætt að kasta fískúrgangi fyrir fuglinn og fískúrgangurinn nýttur t.d. sem áburður, myndi fugl- unum fækka án þess að fleira þyrfti að koma til. Einnig þyrfti að ganga betur um öskuhauga því þeir eru víða uppeldisstöðvar fyrir hrafna. Vargfuglinum flölgar af manna- völdum og þyrftum við að taka okkur á í þessu efni. Spurst fyrir um hjúkrunarkonu Maður nokkur í Færeyjum hefur leitað aðstoðar Morgunblaðsins við að komast í samband við hjúkrunar- konu, sem starfaði í hjúkrunarliði spítalans I Vestmannaeyjum haustið 1942 — á styijaldarárunum. — Þá kom þessi maður, sem heitir Malm- berg Simonsen, til heimilis í Sörvági í Færeyjum, á spítalann í Eyjum ásamt tveim skipsfélögum sfnum. Hann segir að þar hafí þá verið í hjúkrunarliðinu mæðgur. Teiur hann dótturina hafa starfað þar til margra ára og verið þar f stöðu yfírmanns. Sjálfur er bréfritarinn nú 68 ára. Hann væntir þess að hjúkrunarkon- an, sem hann ræðir hér um, hringi til sín, en á heimili hans f Sörvági er síminn 32Í21. Mér ofbýður fégræðgin Til Velvakanda. Nýlega fékk undirritaður bréf frá Verðbréfamarkaði Iðnaðar- bankans hf. Svarbréf mitt, sem ég bið að verði birt, var á þessa leið: Hefí móttekið bréf þitt dags. 20. þ.m. og kynningarbækling um verðbréfamarkað. Fjarri fer því að ég hafí áhuga fyrir þessari starfsemi. Mér fínnst sannast að segja áhyggjuefni þegar fyrirtæki í bankakerfínu eru farin að reka áróður fyrir braski. Ég sé ekki betur en að þetta verðbréfafargan sé orðið þjóðhættuleg iðja, helst til þess fallin að gera hina ríka ríkari og hina fátæku fátækari, og um leið öflugt tæki til að grafa undan undirstöðuatvinnuvegum landsmanna sökum þenslu, vaxta- okurs og vaxandi fjármagnskostn- aðar sem þessu fylgir. Eða halda menn kannski að þjóðin geti til lengdar lifað á þjónustu, fjölmiðl- um, verslun og hvers konar braski í ótal myndum eftir að framleiðslu- greinamar eru famar að riða til falls? Þvílík blinda og skammsýni. Mér ofbýður fégræðgin, sem blómstrar á Reylqavíkursvæðinu, öfgafullar og ótímabærar fjárfest- ingar, öll sóunin og eyðslan hjá peningavaldinu og bröskurunum þar meðan byggðunum utan þessa svæðis er meira og minna að blæða út. Það er augljóst mál að ef þjóð- in, það er að segja sá hluti hennar sem ræður ferðinni i öllu þessu bmðli og braski, nær ekki áttum á sínum glapstigum, verður þess ekki langt að bíða að dansinn í kring um gullkálfínn steypi sjálf- stæði hennar í glötun. Friðjón Guðmundsson, Sandi, Aðaldal. Víkverji skrifar Ef að líkum lætur á sumarið sem nú fer í hönd eftir að bera mikinn svip af því að Ólympíuleikar verða haldnir í Seoul í Suður Kóreu síðar á árinu. Fremsta íþróttafólk heims verður í sviðsljósinu þar og ekkert er til sparað svo árangur megi verða sem bestur. íslendingar senda sterkan hóp til Seoul með handknattleikslandsliðið, Bjama Friðriksson júdókappa, spjótkastar- ana Einar Vilhjálmsson og Sigurð Einarsson og sundmanninn Eðvarð Þór Eðvarðsson í fararbroddi. Bjami hefur bronsverðlaun frá leik- unum í Los Angeles 1984 að veija og þá, og í heimsmeistarakeppninni í Sviss 1986, varð handboltalands- liðið í sjötta sæti. íslenski hópurinn hefur ekki end- anlega verið valinn. Auk þessara garpa berjast fleiri sund- og frjáls- íþróttamenn og siglingamenn við reglugerðir og Olympíulágmörk sem tiyggja farseðilinn á íþrótta- hátíðina í Seoul. XXX Iraun er það með ólíkindum hversu framarlega íslenskir iþróttamenn standa í einstökum greinum miðað við fámenni þjóðar- innar og aðstöðuleysi í samanburði við stórþjóðimar. Handboltalands- liðið er gott dæmi um hvað hægt er ef vilji og samstaða býr að baki. Til skamms tíma var talað um hand- knattleik sem vetraríþrótt og fengu handknattleikskappar yfírleitt frí frá æfingum og keppni yfír sumar- tímann. Þetta hefur breyst á síðari ámm og ef lið ætla sér að vera í fremstu röð þýðir ekki annað en að halda sér við efnið allan ársins hring. íslenzka landsliðið er þessa dagana að ljúka keppnisferð til Jap- an og fram að Ólympíuleikunum í Seoul em margir landsleikir og strangar æfíngar. Vissulega kostar mikla peninga að fjárfesta í árangri, en fólk er tilbúið að hjálpa ef úrslit- in em hagstæð. Þjóðin gekk af göflunum meðan á keppninni í Sviss stóð fyrir tveimur ámm og ætli handboltahitasóttin taki sig ekki upp í haust þegar Þorgils Óttar og félagar stíga á sviðið í Seoul. XXX A Islandsmótið í knattspymu byijar í lok næstu viku og gera spark- áhugamenn sér vonir um skemmti- legt og spennandi mót. Það er þó ekki aðeins i 1. deild sem barist er og Víkveiji varð vitni að því fyrir réttum tíu ámm hvemig vinalegt sjávarpláss austur á landi snerist gjörsamlega út af gengi 2. deildar- liðs staðarins. Á góðviðrisdögum kom helmingur bæjarbúa á völlinn og menn vom ýmist hetjur eða óal- andi. Ekki var talað um annað en fótbolta er tveir menn hittust á götuhomum og á netaverkstæði bæjarins vom veggir þaktir með úrklippum úr d'agblöðum þar sem sagt var frá einstökum leikjum liðs- ins. Blöðin vom vegin og metin á grimmilegan hátt út frá því hvemig þau sögðu frá leikjum liðsins. Neta- nálar og melspímr fengu hvfld meðan hitafundir vom haldnir á netaverkstæðinu um liðsskipan og leikaðferðir. XXX Yngra íþróttafólkið þarf líka athygli og tíma. Skipulagning móta fyrir krakkana er mikið mál, en því miður hefur ýmislegt farið úr böndum í þeim efnum. Þáttur foreldra og aðstandenda í íþrótta- starfí krakkanna er dýrmætur og ekki spuming um að hann skilar sér fyrir foreldra, félag viðkomandi og bamið sjálft. Þetta getur þó far- ið út í öfgar eins og kunningi Víkveija varð vitni að á dögunum. Kappleikur var þá í fullum gangi á milli liða 11 ára stráka og sannar- lega var móðir tveggja drengja í öðm liðinu þátttakandi í barátt- unni. Hún hvatti strákana sína óspart og brýndi þá til dáða. Þegar henni fannst þeir ekki standa sig sendi hún þeim tóninn svo það vakti athygli og þegar henni blöskraði áhugaleysi annars þeirra hrópaði hún inn á völlinn: „Á ég að sækja fyrir þig stól drengur." 4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.