Morgunblaðið - 05.05.1988, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988
63
fcRÚm
FOLK
■ JOHAN Cruyff verður næsti
þjálfari knattspymuliðs Barcelona
á Spáni og tekur reyndar við því
starfi strax f dag. Vangaveltur hafa
verið uppi í marga mánuði um hvað
Cruyff mjmdi gera en hann hætti
sem þjálfari Ajax fyrr í vetur. Hann
tilkjmnti í gær að hann hefði ákveð-
ið að taka boði Barcelona. Ekki
vildi hann gefa upp hver laun hans
yrði, en spánsk blöð sögðu að hann
fengi um eina milljón dollara fyrir
árið, en það er andvirði tæplega
40 milljónir íslenskra króna.
■ LEIKMENN AC MÍIanó fá
ágæta uppbót ef þeim tekst að sigra
í 1. deildinni á Ítalíu. Hver leikmað-
ur fær rúmar sex milljónir ísl. kr.
í sinn hlut. Þess má geta að tekjur
AC Mílanó af aðgangseyri á leik
liðsins gegn Napóli um helgina
voru sem svarar 90 miUjónum ísl.
kr. Ofan á það bætist svo svipuð
upphæð í auglýsingatekjur.
■ DÓMARARAÐSTEFNA f
knattspymu, sem var frestað um
sl. helgi, verður haldin um næstu
helgi. Ráðstefnan hefst með þol-
prófi dómara f Laugardalnum kl.
12 á laugardaginn.
■ JÓN Kristjánsaon hefur
ákveðið að leika með KA í knatt-
spymunni í vetur. Jón varð íslands-
meistari með Val. í haridknattleik f
veturj en hyggst leika við hlið br®ð-
ir sfns, Erlings hjá KA í sumar.
Þetta kom fram í Degi í vikunni.
KA sigraði Val í æfingaleik um
helgina, 3:1. Ágúst Sigurðsson,
Valgeir Barðason og Óm Viðar
Amarson skoruðu mörk KA, en
Siguijón Kristjánsson minnkaði
muninn fyrir Val.
■ ENGLENDING URINN Col-
in Tacker mun ekki leika með KS
í 2. deild knattspjnuunnar í sumar.
Siglfirðingar vonuðust til þess að
hann kæmi í sumar, en af því varð
ekki. Þó munu tveir Englendingar
leika með KS f sumar, þeir Steve
Rutter og Paul Frainer.
I DA VW O’Leary hefur lfkiega
Ieikið sinn sfðasta leik með frska
landsliðinu í knattspymu. Jack
Charlton þjálfari frska landsliðsins
sagði að O’Leary yrði ekki í hópn-
um sem fer f Evrópukeppnina í
sumar og líklega ekki framar f
landsliðinu: „O'Leary hefur gert
fátt annað en kvartað yfir því að
hann skuli ekki vera aðalmaðurinn
f landsliðinu. En hann hefur brotið
einu regluna sem ég set mönnum,
að þeir mæti á æfingar og verði
ekki til vandræða," sagði Charlton.
■ ENGLENDINGAR hafa mót-
mælt nýjum reglum sem UEFA
setti í fyrradag. Þar segir að lið
megi aðeins nota Qóra útlendinga
f Evrópumótum félagsliða. Eng-
lendingar hafa þó ekki mótmælt
þvf, heldur að Bretar skuli ekki
vera talin sem ein þjóð. Graham
Kelly ritari enska kanttspymusam-
bandsins segir að þetta muni breyta
miklu hvað varðar kaup leikmanna
milli landa: „Við höfum aldrei litið
á Skota, íra og Walesbúa sem út-
lendinga." Fleiri hafa mótmælt
þessari reglu t.d. Colin Harvey
framkvæmdastjóri Everton: „Ég
held að ensk og skosk lið sætti sig
ekki við þetta.“ Þess má geta að í
bjnjunarliði Liverpool, sern mætti
Juventus í úrslitaleik Evrópukeppni
meistaraliða 1985, voru aðeins tveir
Englendingar og þegar Everton
vann Evrópukeppni bikarhafa 1985
voru aðeins fimm Engiendingar f
liðinu.
■ ÓEINKENNISKLÆDDIR
lögregiumenn munu fylgja áhang-
endum PSV til Stuttgart þar sem
liðið mætir Benfica í úrslitaleik
Evrópukeppni meistaraliða. Reikn-
að er með að 16.000 áhorfendur
fari frá Hollandi á leikinn. Átta
lögreglumenn verða í þessum hóp
og hafa þeir sérhæft sig f óláta-
belgjum f hollensku knattspym-
unni. Þeir munu vinsa úr þá sem
þekktir eru fýrir slæma framkomu,
áður en hópurinn heldur til Stuttg-
art.
KNATTSPYRNA / VINÁTTULANDSLEIKUR
Reuter
QuAmundur Baldursson mátti hirða knöttinn þrisvar úr netinu hjá sér í gær í Búdapest. Hér er knötturinn á leiðinni
í mark í annað sinn f leiknum eftir skot Sandor Sallai á 62. mín.
HANDKNATTLEIKUR / VESTUR-ÞÝSKALAND
Stórsigur Essen
gegn Massenheim
í fyrri bikarúrslitaleiknum. Alfreð mjög góður
Eins og búast mátti við vann
Tusem Essen stóran sigur á
Wallau Massenheim, er liðin
mættust í fyrri úrslitaleik vestur-
þýsku bikarkeppn-
innar f gærkvöldi.
Úrslitin urðu
25:18 og þar sem
leikið var f Mass-
enheim — og viðureignin í Essen
þvf eftir — má bóka sigur Essen
í keppninni.
Það má segja að allt loft hafi
Frá
Jóhann Inga
Gunnanssyni
ÍÞýskalandi
verið úr leikmönnum Wallau eftir
að þeir sluppu naumlega við fall
í 2. deild um helgina. Annað var
upp á tengingum hja leikmennum
Tusem Essen. Þeir ætla sér greini-
lega að verða bikarmeistarar til
að tryggja sér Evrópusæti næsta
ár. Það var aðeins í bjnjun sem
jafnræði var með liðunum en sfðan
AHrai OislMon.
má segja að aðeins eitt lið hafí
verið á vellinum.
Staðan f hálfleik var 10:4 og loka-
tölur 25:18 sem fyrr segir. Síðari
leikurinn verður næsta sunnudag.
Essen lék mjög vel í gær, en
Wallau var langt frá sínu besta.
Fýrir þremur vikum mættast liðin
á sama stað, f deildinni, og þá
vann Wallau vann með 7 mörkum.
Jochen Fraatz hjá Essen, gerði 9
mörk. Alfreð lék einnig mjög vel,
skoraði 6 mörk, og gerði Finnann
Kallmann algjörlega óvirkan. Sá
skoraði ekki eitt einasta mark
utan af velli, þökk sé Alfreð.
Hann var þó markahæstur f liðinu
með 5 mörk, en þau voru öll gerðu
úr vítum.
Undirritaður er handviss um að
leiki Essen eins vel og í kvöld
gegn CSKA Moskvu f úrslitum
Evrópukeppni meistaraliða þá
fellur Evrópumeistaratitilinn lið-
inu f skaut, auk þýska bikarsins.
Mistök í -
Búdapest
ísland fékk á sig
þrjú ódýr mörk
ÞRJÚ slæm varnarmistök kost-
uðu íslenska landsliðið f knatt-
spyrnu þrjú mörk f Búdapest í
gær. íslendingar töpuðu, 0:3,
fyrir Ungverjum í vináttulands-
leik. Aðeins 3.500 áhorfendur _
voru á NEP-þjóðarleikvangin-
um í Búdapest á þessum fyrsta
leik þjóðanna.
Istvan Vincze skoraði fyrsta mark
Ungveija á 45. mín., beint úr
aukaspjrmu. Hann sveiflaði vinstri
fætinum og knötturinn hafnaði efst
upp í markhomi fslenska marksins.
íslensku leikmennimir fengu ekki
tækifæri til að byija með knöttinn
á miðju áður en dómari leiksins
flautaði til leikshlé. „Það var súrt
fyrir strákana að koma inn í hálf-
leik 1:0 undir vegna þess að þeir
stóðu sig vel í fyrri hálfleik. Það
var mildð áfall að fá á sig mark á
þessum tíma,“ sagði Guðni Kjart-
ansson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, í
samtálí við Morgunblaðið í gær-
kvöldi. Ragnar Margeirsson fékk -
gullið tæRiifjæri til að skora í fyrri •
' hálfleik kortist ehjninn fyrir vöm-
ina, lyfti knéttinum yfir úthlaup-
andí markvörðinn, en yfir markið
líka.
Sandor Sallai bætti öðra marki við
á 62. mín., eftir mistök Guðmundar
Baldurssonar, markvarðar. Ung-
veijar bættu þriðja markinu við
rétt fyrir leiksiok. Kalman Kovace»-
komst þá inn í misheppnaða send-
ingu Þorvaldar Örlygssonar, sem
ætlaði að senda knöttinn til Guð-
mundar, markvarðar. Kovacs þakk-
aði fyrir sig og sendi knöttinn í
netið.
Það var greinilegt á leiknum í gær
að margir fslensku leikmannanna
era ekki komnir í nógu góða leikæf-
ingu. „Þeir leikmenn sem komu að
heiman vora orðnir þreyttir þegar
líða tók á Ieikinn," sagði Guðni.
Þrjú „gjafamörk" litu dagsins að
hans sögif.
fslenska liðið var þannig skipað: Guðmundur
Baldursson, Gunnar Gíslason, Sœvar Jónsson,
Atli Edvaldsson, Ólafur Þórðarson (Þorvaldur
ÖriygBson vm. á 80. mín.), Viðar Þorkeisson,
Ómar Torfason, Pétur Ormslev, Pétur Arn—
þórsson (Rúnar Kristinsson vm. á 46. mín.),
Ragnar Margeirsson og Guðmundur Torfason.
KNATTSPYRNA / UEFA-KEPPNIN
Reuter
Laikmæin LmwrkuMn ninnu heldur betur á rassinn f gær á Spáni. Hér
hefur Gotz misst af boltanum. Gallart fylgist með.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Loks sigraði Forest
Nottingham Forest sigraði Norwich 2:0 í ensku 1. deildinni í gær-
kvöldi með mörkum Neil Webb og Lee Glover. Liðið komst við þetta
í 3. sæti. Þá vann Tottenham sigur á Luton, 2:1. Steve Hodge og Gary
Mabbutt gerðu mörk Spurs en Ashley Grimes setti mark Luton.
Espanol með aðra
hönd á bikamum
Sigraði Leverkusen 3:0 á Spáni
SPÁNSKA félagið Espanol er
komið maö aöra höndina á
Evrópubikar félagsliða, UEFA-
bikarinn, eftir 3:0-sigur á Bayer
Leverkusan fri Vestur-Þýska-
landi f gærkvöldi. Þetta var fyrri
úrslitaleikur liðanna f kappn-
inni og var leikíð á Spáni.
etta var 15. Evrópuleikur Le-
verkusen og sá fyrsti sem liðið
tapar. Þjóðveijamir höfðu frum-
kvæðið mest allan fyrri hálfleikinn,
en á sfðustu mfnútu hans náðu
heimamenn að skora. Þar var að
verki ungur leikmaður, Sebastian
Losada, sem er lánsmaður frá Real
Madrid. Hann skallaði glæsilega í»
þverslá og inn eftir fyrirgjöf frá
vinstri. Vinstri bakvörðurinn Miguel
Soler gerði annað markið fljótlega
f seinni hálfleik með föstu skoti
neðst f homið frá vítateig og á 57.
mín. gerði Losada sitt annað og
þriðja mark Spánveijanna. Þar með
voru úrslitin ráðin; Spánveijamir
vora reyndar nær því að skora
flórða mark sitt en Þjóðveijamir
sitt fyrsta.
FIRMA-0G FÉLAGAKEPPNI
BREIÐABLIKS
í utanhússknattspyrnu
á Vallgerðisvelli 12., 13. og 14. maí. Úrslit sunnudaginn 1S.
maí. Glæsileg verðlaun í boði. 7 manna lið. Verð: 6.500 pr. lið.
Þátttaka tilkynnist Ara Þórðarsyni í vs. 687600/hs. 41724,
Andrési Péturssyni í vs. 17450/hs. 36305 eða Sigurði Thorarens-
en í vs. 672244/hs. 41973 fyrir mánudaginn 9. maí.