Morgunblaðið - 06.05.1988, Side 1
102. tbl. 76. árg.
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Korri er hænsnfugl, ekki
óskyldur rjúpunni.
Svíþjóð:
Korri held-
ur þorpi í
helgreipum
Stokkhólmi, Reuter.
ILLSKEYTTUR korri hefur
að undanförnu ráðist á svo
marga þorpsbúa í þorpinu
Sikhjalma í Austur-Svíþjóð,
að menn sáu sig tilneydda til
að kalla á laganna verði.
Um síðir tókst lögregluþjón-
unum að fleygja teppi yfir
korrann. Var honum ekið 10 km
frá þorpinu til þess að menn
gætu gengið óhultir utan dyra.
Sú ráðstöfun hrökk þó engan
veginn til, því að þremur dögum
liðnum var korrinn kominn aftur
og hálfu verri viðureignar en
nokkru sinni fyrr. Var málum
svo komið að fuglinn réðist á
allt sem hreyfðist og héldu
þorpsbúar kyrru fyrir á heimil-
um sínum.
Nú hafa skógarverðir verið
kallaðir til. og hyggjast þeir
handsama korrann og flytja
hann langt frá byggðum. Þar
vona þeir að gnægð skógarhæna
verði til þess að korrinn uni glað-
ur við sitt og haldi kyrru fyrir.
Walesa vígreifur í umsátrinu:
„Stjórnin stefnir
þjóðinni í glötun“
Varsjá. Reuter.
LECH Walesa, leiðtogi Samstöðu, óháðu verkalýðsfélaganna, og 3.000
starfsfélagar hans höfðust enn við í Lenin-skipasmíðastöðinni í Gdansk
í gærkvöldi, en lögregla umkringdi stöðina f gærmorgun eftir að yfir-
stjórn hennar ákvað að loka stöðinni vegna verkfalls starfsmanna.
Walesa sagðist myndu hverfa sfðastur úr skipasmíðastöðinni. Hann
sagði kröfur verkfallsmanna sanngjarnar og ættu þeir ekki annarra
kosta völ en knýja þær fram. „Ríkisstjórnin stefnir þjóðinni f glötun.
Hún er úrræðalaus og ég er hættur að botna f gjörðum hennar,“ sagði
í yfirlýsingu Walesa, sem smyglað var út úr stöðinni í gær.
á brott úr byggingum í nágrenni
skipasmíðastöðvarinnar í gær og
þótti það benda til þess að lögreglan
undirbyggi áhlaup á stöðina.
í fyrrinótt gerði þúsund manna
lögreglulið innrás í stáiver við Kraká
og handtók forystumenn verkfalls-
manna.
Að sögn sjónarvotta óku 140 lög-
reglubílar að stálverinu í skjóli næt-
ur og réðust þúsundir lögreglu-
manna til inngöngu um klukkan tvö
eftir miðnætti. Hentu þeir blossa-
og höggsprengjum inn í sal þar sem
verkfallsmenn voru sofandi. Veittu
verkfallsmenn enga mótspymu en
voru samt barðir með kylfum og
stórsá á mörgum þeirra. Alls voru
38 menn handteknir, þ. á m. 13 af
15 manna verkfallsstjóm, sem skip-
uð var Samstöðumönnum.
stöðu Jacques Chiracs
Walesa og fylgismenn hans neit-
uðu að yfírgefa stöðina eftir lokun-
ina og sögðust þeir í gærkvöldi eiga
von á áhlaupi hers- og iögreglu, jafn-
vel í nótt. Umsvif lögreglu við stöð-
ina fóru vaxandi er á daginn leið.
í ávarpi Walesa, sem smyglað var
út úr Lenín-skipasmíðastöðinni í
gær, sagðist hann sannfærður um
að lögreglan mundi gera samskonar
áhlaup og í stálverinu í Kraká. Hann
sagði að verkfallsmenn, sem lokuðu
sig inn í stöðinni, myndu ekki veita
neina mótspymu, ef lögreglan gerði
Lögreglumenn halda aðstandendum verkfallsmanna í hæfilegri fjarlægð frá Lenín-skipasmiðastöðinni. áhlaup. Lögreglumenn skipuðu fólki
Frelsun gísla styrkir
Mitterrand óhress með framgöngn víkingasveitarinnar á Nýju Kaledóníu
Parfs. Reuter.
JACQUES CHIRAC, forsætisráðherra Frakklands, er sagður hafa
stórbætt stöðu sína f gær fyrir seinni umferð frönsku forsetakosn-
inganna, sem fram fara næstkomandi sunnudag. Þá komu til
Parísar þrír franskir gíslar, sem verið höfðu fangar mannræn-
ingja í Líbanon f þrjú ár og franskar víkingasveitir frelsuðu 22
herlögreglumenn og einn dómara úr klóm skæruliða aðskilnaðar-
sinna á Nýju-Kaledóníu. Loks voru i gær birtar tölur um mikinn
hagnað af utanríkisverzlun Frakka i marz og eru það sagðar
góðar fréttir fyrir Chirac.
Chirac harðneitaði því að
Frakkar hefðu borgað lausnar-
gjald fyrir gíslana en frammámenn
ríkja, sem eiga gísla í Líbanon,
sögðust óttast að enn erfiðara yrði
að fá gísla lausa hér eftir, ef
Frakkar hafa látið undan kröfum
mannræningjanna. Denis Baudou-
in, talsmaður Chiracs, sagði hins
vegar að Frakkar hefðu borgað
írönum þriðjung af láni, sem fryst
var er klerkamir steyptu írans-
keisara af stóli árið 1979, eða 330
milljónir dollara. Stjóm Chiracs
borgaði sömu upphæð skömmu
eftir að hún komst til valda í
marz 1986 og Baudouin sagði að
verið væri að semja um endur-
greiðslu þess, sem enn væri
ógreitt.
Hermt er að Hafez al-Assad,
Sýrlandsforseti, hafí leikið lykil-
hlutverkið í lausn gíslamálsins
með því að koma á sáttum í deilu
írana og Frakka, sem ráku íranska
sendiherrann úr landi í fyrra í kjöl-
far sprengjuherferðar í París.
Chirac þakkaði bæði írönum og
Sýrlendingum fyrir aðstoð við
frelsun gíslanna í gær og sagði
að ekkert hindraði lengur að eðli-
legu stjómmálasambandi yrði
komið á við Teheran. Þegar Chirac
komst til valda einsetti hann sér
að fá alla franska gísla í Líbanon
leysta úr haldi. Hefur það nú
tekizt og er hann eini vestræni
leiðtoginn, sem náð hefur þeim
árangri. Alls er um að ræða 10
gísla.
Lausn gíslamálsins í Líbanon
og Nýju-Kaledóníu var fagnað í
Frakklandi en viðbrögð Francois
Mitterrand, forseta, og öfga-
mannsins Jean-Marie Le Pen,
stungu þó í stúf. Mitterrand gagn-
rýndi aðgerðir víkingasveitarinnar
á Nýju-Kaledóníu og sagðist hafa
fremur kosið samninga og sátta-
umleitanir. Le Pen sagði að með
því að semja við hryðjuverkamenn
um gíslana í Beirút hefði frönsku
þjóðina sett niður.
Samkvæmt skoðanakönnunum,
sem birtar voru í síðustu viku, var
Mitterrand talinn ömggur með
sigur í kosningunum á sunnudag.
Þar sem skoðanakannanir era
bannaðar síðustu vikuna fyrir
kosningar er útilokað að segja
hvaða áhrif gíslamálið og atburð-
imir á Nýju-Kaledóníu hafa.
Menn, sem málum er kunnugir,
vora þó sammála um að hagur
Chiracs hefði vænkazt.
Sjá fréttir af gíslamálunum á
bls. 30-31 og grein um for-
setakosningarnar á bls. 32-33.
Bein sjónvarpsútsending
frá tindi Mount Everest
Khatmandu, Reuter.
SÝNT VAR í fyrsta skipti í beinni útsendingu frá hæsta fjallstindi
veraldar í sjónvarpsstöðvum i Japan, Kína, Nepal og Suður-Kóreu
í gær. Þar sáust japanskir, tíbeskir og nepalskir fjallgöngumenn á
leið niður af hæsta tindi á Mount Everest, en þeir hyggjast verða
fyrstir til að ganga þvert yfir fjallið. Hafa tveir flokkar manna klif-
ið tindinn samtímis úr gagnstæðum áttum.
í útsendingunni sáust þrír fjall-
göngumenn leggja af stað niður
fjallið til Nepals, en þeir höfðu klif-
ið það frá Tíbet. Aðrir þrír klifu
fjallið frá Nepal og einn þeirra ætl-
ar að fara niður Tíbetmegin. Ef
þeim gengur allt að óskum verða
þeir fyrstir til að ganga yfír fjallið
frá norðri til suðurs og frá suðri til
norðurs.
Beina útsendingin hófst um tutt-
ugu mínútum eftir að fjallgöngu-
mennimir komu upp á tindinn, sem
er 8.848 metra að hæð. í byijun
beinu útsendingarinnar frá þessum
efsta punkti jarðarkringlunnar sást
hópurinn sem fyrr kom á tindinn
veifa fánum Japans, Kína og Nep-
als.
Það er japönsk sjónvarpsstöð sem
ber kostnað af för þessara tveggja
flokka upp á Everest. Er til fjall-
göngunnar efnt að tilhlutan stöðv-
arinnar og hafa Ijallamennimir bor-
ið myndavélar í hjálmum sínum og
þaðan var sent beint frá klifri
þeirra.